Þjóðviljinn - 16.06.1983, Síða 24
MðMu/m Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
Fimmtudagur 16. júní 1983 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Asmundur Stefánsson forseti ASÍ og borgarstjórinn í Reykjavík fluttu m.a. ávörp við setningu þingsins á
Hótel Sögu í gærmorgun. Mynd - eik.
Þing Norræna bygginga- og tréiðnaðarmannasambandsins:
Stórfellt atvinnuleysi
er heista umræðuefnið
Mikill samdráttur í bygging-
aiðnaði og atvinnulcysi sem hef-
ur orðið samfara því var megin-
umræðuefni á fyrra degi þings
Norræna bygginga- og tréiðn-
aðarmannasambandsins sem
hófst í Reykjavík í gær. Um 180
fulltrúar sitja þingið sem lýkur í
kvöld.
Mest hefur atvinnuleysið verið
hjá byggingamönnum í Danmörku
og Svíþjóð, allt uppí 50% atvinnu-
leysi í einstökum starfsgreinum
byggingaiðnaðar í Danmörku, en
samdráttur í byggingaiðnaði á
Norðurlöndum var um 40% á
síðastliðnum áratug, en talið er að
um 800 þús. manns vinni í bygging-
aiðnaði í þessum löndum.
Noregur og ísland hafa undan-
farin ár verið nokkuð sér á parti
hvað atvinnuástand í bygginga-
iðnaði áhrærir en nú eru farin að
sjást ískyggileg merki um að sam-
dráttar og atvinnuleysis megi
vænta í iðninni.
Þá verður á þingi Norræna
bygginga- og tréiðnaðarmanna-
sambandsins rætt um aðbúnað og
hollustuhætti í byggingaiðnaði.
Einkum verður fjallað um hugsan-
lega hættu sem kann að steðja að
byggingamönnum sem komast í
snertingu við fúavarnarefni og
trefjar úr steinull, glerull og as-
besti.
Tapið á Járnblendiverksmiðjunni 178,5 miljónir
Var fjórum sinmim
meira en öll laun
„Ohikað rétt að halda sömu stefnu”, segir í ársskýrslu
Rekstrarhalli járnblendi-
verksmijunnar á Grundartanga
varð 178,5 miljónir á síðasta
ári. Þetta kemur fram í nýút-
kominni ársskýrslu félagsins.
Til samanburðar má nefna að
laun og launatengd gjöld hjá
Járnblendifélaginu voru að
upphæð 43,3 miljónir króna á
sama tíma. Rekstrartapið nam
því u.þ.b. fjórföldum launa-
kostnaði fyrirtækisins.
Banaslys
IBYKO
Tæplega sextugur starfs-
maður Byggingavöruverslun-
ar Kópavogs lést á þriðjudag
eftir að timburstæða féll á
hann ofan af lyftara. Hann var
fluttur í Borgarspítalann en
reyndist látinn þegar þangað
var komið. Hann hét Gestur
Sigurjónsson, Tunguheiði 14,
Kópavogi, fæddur 18.11 1923.
Hann lætur eftir sig konu og
uppkomna dóttur.
Vextir, afskriftir, gengistap og
slíkir liðir skipta verulegu máli
varðandi tap fyrirtækisins. Megin-
skýringin á tapinu er hin bága staða
á alþjóðlegum mörkuðum, þar sem
verð hefur verið mjög lágt og sala
lítil.
í skýrslunni er m.a. að finna
eftirfarandi athugasemdir um
stöðu fyrirtækisins og horfur:
„Verði ekki verulegur bati í
aðstöðu járnblendiiðnaðar, er þess
að vænta, að hluthafar verði að
leggja fram fé á árinu 1983 til að
mæta greiðslufjárþörfum fyrirtæk-
isins. Vonir standa þó til þess, að
fjármagn frá hluthöfum þurfi ekki
að verða meira en sem svarar heim-
ild Alþingis frá fyrra ári."
Þá segir einnig í skýrslunni:
„Með tilliti til þessa má ætla að
heppilegt verði að stefna að endur-
skipulagningu á fjarhag félagsins til
að tryggja því nægan fjárhagslegan
styrk til frambúðarrekstrar.
Hinn langvarandi mótbyr, sem
félagið hefur fengið á sínum fyrstu
árum, hefur dregið úr líkindum til
að fyrirtækið geti í bráð ávaxtað
allt það fjármagn Sem í það hefur
verið lagt. Við aðstæður dagsins er
þó óhikað rétt að halda sömu
stefnu og beita öllum ráðum til að
ná eins góðum árangri um afkomu
fyrirtækisins og efnahagsforsendur
markaðsins leyfa á hverjum tíma.“
Bátaflotinn eyðir
10% olíunnar í höfn
Ódýrara að framleiða rafmagn með olíu
en kaupa það úr landi
Meðalskip notar um 5600 lítra af
olíu til að framleiða rafmagn þegar
það liggur í höfn og samsvarar það
um 8.4% af heildarolíunotkun
skipsins. Ef tekin er með olíunotk-
un ■ höfn vegna miðstöðvarkatla er
víst að um tíundi hver olíulítri sem
bátaflotinn notar er brenndur til
framleiðslu rafmagns í höfn.
Þetta eru niðurstöður úr rann-
sókn Tæknideildar Fiskifélagsins
sem greint er frá í nýjasta tölublaði
Ægis, en rannsókn þessi á olíu-
notkun fiskiskipa vegna rafmagns-
framleiðslu í höfn og nýtingar á
landrafmagni er einn liður í nor-
rænu samstarfsverkefni sem Tækn-
ideildin hefur unnið að undanfarin
ár.
Við rannsóknina voru hafðar til
hliðsjónar tæknilegar upplýsingar
frá 27 fiskiskipum á vertíðar-
svæðinu suðvestanlands. f ljós kom
að meðalálag í höfn og hlutdeild
hafnartíma var nokkuð mismun-
andi hjá þessum vertíðarbátum en
að meðaltali var hafnartími aðeins
meiri en sjótími og raforkunotkun í
höfn um 164 KWH að meðaltali á
dag.
Það sem vekur kannski einna
mesta athygli í niðurstöðum rann-
sóknarinnar er að þrátt fyrir að
bátaflotinn eyðir að jafnaði um tí-
unda hverjum olíulítra í höfn til
rafmagnsframleiðslu er það ódýr-
ara en landrafmagn. Munar rúm-
um 800 krónum á landrafmagni og
olíueyðslu ef miðað er við 106 daga
úthaldstímabil og þar af tæpar 1000
stundir í höfn. Enda er notkun
landtengis mjög óveruleg meðan
vertíð stendur yfir, eða aðeins um
5% af hafnartíma að meðaltali, en í
mörgum eldri fiskiskipum er ekki
fullkominn búnaður til að raf-
tengja skipin í höfn.
- Ig-
Fyrirspurnir í borgarstjórn:
Hvernig á að
velja úr lóða-
umsækjendum?
Á borgarstjórnarfundi í dag
eru á dagskrá nokkrar fyrir-
spurnir frá borgarfulltrúum Al-
þýðubandalagsins vegna
lóðaumsókna og skipulagsins í
Grafarvogi. Meðal þess sem spurt
er um er hvernig velja á úr um-
sækjendum um lóðir þar sem þeir
eru miklu fleiri en þær lóðir sem í
boði eru.
Sem kunnugt er reyndist Graf-
arvogssvæðið ekki vinsælt og
gengu ekki allar lóðir þar út, en
slíkt hefur ekki gerst í Reykjavík
árum saman. Hins vegar voru
umsóknir mun fleiri um lóðir á
öðrum svæðum sem í boði voru
og eru þannig 9 umsækjendur um
hverja lóð í Ártúnsholti. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur lagt
punktakerfið niður og fyrirspurn
Alþýðubandalggsins hljóðar svo:
Hvað verður lagt til grundvallar
úthlutun nú þegar punktakerfið
hefur verið lagt niður?
í öðru lagi er spurt hvort fyrir-
hugað sé að endurskoða skipu-
lagið við Grafárvog í ljósi þess að
ekki er nema takmarkaður áhugi
fyrir stórum einbýlishúsum í ein-
angraðri útborg og í þriðja lagi er
spurt hvernig meirihiutinn hyggst
bregðast við því tekjutapi sem
fyrirséð er vegna minni gatna-
gerðargjalda en áætlað hafði
verið.
-ÁI
Þrír blaðberar til Hafnar
Snemma í niorgun héldu þrír blaðberar Þjóðviljans ásamt
afgreiðslustjóra blaðsins til Kaupmannahafnar þar sem þeir
munu dvclja fram á mánudag kemur. Ferðalag þctta eru
verðlaun í hlaðburðarhappdrætti Þjóðviljans, og væntan-
lega fáum við að lesa ferðasögu þeirra blaðhurðardrengja
innan tíðar í blaðinu. Þessi tnynd var tekin á söluskrifstofu
Flugleiða í Lækjargötu í gær þcgar ferðalangar vitjuðu far-
seðla sinna. F.v.BirgirÓlafsson deildarstjóri hjá Flugleiðum,
Jón Leifsson sem ber Þjóðviljann út í Brciðholti, Geir Guð-
mundsson sem ber Þjóðviljann út í Kópavogi, Pétur Þorleifs-
son sem ber blaðið út í Langholtshverfínu og Baldur Jónsson
afgreiðslustjóri Þjóðviljans. Mynd - eik.