Þjóðviljinn - 07.05.1983, Side 22

Þjóðviljinn - 07.05.1983, Side 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7. - 8. maí 1983 um hclgina Myndlist Galleri Austurstræti 8: Haukur Friöþjófsson sýnir 20 málverk. Hann stundaöi nám viö Myndlista- og handíöaskóla íslands og hefur áður tekið þátt í nokkrum samsýningum. Gallerí Langbrók: Jóhanna Þórðardóttir oþnar í dag, laugardag, sýningu á 15 lágmyndum. Jóhanna stundaöi nám hér heima, i Amsterdam og síöar við Listaakademí- una í Stokkhólmi. Þetta er fyrsta einka- sýning Jóhönnu, en hún hefur tekiö þátt i nokkrum samsýningum. Sýningin stendur til 22. maí. Oþiö um helgina frá 14-18. Fríkirkjuvegur 11: Ketill Larsen sýnir 45 myndir, málaöar í oliu og akryllitum. Kjarvalsstaðir: Þrjár nýjar sýningar veröa onaöar á Kjarvalsstöðum um helgina. Guömund- ur Karl Ásbjörnsson sýnir málverk og vatnslitamyndir í vestursal. Páll Reynis- son sýnir Ijósmyndir í vesturforsal og i Austursal og austurforsal sýnir Sveinn Björnsson listmálari verk sín. Allar sýn- ingarnar standa til 23. maí n. k. . Listasafn íslands: Opnuö hefur verið sýning á Ijósmyndum eftir Bandarikjamanninn David Finn og höggmyndum eftir þá Ásmund Sveins- son, Einar Jónsson og Sigurjón Ólafs- son. Ljósmyndirnar eru af höggmyndum sem flestar eru einnig á sýningunni. Sýningin veröur opin til 15. maí. Listmunahúsiö: Alfreö Flóki opnar í dag, laugardag, sýn- ingu á 40 teikningum. Myndirnar eru flestar unnar í Kaupmannahöfn á sl. vetri. Þær eru unnar meö tússi, rauökrít og svartkvít. Sýningin er opin daglega frá 10-18, um helgar frá 14-18, lokað á mánudögum. Sýningin stendur til 23. maí. Norræna húsiö: Nú stendur yfir sýning á verkum sænska myndlistarmannsins Svens Hagmans. Hann sýnir 20 oliumálverk og 14 teikningar. Myndefniö sótt til gamla tímans. Opiö daglega frá 14-19 til 15. maí. Nýlistasafnið: Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir eftirtekt- arverða skúlptúra. Verkin eru unnin úr mótuöu gleri, steinsteypu og járni. Skruggubúð: Þorsteinn Hannesson sýnir málverk og vatnslitamyndir. Þorsteinn hefur ekki sýnt opinberlega frá því 1962. Opiö virka daga frá 17-21 og um helgar frá 15-21 til 15. maí. Tónlist Austurbæjarbió: Síöustu vortónleikar Tónmenntaskóla Reykjavíkur verða i Austurbæjarbíói í dag, laugardag, kl. 14.00. Átónleikunum koma fram eldri nemendur skólans og leika bæöi einleik og samleik á ýmiss konar hljóðfæri. Öllum er heimill ókeyþis aðgangur. Fóstbræðraheimilið við Langholtsveg: Kór Átthagafélags Strandamanna i Reykjavík heldur tónleika í dag, laugar- dag kl. 17.00 Fjölbreytt efnisskrá. Söng- stjóri Magnús Jónsson frá Kollafjarðar- nesi og undirleikari Erla Þórólfsdóttir. Kjarvalsstaðir: Musica Nova heldur tónleika í Austursal Kjarvalsstaöa á sunnudagskvöld kl. 20.30. Ytri-Njarðvíkurkirkja: Vortónleikar Tónlistarskólans í Njarövík verða mánudaginn 9. maí kl. 20.30 og á sama tíma á miðvikudaginn 11. maí. Fjölbreytt efnisskrá bæði kvöldin. Alfreð Flóki sýnir í Listmunahúsinu „Ljúfar og sœtar myndir“ „Þetta eru allt saman Ijúfar og sætar myndir, fullar af mann- kærleika“, sagði Alfreð Flóki, í samtali þar sem hann vann við að konia upp nýjustu verkum sínum í Listniunahúsinu við Lækjartorg fyrr í vikunni. í dag kl. 14.00 opnar Flóki þar sýningu á samtals 40 myndum, sem allar eru nýjar af nálinni, flestar gerðar í Kaupmannahöfn á síðasta vetri. Sem fyrr heldur Flóki sig við tússið, rauð- og svartkrítina. Hann hefur ekki haldið sýningu hér heima um nokkurt skeið, en sú síðasta var í Djúpinu fyrir rúm- um þrem árum. Síðan þá hefur hann haldið. þrjár sýningar í Dan- Tónmenntaskólinn Vortónleikar Síðustu vortónleikar Tón- menntaskólans verða haldnir í Austurbæjarbíói í dag 7. maí kl. 14.00. Á þessum tónleikum koma einkum fram eldri nemendur skólans og er á efnisskrá þeirra bæði einleikur og samleikur á ýmiss konar hljóðfæri. Tónmenntaskólinn er nú að ljúka 30. starfsári sínu en nem- endur í vetur voru 540 og kennar- ar 42. Félagsheimilið Bifröst Síðbúin sœluvika Stðbúnir Sæluvikutónleikar verða haldnir í Félagsheimilinu Bifröst, Sauðárkróki, á sunnudaginn. Þar mun Skólakór Kársnes- og Þinghóls- skóla syngja undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, en kórinn komst ekki norður á sæluvikuna vegna veðurs. Kór Átthagafélags Strandamanna Reykjavík l ónleikar í dag Kór Átthagafélags Strandamanna í Reykjavík heldur tónleika í dag í Fóstbræðraheimilinu við Langholtsveg kl. 17.00. - Fjölbreytt efnisskrá er á tónleikunum. Söngstjóri er Magnús Jónsson frá Kollafjarðarnesi og undirleikari Erla Þórólfsdóttir. Menningarmiðstöðin við Gerðuberg Skemmtun á morgun Á morgun kl. 16.00 verður einstæð skemmtun í Menningarmiðstöðinni við Gerðuberg. Þá munu þau Sigríður Hannesdóttir og Aage Lorange spila og syngja fyrir kaffigesti, m.a. gömul revíulög og fleira gamalt og gott. Kaffihlaðborð kostar kr. 100 fyrir fullorðna og kr. 50 fyrir börn. Þjóðleikhúsið: Bandaríski píanósnillingurinn Martin Berkolsky heldur tónleika í Þjóðleikhús- inu á mánudagskvöld kl. 20.30. Á efnis- skrá veröa verk eftir Franz Liszt. Leiklist Leikfélag Reykjavíkur: I kvöld, laugardag, er 2. sýning á leikriti Pers Ólovs Enquist Úr lífi ánamaðk- anna, en leikrit þetta hefur fariö eins og eldur í sinu um öll nágrannalöndin og hvarvetna vakiö mikla athygli. Aðalþer- sónurnar eru danska leikkonan Jó- hanna Lovísa Heiberg og ævintýra- skáldið H. C. Andersen. Síöar í kvöld er enn ein aukasýning á gamanleiknum Hassið hennar mömmu í Austurbæjarbíói. Á morgun verður Skilnaður Kjartans Ragnarsson- ar á fjölunum í Iðnó og á mánudagskvöld heldur danski leikarinn Erik Mörk upp- lestrarkvöld í lönó og les ævintýri og sagnir eftir H. C. Andersen. Upplestur- inn hefst kl. 20.30. íslenska óperan: Gamanóperan Mikado er á óperufjölun- um í Gamla Bíói í kvöld, en sýningar eru nú fáar eftir og ættu þeir sem áhuga hafa að fara aö hugsa sér til hreyfings. Þjóðleikhúsið: ( gærkvöldi var frumsýnd óperan Ca- valleria Rusticana og ballettinn Frök- en Júlia á stóra sviðinu. Önnur sýning er á sunnudagskvöld og sú þriöja á þriöju- dag. Grasmaðkur Birgis Sigurössonar er á stóra sviðinu i kvöld kl. 20, og Lína langsokkur er auðvitað á sínum staö. í dag kl. 15 og á sama tima á rnorgun. ýmislegt Ferðalög: Útivistardagur fjölskyldunnar: Á sunnudaginn verður Útivistardagur fjölskyldunnar. Gengið veröur um Mar- ardal á Hengil og endaö i pylsuveislu viö Draugatjörn. Lagt upp kl. 10.30 Kl. 13.00 verður aöalfjölskylduferðin. Gengið um gömlu þjóðleiöina um Hellis- heiöi. Brottför frá BSl. Á laugardag verö- ur farin fuglaskoðunarferð um Garö- skaga, Sandgeröi og Básenda i fylgd meö Árna Waag. Lagt upp frá BSl kl. 13.00. Skemmtanir: Sumartískan Tónabæ: Um helgina veröur haldin I Tónabæ sýn- ingin Tiskan sumariö '83. Aö sýningunni standa allar helstu tiskuverslanir i Reykjkavík. Hún er opin frá -16-23 laugardag og 13-23 á sunnudag. Menningarmiðstöðin við Gerðuberg Á morgun, sunnudag, verður skemmti- dagskrá i menningarmiöstöðinni. Sigríð- ur Hannesdóttir og Aage Lorange spila og syngja fyrir kaffigesti m.a. gömul revíulög og fleira gamalt og gott. Dag- skráin hefst kl. 16.00. Kvikmyndir: MÍR-saiurinn: Hin víöfræga Hamlet mynd Kozintsévs frá 1964 með Innokenti Smoktúnovskí í aðalhlutverki veröur sýnd í MlR-salnum á morgun, sunnudag kl. 16.00. Á máunudag kl. 20.30 verður sigurdags- ins minnst meö sýningu á tveimur heim- ildarmyndum úr síðustu heimsstyrjöld. Önnur myndin lýsir orrustunni um Stal- ingrad veturinn 1942-43 og hin átökun- um á fjóröu Úkraníuvígstöðvunum. Aö lokinni kvikmyndasýningu á mánudags- kvöld veröur skýrt frá væntanlegri hóp- ferð MlR-félaga til Sovétrikjanna í ágúst n.k. „Fæðing“ heitir þessi nýja mynd eftir Alfreð Flóka. Mynd —Atli. mörku, og tekið þátt í fjölda sam- sýninga. Sýning Flóka í Listmunahúsinu er opin daglega frá 10 - 18 og um helgar frá 14 - 18, en lokað er á mánudögum. Sýningin stendurtil 23. maí. -Ig Listasafn íslands íslenskir meistarar í Listasafni íslands hefur verið opnuð sýning á höggmyndum eftir meistarana, Ásmund Sveins- son, Einar Jónsson og Sigurjón Ólafsson. Fjöldi verka er eftir hvern þeirra á sýningunni, verk sem flest hver hafa verið fengin að láni úr einkaeigu og öðrum söfnum. Þá eru á sýningunni myndir eftir Bandaríkjamanninn David Finn af höggmyndum fyrr- nefndra myndhöggvara. Finn er heimsþekktur ljósmyndari sem hefur sérhæft sig í ljósmyndun höggmynda frá ýmsum tíma- bilum. Sýningin í Listasafni íslands er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13.30 - 16.00 og um helgar frá 13.30 - 18.00. Hún stendur til 15. maí n.k. Píanótónleikar í Þjóðleikhúsi á mánudagskvöld Martin Berkofsky leikur eftir Liszt Mánudaginn 9. maí n.k. mun bandaríski píanósnillingurinn Martin Berkofsky halda tónleika í Þjóðleikhúsinu. Á efnisskrá verða verk eftir Franz Liszt. Martin Berkofsky á glæsilegan feril að baki sem píanóleikari. Eftir að hann lauk námi við Pea- body Conservatory í Baltimore, þá hefur hann haldið tónleika víða um lönd. Þykir hann nú einn fremsti túlkandi píanóverka frá rómantíska tímabilinu. Hann hefur m.a. leikið með Berlínar- sinfóníunni, London Symphony og Sinfóníuhljómsveit íslands. Hann hefur einnig lagt sund á fræðistörf á sínu sviði. Fann hann til dæmis innan um gömul skjöl handrit Liszt að píanóverkinu „Deak“, sem Liszt hafði endur- bætt, en ekki er vitað til, að þessi útgáfa hafi verið leikin opinber- lega fyrr en Berkofsky kynnti hana. Mun þessi útgáfa verða leikin á tónleikunum í Þjóðleikhúsinu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.