Þjóðviljinn - 08.07.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. júlí 1983
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn föstudaginn 8. júlí kl. 17.30 í Þinghóli.
Dagskrá: Tómstundastarfið. - Stjórnin.
Sumarmót AB -
Norðurlandskjördæmi eystra
Sumarmót AB í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið í Hrísey dagana
8.-.10. júlí. Gist verður í tjöldum. Fólk hafí með sér grilltól. Fastar ferðir frá
.Árskógsströnd föstudag og laugardag. Dagskráin i stórum dráttum: Útsýnis-
ferð um eyjuna, kvöldvaka á laugardag með tónlistaleikverki (musikteater)
„Aðeins eitt skref“ með Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara og Jóhönnu Þórhalls-
dóttur söngkonu. Fleira verður sér til gamans gjört. Varðeldur og fjöldasöngur
með mararorganundirspili. Upplýsingar gefa Steinar í 21740, Erlingur í 25520
og Hilmir í 22264.
Áætlun Hríseyjarferjunnar: AlladagafráHrísey kl. 9.00-13.00-17.30. Frá
Árskógssandi kl. 9.30-13.30-18.00.
Miðnæturferðir þriðjudaga-föstudaga-sunnudaga frá Hrísey kl. 23.30 og
frá Litla Árskógssandi kl. 24.00. í athugun er að láta ferjuna fara aukaferðir
m.a. til Grenivíkur á föstudag. - Nefndin Norðurlandi eystra.
Úr Hornvík - maður á eintali við náttúruna
Sumarferð Alþýðubandalagsins
á Vestfjörðum 8.-10. júlí
Farið verður á Hornstrandir
Hin árlega sumarferð Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum verður að þessu
sinni farin norður í Hornvík í Sléttuhreppi. Lagt verður af stað með Djúp-
bátnum Fagranesinu frá ísafirði, föstudaginn 8. júlí klukkan 2 eftir hádegi og
komið til baka á sunnudagskvöld, 10. júlí. Farið verður á Hornbjarg og í
gönguferðir um nágrennið undir leiðsögn kunnugra manna. Dvalið verður í
tjöldum, og þurfa menn að leggja sér til allan viðleguútbúnað og nesti.
Munið að vera vel klædd.
Kvöldvaka og kynning á Hornströndum.
Verð fyrir fullorðna kr. 980.- hálft gjald fyrir 12 til 15 ára unglinga og frítt fyrir
börn innan 12 ára aldurs. I verðinu er innifalin ferð til ísafjarðar frá öllum
þorpum á Vestfjöröum og heim aftur.
Öllum heimil þátttaka.
Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst einhverjum eftirtalinna manna:
ísafjörður: Þuríður Pétursdóttir, sími 4082, Hallur Páll sími 3920, Elín
Magnfreðsdóttir, sími 3938.
Bolungarvík: Kristinn H. Gunnarsson, sími 7437.
Inndjúpshreppar: Elínborg Baldvinsdóttir, Múla Nauteyrarhreppi.
Súðavík: Ingibjörg Björnsdóttir, sími 6957.
Súgandafjörður: Þóra Þórðardóttir, sími 6167.
Önundarfjörður: Jón Guðjónsson, frá Veðrará, sími 7764.
Dýrafjörður: Davíð H. Kristjánsson, Þingeyri, sími 8117.
Arnarfjörður: Halldór Jónsson, Bíldudal, sími 2212.
Tálknafjörður: Steindór Halldórsson, sími 2586.
Patreksfjörður: Bolli Ólafsson, sími 1433.
Austur-Barðastrandarsýsla: Gisela Halldórsdóttir, Hríshóli, Reykhóla-
sveit, simi 4745.
Strandasýsla: Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Pálmi Sig-
urðsson, Klúku, Bjarnarfirði, SigmundurSigurðarson, Steinadal, Kollafirði,
sími 3343, Hörður Ásgeirsson, Hólmavík, sími 3123.
Reykjavik: Guðrún Guðvarðardóttir, símar 81333 og 20679.
Sumarferðalag Alþýðu-
bandalagsins á Vesturlandi
Farið verður um Verslunarmannahelgina. Lagt af stað árdegis laugardag-
inn 30. júlí og komið heim að kvöldi mánudagsins 1. ágúst. Farið um
Húnavatnssýslur og fyrir Skaga, um Skagafjörð til Siglufjarðar. Nánar
auglýst síðar. - Kjördæmisráð.
Konur Suðurlandi!
Munið fundinn í Tryggvaskála mánudaginn 11. júlí kl. 21.00
Sumarfrí 4. júlí-5. ágúst
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður lokuð vegna sumarleyfa frá
4. júlí til 5. ágúst.
Skrifstofa flokksins verður opin þennan sama tíma daglega kl. 8-16.
Stjórn ABR
Húsavík -
Almennur
stjórnmálafundur
Almennur stjórnmálafundur verður
haldinn í félagsheimili Húsavíkur,
mánudaginn 11. júlí kl. 21.00. Á fund-
inn mæta Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins og Steingrímur
J. Sigfússon alþingismaður.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
Svavar
Steingrímur
Meðferðarheimilið að Trönuhólum:
Agætur áfangi — en
betur má ef duga skal
Aðalfundur Umsjónarfélags ein-
hverfra, (geðveikra) barna, sem
haldinn var fyrir nokkru lýsti
ánægju með opnun meðferðar-
heimilis fyrir siík börn, að Trönu-
hólum 1 í Reykjavík, en það tók til
starfa 1. okt. sl.
Þakkar fundurinn öllum þeim,
sem stutt hafa Umsjónarfélagið
með fjárframlögum og gert því
þannig kleift að leggja fram sinn
skerf til heimilisins en hann var að
útvega húsbúnað. Stjórnvöldum er
þakkaður skilningur þeirra og að-
Víst voru
karlar við
Þorsteinn Ingólfsson í utanríkis-
ráðuneytinu hafði samband við
blaðið í gær í tilefni smáfréttar á
forsíðu um að enginn karlmaður
hefði verið við í fyrrdag í ráðu-
neytinu.
Þorsteinn sagði að amk fjórir
karlmenn hefðu verið við í ráðu-
neytinu í fyrradag og er því hér
með komið á framfæri. Þjóðviljinn
fékk hins vegar þær upplýsingar
hjá símaborði að enginn karlmaður
væri við í ráðuneytinu þegar spurt
var eftir þeim á miðvikudag.
stoð við byggingu heimilins og
stjórn Framkvæmdasjóðs þroska-
heftra og öryrkja. Heimilis- og
starfsfólki er óskað v.elfarnaðar í
starfi og félagið heitir starfseminni
öllum þeim stuðningi sem í valdi
þess stendur að veita.
í ályktun fundarins segir að öðru
leyti að „þessi áfangi nægi ekki til
þess að fullnægja þeirri þörf, sem
var eftir vistun einhverfa barna í
meðferðarheimilum. Kemur það
fram í því að hafna varð fullgildum
umsóknum um dvöl að Trönuhól-
um 1, þótt ekki hafi verið auglýst
opinberlega eftir umsóknum. Vit-
Húsnæði fyrir
sjúkraþjálfun-
arbrautina
í morgun undirritaði háskóla-
rektor fyrir hönd háskólans samn-'
ing um húsnæði fyrir námsbraut í
sjúkraþjálfun, en 1. júlí s.I. flutti
deildin úr húsi Jóns Þor-
steinssonar. Hið nýja húsnæði er
á Vitastíg 8, þar sem áður var Al-
þýðubrauðgerðin og Alþýðu-
prentsmiðjan. Þetta nýja húsnæði
er mun rýmra en húsnæðið sem
deildin hafði áður, eða alls um 400
fm. Þs
að er að einhverf börn dveljast á
ýmsum stofnunum fyrir þroska-
hefta og taka uppi rými, sem e.t.v.
hentar betur einstaklingum með
annars konar fötlun. Strax þarf því
að huga að fleiri úrræðum til þess
að mæta núverandi þörf og fyrr en
varir þarf að finna úrlausnir fyrir
þá, sem flytjast frá meðferða-
heimilum t.d. vegna aldurs".
-mhg
Útiskákmót
Útiskákmót verður haldið á
Lækjartorgi næsta mánudag og
verður það í sjötta sinn sem slíkt
mót er haldið. Það er Skáksam-
band íslands sem stendur fyrir mót-
inu sem verður með svipuðu sniði
og verið hefur undanfarin ár. Um
og yfir 30 fyrirtæki styrkja móts-
haldið og munu nokkrir af snjöll-
ustu skákmönnum landsins tefla
undir merkjum fyrirtækjanna.
Þjóðviljinn hefur verið með í
mótum þessum frá upphafi og sigr-
að fjórum sinnum.
a
Lækjartorgi
Sumarferð
Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi vestra
um verslunarmanna-
helgi 30. júlí
til 1. ágúst.
Hljóðaklettar
og
Hólmatungur
Þjóðgarðurinn í
Jökulsárgljúfrum skoðaður.
Að þessu sinni liggur leiðin í
sumarferð
Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra á einn
fegursta og sérkennilegasta
stað landsins: gljúfrin í
þjóðgarðinum við Jökulsá á
Fjöllum: Hljóðakletta,
Hólmatungur og Ásbyrgi.
Ferðin hefst fyrir hádegi
laugardaginn 30. júlí og er miðað
við sameiginlega brottför frá
Varmahlíðkl. 10. Hópferðirverða
frá öllum þéttbýlisstöðum á
Norðurlandi vestra og veita
umboðsmenn ferðarinnar
upplýsingará hverjum stað.
Farið verður um Akureyri, Mývatn
og Grímsstaði, Ásbyrgi og þaðan
upp með Jökulsá vestan megin.
Gist verður tvær nætur í tjöldum við
Hljóðakletta og efnt til fagnaðar
eins og venja er með dagskrá og
fjöldasöng.
Úr Jökulsárgljúfrum
Nægur timi ætti að gefast til
skoðunarferða um Gljúfrin á
sunnudeginum en á mánudag
verður ekið um Tjörnes og Húsavík
heimáleið.
Þátttakendur hafi með sér tjöld,
nesti og annan viðlegubúnað.
Þátttökugjald er kr. 1000 en hálft
gjald fyrir þátttakendur 14 ára og
yngri.
Umboðsmenn
ferðarinnar eru:
Siglufjörður:
Svava Baldvinsdóttir s. 71429
Sigurlína Þorsteinsd. s. 71406
Sauðárkrókur:
Bragi Skúlason, s. 5245
Rúnar Backmann, s. 5684
og 5519
Hofsós:
Gísli Kristjánsson s. 6341
Varmahlíð:
Ragnar Arnalds s. 6128
Blönduós:
Sturla Þórðarson s. 4356
og 4357
Vignir Einarsson s. 4310
Skagaströnd:
Ingibjörg Kristinsd. s. 4790
Hvammstangi:
Eyjólfur Eyjólfsson s. 1348
Elísabet Bjarnadóttir s. 1435
Þátttaka er öllum heimil.
A