Þjóðviljinn - 07.05.1983, Blaðsíða 13
Helgin 7. - 8. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Jazzvakning gefur út hljómskífu til minningar um Gunnar Ormslev
Jazz í 30 ár. —
Lífið er stutt en listin
Eftirfarandi saga erhöfð eftir
JóniMúla, djassgjeggjara með
meiru: „ Eitt sinn er ég varað
tala um djassmúsíkk við Duke
Ellington, þá skildi hann ekki
hvað ég varað segja eða hvað
ég varað tala um. Það varekki
fyrr en löngu síðar aðhann
áttaðisig og sagði: „ Oh mister
Múli,youmean
JAAAZZZZZ!"
íslensk djasssaga
Það er mikið af „jaaazzzzi" á
þriðju skífu Jassvakningar, sem
kom út skömmu fyrir páska. Ber
hún heitið Jazz í 30 ár og er gefin út
til minningar um Gunnar Ormslev.
Gunnar blés djass í saxafóna í rúm-
lega þrjátíu ár, en hann lést 20.
apríl 1981. Efni skífunnar spannar
tímabilið frá 1949 til 1979 og að
sjálfsögðu margra grasa. Upptök-
urnar eru fengnar víða að, frá Rík-
isútvarpinu, Danmarks Radio og
Moskvuútvarpinu, auk þess sem
fjöldi einstaklinga lánaði efni. Milli
40 og 50 hljóðfæraleikarar korna
fram á skífunni. Mætti segja að hér
sé kominn fyrsti kaflinn í Jazzsögu
íslands.
íslenskir og
erlendir meistarar
Elsta upptakan er frá 1949, með
GÁG tríóinu, þar er Gunnar
Ormslev á tenór, Árni Elvar á pí-
anó og Guðmundur R. Einarsson á
trommur. Menn sem áttu eftir að
láta að sér kveða í íslenskum djass-
heimi. „Greinilegt er að piltarnir
hafa pælt í Gene Krupa tríóinu.."
segir Vernharður Linnet um þetta
lag. Gæði upptökunnar eru í sam-
ræmi við tímann og það er fjörug
sveiflan einnig. Hljómsveit Björns
R. Einarssonar á tvo „standarda",
annar þeirra er Jumpin at the Woo-
dsid eftir Count Basie. Upptakan
frá 1950, Gunnar á tenór en Björn
R. „blæs" á harmónikkuna til að ná
upp bigg band stemmningunni.
Síðan rekur hver upptakan aðra
næsta áratuginn og fleiri spilarar
bætast í hópinn. Vil ég sérstaklega
geta fyrsta lags skífunnar, sænsks
þjóðlags sem heitir Frá Verma-
landi, flytjendur Kvintett Gunnars
Ormslevs. Kunnugleg melódía og
ljútlega spiluð, minnir óneitanlega
á blástur Stans Getz, enda engin
furða, hann hljóðritaði þessa
þjóðvísu árið áður, og var í miklu
uppáhaldi hjá Gunnari.
Árið áður, 1951, heimsóttu ís-
land fyrstu bandarísku djass-
meistararnir. Það voru þeir Tyree
Glenn, víbrafónleikari og gamall
sveiflumeistari, og Lee Konitz á
altósaxafón, þá einn af nýtískuleg-
ustu djassleikurum þessara ára.
Þeir spila fjörugt lag, Prelido, og
með þeim eru Gunnar á tenór, Jón
Sigurðsson á trompet, Björn R.
Einarsson á básúnu, Magnús Pét-
ursson á píanó, Jón Sigurðsson á
bassa og Guðmundur R. á tromm-
ur, úrvalssveit þessara ára. Tón-
leikunum var útvarpað og fannst
þessi upptaka á bréfsegulbandi og
er því ekki hægt að hrópa húrra
fyrir tóngæðunum en sveiflan er
pottþétt, enda mikið klappað á
eftir.
Þá var nú fjörid...
Kennslustund í botnlausu fjöri
og hörkusvingi er Gunnar’s blues
Gunnar Ormslev
með The Icelandic All-star eða
Stjörnubandinu eins og það var
nefnt. Upptakan úr Breiðfirðinga-
búð 1955. Þar eru Gunnar á tenór,
Gunnar Reynir Sveinsson á víbra-
fón, Kristján Magnússon á píanó,
Sigurbjörn Ingþórsson á bassa og
Guömundur R. Einarsson á trom-
mur. Þeir tveir síðustu eiga smellið
dúó í laginu.
Næsta heimsókn erlendis frá er
þegar austurríski píanóleikarinn
Friedrich Gulda kom hingað 1959
og spilaði með úrvalsliði í Fram-
sóknarhúsinu (hvar er nú það? spyr
einn undir þrítugu). Lögin flest al-
þekkt, eins og Lady be good eftir
Gershwin hjónin, Fll rementber
april o.fl. Þarna kemur m.a. fram
Jón Páll á gítar. Átti fingraleikni
hans eftir að setja sérstakan svip á
djassinn hér næstu árin á eftir.
löng
Gulda mun einnig hafa spilað með
sinfóníunni, greinilega nokkuð
glúrinn spilari.
.. og líka
fyrir austan
Það var Moskvuútvarpið sem sá
til þess að við getum heyrt stuðið
sem var á heimsmóti lýðræðissinn-
aðrar æsku og stúdenta í Moskvu
1957. Þat lék hljómsveit Gunnars
Ormslevs m.a. Little white lies
með þá Gunnar og Viðar Alfreðs-
son á tenór og trompet en Árni
Elvar, Sigurbjörn og Guðjón Ingi
Sigurðsson sáu um ryþmasveitina.
Þessi hljómsveit með Hauk Morth-
ens í fararbroddi sló í gegn á þessu
móti.
Frá sjöunda áratugnum eru
nokkrar upptökur og þar koma
fram m.a. Guðmundur Steingrím-
ur trommusnillingur og Árni
Scheving á víbrafón (og bassa og
saxafón og...). Það vekur athygli
að kontrabassaleikarar frá 1950 og
fram á sjöunda áratuginn eru þeir
Jón Sigurðsson og Sigurbjörn Ing-
ólfsson en á upptökum síðan virðist
hreinlega vanta einhvern til að
spila á kontrabassann ,þetta grund-
vallar sveifluhljóðfæri. Þetta heíur
verið svona allt fram á síðustu ár að
Tómas Einarsson og aðrir
sveiflumeistarar hafa bjargað mál-
unum.
1 útvarpssal hafa mörg gullkorn
verið hljóðrituð, tvö'eru hér, frá
1976. Það eru Lover man og Slow
but sure, svo sannarlega „sure".
Nú eru það Jassmiðlar á ferð með
m.a. Rúnar Georgsson sent blæs í
sópran og tenór, Gunnar í alt og
tenór og Jón Páll kominn í „heim-
sókn" með gítarinn frá Svíþjóð,
þar ’sem hann býr.
Þetta er alveg
magnaö
Einhver mesta „sveiflu-þrusa“
sem heyrst hefur með bigg bandi er
tvímælalaust Pink Tenor með
Gunnari Ormslev og Raidoens Big
Band, tekin upp í Kaupmannahöfn
1978. Algjört dúndur, botnlaus
kýling, svo ég spari ekki þau há-
stemmdu, það getur ekki verið
betra enda klappað kröftuglega á
eftir. Sveifla sem segir sex, því hér
er ekkert smálið á ferðinni. Bandið
nteð betra sem gérist í þessum
bransa og því til halds og trausts
eru Ole Kock Hansen á píanó/og
enginn annar en Niels-Henning
Örsted Pedersen á kontrabassan-
unt. Djasssíða Þjóðviljans hvetur
alla ærlega djassgeggjara að setja
græjurnar í botn og fá þessa hörku-
sveiflu beint í æð. Já nú duga engin
hátíðlegheit eða heyrnarvernd.
Tvímælalaust besta lag skífunnar.
Tímamóta-
útgáfa
Þessari tímamótaskífu lýkur
með Lífið er stutt en listin er löng
eftir Gunnar Reyni Sveinsson, flutt
af Musica Quadro. Fjórmenning-
arnir eru Gunnar Ormslev á altó-
saxófón, Reynir Sigurðsson á
víbrafón, Helgi E. Kristjánsson á
rafbassa og Alfreð Alfreðsson á
trommurnar. Hugljúf melódía sem
höfundur tileinkar minningu And-
résar Ingólfssonar saxafónleikara.
Það er ljóst að með þessari skífu
hefur Jassvakning ráðist í ntikið
verk og leyst það vel undir farsælli
stjórn Vernharðar Linnets.
Skífuna Jass í 30 ár má enginn
unnandi djasstónlistar láta fram
hjá sér íara.
Þorgeir Pálsson.
*
r
LATUM SKYNSEMINA RAÐA
tm motom
og kaupum
Ódýrasta bílinn "á markaðnum.
SP ARNEYTINN - STERKAN - ENDINGARGOÐAN
Það er staðreynd að allt of fáir vita um kosti og eiginleika
Trabantbílanna. Komdu, skoðaðu og reynsluaktu Trabant,
þá veistu hvað þú færð fyrir peningana.
Fólksbíll kr. 85.000.- Stationbíll kr. 88.000.-
INGVAR HELGASON HF. sn^eo
SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI