Þjóðviljinn - 29.10.1983, Side 10

Þjóðviljinn - 29.10.1983, Side 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 29.-30. október 1983 sunnudagspistill Það var í byrjun mánaðarins að viðtal birtist í sunnudagsblaði Tímans við Matthías Viðar Sæmundsson bókmenntafræðing um merkilegt efni: „Hvar er ís- lenska skáldsagan á vegi stödd?“ Og eins og vænta mátti vegnaði henni ekki nógu vel. Matthíasi Viðari fannst það einkum ljóður á ráði hennar, að höfundarnir væru of uppteknir af úreltri raun- sæishefð og félagslegum útskýr- ingum á hegðun manna. Þeir gætu verið gagnrýnir á ýmislegt í þjóðfélaginu, en vegna þess að þeir gengju ekki nógu djarflega fram um að endurmeta skáld- söguformið og bregða á endurnýjandi tilraunaleik með tungumálið, þá væru þeir í raun og veru íhaldsmenn. Þreyta Nú er það svo með staðhæfing- ar Matthíasar, - rétt eins og svo margt annað sem sagt er um bók- menntir, að þær eru allt í senn sannar og villandi eða a.m.k. tak- markaðar. Það er vitanlega alveg rétt hjá honum, að tiltekin frá- sagnaraðferð er ekki ný og fersk nema skamma stund - fyrr en Árni f Bergmann skrifar ry\ Nýraunsœi og íslenska skáldsagan Hvort mun oss bj arga, bindindi eða fyllirí? varir er hún orðin að viðurkennd- um sannleika, tísku, einhverju sem menn apa eftir hugsunar- laust. Og þetta getur vitanlega gilt um nýtt og gamalt raunsæi, gamla og nýja rómantík og margt fleira. Á seinni áratugum eru bylgjurnar fljótari að ganga yfir en áður: Hvað skyldi það hafa tekið mörg ár frá Sköllóttu söng- konunni og Beðið eftir Godot þar til absúrdskólinn í leikritun var orðinn þreyttur og fólk beið með óþreyju eftir persónum sem gátu, talað saman með sæmilegum ár-i angri? Lof og last Það einkennilegasta við um- ræður um það, hvað er úrelt og hvað ferskt og efnilegt í bók- menntum er það, að menn eru furðu seigir við að líta á þróun bókmenntanna sem einskonar fjallgöngu þar sem þeir sem eru á „réttum“ skóm á hverjum tíma eru sífellt að komast hærra, en hinir dragast aftur úr, gott ef þeir vilja ekki draga bókmennta- flokkinn prúða niður í gjár og sprungur. Af þessu hefur líka. sprottið sú umræðuvenja, að gera sjáíft heiti tiltekinna strauma eða aðferða að lofsyrði - en þá önnur heiti að skammaryrðum. Víða og lengi hafa menn til dæmis látið sig hafa það, að setj aeinskonarjafn- aðarmerki á milli raunsæis og góðra bókmennta. Raunsæi er hástig lofsins, óraunsæjar bók- menntir hljóta að vera þvæla. Og um sama leyti eru menn kannski inn á því að gera rómantíkina að skammar- og háðsyrði. Rjóma- tíkina, iss og fussum svei. Sam- nefnari fyrir rugl og óra og íhalds- semi og væmni og guð má vita hvað. Þetta er náttúrlega illt og bölvað og hálfsannleikúr, og sjálfsagt að reyna að kveða slíka siði niður. fíöng aðferð? En ekki með því þó, að snúa nú dæminu við og gera raunsæið að einskonar skammaryrði. Eins- konar samnefnara fyrir íhalds- semi, fyrir að menn hjakki í sama fari, fyrir að þeir séu lokaðir fyrir tilteknum sviðum persónu- leikans, fyrir því að þeir séu afturhaldsmenn í stíl. Raunsæ- ishöfundar að viðleitni geta að sönnu rogast með allar þessar syndir á bakinu, en ekki vegna þess að þeir hafi valið „ranga“ aðferð. Heldur vegna þess að þeir eru með einhverjum hættj á rangri hillu. Matthías Viðar segir um ís- lenska „nýrealista“: „Þetta er ein mesta takmörkun ný-realistanna sem hóps, þeir mikla um of hin félagslegu áhrif á sköpun manns- ing. Þar af leiðandi flyst öll þeirra áhersla á samfélagið en ekki manninn. Þeir líta einatt á per- sónur sínar sem þolendur í at- burðarás og fórnarlömb. En mótun manneskjunnar er miklu flóknari". Þetta er alveg rétt - það gerist fleira með sköpun mannsins en að „hlutur sem liggur í saltvatni tekur til sín salt“ eins og Organistinn komst að orði í Atómstöðinni. Og það ger- ist líka fleira í verkum þeirra, sem fyrr og síðar hafa haldið merkjum raunsæis á lofti. Hreinræktuð fé- lagsleg vélgengni hefur aldrei skapað meiriháttar verk. Niður með tískuna Það sem er alltaf hvimleitt og háskalegt er sjálf bók- menntatískan - hlaupin á eftir því sem „gengur vel“ í augnablikinu. Það getur vel vérið að ýmsir ný- realistar mikli um of „hin félags- legu áhrif á sköpun mannsins". En setjum svo að þeirri „tísku“ væri svarað með gagnstæðri tísku, sem ætti að hafa frelsandi áhrif: Maðurinn er sinnar gæfu smiður, hann gefur lífi sinu gildi með markvissum athöfnum og svo framvegis, eitthvað í þeim dúr. Ekkert auðveldara en að breyta þeim áherslum í kHsjur líka,í dauðan farm um borð á bók- menntanökkvanum. Og vekja upp aftur kveinstafi: Gefið okkur eitthvað nýtt, gefið okkur aftur hið félagslega samhengi! Eða: Það er ekki nema satt og rétt í fyrrgreindu viðtali, að það getur verið mjög hressandi að höfundar bregði fyrir sig orða- leikjum, eða „skopnæmu líkinga- máli“, gangi ekki að tungumálinu vísu, gefi söguþræðinum á kjaft- inn og þar fram eftir götum. En: hver maður sinn hatt! Ekkert yrði hvimleiðara en ef að óráðnir höf- undar færu að trúa því hver um annan þveran, að fyrst og síðast muni þeir bjargast á tilrauna- starfsemi með tungumálið. Því miður er ekkert líklegra en bækur þeirra, sem annars hefðu getað ræktað garðinn sinn vandræða- lítið, fyllist þá af illgresi tilgerðar- innar. Þegar til lengdar lætur, segir Scherfig, þegar til lengdar lætur getur hvorki bindindi né fyllirí bjargað einum listamanni. Hvorki raunsæi né and- raunsæi. Hitt er svo líklegra, að sú End- urnýjun með stórum staf, sem á sér stað hér og þar í bók- menntunum, hún sé ekki aðeins undur og stórmerki heldur og með nokkrum hætti leyndardóm- ur meðan hún fer fram. Á eftir koma snjallir menn og ósnjallir og finna henni sögulegar skýring- ar. Bókmenntafræði, saga og hagfræði sýnast öll því marki brennd að vera vitur eftir á - en næsta lélegir áttavitar á „rétta“ stefnu í hverjum samtíma. Ungir bandarískir tölvugarpar brjótast inn í upplýsingabanka Fyrir skömmu gerðu útsendarar bandarísku alríkislögreglunnar FBI áhlaup á nokkrar íbúðir hér og þar í landinu og réðust beint inn í táningaherbergin til að gera upptækar heimilistölvur og búnað þeirra. Ástæðan er sú,að sniðugir tölvudellukrakkar hafa í furðulega ríkum mæli komið sér inn á upplýsinganet ýmissa stórfyrirtækja og jafnvel hermálaráðuneytisins. Ein móðir í Detroit fékk til dæmis að heyra, að sonur henn- ar, 14 ára gamall, hefði komið sér inn á upplýsingabanka hermála- ráðuneytisins, breytt þar ýmsum skilaboðum og skilið eftir skila- boð. Slíkir náungar eru nefndir „Hackers". Unglingarnir, sem líta á þessi „tölvuinnbrot" sem skemmti- legan og æsilegan leik, voru allir yfirheyrðir en enginn var hand- tekinn. Það stafar meðal annars af því, að enn eru ekki til í landinu lög sem kveða á um refsingar við slíku athæfi. En hvort sem refsi- löggjöf sveiflar vendi sínum fyrr eða síðar yfir tölvunjósnurunum, þá eru líkur í raun og veru sí- minnkandi á því að upp um þá komist. f fyrsta iagi eru a.m.k. 180 þús- und heimilistölvur í USA, nú búnar fylgitækjum sem opna þeim aðgang um símakerfið að stórum upplýsinganetum. Um leið fjölgar með risakerfum ýms- um viðkvæmum upplýsingum sem dreift er um upplýsingabank- ana. Til dæmis starfa um 8000 stórtölvur fyrir hermálaráðu- neytið eitt - og hjá bandarískum vopnaiðnaði einum saman vinna um miljón manns sem hafa lög- mætan aðgang að ýmsum leyni- legum upplýsingum. Það vekur og nokkra furðu að „lyklar“ að hinum ýmsu upplýs- ingabönkum virðast næsta auðfundnir. Einn þekktur sér- fræðingur hefur komist svo að orði, að laumuspilið sé ekki flóknara en svo, að það líkist því einna helst að skilja bíllykla eftir í ólæstum bíl. Þessir möguleikar hafa þegar orðið til þess að kvikmynd hefur verið búin til sem heitir War Games. Hún segir frá því, að ungur áhugamaður hefur komist með heimilistölvu sinni inn í upp- lýsinganet yfirstjórnar banda- rísks kjarnorkuvígbúnaðar - og við sjálft liggur að hann komi af stað gjöreyðingarstyrjöld. - (áb endursagði).

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.