Þjóðviljinn - 16.06.1983, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 16.06.1983, Blaðsíða 23
Fimmtudagur Í6. juní' ÍSÍS3 ÞJÓÐYILJINN - SÍÐA 23 RUV © 7.00 Veðurfregnir. Frétttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Áma Böðvarssonar frá kvöld- inu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: Ragnar Snaer Karfsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Stroku- drengurinn" eftir Astrid Lindgren. Þýð- andi: Jónína Steinþórsdóttir. Gréta Ólafs- dóttir les (4). 9.20 Tónbilið a. Henryk Szeryng leikur á fiðlu og Charfes Rainer á píanó „Rondino" eftir Fritz Kreisler um stef eftir Beethoven. b. Alexis Weissenbrg leikur á píanó með hljómsveit Tónlistarháskólans í Paris „Andante spianato og Grande Polanaise" eftir Fréderic Chopin; Stanislaw Skrowacz- ewski stjómar. c. Timofey Dokschutzer leikur á trompet vals eftir Claude Debussy; Abram Zhak leikur á pianó. 9.40 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.35 Iðnaðarmál Umsjón: Sigmar Ármanns- son og Sveinn Hannesson. 10.50 „Sorg“, smásaga eftir Vasllji Sjúksjin Ingibjörg Haraldsdóttir les þýðingu sína. 11.05 Lðg úr kvikmyndum. 12.20 Fráttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 14.00 „Gott land“ ettir Pearl S. Buck i þýö- ingu Magnúsar Ásgeirssonar og Magnúsar Magnússonar. Kristín Anna Þórarinsdóttir les (22). 14.30 Miðdegistónleikar Simon Preston og Menuhin-hljómsveitin leika Konsert fyrir orgel og hljómsveit nr. 4 í F-dúr eftir Georg Friderich Hándel; Yehudi Menuhin stjórnar. 14.45 Popphólfið - Pétur Sveinn Guðmunds- Vegna skrifa siglingamála- stjóra, Hjálmars R. Bárðarsonar þar sem hann svarar fyrirspurn frá mér um það hvort fjöldi áhafnarmeðlima á M/S ísberg- inu, sem siglt var niður á Ermar- sundi ekki allsfyrirlönguhafiver- ið löglegur, vil ég lýsa því yfir að í viðtali við Jónas Garðarsson heitins Bjarnasonar, stýrimanns og starfsmanns hjá Sjómannafé- lagi Reykjavíkur, lýsti hann því yfir að á Isberginu hafi verið um algerlega ólöglega skráningu að ræða. Hann sagði á fundi með mér að skráningin á skipið stæðíst engan veginn samninga, sérstaklega það ákvæði að ekki væru skráðir hásetar um borð. Yður ætti að vera það ljóst, Hjálmar R. Bárðarson siglinga- Árni Jón Jóhannsson er ekki sammála Hjálmari R. Bárðarsyni um skráningu áhafnarmeðlima á ísbergið, sem nýlega var siglt niður á Ermarsundi. Enn um ísbergið Staðlausir stafir siglingamálastjóra um borð, undirritaður og Njáll Mýrdal núverandi yfirfiskmats- maður. Þriðja dæmið vil ég til- færa. Ég var í siglingum til meg- inlandshafna á mótorskipinu Straumey RE 81, en skipstjóri var Jón Sigurðsson í Görðum. Þar voru skráðir tveir hásetar, undirritaður og Ólafur Egilsson. Jafnframt þessu voru tveir stýri- menn um borð og auðvitað tveir vélstjórar og matsveinn. Mat- sveini og vélstjórum var aldrei skylt að ganga í okkar störf í brú. Ég hef verið á margs konar skipum í flotanum og kannast ekki við að menn gangi þar al- mennt í annarra störf. Samningar kveða skýrt á um slíkt og veit ég að sjómenn geta allir borið því vitni. Því lít ég svo á að svör yðar um að aðeins hafi þurft að vera fimm menn í áhöfn ísbergsins, séu út í bláinn og ekki sæmandi manni í yðar stöðu. Að lokum vil ég mælast til þess að Guðmundur Hallvarðsson Rósinkarssonar, fyrrverandi sjó- liðsforingi í Landhelgisgæslunni og formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, sjái til þess að svona hlutir eins og vitlaus skrán- ing á skip, endurtaki sig ekki. Ör- yggi áhafna eru í veði. Árni Jón Jóhannsson 15.20 Andartak Umsjón: Sigmar B. Hauksson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikara.JörgBaumannog Klaus Stoll leika Konsert í G-dúr fyrir selló og kontrabassa ettir Louis Couperin. b. Myr- on Bloom og Daniel Barenboim leika Són- Otu í F-dúr op. 17 fyrir horn og píanó eftir Ludwig van Beethoven. c. George Pieter- son og Hephzibah Menuhin leika Sónötu nr. 2 í Es-dúr op. 120 fyrir klarinettu og píanó eftir Johannes Brahms. 17.05 Dropar Siðdegisþáttur í umsjá Am- þrúðar Karlsdóttur. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvóldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Herdís Egilsdóttir heldur áfram að segja börnunum sögu fyrir svefninn. 20.00 Bé - einn Þáttur í umsjá Auðar Haralds og Valdísar Óskarsdóttur. 20.45 Leikritin: „Útilegan" og „500 metrar" eftir Steinunni Sigurðardóttur „Útilegan" Leikstjóri: Viðar Víkingsson. Leikendur: Tinna Gunnlaugsdóttir, Harald G. Haralds, Steinunn Þórhallsdóttir og Guðmundur Ólafsson. „500 metrar“ Leikstjóri: Arnar Jónsson. Leikendur: Anna Kristín Arngríms- ^ dóttir, Arnar Jónsson, Þóra Friðriksdóttir, Sigriður Þorvaldsdóttir, Kjartan Bjarg- mundsson, Lothar Kratzik, Lotte Gestsson, Guðný Thuliníus og Gerard Lemarquis. 2f .45 Gestir í útvarpssal: „Musica Antiq- ua“ leikur Svitu í c-moll eftir Pierre Danican Philidor, Sónötu i F-dúr ettir Baptiste Loeillet og Sónötu í F-dúr eftir Johann Joseph Fux. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Ljóð og mannlíf Umsjón: Einar Krist- jánsson og Einar Arnalds. 23.00 Á síðkvöldi tónlistarþáttur í umsjá Kat- rínar Ólafsdóttur. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. málstjóri, að samningar Sjó- mannafélags Reykjavíkur eru í samræmi við hinn eina farmann- asamning sem gilti og að sam- kvæmt ákvæðum hans er alger- lega ólöglegt á skipi af þeirri stærð sem M/S ísbergið var, að hafa enga háseta um borð. Það er algerlega fráleitt, sem þér lýsið yfir í síðbúnu svari við fyrirspurn Frá Flugleiðum hefur okkur bor- ist eftirfarandi athugasemd: í Þjóðviljanum 9. júní birtist bréf frá „Ferðalang“ undir fyrir- sögninni „Léleg þjónusta Flug- leiða“. Þar er fjallað um töf á flugi til Akureyrar að kvöldi föst- udagsins 20. maí sl. í tilefni þessa bréfs vilja Flugleiðir taka fram cftirlarandi: Seinni hluta dags 20. maí var áætlað að fljúga frá Reykjavík til Akureyrar kl. 18.00 og kl. 21.00. Daginn áður kom hinsvegar í ljós að ekki yrði hjá því komist að gera breytingar á þessari áætlun vegna mikillar eftirspurnar eftir fari á föstudag. Vegna þessa var minni í þessum dálki Þjóðviljans, að annar vélamanna eigi að vera á útkikki í brú. Ég var sjálfur til sjós í fjöldamörg ár, eða í yfir 30 ár, get vitnað um að slíkt ráðslag stenst engar reglur og vil ég til- færa nokkur dæmi því til staðfest- ingar: Á varðbátnum Óðni var ég um nokkurt skeið undir stjórn Eiríks ákveðið að Boeing þota flygi frá Keflavíkurflugvelli til Akureyrar kl. 22.00 á föstudagskvöld. Á fimmtudeginum var haft sam- band við þá farþega, sem áttu bókað til Akureyrar kl. 22.00 á föstudagskvöld. Á fimmtudegin- um var haft samband við þá farþ- ega, sem áttu bókað til Akur- eyrar kl. 18.00 og kl. 21.00 á föstudag og þeim tilkynnt þessi breyting. Qhjákvæmilega hafði þessi röskun þau óþægindi í för með sér, að' brottför farþega er ætluðu kl. 18.00 seinkaði um fjór- ar klst. og um 1 klst. hvað varðar farþega, er áttu bókað far kl. 21.00. Með þessu móti tókst hins- vegar að flytja alla þá er vildu Kristófersonar. Þar voru skráðir tveir fullgildlir hásetar og tveir viðvaningar að auki. Þá var ég einnig um tíma á 20 tonna bát, Auðbjörgu RE 166, undir stjórn Ásmundar heitins Jakobssonar (bróður Jakobs Jakobssonar fiskifræðings), en það var leigt Hafrannsóknastofnun til merk- inga á fiski. Þar voru tveir hásetar komast til Akureyrar umrætt kvöld. Rétt er að taka fram, að þessi atburðarás er rakin til þess eins að skýra málið, en ekki til þess að gera lítið úr þeim óþægindum, sem farþegar, er bókuðu far með nægum fyrirvara,urðu fyrir.Ákv- örðun um þessa breytingu S á- ætlun var tekin með það fyrir augum að leysa vanadræði sem flestra en ekki af kæruleysi eða umhugsunarlaust. Farþegar voru boðaðir á Reykjavíkurflugvöll kl. 20.00 á föstudagskvöid. Þar fór fram inn- ritun þeirra og bifreiðar lögðu af stað til Keflavíkurflugvallar um leið og því lauk eða kl. 20.45. P.S. Undirritaður álítur enn að ísbergið hafi verið mun stærra en það var skráð. Það var sagt rúm- lega 148 tonn en til samanburðar var undirritaður á Straumeynni, sem var skráð 311 tonn. Saman- burðurinn er því fyrir hendi og fráleitt að stærðarmunur skip- anna hafi verið eins og þessar töl- ur gefa til kynna. Ástæða þess að veitingasala fór ekki fram á Keflavíkurflugvelli var sú að viðdvöl þar var mjög stutt. Boeing þotan fór í loftið kl. 22.03, og kallað var um borð 10- 15 mínútum eftir að farþegar komu á flugvöllinn. Flugleiðir vilja nota tækifærið til þess að biðja farþega vel- virðingar á þeim óþægindum,' sem þeir urðu fyrir af þeim ástæð- um, sem hér hefur verið lýst. Fullyrðingum bréfritara þess efn- is að haldið sé uppi niðrandi skrif- um um Flugleiðir vísar félagið á bug. Að lokum skal þess getið, að í maí-mánuði voru 90% af áætl- unarferðum Flugleiða innan- lands á réttum tíma. Röskun á áœtlun Útvarp kl. 20.45 Tvö leikrit Steinunnar Kl. 20.45 í kvöld verða frumflutt tvö útvarpsleikrit eftir Steinunni Sig- urðardóttur, Útilegan og 500 m. Fjallar hið fyrra um fjölskyldu, sem fer í útilegu til Þingvalla, lendir þar í hrakningum og útistöðum við eftirlitsmann, sem framfylgir boðum og bönnum um tjaldstæði af mikilli kostgæfni. Síðara leikritíð er fyrsta leikrit Útvarpsins, sem tekið er upp í stereó. Gerist að mestu leyti í sund- laugunum og greinir frá fundi fornra elskenda, sem ekki hafa hist um árabil. Þrátt fyrir hjónabönd og fremur óhagstæða úttekt hvors um sig á hinu leynist með þeim löngun til að skara í gömlum glæðum. Þetta eru fyrstu útvarpsleikrit Steinunnar en áður hefur hún samið sjónvarpsleikrit: Líkamlegt samband í Norðurbænum. Auk þess hafa komið út eftir hana Ijóða- bækúrnar Sífellur, Þar og þá og Verksummerki og smásagnasafnið Sögur til næsta bæjar. Sjónvarpið hefur ákveðið að á næsta ári verði tekið upp leikrit Steinunnar Bleikar slaufur. -n»hg Uppreisnin Limir og líffæri líkamans urðu einhverju sinni leiðir á því að þjóna hver öðrum; ásettu þeir sér að hætta því. Fæturnir sögðu: „Því skyldum við einir bera ykkur? Útvegið þið ykkur fætur sjálfir, ef þið viljið ekki ganga“. - Hend- urnar sögðu: „Því eigum við að vinna fyrir öllum? Fáið þið ykkur sjálfir hendur, ef þið viljið láta vinna“. - Munnur- inn möglaði: „Ég væri mikill einfeldningur ef ég alla jafnan væri að tilreiða mat fyrir mag- ann, svo hann geti fengið hann eftir vild sinni. Hann verður sjálfur að útvega sér munn“. Augunum þótti það einnig mjög hart, að þau yrðu ein að vera á verði fyrir allan líkamann og vísa honum leið. Á líkan hátt sögðu allir upp þjónustunni hver af öðrum. - En hvernig fór? Þegar fæturn- ir vildu ekki ganga, hendurn- ar ekki vinna, munnurinn ekki eta, augun ekki sjá, þá tók líkaminn allur að morkna og dragast upp. Komust þá allir að raun um að þeir höfðu breytt óhyggilega og urðu ásáttir um að gjöra slíkt ekki oftar. Tóku nú allir að sinna sínum störfum og fékk líkam- inn við það brátt aftur hið fyrra fjör og þroska. Úr Lestrarbók Þórarins Böðvarssonar. Vísa frá Bryndísi / / B \ryn- <t r s ± tíifWWJÆ. Þegar kemur sumar þá verður gaman. En á veturna kemur snjórinn, þá leikum við okkur saman.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.