Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 25

Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 25
Helgin 7. - 8. maí 1983 Í*JÓÐVILJINN - SÍÐA 25 útvarp • sjonvarp Tómas R. Einarsson: JAZZ af bestu gerð Kvartett Garry Bustons til íslands Menn höndla nýjan sannleika á ! marga vegu. Þó að slíkt gerist sjald- i an í einu vetfangi og opinberunin | sé tíðast afleiðing langrar gerjunar, | geta einstök atvik vegið þar þungt. Eg heyrði Stan’s blues (hljóðritun kvartetts Stan Getz í Carnegie Hall frá 1964) fyrst fyrir tæpum fimm árum og upplifunin var af ætt kraft- birtingarinnar. Þar lék víbrafón- leikarinn Gary Burton einn í 24 takta og síðan slógust félagarnir þrír í hópinn í mögnuðu breiki. Víbrafónsólóið fór hægt af stað, magnaðist stig af stigi og þegar spennan var að verða óbærileg þyrlaði trommuleikarinn í miklu crescendói og langur og eggjandi tónn saxófónsins leiddi mann úr algleymi æsingsins yfir í ástand sem kenna mætti við sprungna blöðru! Hvflík upplifun! Þetta var ein af mínum fyrstu jazzplötum og leikur þeirra Getz og Burtons átti drjúgan þátt í því að gera velviljaðan áhuga að ólæknandi ástríðu. Gary Burton hefur lagt gjörva hönd á margt síðan hann lék með kvartett Stan Getz, aðeins rúmlega tvítugur að aldri, hljóðritað fjölda platna og leikið um allan heim. Hann hefur aldrei verið negldur á einn ákveðinn bás í tónlist sinni og hefur hljóðritað með svo innbyrðis ólíkum tónlistarmönnum sem Stephane Grappelli, Cörlu Bley, Chick Corea og Keith Jarrett. Les- endur Down Beat, helsta jazztíma- rits í heiminum, hafa kosið hann besta víbrafónleikarann fimmtán ár í röð. Steve Swallow bassaleikari Að berja eða plokka mjúkt Það er einvalalið sem leikur með Burton um þessar mundir. Mig langar sérstaklega til að minnast á Steve Swallow, rafbassaleikara og tónskáld. Rafbassinn hefur löngum verið litinn hornauga af hreintrúarmönnum í jazzi; mörg- um hefir þótt sem hljóð hans væru fretkennd, urgandi og hörð, sam- anborið við þýðan tón bassagígj- unnar. Að hluta til stafar þetta af því að margir rafbassaleikarar hafa beinlínis dregið fram þessa eigin- leika hljóðfærisins og fremur kosið að berja strengina þumli, en áð plokka mjúkt með fingurgómun- um. Steve Swallow nálgast ekki rafbassann með hugarfari trommu- leikarans, heldur með skapandi og lagrænni hugsun tónskáldsins. Leikur hans er enn eitt dæmi um þann forna sannleik að að er tón- hugsun hljóðfæraleikarans sem öllu skiptir, en ekki það hvaða hljóðfæri hann hefur kosið sér. Hittumst í Gamla bíói! utvarp laugardaqur 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: Yrsa Þóröardóttir talar. 8.50 Leikfimi 9.00 Fréttír. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Oskalög sjúlinga. Lóa Guöjónsdóttir kynnir. (10.0 Fréttir. 1Q.10 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. útdr.). Óskalög sjúklinga frh. 11.20 Hrímgrund - Útvarp barnanna. Bland- aður þáttur fyrir krakka. Stjórnandi: Sverrir Guðjonsson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðuriregnir. Tilkynning- ar. Iþróttaþáttur Umsjón: Samúel Órn Erl- ingsson. Helgarvaktin Umsjónarmenn: Arnþrúður Karlsdóttir og Hróbjartur Jónat- ans?on. 15.15 í dægurlandi Svavar Gests rifjar upp tónlist áranna 1930-60. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Þá, nú og á næstunni Stjórnandi: Hild- ur Hermóðsdóttir. Bókasafn Kópavogs og Bústaðaútibú Borgarbókasafnsins heimsótt og hlustað á sögustund fyrir litlu börnin. 16.40 Islenskt mál Jón Hilmar Jónsson sér um þáttinn. 17.00 Hljómspegill Stefán Jónsson, Græn- umýri í Skagafirði, velur og kynnir sigilda tónist (RUVAK). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðuriregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Á tali Umsjón: Helga Thorberg og Edda: Björgvinsdóttir. 20.00 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni Jónsson. 20.30 Sumarvaka a. Dagbók úr strandferð Guðmundur Sæmundsson frá Neðra- Haganesi les sjötta og síðasta hluta frá- sagnár sinnar. b. „Þú svafst í náðum, þreklundaða þjóð“ Baldvin Halldórsson les Ijóð eftir Gunnar M. Magnúss. c. Ferð- aminnmg Haltgrimur Sæmunosson les trá- sögn Óskars Guðnasonar. d. Minninga- brot um Jóhannes úr Kötlum Ágúst Vig- fússon segir frá kynnum sínum af Jóhannesi og les kvæði eftir hann. 21.30 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes- sonar. 22.15 Veðuriregnir. Fréttir. Dagskrá morgund- agsins. Orð kvöldsins 22.35 „Örlagaglíma“ eftir Guðmund L. Friðfinnsson Höfundur les (12). .23.00 Laugardagssyrpa - Páll Þorsteinsson og Þorgeir Ástvaldsson. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. sunnudagur 8.00 Morgunandakt Séra Sigmar Toria- son prófastur á Skeggjastöðum flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) 8.35 Morguntónleikar 10.00 Fréttir. 10.10 Veðuriregnir. 10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls Jónssonar 11.00 Messa í Kópavogsklrkju Prestur: Árni Pálsson. Organleikari: Guðmundur Gilsson. Hádegistónleikar 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-' ingar. Tónleikar 13.30 Frá liðinni viku Umsjónarmaður: Páll Heiðar Jónsson. 14.15 Leikrit: „Þrjár sögurúr heitapottin- um“ eftir Odd Björnsson Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson. Leikendur: Rúrik Haraldsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður Skúlason, Lilja Guðrún Þoj> valdsdóttir, Helgi Skúlason og Guðrún Gisladóttir. 15.15 Söngvaseiður. Þættir um íslenska sönglagahöfunda. Fyrsti þáttur. Björn Kristjánsson og Gúnnsteinn Eyjólfs- son Umsjón: Ásgeir Sigurgestsson, Hall- grimur Magnússon og Trausti Jónsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Mannréttindi og mannúðarlög Dr. Páll Sigurðsson dósent flytur sunnudags- erindi í tilefni Alþjóðadags Rauða Krossins. 17.00 Frátónleikum Islensku hljómsveit- arinnar í Gamla Bíói 30. apríl s.l. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðuriregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.25 Myndir Jónas Guðmundsson rithöt- undur talar við hlustendur. 20.00 Sunnudagsstúdíóið - Útvarp unga fólksins Guðrún Birgisdóttir stjórnar. 20.45 Gömul tónlist Snorri Örn Snorrason kynnir. 21.30 Um sígauna 4. og síðasta erindi Einars Braga, byggt á bókinni „Zigenare" eftirKaterinaTaikon. 22.00 Tónleikar 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Örlagaglima" eftir Guðmund L. Friðfinnsson Höfundur les (13). 23.00 Kvöldstrengir Umsjón: Hilda Torfa- dóttir, Laugum i Reykjadal (RÚVAK). 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. mánudagur 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Séra Eirik- ur J. Eiríksson (a.v.d.v.) Gull í mund - Stefán Jón Hafstein - Sigriður Árnadóttir - Hildur Eiríksdóttir. 7.25 Leikfimi. Umsjón: Jónína Benediktsdóttir. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun- orð: Sigriður Halldórsdóttir talar, 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Rumm- ungur ræningi" eftir Otfried Preussler í þýðingu Huldu Valtýsdóttur. Helga Ein- arsdóttir les (4). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónieikar. 9.45 Landbúnaðarmál Umsjónarmaður: Óttar Geirsson. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. landsmálablaða (útdr.). 11.05 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Ste- fánsson. 11.30 Lystauki Þáttur um lifið og tilveruna i umsjá Hermanns Arasonar (RÚVAK). 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Mánudagssyrpa - Olafur Þórðar- son. 14.30 „Sara“ eftir Johan Skjaldborg Einar Guðmundsson þýddi. Gunnar Stefáns- son les (2). 15.00 Miðdegistónleikar 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Islensk tonlist 17.00 Ferðamál Umsjón: Birna G. Bjarn- leifsdóttir 17.40 Skákþáttur Umsjón: Jón Þ. Þór. 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál Árni Böðvarsson flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir talar. 20.00 Lög unga fólksins. Þórður Magnús- son kynnir. 20.40 Anton Webern - 9. þáttur Atli Heimir Sveinsson ræðir um tónskáldið og verk þess. 21.10 Fiðlusónata f d-dúr eftir Cesar Franck Kaja Danczowska og Krystian Zimmerman leika 21.40 Útvarpssagan: Ferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar Þorsteinn Hannesson les (11). 22.15 Veðuriregnir. Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins 22.35 Er allt með felldu? Þáttur um flug- stjórnun og innanlandsflug. Umsjónar- maður: Önundur Björnsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. sjomrarp laugardagur 17.00 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Fel- ixson. 18.45 Enska knattspyrnan 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 ÞriggjamannavistTiundi þáttur. Bresk- ur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 21.00 Glitra daggir, grær fold (Driver dagg, faller regn) Sænsk bíómynd frá 1946, gerö eftir samnefndri sveitalífs- og ástarsögu frá öldinni sem leið eftir Margit Söderholm, sem komið hetur út i íslenskri þýðingu. Leikstjóri Gustaf Edgren. Aðalhlutverk: Sten Lind- gren, Mai Zetterling, Alf Kjellin og Anna Lindahl. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 22.40 Á ferð og flugi (The Running Man) Endursýning Bandarísk bíómynd frá 1963. Leikstjóri Carol Reed. Aðalhlutverk: Laurence Harvey, Lee Remick og Alan Bat- es. Ung hjón svikja út liftryggingarfé með því að setja á svið dauða eiginmannsins í flug- slysi. Þau hittast síðan á Spáni til að njóta fengsins en þar birtist þá rannsóknarmaður vátryggingafélags. Þýðandi Jón O. Edwald. Áður sýnd í Sjónvarpinu árið 1972. 00.25 Dagskrárlok sunnudagur 18.00 Sunnudagshugvekja Séra Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprestur i Keflavik, flytur. 18.10 Skógarferð Norsk barnamynd um kynni litils drengs af skóginum og öll þau undur sem þar ber fyrir sjónir. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. (Nordvision - Norska sjónvarpið) 18.25 Daglegt lif i Dúfubæ Breskur brúðu- myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingimarsson. Sögumaður Sigrún Edda Björnsdóttir. 18.40 Palli póstur Breskur brúðumyndaflokk- ur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögu- maður Sigurður Skúlason. Söngvari Magn- ús Þór Sigmundsson. 18.55 Sú kemur tíð Franskur teiknimynda- flokkur um geimferðaævintýri. Þýðandi Guðni Kolbeinsson, þulur ásamt honum Lilja Bergsteinsdóttir. 19.29 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sjónvarp næstu viku Umsjónarmaður Guðmundur Ingi Kristjánsson. 20.50 Nína Tryggvadóttir Mynd sem Sjón- varpið hefur látið gera um Nínu Tryggva- dóttur listmálara og verk hennar. Brugðið er upp myndum af verkum listakonunnar, sem er að finna víða um heim, og rakinn er ferill hennar. Einnig er rætt við eiginmann og dóttur Nínu og nokkra samferðamenn: Auði og Halldór Laxness, Valtý Pétursson og Steingerði Guðmundsdóttur. Tónlist í mynd- innit Jórunn Viðar. Umsjónarmaður Hrafn- hildur Schram. Upptöku stjórnaði Þrándur Thoroddsen. 22.00 Ættaróðalið Sjöundi þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokkur í ellefu þáttum gerður eftir skáldsögu Evelyns Waugs. Efni sjötta þáttar: Rex Mottram heimsækir Car- les i París. Hann er að leita Sebastians, sem átti að fara til lækningar í Sviss en lét sig hverfa. Rex segir Charles einnig frá veikind- um lafði Marchmain og þeirri ætlun sinni að eignast Júlíu fyrir konu. mánudagur 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Tommi og Jenni 20.45 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix- son. 21.20 Já, ráðherra 12. Kunnugir bítast best. Breskur gamanmyndaflokkur. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 21.50. Hetðardaman (L'elegance) Ný bresk sjónvarpsmynd. Leikstjóri Jack Gold. Aðalhlutverk Geraldine McEwan og Jean-Francois Stevenin. Ungfrú Mount- ford sækir hugmyndir sínar í timarit hefðarkvenna, L’elegance. Eina viku á ári getur hún veitt sér að leika hefðar- dömu á litlu hóteli i Frakklandi. Þar rætast ástardraumar hennar á annan veg en hún gerði sér i hugarlund. Þýð- andi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.45 Dagskrárlok. Sýningu Brynhildar lýkur á sunnudag Glerlistarsýning Brynhildar Þorgeirsdóttur í Nýlistasafninu hefur verið opin í rúma viku og lýkur henni annað kvöld, sunnu- dag. Verkin á sýningunni eru unnin úr mótuðu gleri, steinsteypu og járni. Sýningin er opin alla helgina frá kl. 4-10, en Nýlistasafnið er á Vatnsstíg 3b. SýningSATT í Gallery Lækjartorg framlengd Myndlistarsýning SATT - Sambands alþýðutónskálda og tónlistarmanna í Gallerí Lækjar- torgi hefur verið framlengd til 8. maí. Sýningin opnaði 16. apríl og þar sýnir fjöldi þekktra lista- manna. Sýningin er haldin til styrktar SATT og rennur helm- ingur af andvirði myndanna til húsakaupa félagsins, en ráðist var í að kaupa huseign að Vitastíg 3 og að sögn Jóhanns G. Jóhanns- sonar verður nú að vinna lokaá- takið ef fjárhagsmálin eiga að bjargast. A sýningunrti eru verk eftir list- amennina Bat Yousef, Dieter Roth, Einar Hákonarson, Hauk Halldórsson, Hring Jóhannes- son, Hreggvið Hermannsson, Jón Þór Gíslason, Gísla Sigurðs- son, Guðrúnu Svövu, Steinunni Þórarinsdóttur, Sigurð Þóri. Sig- ríði Björnsdóttur, Skúla Ólafs- son, Jóhann G. Jóhannsson, Sig- urð Eyþórsson, Magnús Þór Jónsson, Ragnar Lár, Pál ísaks- son, Tarnús, Þorstein Eggertsson og Richard Valtingojer. Sýningin er eins og áður sagði í Gallerí Lækjartorgi og er opin til 8. maí. Skóladagheimilið Völvukot Tombóla á morgun Krakkarnir á Skóladagheim- ilinu Völvukoti verða með tom- bólu á sunnudaginn, þ.e. á morg- un og hefst hún kl. 14.00. Miðinn kostar aðeins 10 krónur og engin núll! Vinningar eru afskorin blóm og pottablóm í miklu úrvali og eru krakkarnir að safna fyrir vorferðalagi sem þau ætla í. Væri ekki upplagt að kíkja við og næla sér í fallega plöntu til að skreyta með hjá sér?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.