Þjóðviljinn - 07.05.1983, Page 27
Helgin 7. - 8. maí 1983 T.JÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Hœkkun á gjaldskrám orkuveitna__
Landsvirkjun fékk 10%
Hitaveitan í Rvík 32%
Landsvirkjun sótti um 31%
þótt raunverð á orku til
almenningsrafveitna hafi
hækkað um 27% á sídustu
13 mánuðum
Ríkisstjórnin hefur ákveðið
gjaldskrár orkufyrirtækja fyrir
tímabilið 10. maí-1. ágúst n.k.
Var frá því gengið í dag af nefnd
ráðherra, en hún hafði fullt um-
boð ríkisstjórnar.
Rafveitum er heimiluð hækk-
un á smásöluverði raforku allt
að 14,2% og er þá innifalin 10%
hækkun á heildsöluverði
Landsvirkjunar.
Hitaveitu Reykjavíkur er
heimiluð 32% hæækkun gjald-
skrár og flestar aðrar hitaveitur
fá hækkun á bilinu 20-30%.
Aukin er niðurgreiðsla úr ríkis-
sjóði á raforku til húshitunar og
nemur hún nú 27% af hitunartaxta
Rafmagnsveitna ríkisins, eða 23
aurum á kílóvattstund. Er húshit-
Færeyjar:
unarkostnaður með raforku frá
þeim rafveitum sem fá niður-
greiðslu þá 60% af óniðurgreiddri
olíu, miðað við núgildandi olíuverð
(7,30 kr/1) og nokkru lægri en hjá
nýjum hitaveitum eins og Hitaveitu
Akureyrar og Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar. Hefur þannig
verið að fullu staðið við yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar frá 5. maí 1982
varðandi jöfnun hitunarkostnaðar
íbúðarhúsnæðis á tímabilinu maí
1982 - maí 1983. Iðnaðarráðuneyt-
ið telur hins vegar nauðsyn bera til
að halda markvisst áfram jöfnun
hitunarkostnaðar og í því sam-
bandi er hækkun raforkuverðs til
stóriðju nærtækasta leiðin. Er það
í samræmi við álit nefndar, sem í
áttu sæti fulltrúar alla þingflokka
og sem skilaði tillögum til iðnaðar-
ráðuneytisins í janúar sl.
33% lækkun á hitunar-
taxta fyrir skóla og at-
vinnuhúsnæöi
Þá hefur ráðuneytið nú ákveðið í
samræmi við tillögur stjórnar Raf-
magnsveitna ríkisins að lækka hit-
unartaxta fyrir skóla, félagsheimili
og atvinnuhúsnæði um 33%, þann-
ig að hann verði ekki hærri en
óniðurgreidd rafhitun. Er þetta
veruleg hagsbót fyrir sveitarfélög
og atvinnurekstur á svæði Raf-
magnsveitnanna.
Eins og áður segir hefur Lands-
virkjun verið heintiluð 10% hækk-
Nató-stöðin
endurnýjuð?
Bæjarstjórnin í Þórshöfn í Færeyjum hefur samþykkt að heimila Nató að
endurnýja allan tæknibúnað í Nató-stöðinni í Kaldbaksfírði á Straumey.
Stöðin er hluti af ratsjárkerfi Nató á N-Atlantshafi og vinna um 100 menn
við hana. Þessari samþykkt verður vísað til landsstjórnarinnar í Fær-
eyjum.
Stjórnarmyndunarviðræðurnar:
Rœða við
verkalýðs-
hreyfinguna
Samningamenn Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks um ríkis-
stjórnarmyndun héldu áfram
fundarhöldum í gær. Að lokn-
um fundi sagði Geir Hallgríms-
son að í dag laugardag ætluðu
samningamennirnir að ræða
við forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar og síðan
myndu viðræðunefndirnar
halda áfram um helgina.
Geir sagði ennfremur að
nefndarmenn hefðu verið að
fara yfir gögn sem safnað hefur
verið og sagði hann að menn
væru sammála um að staða
þjóðarbúsins væri alvarlegri en
ætlað hefði verið.
Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra var þá
spurður að því hvað það væri
sem hefði komið mönnum
svona á óvart. Hann 'sagði að í
raun hefði kannski ekkert kom-
ið á óvart, en ljóst væri að hinn
mikli aflabrestur á þessari ver-
tíð sem nú er að ljúka setti stórt
strik í reikninginn.
Hann var spurður að þvi
hvort nefndarmenn Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokksins væru
að ná sarnan um einhver mál í
þessum viðræðum. Sagði
Steingrímur að menn væru sam-
mála í ýmsum grundvallarat-
riðum en í öðrum vantaði á
að svo væri.
Halldór Ásgrímsson, sem
sæti á í nefndinni Var spurður að
því hvort Sjálfstæðismenn væru
tilbúnir að fallast á niðurtain-
ingarleið Framsóknarmanna.
Niðurtalningin er ekkert
nýtt, menn hafa talað um
aðgerðir svipaðar þeim sem í
henni felast síðan 1977. Við
boðum bara ákveðnar aðferðir
til að glíma við verðbólguna
með því sem við köllum mður-
talningarleið. Við teljum þessa
leið skilyrði þess að ná einhverj-
um árangri í verðbólguglím-
unni, annars er of snemmt að
tala um þetta núna, við köllum
þetta enn könnunarviðræður.
-S.dór.
Deilan í Naustinu
Melna þjónum vinnu
eftir kjarasamningnm
„Það er ekki rétt eftir haft, að
þjónarnir í Naustinu hafi ekki mætt
til vinnu síðustu kvöld. Það rétta er
að þeir hafa mætt en eigandi
staðarins hcfur meinað þeim að
vinna eftir þcirra kjarasamningum
og hreinlega rekið þá heim aftur“,
sagði Atli Gíslason lögmaður Fé-
lags framleiðslumanna í samtali við
Þjóðviljann.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hefur eigandi Nausts, Ómar Halls-
son veitingamaður, tekið upp nýjar
vinnuaðferðir við afgreiðslu vín-
veitinga, án alls samráðs við starf-
andi þjóna og um leið brotið
skýlaus ákvæði um starfsreglur í
gildandi kjarasamningum þeirra.
Stjórn Félags framreiðslumanna
hefur ákveðið að vísa þessu máli til
Félagsdóms, og á trúnaðarmanna-
fundi í félaginu í gærkvöldi var
samþykkt einróma að taka ákvörð-
un um að boða til verkfalls fram-
reiðslumanna í Naustinu frá 14.
maí nk. Málið hefur ekki komið til
kasta Sambands veitinga- og gisti-
húsaeigenda, þar sem Ómar er
ekki aðili að þeim samtökum. .
-Ig-
un á heildsöluverði til almennings-
veitna. Fyrirtækið sótti hins vegar
um 31% hækkun frá 1. maí að telja
og gerir stjórn Landsvirkjunar ráð
fyrir söntu hækkunum 1. ágúst og
1. nóvember næstkomandi.
Iðnaðarráðuneytið
vildi enga hækkun hjá
Landsvirkjun
Iðnaðarráðuneytið lagði til við
Gjáldskrárnefnd, að engin hækkun
yrði heimiluð á gjaldskrá Landsvir-
kjunar að þessu sinni. Benti ráðu-
neytið á, að Landsvirkjun hefði nú
þegar tekið sér þá raunverðshækk-
un, sem ráð var fyrir gert og Þjóð-
hagsstofnun mælti með í apríl 1982,
eða um 27% hækkun umfram
hækkun byggingarvísitölu á tíma-
bilinu 1. apríl 1982 - 1. maí 1983.
Ráðuneytið telur að almenning-
sveitur hafi verið látnar taka á sig
óeðlilega rnikinn hlut af fram-
leiðslukostnaði raforku hjá Lands-
virkjun að undanförnu. Rekstrarv-
andi Landsvirkjunar stafar öðru
frentur af því, að tæplega 60% af
orkusölu fyrirtækisins renna til
stóriðjuvera samkvæmt langtímas-
amningum, að yfirgnæfandi hluta
til álversins í Straumsvík. Reyna
verður á leiðréttingu á þeim samn-
ingi, eins og ráðuneytið hefu ítrek-
að lagt til, áður en frekari hækkun-
unt er velt yfir á almenningsveitur.
Lagði iðnaðarráðherra fram tillögu
í ríkisstjórn um þetta efni í teng-
slum við gjaldskrárntál Landsvirkj
unar.
14,2% hækkun hjá
almenningsrafveitum
í Gjaldskrárnefnd varð ekki
samstaða um afstöðu til tillögu
ráðuneytisins. Minnihluti nefndar-
innar studdi tillögu ráðuneytisins
um enga hækkun gjaldskrár að
þessu sinni, en meirihlutinn lagði
til 19,7% hækkun gjaldskrár, sem
svarar til hækkunar byggingarvísi-
tölu. Ríkisstjórnin vísaði á fundi
sínum í gær þessum ágreiningi til
þriggja ráðherra (iðnaðar-,
viðskipta- og landbúnaðarráð-
herra) og náðu þeir samkomulagi
um að heimila 10% gjaldskrár-
hækkun hjá Landsvirkjun, eins og
áður segir, en sú hækkun svarar til
5,7% hækkunar í smásölu hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur.
Rafmagnsveitu Reykjavíkur og
öðrum almenningsrafveitum er
heimiliðu 14,2% gjaldskrárhækk-
un, sem svarar til áhrifa af hækkun
byggingarvísitölu og gjaldskrár-
hækkun Landsvirkjunar. Ráðu-
neytið hafði hins vegar lagt til 11%
hækkun á gjaldskrám þessara raf-
veitna miðað við að engin hækkun
yrði á gjaldskrá landsvirkjunar.
Var í þeirri tillögu því miðað við
nokkra tekjuhækkun til almenn-
ingsveitna umfram kostnaðartil-
efni. Minnihluti Gjaldskrárnefnd-
ar studdi þessa tillögu ráðuneytis-
ins, en meirihlutinn lagði hins veg-
ar til 19,7% hækkun á gjaldskrá
almenninsrafveitna, sem jafngilti
því að þessar rafveitur fengju enga
leiðréttingu umfram verðhækk-
anir.
Hitaveita Reykjavíkur sótti um
42% hækkun og er nú heimilað að
hækka gjaldskrá sína um 32%,
samkvæmt samkomulagi í ráðherr-
anefndinni. Iðnaðarráðuneytið
gerði tillögu um 35% hækkun og
var hún studd af minnihluta
Gjaldskrárnefndar, en meirihlut-
inn í nefndinni lagði til 28% hækk-
un. Aðrar hitaveitur fengu ágrein-
ingslaust heimild til umbeðinna
hækkana, flestar á bilinu 20-30%.
Steingrímur
Sumir
eru lítt
hrifnir
sagði Steingrimur
Hermannsson um
þingflokksfund
Framsóknarmanna
Steingrímur Hermannsson
formað'ur Framsóknarflokks-
ins var spurður að því í gær
hvort þingmenn flokksins
hefðu verið einhuga um að
fiokkurinn færi í ríkisstjórn
með Sjálfstæðisflokknum, á
fyrsta þingflokksfundinum í
fyrradag.
Ég skal játa það að menn
eru mishrifnir og sumir raunar
lítt hrifnir af því að fara í ríkis-
stjórn nteð Sjálfstæðisflokkn-
um, en menn voru aftur á móti
sammála um að halda þessum
viðræðum áfram, í ljósi þess
að við teljum það skyldu okk-
ar að ræða alla stjórnarmynd-
unarmöguleika, ekki síst þar
sem staða þjóðarbúsins er svo
alvarleg að við teljum að eng-
inn flokkur geti skorist úr leik
í stjórnarmyndunarviðræðum
við slíkar aðstæður, sagði
Steingrímur.
Hann var þá spurður að því
hvort spakmælið gamla, „allt
er betra en íhaldið" væri úr
gildi fallið?
Maður finnur íhald í öllurn
flokkum, jafnvel Alþýðu-
bandalaginu, svaraði Stein-
grímur Hermannsson.
- S.dór
Reuter
fréttastof-
an seglr
Geir
hættan við
stjórnar-
mvndun
Breska fréttastofan Reuter sendi
i gær út frétt þess efnis að Geir
Hallgrímsson væri hættur stjórn-
armyndunartilraunum sínum.
Þetta var borið undir Geir í gær
og brosti hann við, sagði þetta ekki
rétt eins og menn vissu hér heima,
en' hann bætti því við að hann von-
aði bara að sá er skrifaði fréttina
væri ekki forspár.
Fréttaritari Reuter á íslandi er
Þorsteinn Thorarensen.
- S.dór