Þjóðviljinn - 02.07.1983, Síða 27
♦ f * ' • ’ * / ▼ ' Tf * 'jój T . . . 4Í I » V
Helgin 2. - 3. júíí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Sumarstarf í Óperunni
Á þaki Gamla bíós verður á góðviðrisdögum í sumar útikaffihús og auk þess hefur notaleg kaffistofa verið
innréttuð i gömlu forstjóraíbúðinni. Þetta er alt á vegum íslensku óperunnar sem í júlí og ágúst mun gangast
fyrir kvöldvökum þar sem sýndar verða kvikmyndir og kynnt íslensk tónlist. Allur ágóði af þessu sumarstarfi
mun renna til reksturs óperunnar og allir söngvararnir sem fram koma gefa vinnu sína. I rigningunni í gær
var þessi mynd tekin af Maríu Sigurðardóttur rekstrarstjóra óperunnar og Herði Erlingssyni sem undirbjó
sumarstarfið. Ljósm. - Leifur.
Samningurinn um Landsvirkjun í gildi í gær:
Landsvirkjun
í landskerfið
I gær, 1. júlí, sameinaðist Lax-
árvirkjun heildarorkufyrirtæki
landsmanna, Landsvirkjun, við
gildistöku samningsins frá 1981
milli ríkisins, Reykjavíkur og Ak-
ureyrar um þátttöku Akureyringa í
fyrirtækinu. Þessi samningur varð
á sínum tíma frægastur fyrir að
verða felldur í borgarstjórn
Reykjavíkur af fulltrúum Sjálf-
stæðisflokks og Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur, en samþykktur aftur síðar.
Akureyrarbær á nú um 5 1/2% í
Landsvirkjun, Reykjavíkurborg
um 44 1/2% og ríkið helming. Ak-
ureyringar fá einn mann í stjórn af
níu. Akureyringar leggja í hið sam-
eiginlega bú 35% eignarhlut sinn í
Laxárvirkjun, sem nú tengist
landskerfinu undir einni stjórn.
„Þetta hefur ekki mikil áhrif á
orkumálin hér norðanlands í bili“,
sagði Knútur Otterstedt rafveitu-
stjóri á Akureyri í samtali við Þjóð-
viljann í gær, „en ég held að þetta
hafi verið rétt ákvörðun. Rekstur-
inn verður allur miklu einfaldari,
við þurfum til dæmis ekki að standa
í því lengur að kaupa orku þegar
hana vantar hér. Auðvitað tapast
sjálfstæði sem við höfum haft þegar
skrifstofa Landsvirkjunar tekur
yfir Laxárvirkjunarskrifstofuna
hér, en við erum ekki hræddir við
að verða ofurliði bornir þótt áhrif
okkar virðist lítil í stjórn. Lands-
virkjun verður með þessum
breytingum í auknum mæli fyrir-
tæki allra landsmanna, og það hef-
ur sitt að segja fyrir lands-
byggðina.“
Helgi Guðmundsson bæjarfull-
trúi á Akureyri og fyrrum stjórn-
armaður í stjórn Laxárvirkjunar
sagði Akureyringa ánægða með að
málið væri í höfn. „Þetta á í raun
rætur að rekja til starfs Magnúsar
Kjartanssonar iðnaðarráðherra",
sagði Helgi, „það var hann sem
manna mest barðist fyrir því að allt
landið yrði sameinað í eitt veitu-
svæði. Það mætti andstöðu á sínum
tíma, menn voru að hugsa um
landshlutafyrirtæki í orkumálum.
Það var reynt hér fyrir norðan en
gafst ekki vel. Nú ríkir sátt og sam-
lyndi um þessa stefnu Magnúsar,
enda skynsamlegast að þetta sé
undir einni stjórn. Þetta breytir
ekki miklu fyrir okkur norðan-
menn, en hefur sín áhrif þegar til
lengri tíma er litið. Hér skapast til
dæmis auknir möguleikar til jöfn-
unar á orkuverði“.
Nokkuð er urn dýrðir fyrir norð-
an í tilefni sameiningarinnar, þar er
nú um helgina Sverrir iðnaðarráð-
herra Hermannson, og var í gær
sýnt hið nýja orkuver allra lands-
manna, Laxárvirkjun.
- m
Stjórn Landsvirkjunar:
Akureyringar fallast á Nordal
Bæjarráð og bæjarstjórn Akur-
eyrar samþykktu í síðustu viku að
styðja tilnefningu borgarráðs
Reykjavíkur um Jóhannes Nordal,
Seðlabankastjóra og svo framvegis,
sem formann Landsvirkjunar.
Það var gengið þvert á pólitískar
markalínur í bæjarstjórn Akur-
eyrar þegar fulltrúarnir samþykktu
að lúffa fyrir Nordalslínunni að
sunnan, Framsóknarmenn í
meirihluta bæjarstjórnar og Sjálf-
stæðismenn í minnihlutanum
greiddu bankastjóranum atkvæði
sitt sem formanni Landsvirkjunar.
Alþýðuflokksmenn sátu hjá, en
Kvennaframboðið skipti um skoð-
un milli atkvæðagreiðslna, greiddi
Jóhannesi atkvæði í bæjarráði, en
sat hjá í bæjarstjórn.
Helgi Guðmundsson, fulltrúi
Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn
Akureyrar og bæjarráði greiddi
einn atkvæði gegn stuðningnum
við Jóhannes Nordal. „Mér finnst
óeðlilegt að Seðlabankastjóri sé
stjórnarformaður svona fyrir-
tækis“, sagði Helgi við blm. Þjv. í
gær, „fyrir utan það að mér sýnist á
lögum um Seðlabanka þar sem
kveðið er á um leyfileg önnur störf
bankastjóranna að það sé á ystu
mörkum að Jóhannes megi yfirleitt
gegna þessari stöðu."
- m
TRÍÓ-tjald
er trygging fyrir góðum fjölskylduferðum um
mörg ókomin ár.
TRÍO-tjalddúkurinn
er umfram allt vatnsheldur, litsterkur og þéttur.
TRÍÓ-tjaldstengurnar
eru úr léttu stáli og þola sitt af hverju. Það sýnir
átta ára reynsla á Islandi.
5 stærðir TRÍÓ-hústjalda. Verð frá kr. 8.000.-
5 manna tjald með himni kr. 5.700.-
Tjaldstólar frá kr. 205.-
Tjaldborð kr. 450.-
Stillanlegur sólstóll kr. 990.-
Svalastólar úr áli og stáli kr. 280.-
TJALDASÝNING FRÁ 21. MAÍ TIL 26. JÚLÍ.
SENDUM UM LAND ALLT
Tjaldbúöir
Geithálsi v/Suðurlandsveg,
simi 44392.
Lausar stöður:
Við leikskólann Lönguhóla, Höfn Hornafirði
eru lausar 2 fóstrustöður og ein staða starfs-
manns. Æskilegt er að umsækendur geti
hafið störf 22. ágúst. Umsónarfrestur til 18.
.07. 83. Nánari upplýsingar gefur forstöðu-
kona í síma 97-8345.
Wm Styrkir til að sækja
frönskunámskeið í Frakklandi
Franska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt að boðnir séu fram
fjórir styrkir handa íslendingum til að sækja eins mánaðar frönsku-
nám í Frakklandi í septembermánuði n.k. Eru styrkirnir öðru fremur
ætlaðir námsmönnum sem leggja stund á raunvísindagreinar eða
starfsfólki á sviði raunvísinda. Þeir ganga fyrir að öðru jöfnu sem
eitthvað hafa lagt stund á franska tungu, t.d. á namskeiðum Al-
liance Francaise. Styrkirnir eiga að nægja fyrir námskeiðsdvöl en
fargjald til Frakklands er ekki greitt. - Umsóknum um styrki þessa
skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 15. júlí. Umsóknarblöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðúneytið,
30. júní 1983.
=1= Fóstrur -
Js þroskaþjálfar
Viljum ráða eftirtalda starfsmenn:
1. Forstöðumann á leikskólann við Norður-
vang í Hafnarfirði frá 1. september n.k.
2. Fóstru eða þroskaþjálfa í 1/2 starf eftir há-
degi við leikskólann Arnarberg frá 1. sept-
ember n.k.
Umsóknarfrestur er til 14. júlí.
Athygli er vakin á rétti öryrkjatil starfa sbr. 16.
gr. laga nr. 27 1970.
Upplýsingar um starfið veitir dagvistarfulltrúi
í síma 53444.
Félagsmálastjórinn
í Hafnarfirði
Hugheilar þakkir eru færðar öllum hinum fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og hlýju og sendu kveðju við andlát og
útför
Vilmundar Gylfasonar
alþingismanns
Valgerður Bjarnadóttir
Guðrún Vilmundardóttir og Baldur Hrafn Vilmisndarson
Guðrún Vilmundardóttir og Gylfi Þ. Gíslaso
Þorsteinn Gylfason, Þorvaldur Gylfason