Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 21
skák
Helgin 7. - 8. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
50. skákþing Sovétríkjanna
Endaspretturinn dugði
Karpov til sigurs
Niðurstaðan á Skákþingi Sovét-
ríkjanna sem lauk rétt um það bil
sem maísólin fór að skína hér á
landi sem annarsstaðar, kemur
engum á óvart. Heimsmeistarinn í
skák, Anatoly Karpov sigraði,
hlaut 9'/2 vinning af 15 mögulegum.
Hitt er svo annað mál að með þess-
um sigri tekur Karpov af öll tví-
mæli um hver sé jafnbesti skák-
maður allra tíma. Jafnvel þó svo
hann ætti við mikla erfiðleika að
rjá langt fram eftir móti tókst hon-
um, hægt og bítandi, að þoka sér á
toppinn og með því að vinna réttu
skákirnar á réttum tíma var tak-
markinu náð.
Lengi vel þótti Sovétmeistara-
mót ekki rétti vettvangurinn fyrir
Karpov. Það var ekki fyrr en í
fjórðu atlögu sinni að titlinum
„Skákmeistari Sovétríkjann^" að
honum tókst að ná settu marki.
Það var árið 1976, og einmitt það
mót var um margt líkt þessu. Karp-
ov byrjaði illa, en sótti svo í sig
veðrið og seig fram úr öllum á lok-
asprettinum, hlaut 12 vinninga af
17 mögulegum.
Mótið í ár var vissulega skipað
frábærum skákmönnum, en hefði
getað orðið enn sterkara. Ung-
stirnið Kasparov hætti við þátttöku
á síðustu stundu og Mikhael Tal
varð að hætta eftir 6 umferðir með
2 vinninga. Allt frá því að Tal fór
að láta verulega á sér kræla á skák-
sviðinu hefur ferill hans liðið meira
og minna fyrir afleita heilsu. Ekki
kann ég sjúkdómsgreiningu hans
frá þessu móti, en þess má geta að á
skákmótinu í Tallinn í vetur varð
að fresta einni af skákum hans
vegna aðkenningar hjartaáfalls.
Nóg um það. 2. sætið á Sovét-
mótinu hirti skákmaður sem okkur
íslendingum er ekki með öllu ó-
kunnur, Vladimir Tukmakov.
Hann tefldi hér á landi á Reykja-
víkurskákmótunum 1972 og 1976
og vakti athygli fyrir varfærnislega
tatlmennsku. Tukmakov var í hópi
Balashovs, Karpovs Vaganian og
Beljavskí talinn einn efnilegasti
skákmaður Sovétbúa á árunum í
kringum 1970, en hreppti mótbyr
mitt á uppgangstímabili sínu og
hrapaði nokkuð í áliti manna. Upp
á síðkastið hefur Vladimir allur
verið að braggast og var t. a. m.
Umsjón
Helgi
Ólafsson
ekki ýkja langt frá því að krækja
sér í sæti í áskorendakeppninni
þegar hann tefldi á millisvæðamót-
inu í Las Palmas í fyrra. Áður en ég
vind mér í eina af vinningsskákum
heimsmeistarans frá Sovétmeistar-
amótinu vil ég hér gefa upp endan-
lega röð keppenda og um leið
þakka starfsmönnum APN-
fréttastofunnar hér á landi fyrir að
hafa uppá skákum og úrslitum úr
mótinu:
1. Karpov 9‘/2 v. 2. Tukmakov 9
v. 3.-4. Polugajevskí og Vaganian
8V2 v. 5. Balashov 8 v. 6.-9. Petro-
sjan, Malanjúk, Romanishin og
Pshakis allir með l'h vinnig. 10,-
13. Azmaparashvili, Agzamov,
Beljavskí og Razuvajev allir með 7
vinninga. 14.-15. Geller og Yusup-
ov 6V2 vinning 16. Lerner 5V2
vinning.
(Athyglisverður leikur þegar haft
er í huga að fáir skákmenn hafa
betra vinningshlutfall útúr hefð-
bundna spænska leiknum sem
kemur upp eftir 8. c3 d6 9. h3 en
Karpov. Skýringin á þessu óvænta
fráviki kann að vera sú að Karpov
hafi óttast Marshall-árásina sem
kemur upp eftir 8. - d5. Geller hef-
ur í seinni tíð, beitt Marshall-
árásinni með allgóðum árangri og
er þar öllum hnútum kunnugur.)
8. .. Bb7 11. Re3 Bf8
9. Rbd2 h6 12. Bd2
10. Rfl He8
(Hindrunarleikur góður. Hvítur
kemur í veg fyrir 12. - Ra5 og að
öðru leyti þjónar leikurinn þeim
tilgangi að koma hvíta liðinu fram á
borðið.)
12. .. d6 14. c3 Re7
13. a4 Rd7
(Stefnir að framrás d-peðsins.
Leikurinn hefur að öðru leyti þann
augljósa ókost að byrgja útsýni
hróksins á e8.)
15. Dbl
(Setur óbeint vald á e4-peðið og
undirbýr framrás d-peðsins. Það er
eftirtektarvert að Karpov staðsetur
drottninguna ekki á c2. Þar á bisk-
upinn aðsetur.
15. .. Rc5 16. Bc2 d5?
(Annars leikur hvítur 17, d4.)
17. exd5 Rxd5 18- Kfí4
(Riddarinn vippar sér í áhrifastöðu
og nú stendur e5-peðið á
brauðfótum.)
18. .. Rf4
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Efim Geller
Spænskur leikur
1. e4 e5
2. RD Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7
6. Hel b5
7. Bb3 0-0
8. d3
(Aðrar leiðir eru ekki færar. Nú
græðir hvítur ekkert á 19. Rgxe5
vegna 19. - Bxf3! o.s. frv.)
19. Bxf4 exf4 20. Rge5 Bd6
(í fljótu bragði virðist 20. - f6 vera
eini leikurinn sem heldur svörtu
stöðunni svona nokkurn veginn
saman. En þegar að er gáð koma
ýmsir annmarkar í ljós. T.d. 21.
Rg6 Bxf3 22. gxf3 Dd5 (að sjálf-
sögðu ekki 22. - Hxel - 23. Dxel
Rxd3 24. De6+ og vinnur) 23. d4!
og svartur á við ramman reip að
draga. Þannig dugar ekki að leika
23. - Dxf3 vegna hins lymskulega
leiks 24. Da2+! t.d. 24. - Re6 25.
Bf5! (ekki 25. Hxe6 Dg4+) og
vinnur. Og 23. - Hxel+ 24. Dxel
Dxe3 strandar á 25. Bdl!! Dd5 26.
Rxf8 og hvítur vinnur mann. Sund-
urgreining stöðunnar sem kemur
upp eftir 20. leik hvíts leiðir það í
ljós að svartur á við hartnær óyfir-
stíganleg vandamál að stríða. En
hvar liggja þá mistök svarts? Áætl-
unin sem hófst með leiknum 14. -
Re7 sem miðaði að framrás d-
peðsins virðist vera meinvald-
urinn.)
21. d4 Bxt-5 23. D
22. Rxe5 Dg5
(Nú verður svartur að mæta hótun-
inni 24. b4 og 25. Bh7+.)
23. .. Had8 25- Ha7!
24. axb5 axb5
(Óþægilegur leikur. Stöðuupp-
bygging Karpov hefur lánast hreint
ótrúlega vel. Allir menn hans hafa
mikil áhrif á gang mála.)
25. .. Bd5 27. Ha7 Rc5
26. Hxc7 Ra6
28. Bh7+!
(Þessi biskupsskák sem hefur vof-
að yfir svörtum um alllangt skeið
kemur nú á versta tíma. Karpov er
vanur að bíða með öflugan leik
þangað til hann verður hvað áhrif-
aríkastur.)
28. .. Kf8
Kasparov fékk
Skák-Óskarinn
Skákpistlahöfundar blaða
víðsvegar um heim skiluðu nýlega
inn áliti sínu á því hvern telja ber
besta skákmann ársins 1982.
Verðlaunin sem veitt eru þeim
sem efstur verður hafa verið veitt
frá árinu 1967 og kallast „Skák-
Óskarinn“. Eftirtaldir hafa hlotið
verðlaunin: 1967: Larsen, 1968:
Spasskí, 1969: Spasskí, 1970:
Fischer, 1971: Fischer, 1972:
Fischer, 1973: Karpov, 1974:
Karpov, 1975: Karpov, 1976:
Karpov, 1977: Karpov, 1978:
Kortsnoj, 1979: Karpov, 1980:
Karpov, 1981: Karpov.
Niðurstaðan fyrir árið 1982
varð þessi:
stig:
1. Kasparov.............. 1021
2. Karpov................. 943
3. Andersson.............. 594
4. Ribli.................. 513
5. Tal.................... 480
6. Ljubojevic..............470
7. Portisch............... 469
8. Beljavskí.............. 422
9. Smyslov................ 229
10. Polugajevskí........... 162
Afrekaskrá Kasparovs fyrir ár-
ið í fyrra er glæsileg. Hann sigraði
á hinu geysisterka skákmóti í,
Bugonjo í Júgóslavíu með mikl-
um yfirburðum, hlaut 9'h vinning
af 13 mögulegum, sigraði á milli-
svæðamótinu í Moskvu með 10
vinninga af 13 mögulegum, og
hlaut 8V2 vinning af 11 mögu-
legum á 2. borði fyrir skáksveit
Sovétríkjanna á Olympíumótinu
í Luzern. í flokkakeppni Sové-
tríkjanna tapaði hann einu
skákum sínum á árinu, fyrir þeim
Gulko og Romanishon. Reyndar
má bæta við sigri á Skákþingi So-
vétríkjanna fyrir árið 1981 á
þennan lista, því mótinu lauk
ekki fyrr en nokkuð var liðið á
janúarmánuð. Ekki einasta fékk
Kasparov góða prósentu úr þess-
um nótum, heldur það sem meira
er um vert: hann sýndi hreint
stórkostleg tilþrif í fjölmörgum
skákum. Aðdáendur hans þurfa
ekki annað en að minnast skákar-
innar við Kortsnoj á síðasta ol-
ympíumótinu til að kikna í hnján-
um af geðshræringu.
Árið í fyrra var eitt hið léleg-
asta hjá Karpov um langt skeið.
Þó dugði það honum til að hljóta
2. sætið. Hann varð í 1.-2. sæti á
stórmótinu í London, 1.-2. sæti á
sterku móti á Ítalíu, varð einn
efstur á Tilburg mótinu eina ferð-
ina enn og hlaut 6'h vinning af 8
mögulegum á 1. borði fyrir ol-
ympíulið Sovétmanna á olympíu-
Kasparov aðtaflivið Svíann
Ulf Andersson á Olympíuskák
mótinu í Luzern i haust. Anders-
son hafnaði i 3. sæti á listanum.
mótinu í Luzern. Skákmótið í
Mar del Plata setti hann mjög
niður, en þar hafnaði hann í 3.-5.
sæti á eftir Timman og Ljuboje-
vic. Karpov sigraði í sjónvarp-
smóti v-þýska sjónvarpsins en
skákirnar í því eru ekki metnar til
stiga. Þegar öllu er á botninn
hvolft þá má hann all vel við una.
Svíinn Ulf Andersson átti sitt
allra besta ár í langan tíma.
Karpov
(Ekki 28. - Kh8 29. Hxf7! og svart-
ur glataður.)
29. b4 Ra4 30. Dd3!
(Engin þörf fyrir 30. Rd7+)
30. .. Bc4?
(Afleikur í tapaðri stöðu.)
31. Dxc4!
og svartur gafst upp. Hann er mát
eftir 31. - bxc4 32. Hxf7+.
Nýtt
erlent lán
Nýlega var undirritaður í
Reykjavík samningur um lán til
íslenska ríkisins að upphæð 40
miljónir hollenskra gyllina sem er
jafnvirði sem næst 317 miljóna ís-
lenskra króna. Lánið er tekið hjá
tveimur hollenskum bönkum
fyrir milligöngu Amro Bank.
Lánið er veitt til 10 ára, en er
afborgunarlaust fyrstu sex árin.
Vextir eru 8%% og greiðast ár-
lega eftir á.
Lánsféð mun renna til fram-
kvæmda samkvæmt lánsfjár-
lögum.
Lánssamninginn undirritaði
Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs. Seðla-
banki Islands annaðist undirbún-
ing lántökunnar.
Háskóli íslands
Fyrir-
lestur
Ingi Sigurðsson lektor heldur
opinberan fyrirlestur á vegum
heimspekideildar Háskóla ís-
lands, laugardaginn 7. maí 1983
kl. 14 í stofu 423 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn fjallar um ís-
lenska sagnfræði frá miðri nítj-
ándu öld til samtímans í erlendu
samhengi. Þetta er sjöundi og
síðasti fyrirlesturinn í röð fyrirle-
stra um rannsóknir á vegum
heimspekideildar á vormisseri.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
fyrirlesturinn yrði fluttur 16. apríl
en var þá frestað vegna veikinda.
Öllum er heimill aðgangur.
Heimsverslun
dróst saman
Heimsverslunin minnkaði í fyrra
um 2% frá árinu áður segir í nýlegri
skýrslu frá alþjóðlegu viðskipta- og
tollastofnuninni GATT.
Sambúðarerfiðleikar fara mjög í
vöxt í alþjóðlegum viðskiptum.
Kvörtunum um hindranir í við-
skiptum og beinum viðskipta-
stríðum fer fjölgandi með hverju
ári.