Þjóðviljinn - 16.06.1983, Page 8

Þjóðviljinn - 16.06.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. júní 1983 ÓHÁÐ RÍKISMAT Jóhann J.E. Kúld skrifar um fiskimál Ráðstefna um gæði sjávarafurða á vegum sjávarútvegsráðuneytisins og Fiskiðnaðar, féiags fiskiðnaðarins, var haldinn að Borgartúni 6 í Reykjavík dagana 9. og 10. júní sl.. Ráðstefnusalurinn var þéttskipaður fólki f rá úrvinnslugreinum sjávarafla, opinberum stofnunum sem tengjast sjávarútvegi, félagasamtökum á þessum vettvangi, svo og ýmsum áhugasömum einstaklingum. Menn með margskonar faglega þekkingu á fiskveiðum og vinnslu aflans sóttu ráðstefnuna og töluðu þar. Hinsvegar virtist vanta þarna fulltrúa frá verkafólkinu, sem vinnur hin daglegu störf á fiskvinnslustöðvunum og hiti og þungi dagsins mæðir á. Aftur á móti voru þarna nokkuð margir verkstjórar, matsmenn og eftirlitsmenn úr fiskvinnslunni. Á ráðstefnu um gæðamál í sjávarútvegi var m.a. kynnt frumvarp til laga um ríkismat, en í 3. grein þess felst viðsjárverð grundvallarbreyting. í upphafi ávarpaði hinn nýi sjáv- arútvegsráðherra, Halldór Ás- grímsson, ráðstefnuna og reifaði sjávarútvegsmál á breiðum grund- velli. Að því loknu hófust fram- söguerindi, en þau voru flutt 12 talsins þessa tvo daga um marg- breytileg efni. Inn á milli voru svo gerðar fyrirspurnir til ræðumanna, eða ábendingar gefnar til skýringar á því sem fram hafði komið. Þessi tími þótti mér vera full knappur sem markaðist af því hvað máiin voru mörg, sem tekin voru fyrir á þessum tveimur dögum. Ég held persónulega að þurft hefði að taka einn dag til viðbótar í frjálsar um- ræður eftir hina mörkuðu dagskrá, þannig að ráðstefnan hefði staðið í þrjá daga í staðinn fyrir tvo. Þetta er ábending til þeirra sem koma til með að skipuleggja nýja ráðstefnu af þessu tagi, því ég reikna með að framhald verði á slíkri umræðu sem þessari. Og í þessu sambandi vil ég benda á, að nauðsynlegt er að fá inn í slíka umræðu, e'kki bara menn hér af suðvesturhorni landsins, heldur einnig frá hinum dreifðu plássum fiskframleiðslunnar hring- inn í kringum landið. Ég vil þakka forgöngumönnum ráðstefnunnar framtak þeirra og vonast til að framhald verði á slíkum umræðum sem þessum. Ég vonast til að nýafstaðin ráð- stefna sé aðeins fyrsta sporið af mörgum sem á eftir komi um opn- ari umræðu en verið hefur til þessa um gæðamál íslenskra fiskafurða. Óháð ríkismat eða framleiðendamat? Á nýafstaðinni ráðstefnu um gæði sjávarafurða var síðasti liður- inn á dagskránni kynning á laga- frumvarpi, sem ber heitið „Ríkis- mat sjávarafurða“. Sá sem kynnti frumvarpið var dr. Jónas Bjarna- son starfsmaður Rannsóknar- stofnunar fiskiðnaðarins. Frum- varpið er samið af svonefndu „Fiskmatsráði" sem Steingrímur Hermannsson settí á stofn í ráð- herratíð sinni, og er Jónas einn af þeim mönnum sem ráðið skipa. Ég sem þetta rita vissi fyrir alllöngu að þetta frumvarp var í burðarliðnum. Kom þá á tvo fundi fyrir Fiskmats- ráð hinsvegar gengið frá frumvarp- inu fullmótuðu til að leggja fyrir Alþingi, og þannig var það kynnt á ráðstefnunni án allrar þagnar- skyldu. Þögnin um þetta er því hérmeð rofin. Frá sjónarmiði Fisk- matsmannafélags íslands hefur Fiskmatsráð engar breytingar gert sem máli skipta frá þeim frum- varpsdrögum sem áður voru kynnt í kyrrþey. Grundvallarbreyting á gildandi lögum 3. grein frumvarpsins hljóðar svo: „Til aðstoðar ráðherra varðandi starfsemi og verkefni Ríkismats sjávarafurða skipar ráðherra til fjögurra ára í senn sjö menn í Fisk- matsráð. Eigi skulu færri en fjórir þeirra vera úr röðum helstu hags- munasamtaka sjávarútvegsins. Ráðherra skipar formann ráðsins. Tillagna Fiskmatsráðs skal leitað vegna setningar reglna, er varða starfsemi og verkefni Ríkismats sjávarafurða, svo og um skipulag og rekstur stofnunarinnar. Fisk- matsráð skal vera umsagnaraðili um mál, sem upp rísa vegna ágrein- ings um framkvæmd mats. Fiskmatsráð skal leitast við að koma á aukinni samvinnu Ríkis- mats sjávarafurða, vinnsluaðila og útflytjenda sjávarafurða um gæða- mat sjávarafla og gera tillögur um rannsóknir og tilraunir er miða að bættri meðferð og nýjungum í vinn- slu hans. Fiskmatsráði ber að gera tillögur til ráðherra um hvaðeina, er það telur ástæðu til í sambandi við framkvæmd mats og eftirlits svo og stjórn og rekstur Ríkismats sjávar- afurða.“ Hér lýkur 3. grein frumvarpsins. með sér, ef slík grundvallar- breyting yrði gerð á núgildandi lögum. Óháð ríkismat, ekki bara hér á landi heldur líka í öðrum siðmenntuðum löndum, er byggt á þeirri forsendu að matið sé fulltrúi bæði seljenda og kaupenda vörun- nar sem metin er, og á að gæta hagsmuna beggja. Með þeirri grundvallarbreytingu sem felst í 3. grein þá er þessu jafn- vægi raskað sem óháð ríkismat á að tryggja. Seljendur vörunnar fá of mikið áhrifavald innan matsstofn- unarinnar. Með slíkri grundvallar- breytingu værum við íslendingar að stíga sporin afturábak allt aftur fyrir árið 1904, en þá var svo komið málum í saltfiskútflutningi að nauðsyn þótti bera til að setja lög um óháð ríkismat á saltfiski. Fram að þeim tíma hafði mat fram- leiðenda verið látið duga. Framleiðendamat var miklu lengur við líði hjá Norðmönnum, okkar keppinautum á fiskmörk- uðum, enda stóðu þeir að baki okkar með útflutt fiskgæði svo lengi sem það ástand varði. Nú er gildandi í Noregi mjög strangt óháð ríkismat á öllum útfluttum sjávarafurðum og ég held að eng- um detti í hug að rýra það. Mér er ekki kunnugt um það hvort frumvarp sem kynnt var á ráðstefnunni hefur verið kynnt fiskframleiðendum íhinum dreifðu byggðum landsins, eða það látið nægja að hafa samráð um þessa grundvallarbreytingu við nokkra forsvarsmenn hér á suðvesturhorni landsins. Hitt er víst, að hugmynd- in að þeirri breytingu sem gerð var á saltfiskreglugerðinni 1973, hún kom héraf suðvesturhorninu. Eftir þá breytingu var framleiðendum leyft að ráða matsmenn til starfa, en það hafði áður verið algjörlega í höndum yfirfiskmatsmanna allt frá verður að segja að er ekki góð þá er farið fram á það í frumvarpinu í 3. grein að framleiðendur fái meiri- hluta í yfirstjórn hinnar nýju stofn- unar, fjóra menn af sjö, ef frum- varpið yrði gert að lögum. Það fer ekkert milli mála, að í 3. grein frumvarpsins er farið fram á það, að Alþingi breyti núgildandi lögum í það horf, að í stað óháðs ríkismats sjávarafurða, sem byggir einvörð- ungu á faglegri þekkingu, komi ný stofnun með yfirstjórnarbákni sem nefnist Fiskmatsráð, að meirihluta skipað fulltrúum framleiðenda. Ég tel það tímaskekkju í okkar löngu fiskúflutningssögu, að slíkt sem þetta skuli kynnt á því herrans ári 1983. Framleiðendur eiga ekki að dæma eigin gæði Gæði allra sjávarafurða verður að tryggja meðan á framleiðslu stendur. Þau verða ekki tryggð eftirá. Grundvallaratriði fyrir því að þetta takist vel, er að unnið sé úr góðu hráefni. Mat getur í engu breytt þeim gæðum sem í vörunni felast fullunninni. Gæðaflokkun vörunnar er aðeins viðurkenning á því gæðastigi sem varan er á þegar hún kemur til mats. Við sem lengi höfum unnið við útflutningsmat fiskafurða, við þekkjum það, að hjá sumum framleiðendum gætir tilhneigingar til þess að vilja koma fiski í betri flokk heldur en fiskgæði segja til um. Þetta er mannlegur breyskleiki, oftast grundvallaður á vanþekkingu á fiskgæðum. Sem betur fer þá kemur slík tilhneiging ekki fram nema hjá litlum minni- hlut fiskeigenda.Óháðútflutnings- mat sem hefur í sinni þjónustu þjálfaða kunnáttumenn við mats- nauðsynlegt að framleiðendur til- einki sér þann sannleika, að hags- munir þeirra eru best tryggðir á hverjum tíma í gegnum óháð út- flutningsmat þar sem þjálfaðir kunnáttumenn vinna störfin. Leiðbeiningar frá sölusamtökum Ég tel það mjög jákvætt og gott þegar sölusamtök fiskframleið- enda hafa í þjónustu sinni þjálfaða kunnáttumenn sem leiðbeina framleiðendum. Á þetta er komin góð reynsla hjá sölusamtökum frystihúsanna, enda hefur góð sam- vinna verið alla tíð á milli þeirra leiðbeiningarmanna og yfirmanna ríkismatsins. S.Í.F. hefur nú farið inn á þessa sömu braut og fjölgað sínum leiðbeiningarmönrtum úr einum í sjö. Þetta er allt gott og blessað og horfir til framfara, svo lengi sem sölusamtökin skilja, að þetta er nauðsynleg þjónustustarfsemi við viðskiptamenn þeirra, en getur hinsvegar ekki komið í stað óháðs ríkismats á útfluttar sjávarafurðir. Ymsir fiskmarkaðir okkar eru viðkvæmir og við megum ekki stofna til neinna þeirra breytinga á lögum sem vakið geta tortryggni í viðskiptalöndum okkar. Eða orðið vopn gegn okkur í höndum annarra þjóða manna, sem við okkur keppa í mörkuðum. Ég tel að sú breyting á gildandi lögum sem felst í 3. grein frumvarpsins gæti orðið til þess að vekja slíka tortryggni, hvort sem hún byggðist á rökum eða ekki. Því ber að varast breytinguna. Og það skulum við gera okkur ljóst, að hér erum við með í hönd- unum fjöregg okkar aðal útflutn- ings sem ekki má verða fyrir áfalli. 11. júní 1983. mannafélag íslands, þar sem drög að frumvarpinu voru kynnt, en sem algjört trúnaðarmál semekki mátti segja frá. Á síðari fundinum var mönnum gefinn kostur á því að senda sjávar- útvegsráðuneytinu skriflega um- sögn um frumvarpsdrögin og gera athugasemdir við hinar ýmsu greinar. Við hjá Fiskmatsmanna- félagi íslands fórum yfir fram- varpsdrögin, bárum þau saman við gildandi lög og reglugerðir, en að því búnu sömdum við okkar um- sögn. Við höfnuðum frumvarps- drögunum sem heild og til vara gerðum við 10 athugasemdir við hinar ýmsu greinar þessa uppkasts að frumvarpi. Nú hefur Fiskmats- En til þess að taka af allan vafa um að hér verði gerð grundvallar- breyting á núgildandi lögum, þá skal ráðherra skipa fiskmatsstjóra svo og aðra helstu yfirmenn þessar- ar nýju ríkisstofnunar að fenginni umsögn Fiskmatsráðs þar sem aldrei minna en fjórir menn af sjö eru úr röðum helstu hagsmuna- samtaka sjávarútvegsins. Nú er mér það manna best kunnugt, að innan sjávarútvegsins er mikið af góðum og gegnum mönnum, sem viljandi vildu ekki verða til þess að skaða hagsmuni þessa mikilvæga atvinnuvegar, og þar með skaða þjóðarhagsmuni. Én eðli málsins vegna, þá getum við ekki séð fyrir afleiðingar sem það gæti haft í för upphafi. Til að vega upp á móti þessari tilslökun áttu frá hendi rík- isvaldsins að koma 5-7 þjálfaðir fiskmatsmenn sem færu á milli fisk- vinnslustöðva á vegum hins óháða ríkismats og gættu þess að sam- ræmi í mati raskaðist ekki við breytinguna. Við þetta hefur hins- vegar ekki verið staðið og hefur það valdið því, að breytingin hefur síðan leitt til margskonar mistaka sem lítið bar á áður. Þetta er ein- róma álit starfandi fiskmatsmanna í Fiskmatsmannafélagi íslands. Hér er átt við saltfisk- og skreiðar- mat, en sömu matsmenn stöðvanna framkvæma hvoru- tveggja matið. Þrátt fyrir þessa reynslu sem störfin er eitt fært um að fyrir- byggja mistök. Menn sem skortir kunnáttu og þjálfun, þeir geta ekki gætt eins og þarf hagsmuna bæði kaupenda og seljenda, en geta hinsvegar skaðað báða. Því er

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.