Þjóðviljinn - 19.11.1983, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Helgin 1!>. - 20 ’ nóvember 1983
i „ Við krefjumst framtíðar”
Kvikmyndahátíð pg hljómleikar
Linton Kwesi Johnson
Hópurinn sem stóð á bak við
rokkhátíðina „Við krefjumst
framtíðar“ í haust gengst fyrir
kvikmyndaviku í Regnbogan-
um dagana 25. nóvember til 4.
desember næstkomandi.
Verða þá sýndar allmargar kvik-
myndir er tengjast umræðunni um
vígbúnaðarkapphlaupið og kjarn-
orkuvígvæðingunni. Meðal kvik-
mynda sem sýndar verða má nefna
Stríð og friður sem Alexander
Kluge, Schlöndoff, Heinrich B=ll
og fleiri vestur-þýskir kvikmynda-
gerðarmenn stóðu að. Myndin fjal-
lar um vígbúnaðinn í Þýskalandi og
áhrif hans á þýskt þjóðlíf.
In The King of Persia nefnist
bandarísk heimildarmynd eftir
Emile de Antonio sem fjallar um
aðgerðir friðarsinna í Bandaríkj-
unum gegn vopnasmiðju General
Electric í bænum The King of Pers-
ia.
We are the Guinea Pigs er
heimildarmynd um slysið í kjarn-
orkuverinu í Three Miles Island við
Harrisburg í Bandaríkjunum.
Myndin er eftir Joan Harvey.
America from Hitler to MX er
heimildarmynd um þátt banda-
rískra auðhringa í vígbúnaðarfram-,
leiðslunni frá Hitlertímanum til
okkar daga. Höfundur er Joan
Harvey.
Hiroshima, heimildarmynd sem
japanska friðarhreyfingin gerði
upp úr fréttamyndum af kjarnork-
usprengingunni í Hiroshima.
Aðrar myndir sem sýndar verða
eru breska myndin The War Game
eftir Peter Watkins, No Place to
Hide, og Dark Circle.
Föstudaginn 2. desember kemur
hingað ljóðskáldið Linton Kwesi
Johnson ásamt 10 manna hljóm-
sveit undir stjórn Dennis Bo-
veli. Johnson er ættaður frá Jama-
ica en búsettur á Bretlandi og mun
hann flytja ljóð sín við Raggea-
tónlist Dennis Bovells á hljóm-
leikum í Sigtúni.
Úr kvikmyndinni The War Game eftir Peter Watkins.
Gamlabíói
Jazz)sveifla í
Tríó John Scofields
kemur á vegum
Jazzvakningar
Þann 5. desember nk. býður
Jazzvakning uppá mikla j azzsveiflu
í Gamla bíói, þar sem ein virtasta
smáhljómsveit jazzheimsins, tríó
John Scofields, gítarleikara mun
halda tónleika.
John Scofield er í hópi helstu gít-
arleikara jazzins og hefur stjarna
hans vaxið mikið eftir að Miles Da-
vis réð hann í hljómsveit sína, en
Tríó John Scofíelds, sem leikur á
jazz-tónleikum í Gamla bíói 5. des-
ember nk.
hann er nú einn helsti einleikari
Davis. í tríói Scofields eru auk
hans bassaleikarinn Steve Swallow
og trommarinn Adam Nussbaum.
Tónlist John Scofields er nútíma
bebop, þar sem bæði bregður fyrir
áhrifum af sveiflu og rokki. Hann
er mjög frjór, bæði sem tónskáld
og einleikari, og stíll hans persónu-
legur. Það er engin tilviljun að jafn
ólíkir tónlistarmenn og Lionel
Hampton, Gary Burton, Charles
Mingus, Niels-Henning, Gerry
Mulligan og Miles Davis hafa
keppst við að bjóða honum að
leika með sér. Hann býr nefnilega
yfir þeim eiginleikum sem eru aðal
hvers afburða jazzleikara: mögn-
uðu hugmyndaflugi og sterkri
sveiflu.
rrtstiórnararcin_________
Uppreisn fyrir lífiö
Óskar
Guðmundsson
skrifar
Frá Bandaríkjunum berast þau
tíðindi, að hernaðarandi grípi
ungdóminn og þjóðina alla. Æsk-
ulýðurinn þyrpist í skráningabúð-
ir hersins og haft er eftir unglingi
að hann sé reiðubúinn að deyja
fyrir föðurlandið hvar sem forset-
inn æski þess. Þetta nýja hernað-
aræði í Bandaríkjunum gerist á
sama tíma og verið er að koma
fyrir bandarískum tortímingar-
vopnum á meginlandi Evrópu.
Ástæða þessa stríðsæðis og
fórnarlundar er rakin til þess að
hersveitir hins bandaríska
heimsveldis báru sigur úr býtum í
innrás á karabiska eyríkið Gren-
ada. í Bandaríkjunum búa rúm-
lega 200 miljónir manna en á
Grenada 150 þúsund manns. Þeir
sem ekki hafa hlýtt á röksemdir
Hannesar Hólmsteins og Geirs
Hallgrímssonar utanríkisráð-
herra eiga sjálfsagt erfitt með að
skilja að leiðtogar heimsveldisins
geti með slíkum árangri notfært
sér innrásina á Grenada með
þessum hætti. Jafnframt berast
fregnir af því að Ronald Reagan
sé vinsælli en nokkru sinni á for-
setatíð sinni. Innrásin á Grenada
er nefnilega kölluð „björgunar-
aðgerð" í Bandaríkjunum og á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
og hún blæs stolti í brjóst hinnar
bandarísku þjóðar. „Við erum
stærstir og sterkastir“ og það er
ýmislegt til vinnandi til að halda
þeim í sessi.
í Vestur-Evrópu er verið að
reyna að afsanna þá kenningu, að
meirihlutavilji almennings ráði
um afdrifaríkustu málefni land-
anna. f skoðanakönnunum og
með öðrum hætti hefur sá ský-
lausi meirihlutavilji þjóðanna
komið fram, að fólk vill ekki að
kjarnorkuvopnunum verði kom-
ið fyrir í löndum þeirra. Hags-
munir NATÓ og þó sérstaklega
Bandaríkjanna eru þó þeir að
kjarnorkuflaugunum verði kom-
ið fyrir.
Staðsetning eldflauganna er á
vissan hátt áframhald þeirrar
skiptingar álfunnar í tvö áhrifa-
svæði sem hófst í lok síðustu
heimsstyrjaldar. Þessi tvö lög-
regluríki heimsins, Bandaríkin
og Sovétríkin halda áfram að
skipta á milli sín heiminum í þá
parta sem þeim þóknast í krafti
hernaðarmáttar og árangurs í á-
róðursstríðinu. Einsog innrásin á
Grenada sannar þarf ekki mikið
til að gjörbylta hinu svokallaða
almenningsáliti og margir fjöl-
miðlar, hlaupatíkur valdstétt-
anna, eru galdratæki í þessu efni.
Og einsog ummæli bandarískra
stjórnmálamanna og ofstækis-
fulls hóps Framsóknarmanna og
Sjálfstæðismanna uppá íslandi
beravottum, erstutt í miðalda-
myrkriðþegarfjallað erum annan
hvorn andstæðinginn.
Þessi tvö lögregluríki, Banda-
ríkin og Sovétríkin, eiga sem bet-
ur fer við ýmislegt mötlæti að
stríða. Smærri þjóðir krefjast
sjálfsforræðis og bindast stund-
um samtökum til að losa sig
undan áhrifum stórveldanna.
Heima fyrir, eystra og vestra,
hafa miljónir manna andúð á
hernaðarstefnu þeirra, sem
vegna tækninnar er ekki annað
en helstefna. Frelsisbarátta fólks
á bandarísku áhrifasvæði og so-
vésku áhrifasvæði er að þessu
leyti til eðlislík.
Staðsetning hinna bandarísku
vígtóla á meginlandi Evrópu
undirstrikar enn frekar en áður
skiptingu Evrópu og heimsins í
áhrifasvæði stórveldanna. Ýmis-
legt bendir til þess að þjóðarleið-
togar í Vestur-Evrópu og
stjórnmálamenn sem annars eru
hallir undir skiptinguna í áhrifa-
svæði, hafi efasemdir um kjarn-
orkueldflaugarnar af þeirri á-
stæðu að þeir óttast að þeir verði
enn háðari Bandaríkjunum en
hingað til. Mörg þessara ríkja
einsog t.d. Frakkland og
Vestur-Þýskaland hafa einnig að
hluta til öndverða efnahags-
hagsmuni við Bandaríkin. Þessi
ríki bítast um markaði við Banda-
ríkin. Þessu til viðbótar kemur
svo þrýstingur almannahreyfing-
anna, friðarhreyfinganna á við-
komandi stjórnvöld. Það er því
ekki með öllu ólíklegt að þessi
ríki og fleiri Vestur-Evrópuríki
leiti leiða til að brjótast undan oki
og ótta gjöreyðingarvopnanna.
Máske _ ‘kemur samstaða smá-
þjóðanna gegn áðurnefndri
skiptingu heimsins í áhrifasvæði
og til sögunnar, máske krefst
órættlátt efnahagsskipulag
heimsins (norður-suður) and-
stöðu gegn risaveldinum
tveimur, og máske ná friðar-
hreyfingarnar þjóðarleiðtogun-
um saman. í þessu ljósi séð er
dapurlegt og skammarlegt að rík-
isstjórn íslands með utanríkis-
ráðherrann í broddi blárrar fylk-
ingar skuli játast svo öðru stór-
veldinu að mönnum þætti meira
að segja nóg um ástarjátningarn-
ar í Bandaríkjunum sjálfum.
Þeim skjátlast sem halda að
friðarhreyfingarnar gefist upp
eftir að byrjað er að koma fyrir
gjöreyðingarvopnum á megin-
landi Evrópu. Andspænis gjör-
eyðingarhættunni sem aðallega
stafar af tveimur áðurnefndum
lögregluríkjum sameinast fólk úr
öllum áttum. Þar koma saman f
friðarhreyfingu í þágu lífsins,
kristnir menn og íhaldssamir, rót-
tækir menn og hægfara. f þeim
átökum röksemdanna sem háð
eru víða um veröld þessi misseri
um gjöreyðingarvopnin, hefur
kristin lífsskoðun með afdráttar-
lausri virðingu fyrir lífinu öðlast
nýtt og viðeigandi inntak. Og
lofuð veri sú íhaldssemi gagnvart
lífinu og náttúrlegum verð-
mætum sem krefst andófs
gagnvart gjöreyðingarhættunni. í
þeirri uppreisn fyrir lífinu sem við
nú heyjum í friðarhreýfingum ma
aðeins einn sigurvegari standa
eftir, lífið sjálft. Staðsetning eld-
flauganna, hernaðarandinn í
Bandaríkjunum og í Sjálfstæðis-
flokkrium, verður ekki til þess að
draga úr mikilvægi friðarhreyf-
inga. Friðarhreyfingin mun því
aðeins bera árangur að hún sé
borin uppi af manneskjum sem
sjálfar hafa dulítinn frið í hjarta.
Einsog sósíalisminn eru friðar-
hreyfingarnar uppreisn fyrir lífið.
Hver vill ekki vera þátttakandi í
þeirri uppreisn?
-óg