Þjóðviljinn - 11.06.1983, Side 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 11.-12. júní 1983
Ragnar hótar að draga af kaupi starfsfólks í Álverinu
„Þetta er innflutt kurteisi”
segir Sigurður T. Sigurðsson um framkomu forráðamanna
✓
Alversins við verkafólk
Ráðherrarnir Alexander Stefánsson og Matthías Mathiesen kynntu reglur um greiðslufrestun í gær og nutu
aðstoðar embættismanna frá húsnæðisstjórn og bankakerfinu. Ljósm. -eik.
Verðtryggð íbúðalán hjá Húsnæðisstofnun og bönkum:
Frestur á 25% lána
„Það er allt með kyrrum kjörum í Straumsvík eins og stendur, en það er
víst að verkafólk kemur til með mótmæla áfram þeirri mannfyrirlitningu
sem því er sýnd af forráðamönnum Álversins. Þetta er innflutt kurteisi sem
þeir sýna af sér“, sagði Sigurður T. Sigurðsson varaformaður verka-
mannafélagsins Hlífar.
Aðspurður um þá yfirlýsingu Ragnars Halldórssonar forstjóri ÍSAL að
dregið yrði af kaupi starfsmanna þær tvær klukkustundir sem þeir ræddu
viðskipti sín við yfirstjórn Álversins í gærdag sagði Sigurður. „Eg geri ekki
ráð fyrir öðru en sá stóri hópur þar suður frá hafi átt von á öðru frá Ragnari
eftir þá andúð sem hann hefur sýnt verkafólki og fulltrúum þess. Þessir
herrar eru að kalla yfir sig mikla mótmælaöldu starfsfólks, þetta er kann-
ski sýnikennsla um þá erlendu stjóriðju sem stjórnvöld eru að boða
okkur. Það sýnir sig að þess háttar stjóriðja er ekki til þess að halda uppi
íslenskri atvinnustefnu og tryggja atvinnuöryggi heldur fyrst og fremst til
að ávaxta auð erlendra auðhringa."
-«g-
Björn Kristinsson flytur erindi um ferskleika fisks. Yflr 100 manns sátu
ráðstefnuna. Mynd -atli.
Tveggja daga ráðstefna Fiskiðnaðar
og sjávarútvegsráðuneytisins
Gæðamátin
sknpta mestu
I gær lauk tveggja daga
ráðstefnu Fiskiðnar, fagfélags
fískiðnaðarins og sjávarútvegs-
ráðuneytisins um gæðamál í
fiskiðnaði. Yfir 100 aðilar úr flest-
um greinum sjávarútvegs sóttu
ráðstefnuna.
Flutt voru erindi um gæðahringi í
fiskiðnaði, námleiðir í fiskiðnaði,
ferskleika fisks, verðmæti sjávar-
afla og þýðingu gæða, opinber
eftirlitsstörf, hráefni í fiskiskipum
og móttökum. Þá kynntu sölu-
samtök fiskframleiðenda hráefnis-
og markaðsmál og kynnt var nýtt
lagafrumvarp um ríkismat sjávar-
afurða sem nú er í burðarliðnum.
Það var samdóma álit ráðstefnu-
gesta að ekki yrði litið til frekari
aflaaukningar á næstu árum, held-
ur þyrftu menn að beina sjónum
sínum í mun ríkari mæli að bættum
gæðum aflans og betri nýtingu. Það
skipti sjávarútveginn og þjóðarbú-
skapinn um leið verulegu máli að fá
sem mest verðmæti fyrir þann afla-
feng sem að landi berst. Mörg at-
hyglisverð atriði voru reifuð á
ráðstefnunni og verða þeim gerð
betri skil í Þjóðviljanum síðar.
-Ig-
Lánskjaravísitalan enn óskert:
Er í athugun
sagði Matthías Á. Mathiesen
í næstu viku geta húsbyggjendur
sótt um greiðslufrest á fjórðungi af-
borgana, verðbótaþáttar og vaxta á
verðtryggðum íbúðalánum frá
Húsnæðismálastofnun og bönkum
og sparisjóðum. Er jafnframt til
þess að innan tíðar verði hið sama
uppi í teningnum varðandi lán frá
lífeyrissjóðunum. '
Álexander Stefánsson, félags-
málaráðherra og Matthías Mathie-
ákvæðum bráðabirgðalaganna frá
27. maí sl. og á að koma til móts við
hluta kjaraskerðingarinnar.
Hér er um að ræða verðtryggð
lán frá Byggingasjóði verkamanna
og Byggingasjóði ríkisins sem falla
í gjalddaga á tímabilinu 1. maí 1983
til 30. apríl 1984, og geta þeir sem
þegar hafa greitt af lánum sínum
frá 1. maí fengið fjórðunginn
endurgreiddan frá Húsnæðisstofn-
kaupa og að gjalddagar þess séu á
tímabilinu 28. maí 1983 til 27. maí-
1984. Um greiðslufrestinn þarf að
sækja íbönkunum fyrir 1. ágúst nk.
og kostar það 176 krónur. Hafi
menn þegar geitt af slíkum lánum
frá 28. maí sl. geta þeir fengið
fjórðunginn með nýju láni hjá við-
komandi banka eða sparisjóði.
Umsóknareyðublöð verða væntan-
lega tilbúin um miðja næstu viku og
munu þau liggja frammi í bönkum,
sparisjóðum og hjá Húsnæðismála-
stjórn.
Þeirri fjárhæó sem frestað er
greiðslu á, verður bætt við höfuð-
stól lánsins og kemur hún til
greiðslu að loknum lánstímanum.
Séu lánin í vanskilum reiknast
dráttarvextir ekki af þeim
fjórðungi lánsins sem frestað er.
Þessi frestun tekur ekki til lána sem
veitt vorú vegna skuldbreytingar
hjá húsbyggjendum á árinu 1981.
í bráðabirgðalögunum er gert
ráð fyrir því að lífeyrissjóðirnir
veiti einnig greiðslufrest á 25%
Iána, en frá því hefur ekki verið
gengið ennþá. Töldu ráðherrarnir
eðlilegt að bankarnir og Húsnæðis-
málastonun riðu á vaðið þannig að
lífeyrissjóðirnir hefðu fordæmi til
að styðjast við og báðir sögðust
þeir fastlega reikna með að lífeyris-
sjóðirnir yrðu við tilmælum um
greiðslufrestun.
Það vakti athygli á fundinum að
fulltrúar bankakerfisins og Hús-
næðiskerfisins, þeir Jónas Haralz
og Sigurður E. Guðmundsson
töldu að þetta væru fremur þarflitl-
ar aðgerðir. Jónas Haralz sagði að
þetta væri einungis það sem bank-
arnir væru að gera á hverjum degi;
- fresta lánum og veita fólki ný lán
til að standa undir gömlum og bjóst
hann ekki við að um umtalsverðar
fjárhæðir því til viðbótar væri að
ræða. Sigurður E. Guðmundsson
sagði að greiðslubyrði húsnæðis-
stjórnarlána væri ekki það sem
væri að sliga húsbyggjendur, held-
ur skammtímaskuldir í bönkum.
Hann sagði að ekki hefði orðið vart
aukningar á vanskilum hjá
Húsnæðisstofnun og ennfremur að
stofnunin hefði farið fram á að
henni yrði bætt það tekjutap sem af
frestuninni leiddi.
Breytingar á lánskjaravísitöl-
unni eru í athugun, sagði Matthías
Á. Mathiesen viðskiptaráðherra í
gær, þegar kynntar voru nýjar
reglur um frestun húsnæðislána að
hluta og ýmis áform önnur sem
ríkisstjórnin hefur uppi varðandi
húsnæðismálin. Lánskjaravísital-
an, sem nú æðir áfram óheft enda
þótt laun fólks séu stórlega skert,
var hvergi nefnd á þeim pappírum
sem dreift var á fréttamannafund-
inum. Matthías sagðist ekki geta
sagt til um hvenær einhverra breyt-
inga á henni væri að vænta, aðeins
að ekki hefði þótt rétt að bíða með
greiðslufrest á lánum þar til það
mál væri afgreitt.
Meðal ‘þess sem ríkisstjórnin
hefur heitið er að breyta skamm-
tímaskuldum húsbyggjenda í föst
lán eins og gert var á árinu 1981. Á
fundinum í gær sögðu ráðherrar
viðskipta- og félagsmála að gert
væri ráð fyrir að innan skamms geti
tekist samningur við bankakerfið
þar um og að viðræður við við-
skiptabanka og sparisjóði hefjist í
næstu viku.
Þjóðviljinn spurði Jónas Haralz,
formann samstarfsnefndar bank-
anna um áfstöðu til skuldbreyting-
arinnar. „Viðhorf bankanna hefur
ekkert breyst“, sagði Jónas, „við
teljum ekki nauðsynlegt að setja
þetta í eitthvað kerfi, heldur sé
eðlilegast að hver banki afgreiði
slíkar lánveitingar til sinna við-
skiptamanna í hverju tilfelli fyrir
sig.“ - ÁI
sen viðskiptaráðherra kynntu frétt-
amönnum í gær reglur um þessa
greiðslufrestun, sem byggir á
un. Hvað bankana varðar eru regl-
urnar nokkuð aðrar. Skilyrði er að
lánið hafi verið tekið til íbúða-
Húsnæðislánin:
Hækkun lána
sett í nefnd!
Féiagsmálaráðherra hefur
skipað nefnd til að endurskoða lög
um Húsnæðisstofnun ríkisins og á
hún m.a. að kanna möguleika á
fjáröflun til að hækka lánshlutfal!
húsnæðislána í 50% á næsta ári, en
það er talið kosta 400 - 500 miljónir
króna.
í sambandi við endurskoðun lag-
anna er nefndinni uppálagt að fella
inn í frumvarp sitt frumvarp um
Húsnæðisstofnun, sem lagt var
fram á alþingi 6. desember sl., en
hlaut ekki afgreiðslu á þinginu.
Hefur
það^VÖi
biargað/rtff
þér
ÚX
IFEROAR
Hér er um að ræða frumvarp sem
þáverandi félagsmálaráðherra,
Svavar Gestsson lagði fram og hef-
ur í för með sér hækkun lána og
ýmsar endurbætur á húsnæðiskerf-
inu, einkum hvað snertir hag fatl-
aðra, leigjendur, námsmenn, og
byggingasamvinnufélög.
Um lánin segir að nefndin skuli
athuga sérstaklega hvernig auka
megi fjármagn til byggingasjóð-
anna með tilliti til þess að koma á
næsta ári lánshlutfallinu á staðal-
íbúð upp í 50% af byggingarkostn-
aði fyrir þá sem eru að byggja eða
kaupa í fyrsta skipti. Er þá haft í
huga að lánshlutfallið fari síðan
hækkandi á næstu árum þar til 80%
marki verður náð. Jafnframt skal
nefndin athuga möguleika á leng-
ingu lánstíma almennra húsnæðis-
lána.
í nefndinni eiga sæti: Jóhann
Einvarðsson, fyrrv. alþingismað-
ur, formaður, Gunnar S. Björns-
son, trésmíðameistari, Halldór
Blöndal, þingmaður, Páll R.
Magnússon, húsasmíðameistari og
Þórður Ólafsson lögfræðingur.
Ritari nefndarinnar er Hilmar Þór-
isson, deildarstjóri Húsnæðisstofn-
unar ríkisins.
-ÁI
-ÁI