Þjóðviljinn - 19.11.1983, Page 6

Þjóðviljinn - 19.11.1983, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 19. - 20. nóvember 1983 DJOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastióri: Guörún Guömundsdótfir Ritstjorar: Árni Bergmann. Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafssen. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson. Auglýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Óiafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víöir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.' Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guövarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Sfmavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Siguröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. éI Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaöaprent h.f. ritstjórnargrci n Grundvöllur stefnunnar í upphafi landsfundar Alþýðubandalagsins flutti Svavar Gestsson formaður flokksins ýtarlega ræðu um stefnugrundvöll þeirrar breiðfylkingar sem Alþýðu- bandalagið leitast við að skapa. í ræðunni komu fram meginatriðin í baráttuverkefnum og leiðarljós þeirrar umsköpunar á þjóðfélaginu sem flokkurinn mun hrinda í framkvæmd í krafti eigin styrks og í samvinnu við aðra. Alþýðubandalagið er flokkur sem boðar jafnrétti á öllum sviðum. Alþýðubandalagið er brjóstvörn launafólks í barátt- unni við fjármagnsöflin. Á vinnustöðum og í samtökum launafólks eru félagar flokksins virkasta aflið í sókn verkalýðsstéttarinnar til réttlátara þjóðfélags og jafn- ari kjara. Alþýðubandalagið eru samtök raunsannra lýðræð- issinna sem setja sjálfsákvörðunarrétt fólksins í æðsta sess. Flokkurinn stendur vörð um grundvallarreglur hins lýðræðislega samfélags, bæði á vettvangi stjórnkerfistns og í hinni daglegu baráttu. Varðstaða um lífæðar þess stjórnkerfis, sem gefur mönnum kost á að velja og hafna í kosningum og beita rétti til frjálsra samninga, er meðal mikilvægustu verkefna flokksins. Alþýðubandalagið leggur áherslu á fjölflokkakerfi þar sem prentfrelsi, fundafrelsi og frelsi til athafna eru leiðarljós stjórnmálabaráttunnar. Flokkurinn virðir frelsi einstaklingsins en hafnar frelsi fjármagnsins til að kúga einstaklingana. Alþýðubandalagið vill varðveita hið fjölþætta og opna menningarsamfélag þar sem frjáls sköpun og víð- tæk tjáning hugsunar og lista eru hreyfiafl framþróun- arinnar. Alþýðubandalagið hafnar ríkistrú sem leiðarvísi í leit að lausnum á vandamálum samfélagsins. Eignarhald ríkisins á öllum sviðum er ekki sú leið sem flokkurinn boðar. Alþýðubandalagið leggur áherslu á að frumkvæði heimamanna og framtak fólksins sjálfs eru forsendur þess félagslega rekstrar sem tryggt getur samvinnu í framfarasókn þjóðarinnar og lýðræði á vettvangi at- vinnulífsins. Alþýðubandalagið hafnar ekki markaðsleiðinni í al- mennum rekstri og þjónustu en varar við þeirri dýr- keyptu reynslu sem birst hefur í leik gróðaaflanna með auðlindir þjóðarinnar. Alþýðubandalagið varar við kreddutrú sem sækir nú fram með einfaldar töfralausnir á vandamálum efna- hagslífsins. Slík kreddutrú getur grafið undan sjálfstæði þjóðarinnar og leitt íslendinga svo afvega að erfitt reynist að komast á ný á framfarabraut. Alþýðubandalagið er vettvangur raunverulegrar og virkrar friðarbaráttu þar sem fordæming á hinu tryllta vígbúnaðarkapphlaupi og krafan um friðlýst og frjálst ísland eru grundvöllur breiðfylkingar friðarsinna. Þessi 10 grundvallaratriði eru burðarásar þeirrar stefnu sem Svavar Gestsson formaður Alþýðubanda- lagsins lýsti ýtarlega í ræðu sinni í upphafi landsfundar- ins. Þau marka kjarnann í sjálfstæðisbaráttu samtímans sem Alþýðubandalagið hefur gert að höfuðverkefni. Alþýðubandalagið er hreyfing fólks sem vill sjálft skapa sína sögu - samtök fjölda sem sækir fram í krafti lýðræðislegs styrks. Á skýran hátt hefur formaður flokksins lýst kjarnan- um í þjóðmálastarfi Alþýðubandalagsins. Landsfund- urinn nú er staðfesting á því sögulega hlutverki til að sameina vinstra fólkið í landinu sem á næstu misserum verður hreyfiaflið í víðtæku fjöldastarfi Alþýðubanda- lagsins. ór Ávarp Guöbjargar Sigurðardóttur, formanns Æsku- lýösfylkingar Alþýöubandalagsins í Austurbœjarbíói Landsfundarfulltrúar. Ljósm.: eik. Við viljum vera með í starfi og stefnumótun Ágætu félagar. Fyrir hönd Æskulýðsfylkingar- innar vil ég þakka það tækifæri sem við höfum fengið hér til að kynna okkar samtök. Æskulýðs- fylking Alþýðubandalagsins eru ung samtök, í rauninni hafa sam- tökin lengi verið til, þá áður sem Æskulýðsnefnd sem vár starfs- nefnd miðstjórnar, en á lands- þingi okkar fyrir ári síðan breyttum við reglugerðinni á þann veg að samtökin hlutu meira sjálfstæði. M.a. var sett inn það ákvæði, sem þekktist ekki áður hjá Alþýðubandalaginu, að félagar sem ekki eru flokksbund- nir gætu gengið í samtökin og starfað með þeim. Með því er þeim gefið tækifæri til að kynnast flokknum og gert það auðveldara að ákveða hvort þeir vilja ganga í flokkinn, því það hefur sýnt sig að margir hafa viljað kynnast bandalaginu en hinsvegar ekki verið reiðubúnir að ganga í stjórnmálaflokk, og fundist það minna stökk að ganga til liðs við Æskulýðsfylkinguna. Okkur þótti nafnið Æskulýðsnefnd ekki aðlaðandi, og í mars ’83 breyttum við því formlega í Æskulýðsfylk- ingu Alþýðubandalagsins og þá meira til að undirstrika að við erum til sem samtök. Eins og landsfundarfulltrúar sjá í til- lögum að breyttu skipulagi flokksins er Æskulýðsfylkingin þar sjálfstæð samtök til hliðar við flokkinn, og eru þær breytingar í samræmi við þær óskir sem við höfum lagt fram. Guðbjörg Sigurðardóttir Okkar von er að félag ungs fólks „Æskulýðsfylkingin“ eigi eftir að koma í hverju kjördæmi, og starfa þar væntanlega með flokksfélögunum, en fyrst og fremst muni hún standa vörð um málefni ungs fólks t.d. í skóla- og menntamálum, að ógleymdum launamálum þar sem ungt fólk er ekki metið sem fullgildir launþegar. - Atvinnurekendur notfæra sér skólafólk í sumar- vinnu og aukavinnu á kvöldin og um helgar, kaup og kjör fylgja ekki lögum verkalýðsfélaganna, enda er þetta fólk oft ekki í verkalýðsfélögum. Jafnréttismál og friðarbarátta eru líka mál sem varða ungt fólk sérstaklega og að okkar mati ætti að vera fræðsla um þau í skólum. Það er stór smán á sjálfstæðisbar- áttu okkar, sem aldrei lýkur, að hér á íslandi skuli vera erlendur her sem reynir nú að leggja undir sig Iand okkar með ratsjárstöðv- um á öllum landshornum og nýrri stórbyggingu í Keflavík sem kall- ast Flugstöð okkar íslendinga, og að við sem köllum okkur friðar- sinna séum í hernaðarbandalagi, og hvernig getum við fullyrt að hér séu ekki kjarnorkuvopn? Aðal áherslu leggjum við þó á fræðslu og baráttu fyrir sósíal- isma og lýðræði, en það má aldrei gleymast í okkar starfi. Enda veitir okkur ekki af öllum kröftum til að berjast gegn þeirri ríkisstjórn sem nú situr og hefur vegið illilega að kjörum láglauna- fólks. Hún hefur virt að engu jafnan rétt alls fólks til náms, með niðurskurði á framlögum til Lánasjóðs íslenskra námsmanna og með því gert framhaldsnám eignarétt yfirstéttarinnar. Að lokum félagar góðir vonum við að þið hafið okkur með í starfi og stefnumótun að bættu þjóð- skipulagi og betri lífskjörum, því það erum jú við sem erfum landið. Góðir félagar, stöndum saman í baráttu fyrir þjóðfélagi sósíal- ismans á íslandi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.