Þjóðviljinn - 08.07.1983, Síða 15
Föstudagur 8. júlí 1983 ÞJÓÐVÍLJINN — SÍÐA 15
RUV0
7.00 Veðurfregnir. Fréltir. Bæn.
Tónleikar Þulur velur og kynnír 7.25
Leikfimi Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Örn Bárður Jónsson
talar. Tónleikar
8.30 Ungir pennar Stjórnandi: Dómhildur
Sigurðardóttir (RÚVAK).
8.40 Tónbilið
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Stroku-
drengurinn" ettir Astrid Lindgren
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tón-
leikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustu-
gr. dagbl. (útdr.).
10.35 „Það er svo margt að minnast
á“Torfi Jónsson sér um þáttinn.
11.05 „Ég man þá tíð“ Lög Irá liðnum
árum.
11.35 Smásaga frá Grænlandi - „Hund-
urinn sem missti málið" eftir Jörn Riel
i þýðingu Mathíasar Kristiansen og Hilm-
ars J. Haukssonar. Mathías Kristiansen
les.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 „Refurinn i hænsnakofanum'' eftir
Ephraim Kishon í þýðingu Ingibjargar
Bergþórsdóttur. Róberl Arnfinnsson les
(10),
14.20 A frívaktinni
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöuríregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
17.05 Af stað í fylgd með Ragnheiði Da-
víðsdóttur og Tryggva Jakobssyni.
17.15 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son. - Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50Við stokkinn Gunnvör Braga heldur
áfram að segja börnunum sögu fyrir
svefninn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Sumarið mitt Ásgerður Jónsdóttir
frá Gautlöndum.
21.30 Óperettutónlist Margit Schramm,
Rudolf Schock, Dorothea Christ og Ferry
Gruber syngja atriði úr „Paganini", ópe-
rettu Franz Lehars, með Gunther Arndt-
kórnum og Sinfóníuhljómsveit Berlinar;
Robert Stolz stj.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Sögur frá Skaftáreldi" eftir Jón
Trausta Helgi Þorláksson fyrrv. skóla-
stjóri les (15).
23.00 Náttfari Þáttur í umsjá Gests Einars
Jónssonar (RÚVAK).
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.10 Á næturvaktinni - Ásgeir Tómas-
son.
03.00 Dagskrárlok.
RUV »
19.45 Fréttaágrip á táknáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Steini og Olli Skopmyndasyrpa með
Stan Laurel og Oliver Hardy.
21.05 Rembetika - grísk alþýðutónlist
Áströlsk heimildarmynd sem rekur í tali,
tónum og myndum uppruna og þróun
grískrar alþýðutónlistar. Þulur er leikarinn
Anthony Quinn. Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
21.55 Böðullinn (The Executioner) Bresk
njósnamynd frá 1970. Leikstjóri Sam
Wanamaker. Aðalhlutverk: George
Peppard, Joan Collins, Nigel Patrick og
Judy Geeson. Njósnari I bresku leyni-
þjónustunni grunar starfsbróður sinn um
græsku. Yfirmenn þeirra reyna að eyða
málinu en njósnarinn situr við sinn keip
og hefur sjálfur rannsókn. Þýðandi Bjarni
Gunnarsson.
23.45 Dagskrárlok
Sjónvarp kl. 21.55
Böðullinn
I kvöld er á skjánum bresk
njósnamynd frá árinu 1970, sem
ber þetta ógeðuga nafn.
Þráður myndarinnar kvað vera
sá, að njósnari nokkur, sem starf-
ar í bresku leyniþjónustunni,
grunar starfsbróður sinn í „fag-
inu“ um svik og pretti, eins og
verða vill í þessari atvinnugrein.
Yfirmennirnir lúra auðvitað á
sitt græna eyra og viija ekkert að-
hafast. Góði njósnarinn er
auðvitað ekki ánægður með það
og tekur rannsókn málsins í eigin
hendur. Svo sýnir myndin okkur
sjálfsagt hvernig það puð gengur.
Leikstjórinn er Sam Wanamaker
en með aðalhlutverk fara: Ge-
orge Peppard, Joan Collins, Nig-
el Patrick og Judy Geeson. Þýð-
andi er Bjarni Gunnarsson.
-mhg
frá lesendum
Einiberja-
runnur
og harma-
grátur
Andersen á „útkíkki
Aðdáandi Andersens skrifar:
Við lesendur DV höfum saknað
þess sárlega hvað Geir R. Ander-
sen hefur vanrækt okkur nú um
sinn því greinar hans úa jafnan og
grúa af skarplegum og frum-
legum athugasemdum og skýring-
um. En nú hefur Andersen þókn-
ast að líta í náð sinni til okkar á
ný, - guði sé lof.
/
Oþolandi
Ég er einn af þeim sem að á
hverjum degi þarf að taka strætó ■
vinnuna. Um það er ckkert nema
gott að segja, það eru ekki allir
sem hafa efni á því að eiga bíl hér
á landi, sérstaklega á þessum síð-
ustu og verstu tímum. Enda er
það nú oftast svo að það eru fá-
tæklingarnir sem þurfa að spara
og rétta af það sem aflaga fer í
þjóðfélaginu, meðan burgeisarn-
ir halda sínu striki á dollaragrín-
Síðastliðinn þriðjudag skrifar
hann grein t DV, sem hann nefn-
ir: Sumarþing þankastrik hvar og
á eftir kemur svo spurningamerki
því Geir er glúrinn í réttrituninni.
Ekki er rúm til þess að rekja hér
efni þessarar ritsmíðar, enda víða
komið við og raunar farið með
himinskautum sem ætíð áður, -
en fólk skal eindregið hvatt til
unum sínum. En það er annar
handleggur.
Það sem ég vildi kvarta yfir eru
endalaus samtöl vagnstjóranna á
strætisvögnunum við farþegana
meðan þeir eru á akstri. Þetta
dregur úr einbeitni þeirra við
aksturinn og getur vafalaust
skapað hættu í umferðinni og oft-
ar en einu sinni hef ég lent í því að
vagnstjóri hefur gleymt að hleypa
fólki út, því hann hefur verið á
„snakki“ við pétur og pál. Þessu
finnst mér að þurfi að kippa í
liðinn.
Strætóman.
þessað lesasjálft. Einungisskal á
eitt drepið. Andersen segir:
„Ákafi...þeirra allra, sem nú
hamast hvað mest við að kalla
saman þing...er við það eitt
miðaður að koma af stað þeim
illdeiluni seni orðið gætu til þess
að upp úr stjórnarsamstarfi
slitnaði".
Þessi fréttaskýring lætur hreint
ekki að sér hæða. Hún leiðir okk-
ur í allan sannleika um það, að
stjórnarsamstarfið standi ekki
traustari fótum en svo, að það
þoli ekki þinghald. En jafnframt
kemst Andersen að þeirri niður-
stöðu að „ríkisstjórn sú, sem nú
situr, er sú lang sterkasta sem
lengi hefur setið hér á landi“.
Nú efumst við ekki um að
báðar þessar ályktanir Ander-
sens séu kórréttar, en einhvern-
veginn vefst það samt fyrir okkur
að fá þær til að ríma. Því mælumst
við til þess að hann skýri þetta
öriítið betur og leiði okkur fávísa
í allan sannleika, eins og hann
hefur ævinlega gert.
ERE sendir okkur eftirfarandi
vísur:
Til skýringar þeim vísukorn-
um, sem hér fara á eftir vil ég taka
fram, aS BB-göngumcnn höfðu
kosningaskrifstpfu í gömlu ein-
býlishúsi á Hvammstanga og köll-
uðu gárungarnir það Einiberja-
runn. BB-menn skreyttu kofann
með hcljar miklu Ijósaskilti, sem
var skemmtilega gert og „blikk-
aði“ kjósendur í sífellu.
Ekki var kveikt á skiltinu eftir
kosninganóttina og hékk það all-
lengi uppi, dautt og yfirgefið.
Einn morgun er ég fór í vinnu, sá
ég að skiltið hafði verið tekið nið-
ur um nóttina og datt mér þá í
hug:
Það byrjaði með blóm í haga,
- bæn um fornar dyggðir -
er göngumenn í gamla daga
grösugar fóru um byggðir.
Nú gulnað hafa gróðurlendur,
aðeins hjá þeim eftir stendur
Einiberjarunnur.
Kvöld eitt sat ég t'yrir framan
imbakassann og hlustaði á sjálfan
landsföðurinn flytja þjóðinni
harmatölur sínar:
Þótt þjóðarfleyið setji í sátur,
siglir við útnes kanabátur,
þar stígur ölduna steigurlátur
Steingrímur karlinn
harmagrálur.
barnahorn
Dularfullu
rústirnar
Einu sinni voru þrjú systkin. Þau hétu
Jonni 15 ára, Róbert 10 ára og Bára 6 ára.
Þau sátu í rúmum sínum og voru að tala um
það hvað þau ættu að gera um daginn. Ró-
bert sagði: Komum í kúluspil. - Æ nei,
sagði Bára. Mér leiðist kúluspil. Mér
leiðast þau líka sagði Jonni. Hei, nú veit ég
hvað við gerum, sagði Róbert. Við skulum
koma að skoða rústir hússins sem hann
Ottó frændi átti heima í. Já, gerum það,
sagði Jonni. Æi nei, ég þori ekki, sagði
Bára. Jú komdu með, sögðu strákarnir.
Allt í lagi sagði Bára en þið verðið að passa
mig vel, sagði hún. Já já við skulum passa
þig vel, sögðu þeir. Jæja eigum við að fara
að fara, sagði Róbert sem var orðinn óþol-
inmóður. Það liggur nú ekkert á, sagði
Jonni. Höfum með okkur nesti, stakk Bára
upp á. Já gerum það, sögðu strákarnir. Og
þau fór að taka til nesti. Þegar þau voru
búin að taka til nestið, þá lögðu þau af stað.
Þegar þau komu að rústunum heyrði
Jonni mannamál. Hann kallaði á hin og bað
þau að hlusta. Þau hlustuðu öll og heyrðu
mennina segja, þeir eru ansi þungir þessir
demantar. Þá sagði þriðji maðurinn sem
gekk á undan þeim: Ég veit að demantarnir
eru þungir en við skulum flýta okkur með
þá í göngin. Það geta alltaf einhverjir verið
að njósna. Og síðan fóru þeir oní göngin
sem þeir voru að tala um. Bára sagði:
Hverjir voru þetta? Uss, sagði Jonni. Þú átt
ekki að tala svona hátt, mennirnir geta
heyrt í þér. Já en mér er alveg sama um það,
mig langar bara til að vita hvaða menn þetta
voru. Aftur heyrðu þau mannamál, strák-
arnir hlupu burtu en Bára stóð kyrr.
Komdu Bára, sagði Jonni. Nei, sagði Bára.
Ég ætla að sjá mennina. Jú komdu, sagði
Róbert. Allt í lagi, sagði Bára. Ég skal þá
koma. Þau heyra nú á tal tveggja manna.
Annar maðurinn sagði: Það heppnaðist
bara vel þetta rán á demöntunum. Já égsegi
það nú, sagði hinn maðurinn og hló. Jæja
eigum við að koma, sagði hinn. Já við
skulum koma. Og síðan settust þeir inn í bíl
og óku burtu. Nú komu krakkarnir úr
fylgsnum sínum og fóru að tala saman. Nú
vil ég fá að vita hvaða menn þetta voru,
sagði Bára. Þetta eru þjófar, sagði Jonni.
Hei krakkar, sagði Róbert eigum við að
kíkja ofan í göngin sem þeir fóru ofan í? Já,
gerum það, sagði Jonni, og þau fóru ofan í
göngin sem þau sáu mennina fara ofan í.
Þegar krakkarnir voru komnir ofan í göngin
blasti við þeim dýrðleg sjón. Þarna niðri var
allt fullt af demöntum. Krakkar sjáið þið
alla demantana. Já, við sjáum þá, sagði
Róbert, ætli mennirnir séu að smygla dem-
öntum inn í landið? Ábyggilega, sagði Ró-
bert.
Alit í einu heyrðu þau mannamál.
Krakkarnir sáu stóran kassa og þau földu
sig í honum. Inn komu ellefu menn með
demanta og létu þá í hillu sem var þarna og
fóru síðan út aftur. Krakkarnir skriðu út úr
kassanum. Jonni sagði:,Krakkarvið skulum
koma heim. Og þau fóru heim. Á leiöinni
heim sáu þau auglýsingu og auglýsingin var
á þessa leið: lýst er eftir fjórtán mönnum
sem eru smyglarar. Þúsund krónur í fundar-
laun. Krakkarnir flýttu sér niður á lögreglu-
stöð og sögðu frá því sem þau höfðu séð og
heyrt. Og lögreglan fór að rústunum og
niður um göngin og sat fyrir mönnunum.
Og þegar mennirnir komu með demanta
handtók lögreglan alla mennina og krakk-
arnir fengu þúsund krónurnar fyrir að hafa
fundið smyglarana.
Tvær
eru eins
Hér sjáið þið átta litlar abstraktmyndir
og ef þið gætið vel að, komist þið að raun
um að tvær þeirra eru nákvæmlega eins. En
hverjar þeirra eru það?
/jgnn 2
Öened r hf-j d o 'H'* ^