Þjóðviljinn - 19.11.1983, Qupperneq 17
víkinga, og vildu menn ógjarna láta
það súrna af langri geymslu.
Leiðangursmenn þurftu að inna
nákvæmlega frá öllum þeim afrek-
um er þeir höfðu drýgt í för sinni
vestur um haf, enda vildu þeir og fá
tíðindi af hinu helsta sem við hafði
borið heima í Hleiðru meðan þeir
voru á brottu. Var því langt liðið á
nótt er allar þessar frásagnir höfðu
verið til lykta leiddar. Faðir minn
sást ekki eftir að hann hvarf á braut
með ambáttina, og taldi ég víst að
hann sæti að sumbli úti í karla-
skemmu. Móðir mín stóð fyrir
beina og tók annað veifið þátt í
mannfagnaði í eldaskálanum. Ég
sá að hún hvarflaði augum til dyra
við og við - og ekki neita ég því að
ég gerði slíkt hið sama, væntanlega
af sömu ástæðu.
Nær ég vaknaði morguninn eftir
var móðir mín þegar risin úr
rekkju, og var hún með griðkonum
sínum að ryðja skálann. Miður var
þar vistlegt um að litast. Á víð og
dreif lágu drykkjarhorn og brotnir
stútar, kroppaðar hnútur og tómir
tryglar. Yfirhafnir og önnur klæði
lágu þar sem menn höfðu varpað
þeim af sér er þeir hitnuðu af ölinu
eða bökuðust við eldinn. Sumir
höfðu gerst ölsjúkir en ekki náð út
að ganga, og voru hálfþornaðar
spýjur hér og hvar á gólfinu og
enda upp um palla. Nokkrir menn
höfðu sofnað í vímu sinni á gólfinu
þar sem komnir voru.
Móðir mín sparn fæti við bónda
einum sem lá á grúfu skammt frá
kulnuðum eldinum og blés með
snörli.
- Dragstu á fætur dusilmenni,
mælti hún. Strýkur að heiman frá
konu þinni og börnum og ferð í
önnur lönd að brytja niður blásak-
laust fólk og varnarvana. Nú liggur
þú hér sem gorhundur í spýju
þinni!
Aftur sparn hún við honum sýnu
fastar en fyrr svo að hann veltist um
hrygg og rumskaði við. Síðan
skreiddist hann á fætur og staulað-
ist út um dyrnar á skálanum.
Dagurinn leið, en ekki birtist
faðir minn. Mannlíf í Hleiðrubæ
tók smám saman að falla í hvers-
dagslegan farveg. Rauður ráðs-
maður skipaði mönnum til verka
og valdi þó fremur hin léttari störf
handa vökumönnum. ívar var
einnig mjög á stjái og hafði for-
sagnir með ráðsmanni. En ekki
kom faðir minn heldur í rekkju
næstu nótt.
Á þriðja degi birtist hann loks og
gekk til dagverðar eins og ekki
hefði í skorist. Lék hann alsolla,
spretti fingrum og hló við hverjum
manni.
- Ég heyri sagt að þú hafir stór-
um bætt við búkost minn Grímur
fóstri, kallaði hann til húskarls eins
er sat við enda borðsins. Kona
Gríms hafði alið tvíbura meðan
faðir minn var í leiðangrinum.
Grímur roðnaði við.
- Ekki, ekki stamaði hann.
Langur er ómagahálsinn og tveir
sem tíu. En ég mun vinna kapp-
s amlega fyrir upphaldi sveinanna,
því heiti ég þér konungur.
- Veit ég það Grímsi góður.
Tvílembingar eru þroskabráðif ef
móðírin ervel mylk.Og mér sýnist
hún Æsa þín vera vel vaxin hið
efra.
Grímur gerðist nú enn rjóðari,
en faðir minn hló dátt. Að loknum
dagsverði gekk hann til verka með
húskörlum sínum svo sem vandi
hans var til.
En móðir mín snæddi í eldhúsi
og kom ekki að dagverðarborði.
Um kvöldið kom faðir minn til
rekkju sinnar í skálanum og hugð-
ist ganga til náða. Móðir mín var
þegar háttuð, en spratt nú fram úr
sænginni í náttserk sínum og rétti
hendur í kross fyrir rekkjudyrnar.
- Illurerafþérambáttarfnykur-
inn, mælti hún. Og ekki munt þú
byggja mína rekkju í nótt Ragnar
bóndi.
Föður mínum hnykkti hastar-
lega við þessar viðtökur. Hann
hleypti brúnum og kvað fast að
orðum sínum.
- Þessum mun ég við bregða Ás-
laugar órunum. Sú var tíð að ég var
bljúgur að beygja mig fyrir þér og
réttist þó aftur upp. En nú er ég
stirður að krjúpa til þín að gamals
aldri.
r ' ( Þ/íVlJ þJU , t ' ) • I i / i1 ' ” /\U&G W
Helgin 19, - 20. november 1983 ÞJOÐVILJINN - SIÐA 17
dægurmál (sígiid?)
Tifru/etfvBeí
Forsprakkar Psychic TV, Genesis P-Orridge og Sleazy Christopherson.
, +Sálræna sjónvarpið“
Þá er stundin að renna upp. Á
miðvikudag verða tónleikarnir
með Psychic TV í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. Kuklið kemur
einnig fram. Einar Örn, annar
söngvari hljómsveitarinnar, er nú
við nám í London og mun koma
fram á tónleikunum með hjálp
gervihnattar, þ.e. hann mun syngja
í Englandi en hljómsveitin leika á
íslandi. Tónleikar þessir hafa vak-
ið mikla athygli í Englandi og verða
nokkrir blaðamenn helstu tónlist-
arblaða þar í landi viðstaddir
í MH
hljómleikana í MH.
Ástæðan fyrir áhuga enskra tón-
listarblaða á tónleikunum er
væntanlega sú að tónleikar með
Psychic TV eru ekki hversdagslegt
fyrirbæri og langt er um liðið síðan
hljómsveitin hélt tónleika þar í
landi. Ef marka má gömul skrif um
tónleika Psychic TV má búast við
sérkennilegri og skemmtilegri
uppákomu. Hljómsveitin líturekki
á tónleika sem neinar skemmtanir.
Miklu fremur tækifæri til að
„kveikja" í fólki. Miðla upplýsing-
um sem vekja fleiri spurningaren
svör. Síðan er það einstaklinganna
að finna svör við þeim spurningum
sem vantar. Þau segja að í síbreyti-
legum heimi sé erfitt aðhöndla
„svarið". Svör dagsins í dag
þurfa ekki endilega að vera svör
morgundagsins. Hver og einn
verður því að leita þeirra.
Sannleikurinn er meðlimum
Psychic TV mikið hugðarefni.
Ekki svo að skilja að þau haldi að
þau hafi fundið hann. Þvert á móti.
Engu að síður þá eru þau stöðugt
að leita hans. Þau gagnrýna fjöl-
miðla og þá sem við þá vinna. Segj a
að þessi hópur manna sé upp til
hópa hálfvitar og rugludallar. Sá
sannleikur sem birtist í fréttaflutn-
ingi þeirra sé afbakaður og stund-
um hreinlega rangur. í fjölmiðla-
stétt veljist yfirleitt sori samfélags-
ins. Þessi hópur vilji ekki að fólk
hugsi. Vilji ekki að fólk læri, athugi
málin með opnum huga. Fái fyrst
línuna, taki svo afstöðu. Taki
þannig þegjandi og hljóðalaust við
því sem á borð er borið. Almenn-
ingur býst við að heyra sannleikann
af vörum þessara manna, en fær
iðulega eitthvað allt allt annað.
Með brengluðum fréttaflutningi og
í krafti ákveðinnar hugmyndafræði
vilja þessir aðilar ná völdum yfir
hugum fólks. Þessir aðilar, krabb-
amein þjóðfélagsins, fari jafn illa
með tónlistina og tónlistarmenn og
annað efni sem þeir fjalli um. Með
skrifum sínum oft á tíðum ákveða
þeir tískuna og hverjir njóti vin-
sælda. Þörf blaðanna til að skapa
stjörnur hafi gefið almenningi
ranga mynd af tónlist og vitlausa
mynd af lífi tónlistarmanna.
Gegn þessu eru Psychic TV að
berjast. Segjast vera í stríði við
þessa aðila. Stríði sem standi ævina
á enda. Engin hvíld og engin vopn-
ahlé séu í baráttunni. Þeirra bar-
áttutæki er tónlistin, því hlutverk
tónlistar sé að skora fólk á hólm,
kveikja hugmyndir og umræðu,
auðga líf okkar, veita því innblást-
ur.
Áheyrileg, gáfuleg tónlist hefur
gildi í dag og hún hefur gildi eftir 10
ár. Góð tónlist verður ekki elli-
dauð. Ekkert má afvegaleiða okk-
ur frá draumunum. Þegar okkur
hættir að dreyma deyjum við. Og
þeir sem þora að láta sig dreyma
opinberlega eiga lof skilið en ekki
úthrópun.
Eins og minnst var á hér að fram-
an verða tónleikarnir með Psychic
TV og Kuklinu í MH á miðviku-
daginn og hefjast kl. 21.00. Miðar
kosta 385 kr. Allir eru hvattir til að
mæta því ég er nokkuð viss um að
þar munum við upplifa eitthvað
sem við höfum ekki upplifað fyrr.
-JVS
Afturhvarf
BERGÞÓRU
Plötur þessar hafa undanfarið
verið að tínast inn á hljómplötu-
markaðinn hafa og bærilegt forskot
á jólaflóðið, sem manni skilst að
verði með rýrara móti þetta árið,
a.m.k. að magni. Við ríðum á vað-
ið í stafrófsröð (sem reyndar gæti
einnig verið einkunnagjöf í þessu
tilviki).
Afturhvarf er 3. sólóplata Berg-
þóru Árnadóttur en einföldust
hvað hljóðfæraskipan snertir. Hér
er fólk vopnað órafmögnuðum
hljóðfærum, útsetningar ljúflegar
og smekklegar og leikið öruggum
höndum og samstilltum sálum:
Tryggvi Hubner skal fyrstur talinn
leikara og stafrófsreglan þar með
brotin, en hin í heiðri höfð. - Hann
leikur á kassagítar, Pálmi Gunn-
arsson píanó og kontrabassa og lík-
ar mér hann enn betur með það
plata Hálft í hvoru, Áfram, sem sá
félagsskapur gefur út. Ekki er þar
með sagt að Hálft í hvoru sé að
laumast meðal vina á fölskum for-
sendum, því að hvað er ekki leyfi-
legt undir svona nafni? Það sem átt
er við er að Hálft í hvoruer á köfl-
um gífurlega léttpoppað, sveifl-
ast svoútídjassmeðþjóðlagablæ
og fer þá Gísli Helgason á kostum á
flautunni, (algjör flautuþyrill), eitt
lagið hljómar síðan eins og amerísk
kvikmyndatónlist með smá kryddi
af „himni og jörð“ Gunna Þórðar
(Heitur snjór, gott Ijóð Aðalsteins
Ásbergs, sem mér fannst í fyrstu
vera lag úr kvikmyndinni Midnight
Cowboy), annað er pönkað (Ofjarl
kveður um reimleika sinn eftir
Gísla Helgason og Aðalstein Ás-
berg), en síðan geta jreir orðið
hrikalega væmnir (lag Orvars Að-
alsteinssonar við ljóð Arnar Arn-
arsonar, Þá var ég ungur).
Annars má náttúrlega segja að
Hálft í hvoru sé nákvæmlega það
sem nafnið segir til um og platan
Áfram er reglulega vel unnin.
hljóðfæraleikur góður, enda góðir
kraftar fengnir til aðstoðar, t.d.
Sigurður Karlsson á trommur,
Guðmundur Ingólfsson hljóm-
borð, Diddi fiðla margfaldaður og
Vilhjálmur Guðjónsson á saxófón
(Heitur snjór). Söngur er hins veg-
ar ekkert til að hrópa húrra fyrir,
eða raddir flytjendanna, nema
hvað áðurnefndur „Ofjarl“ kemur
ágætlega út. Hins vegar er Aðal-
steinn Ásberg hagleiksljóðasmið-
ur, sem er því miður ekki of algengt
að íslenskar hljómsveitir geti stát-
að af.
Bon jour
MAMMONS
Platan Bonjour - Mammon er
gerð við mest vanefni þessara
þriggja, algjört einkaframtak vest-
ur á ísafirði þar sem 4 reykvísk
systkini leggja hönd á verkið og eitt
lag eingöngu leikið eftir látinn
bróður þeirra, Missir, líklega besta
lagið á plötunni með ágætum leik
Vilhjálms Guðjónssonar á gítar og
saxófón. Annars eru 8 lög á plötu-
nni eftir Pál og Sigurbjörn Sigur-
björnssyni, báðir syngja (misjafn-
lega), Páll spilar á bassa ágætlega
og Rafn bróðir þeirra á „synþeþæs-
er“, líka ágætlega og Allý Sigur-
björnsdóttir syngur bakraddir.
Bonjour - Mammon er svo sem
ekkert meistaraverk og líklega
ekki unnin með áform urn að verða
slíkt. Laglínur eru svosem ekki
verri en algengt er á íslenskum
dægurlagaplötum, t.d.gæti Vest-
fjarðatangóinn hugsanlega orðið
vinsæll í Gufuradíóinu. En það er
samt sem áður aðdáunarverður
kjarkur þegar óþekkt fólk tekur sig
til og gefur út plötu á markað sem
þekkt nöfn eru grenjandi yfir
vegna ófeitis á. \
stórvaxna hljóðfæri en rafmagns-
bassann (nema það sé hljóðfærið
sjálft?). Kolbeinn Bjarnason
leikur á þverflautu í nokkrum
lögum og Gísli Helgason á blokk-
flautu í tveim, og tekst einkar vel
upp í lagi Pálma Gunnarssonar,
Siggi.
Siggi og Lokasöngur eru einu
lögin á Afturhvarfi sem eru ekki
eftir Bergþóru, en hún á þar 11
sómalög við ljóð ýmissa skálda:
Steins Steinarrs, Jóhannesar úr
Kötlum, Benedikts Gröndal, Tóm-
asar Guðmundssonar, Páls J.
Árdal, Aðalsteins Ásbergs Sig-
urðssonar og Sigurðar Antons
Friðþjófssonar.
Bergþóra er með viðfelldna rödd
og fer einkar vel með ljóðin og
virðist eiga auðvelt með að semja
lög sem hæfa efni hvers ljóðs.
Afturhvarf er hin eigulegasta
plata.
Bakhliðið á Áfram
frá Hálft í hvoru - minnir þetta
nokkuð á Abbey Road Bítlanna?
Áfram
HÁLFT f HVORU,
Mér finnst eiginlega að Aftur-
hvarf standi nær Vísnavinum en