Þjóðviljinn - 08.07.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. júlí 1983
Rætt við Maríu Ragnarsdóttur,
lektor í námsbraut í sjúkraþjálfun
„Aðsóknin í nám í sjúkraþjálf-
un cr mikil, en við höfum þó yfir-
leitt getað tekið einn af hverjum
þremur umsækjendum. Þegar
talað er um takmörkun í Há-
skólanum, gleyma menn oft að
þetta er þó miklu betra hér en í
nágrannalöndunum. í Svíþjóð
kemst t.d. aðeins 1 af hverjum 12
umsækjendum í þetta nám“ sagði
María Ragnarsdóttir, lektor og
formaður námsbrautar í sjúkra-
þjálfun við Háskóla íslands.
Kennsla í sjúkraþjálfun hófst
hér við Háskólann árið 1976 og
voru fyrstu árin teknir 20 nem-
endur á ári, en 18 síðustu tvö ár-
in. Námið tekur 4 ár. Mikill
skortur hefur verið á sjúkra-
þjálfurum og sagði María að lang-
flestir sem stunda nám í deildinni
færu beint út í atvinnulífið að því
loknu. En hvernig eru launakjör-
in hjá sjúkraþjálfurum?
„Þau eru alls ekki góð, miðað
við fjögurra ára háskólanám.
Þetta hefur verið kvennastétt -
mjög lítill hluti nemendanna eru
karlmenn. Það segir sína sögu.
Auk þess eru launakjör þeirra
sem annast manninn, jafnan
miklu verri en þeirra sem annast
t.d. fjármál og peninga. Þetta á
við um fjöldamargar stéttir.
Viðskiptafræðingar með styttri
menntun en sjúkraþjálfarar fá
t.d. yfirleitt mun hærri laun.“
„Hvar er skólinn til húsa?“
„Við höfum verið með megnið
af kennslunni í Húsi Jóns Þor-
steinssonar, gegnt Þjóðleikhús-
inu, en nú 1. júlí tekur
Þjóðleikhúsið við húsinu. Við
höfum verið að leita að húsnæði
og höfum augastað á ýmsum
stöðum, en ekkert er ákveðið.
Húsnæðið við Lindargötuna var
þröngt og aðstaðan á ýmsan hátt
erfið og við vonumst til að fá
betra húsnæði fyrir veturinn“.
„Hvers vegna er aðgangur að
deildinni takmarkaður, fyrst svo
mikill skortur er á sjúkra-
þjálfurum?“
„Að þessu spyrja margir.
Ástæðan er fyrst og fremst
skortur á námsaðstöðu í kiínísku
námi. Þegar námsbrautin var sett
á laggirnar kom yfirleitt aðeins 1
menntaðursjúkraþálfari til starfa
á ári - menntaður maður er-
annast manninn
fá lægri laun
en þeir sem
annast peninga
„Mikil aðsókn í þetta nám“ segir María Ragnarsdóttir, leiktor.
Ljósm. - eik -
lendis, nú koma 12 - 18. Aðstað-
an til að koma hér upp kennslu í
sjúkraþjálfun var nánast engin og
við erum að framkvæma það sem
er ógerlegt. Þetta vill oft
gleymast þegar takmarkanirnar
eru til umræðu“, sagði María.
þs
Skák
Karpov að tafli - 165
Sjaldan hefur stórmeistari fengiö jafn
háöulega útreið og ungverski stórmeistar-
inn Lajos Portisch í skák sinni viö Anatoly
Karpov i 4. umferð Evrópumótsins í
Moskvu 1977. Portisch haföi hvitt og tap-
aöi í aðeins 23 leikjum. Timamismunurinn
var athyglisveröur. Karpov hafði notað 1
klst. á skákina, en Portisch 2 klst. og 10
mínútur.
iw *I4#
1 i. - iál
i A
i [> ► &
i ± \ A
ÍAA ^AAAA a#a &
Portisch — Karpov
17. .. Dg5!
(Ræðst á báða riddara hvíts. 18. Re3
strandar vitaskuld á 18. - Hxe3! o.s.frv.)
18. Rd6 Bxd2
19. Rxb-7
(Portisch fann ekkert betra þrátt fyrir langa
umhugsun. 19. h4 gengur ekki vegna 19. -
Dh6 20. Rxb-7 Bxc1 21. Dxc1 Hxe2! og
vinnur. Ef 19. c6 þá 19. - Ba6 o.s.frv.)
19. .. Bxe1
20. Dxe1 Hxe2!
21. Dxe2 Dxc1 +
22. D11 Dd2!
23. cxb6
(Eða 23. c6 Hc8 24. Db5 Dc1 - og vinnur.
23. .. Hc8!
- og Portisch gafst upp. Sovétmenn unnu
Ungverja 6:2 f þessari viðureign.
Urslit mótsins urðu þau að Sovétrikin
sigruðu örugglega, hlutu 41 '/2 vinning af
56 mögulegum. í 2. sæti urðu Ungverjar
með 31 vinning, þá Júgóslavar með 30
vinninga. Rúmenar urðu i 4. sæti með 29
vinninga, Búlgarar í 5. sæti með 25 vinn-
inga, V-Þjóðverjar í 6. sæti með 25 vinn-
inga en lægri á stigum en Búlgarar. Tékkar
uröunr. 7 meö'21 '/2vinning og lestina ráku
Englendingar en þeir hlutu 21 vinning.
Frammistaða Karpovs verður lengi í
minnum höfö enda ekki á hverjum degi
sem skákmaöur stendur uppi með 100%
vinningshlutfall í sveitakeppni.
Bridge
Mörgum spilum er raunverulega lokið í 1.
slag. Þess vegna er eitt af boðorðunum í
bridge þannig: Gættu að þér í 1. slag (eða
þannig...).
Hér er dæmi um slikt:
Á863 G92 D104 D1063 1094 D754
9652 873
874 Á5
K5 8732
K10 ÁKG KG92 ÁDG6
Suður opnaði á 2 gröndum sem Norður
hækkaði i 3 grönd. Útspii Vesturs var
spaðaþristur (fjórða hæsta), sagnhafi setti
gosann og Austur drottningu, Og þarmeö
var þetta spil búið. Austur hefði betur fylgt
boðorðinu á undan, því öll rök hniga að því,
að sagnhafi eigi Klo (Kx), frekar en Áx. EF
sagnhafi á ásinn annan, lætur hann örugg-
lega níuna duga í blmdum.
Alfred Sheinwold kallar þetta að veiöa
drottningu, en spilið er úr bók hans, Stytt
leið til vinningsbridge, sem Sigurjón
Tryggvason gaf út 1981 (í eigin þýðingu).
1) Eftir morgunmatinn át Siguröur skrifstofustjóri 2) Nokkru síöar kviknaði í símanum á skrifborðinu
töfluna sína. hans.
BSRB:
3 ný
sumarhús
BSRB hefur nú tekið í notkun
34 ný orlofshús að Eiðum og
Stóru-Skógum. Sex af aðildarfé-
lögum innan BSRB eru nú að fá til
umráða í fyrsta sinn hús í orlofs-
hverfum bandalagsins.
3) Þegar hann kom út á bílastæði eftir vinnu - tók 4) Þegar hann kom heim og leit í póstkassann sá
hann eftir því að búið var að ræna bílnum hans. hann þar rukkanir frá Rafmagnsveitunni, Alu-
suisse, Sjálfstæðisflokknum, Lyonsklúbbnum,
frímúrarareglunni og skattinum.
Starfsmannafélag ríkisstofn-
ana fær 10 hús og tvöfaldar húsa-
fjöldann, Kennarasambandið fær
4 hús og Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar fær 3. 10
aðildarfélög bæta við sig einu
húsi. Á aðalfundi fulltrúaráðs
orlofsheimilanna sem haldinn var
6. mars s.l. var dregið um nýju
orlofshúsin að Eiðum á Austur-
landi og að Stóru-Skógum í Staf-
holtstungum.
Gœtum
tungunnar
Heyrst hefur: Bílstjórinn sagði,
að honum hefði tekist að aka
þessa leið.
Rétt væri:... að sér hefði tekist...
(nema bílstjórinn sé að tala um
annan en sig).
5) Um kvöidið hringdi eiginkona hans og sagðist
skilja við hann af því hún væri byrjuð að vera með
Jóni deildarstjóra.
Hvílíkur dagur! hugsaði Sigurður með sjálfum sér
þegar hann lagðist til hvílu um kvöldið, - og samt
stóð á pilluglasinu „Engar aukaverkanir".
Sagt var: Hann fór niður til Af-
ríku.
Rétt væri: Hann fór suður til Af-
ríku.