Þjóðviljinn - 29.10.1983, Page 27

Þjóðviljinn - 29.10.1983, Page 27
Helgin 29. - 30. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27 Stjórn Fram- kvæmdastofnunar Heimilar sölu á Skildi hf. í gær samþykkti stjórn Fram- kvæmdastofnunar að heimila sölu á byggingum Skjaldar hf á Patreks- firði til þartil stofnað hlutafélags heimamanna. Tillaga frá forstjóra stofnunarinnar um að gera úrslita- tilraun til að stofna hlutafélag til að reka eignir Hraðfrystihúss Patreksfjarðar og Skjaldar hf í einu félagi var felld. Á fundinum var lögð fram skýrsla þarsem segir að 20 miljónir þyrftu til að koma báðum húsunum í eðlilegan rekstur, en í samrekstri nægðu 9 miljónir króna. Geir Gunnarsson alþingismaður sagði í viðtali við Þjóðviljann í gær, að hann hefði stutt tillögu Tómasar Arnasonar um að slík úrslitatilraun yrði reynd til þrautar þarsem augljós sparnaður væri þarmeð í augsýn. Einnig væri ekki vanþörf á að skoða allt málið betur. Hins vegar lagði Ólafur G. Einarsson til að hlutafélaginu yrði strax gert kleyft að kaupa Skjöld, án þess að tilraun til sameiginlegs hlutafélags yrði gerð. Pað var samþykkt í stjórn Framkvæmdastofnunar í gær. -óg. Erfitt að slökkva á tunglinu í fyrrakvöld var slökkvilið Grundarfjarðar kallað út þar sem margar upphringingar bárust um að bærinn Þórdísarstaðir væri að brenna. Slökkviliðsmenn hröðuðu sér á staðinn, enda ;r liðið vel mannað og talið það fcesta á Snæ- fellsnesi. Þeir sem till ynntu um brunann sögðu ýmist 'ð það væri fjósið eða íbúðarhúsið á Þórdísar- stöðum sem væri alelda. Þegar svo slökkviliðið kom að Þórdísarstöðum var þar allt með kyrrum kjörum og enginn eldur. Aftur á móti sáu menn þá að það var sjálft tunglið sem hafði blekkt fólkið. Tunglið væri mjög neðar- lega og blóðrautt og þegar það bar við bæinn sýndist mönnum vera uppi eldur. Ingi Hans Jónsson, einn slökkvi- liðsmanna á Grundarfirði sagði í samtali við Þjóðviljann í gær, að enda þótt slökkvilið Grundarfjarð- ar væri frábært, þá réði það ekki yfir tækni né kunnáttu til að slökkva í tunglingu. Hann sagði að enginn þar vestra hefði séð tunglið eins og það leit út þetta kvöld, það hefði veri stórfengleg sjón. - S.dór. NÚ líður mér vel! y ii bmiJí w Björgunarmenn á botni Sandeyjar (Ljósm. Magnús). Súrefniskútar fluttir úr Aðalbjörgu yfir í björgunarskipið Gísla John- sen. Aðalbjörgin er nýkeypt til Reykjavíkur og var aðstoðin við björg- unina í gær fyrsta verkefni bátsins hjá nýjum eigendum. Um borð í Gísla Johnsen. Björgunarmenn fluttir út í Sandey. Tveir menn komustlífsaf úr slysinu skipverjanna látinn. Kafarar fóru um skipið eins og hægt var að komast en fundu engan hinna 3ja sem saknað er. Eins var hafsvæðið leitað, bæði af sjó og úr lofti og fjörur gengnar. Leitin bar ekki ár- angur og var henni hætt þegar myrkt var orðið í gær en henni verður framhaldið í dag. Mennirnir eru taldir af. Ástæða óhappsins mun vera sú, að rörið sem sandi og möl er dælt uppí gegnum, sogaðist fast í leirbotn. Hugðust skipverjar á Sandey 2 hífa rörið upp, við það hallaði skipið, mölin rann til og því hvolfdi með þessum hörmu- legum afleiðingum. Tugir manna, mörg skip og þyrla landhelgisgæslunnar unnu í aílan gærdag að björgunar- og leitarstörfum við erfiðar aðstæð- ur. Björgun h.f. er eigandi skips- ins og ákvað fyrirtækið ásamt tryggingarfélaginu Tryggingar- miðstöðin hf. sem skipið er tryggt hjá að fela Könnun h.f. umboðs- aðila Lloyds á íslandi og Björg- unarfélaginu h.f. að hefja þegar í stað ráðstafanir til að koma Sand- ey 2 á réttan kjöl, en það mun vera mikið og erfitt verk. -S.dór/Hól Læknir og hjúkrunarkona voru flutt með gúmbát út í Sandey 2 (Ljóms. Magnús). Einn er látinn - þriggja saknað Tveir menn björguðust, við Engey í gærmorgun. Þeir einn fannst látinn og 3ja tveir sem björguðust komust á manna er saknað af sanddælu- kjöl þegar skipinu hvolfdi. við eyna, var logskorið gat á skipinu Sandey 2, sem hvolfdi Eftir að skipið hafði verið botn skipsins og þá fannst einn dregið uppá svo nefnt Eng- eyjartagl, sem eru grynningar Tilboð opnuð í rekstur Þvottahúss ríkisspítalanna Hærri en rekstrarkostnaður Þrjú tilboð bárust í rekstur Þvottahúss ríkisspítalanna, en til- boð voru opnuð hjá Innkaupa- stofnun ríkisins í gær. Óll eru þau allmiklu hærri en reksturskostn- aður þvottahússins er í dag, en þá er eftir að bera saman ýmsa þætti sem ekki var tekið tillit til í útboð- inu, m.a. kostnað við afskriftir, skrifstofuhalds, kostnað við eftirlit og þess háttar. Sérfræðingar á veg- um Ríkisspítalanna eru að bera til- boðin saman innbyrðis og verða þeir útreikningar lagðir fyrir vænt- anlegan stjórnarfund spítalanna á fimmtudag í næstu viku. Að sögn Ásgeirs Jóhannessonar hjá Innkaupastofnun ríkisins var lægsta tilboðið frá Þvottahúsinu Fönn, 23.027.500 kr. Tilboð Krist- jáns A. Guðmundssonar og Val- garðs Bjarnasonar var 27.240.400 kr. og hæsta tilboðið kom frá Sig- urjóni Þórðarsyni uppá 41.223.115 kr. Þá barst einnig tilboðið frá Grétari Pálssyni í framleiðslu á vinnufatnaði einungis og hljóðaði það upp á 2.246.620 kr. Ásgeir tók fram að erfitt væri að bera tilboðin saman þar sem forsendur væru mis- munandi, m.a. varðandi verðbætur Og þess háttar. Símon Steingrimsson fram- kvæmdastjóri Tæknideildar Landspítalanna sagði að ef sauma- skap væri sleppt í tilboðunum þremur væri tilboð Fannar 20.1 miljón, Kristjáns og Valgarðs 24.8 miljónir og Sigurjóns 36.6 miljónir króna. Reksturskostnaður Ríkis- spítalanna af sömu þáttum væri nú 17.7 miljónir. Þá væri eftir að taka tillit til kostnaðar vegna afskrifta, skrifstofuhalds, þess að níu öryrkj- ar ynnu í Þvottahúsi ríkisspítalanna eins og er, kostnaðar vö eftirlit og þess að þvottahúsið leggur til flutn- ingavagna sem ekki er gert ráð fyrir í tilboðunum. - v. B

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.