Þjóðviljinn - 19.11.1983, Side 19
Helgin 19. - 20. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Bók fyrir
börn og
fullorðna
Bók fyrir börn og fullorðna. Hvers konar
bók er nú það? Nú í næstu viku kemur út
bókin Kátt í koti eftir Kristján Inga Ein-
arsson og Sigrúnu Einarsdótturog
. stendur á baksíðu að þetta sé bók fyrir
börn og fullorðna. Við náðum tali af
höfundunum og inntum þá nánar eftir
þessu.
- í bókinni er lýst í máli og myndum einum degi á
barnaheimili. Foreldrar, sem eiga börn á barnaheim-
ili, fara með þau þangað á morgnana og sækj a þau
aftur á kvöldin en vita lítið hvað gerist þar á miili.
Myndirnar og textarnir eru því tilvalin til að skapa
umræðugrundvöll milli barna og foreldra um barna-
heimilið. Þá getur bókin verið ágæt fyrir þá krakka
sem eiga að fara á barnaheimili og þá sem ekki eiga
þess kost.
-Þú ert ljósmyndari, Kristján. Er þetta fyrst og
fremst ljósmyndabók?
- Það eru um 60 lj ósmyndir í bókinni og gegna þær því
stóru hlutverki en textarnir segja líka sínasögu. Þess
má geta að bókin er prentuð á sérstaklega góðan
pappír og hefur vandaða harða kápu. Hún þolir því
vel litlar hendur og gerir jafnvel ekki til þótt hún sé
nöguð.
- Hvað starfar þú, Sigrún?
- Ég er fóstra og kenni í Fósturskólanum.
- Finnst ykkur vanta svona bækur?
- Það vantar bækur fyrir þennan aldursflokk þar sem
börnin þekkja aðstæður. Algengastar eru þýddar
ævintýrabækur, oft á slæmu máli.
- Kristj án: Þetta er þriðj a bókin sem ég vinn í þessum
dúr og þeim hefur verið ágætlega tekið. Ég hef að
undanförnu unniðmikið fyrir Námsgagnastofnun og
námsstjórarnir þar hafa einmitt talað um að það vant-
aði bækur fyrir börn úr raunverulegum heimi þeirra.
Mín hugmynd er að gera röð af svona bókum og ef
þessari verður vel tekið geri ég mér vonir um að það
geti orðið að raunveruleika.
- Hver gefur bókina út?
-Kristján: Ég ákvað að gefa bókina sjálfur út til þess
að geta haldið henni á sanngjörnu verði. Hún kemur
til með að kosta 298 krónur og er það rétt fyrir fram-
Ieiðslukostnaði og ekki reiknuð laun þar inn í.
-GFr.
Rósa Hrund getur
næstum því alveg
klætt sigsjálf
Rósa Hrund á heima í Reykjavík.
Gatan sem hún býr við heitir
Framnesvegur. A meðan mamma
og pabbi vinna cr Rósa Hrund á
barnahcimili sem heitir Brekku-
kot. Þar eru mörg börn. Hún
hlakkar til að hitta þau af því að
henni fínnst gaman að leika við
þau.
Stutt spjall við
Kristján Inga
Einarsson og
Sigrúnu Einarsdóttur,
höfunda bókarinnar
Kátt í koti
Höfundarnir: Kristján Ingi og Sigrún með bók sína
Ljósm.: Magnús.
En nú er orðið áliðið
dagsogbráðumer
komið kvöld. Þá
komamömmurog
pabbar að sækja
börnin sín. Þau sem
eftir eru nota tímann
til að spila bingó. Þá
er nú eins gott að
fylgjast veí með. Hver
á hund? Hver á
rauðan bolta?
Þegar búið er að borða morgunmatinn og leika sér
inni langar börnin út að leika sér því að veðrið cr svo
gott. Rósa Hrund hleypur strax í róluna, það er svo
gaman. Sumir fara mjög hátt og sjá langt út á götu og
jafnvel alveg yfir húsþökin. Þá er cins og eitthvað kitli
mann í magann.
Einn daginn kemur rúta því að nú á að fara í réttir. En
hvað rútan er stór! Eru allir knmnir? Já já, og rútan
brunar af stað.