Þjóðviljinn - 19.11.1983, Side 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 19. - 20. nóvember 1983
Dagskrá Stúdentaleikhússins á sunnudagskvöld:
Draumar í höfðinu
Leikþœttir, upplestur og fleira
samið úr verkum yngri höfundanna
Stúdentaleikhúsið flytur dag-
skrá sem nefnist „Draumar í
höfðinu” sunnudagskvöldið 20.
nóvember kl. 20.30 í Félagsstofn-
un stúdenta við Hingbraut.
Dagskráin er unnin upp úr nýj-
um og væntanlegum skáldverk-
um eftir Berglindi Gunnarsdótt-
ur, Birgi Svan Símonarson, Einar
Má Guðmundsson, Einar Kára-
son, Gyrði Elíasson, ísak Harð-
arson, Kristin Sæmundsson,
Kristínu Bjarnadóttur, Ölaf
Hauk Símonarson, Pál Pálsson,
Sigmund Erni Rúnarsson,
Eldhús-
innrétting
Steinunni Sigurðardóttur, Vig-
dísi Grímsdóttur og Þórarin Eld-
járn. Leikstjóri sýningarinnar er
Arnór Benónýsson. Leikmynd er
eftir Sigríði K. Sigurðardóttur,
lýsingu annast Einar Bergmund-
ur, en tónlist er í höndum Jó-
hanns G. Jóhannssonar.
Til sölu er eldhúsinnrétting ásamt
stálvaski og blöndunartæki. Verð
kr. 10.000.
Upplýsingar í síma 35102 eftir
klukkan 4.
leiklist______________________
íslenska óperan:
Ein sýning á La Traviata verð-
ur hjá óperunni um helgina. Á
sunnudagskvöldið kl. 20 verð-
ur óperan flutt. La Traviata
byggist sem kunnugt er á sögu
Dumas um Kamelíufrúna.
Fríkirkjuvegur 11:
Brúðuleikhús Helgu og Sig-
ríðar sýnir í dag, laugardag,
leikþættina „Leikið með litum”
og „Á sjó” að Fríkirkjuvegi 11.
Sýningar hefjast kl. 15, en sala
aðgöngumiða kl. 13. Um 30
brúður koma fram á sýning-
unni.
Tröllaleikir í Iðnó:
Leikbrúðuland sýnir Tröllaleiki
í Iðnó kl. 15 á sunnudaginn.
Mikil aðsókn hefur verið að
þessum sýningum undanfarið,
sem ÞórhallurSigurðsson leik-
stýrir.
Félagsstofnun stúdenta:
„Draumar í höfðinu” heitir dag-
skrá sem Stúdentaleikhúsið
frumsýnir á sunnudaginn kl.
20.30 í Félagsstofnun stú-
denta við Hringbraut. Dag-
skráin er unnin upp úr nýút-
komnum og væntanlegum
skáldverkum. Leikin verða atr-
iði úr verkunum, flutt Ijóð og
smásögur. Leikstjóri er Arnór
Benónýsson.
Leikfélag Reykjavíkur:
í kvöld (laugardagskvöld) er
síðasta sýning á hinni rómuðu
sýningu á Ur lífi ánamað-
kanna eftir Per Olov Enquist.
Þá er í kvöld miðnaðtursýning í
Austurbæjarbíói á Forseta-
heimsókninni en troðfullt hef-
ur verið á sýningum undanfar-
ið á þessum franska gaman-
leik.
Á sunnudaginn er 5. sýning á
nýjasta viðfangsefni Leikfél-
agsins Guð gaf mér eyra eftir
Mark Medoff. Uppselt er á sýn-
inguna og virðist sýningin ætla
að njóta sömu vinsælda hér og
annars staðar. Með aðalhlut-
verk fara Sigurður Skúlason
og Berglind Stefánsdóttir en
með önnur stór hlutverk fara
Lilja Þórisdóttir, Karl Ágúst
Úlfsson, Sigríður Hagalín, Val-
gerður Dan og Harald G. Har-
aldsson. Leikstjóri er Þorsteinn
Gunnarsson.
Þjóðleikhúsið:
Skvaldur eftir Michael Frayn
verður sýnt í kvöld. Já, það er
engin leið að stöðva skvaldrið
á bak við tjöldin í sýningum litla
lélega leikhópsins sem er að
leika þann afspyrnuvonda
gamanleik „Klúður”, enda
tekst þeim að klúðra öllu sam-
an. Leikhópur Þjóðleikhússins
klúðrar engu hins vegar undir
stjórn Jill Brooke Árnason og
er mikil aðsókn að þessu
leikriti og mikið hlegið.
Lína langsokkur eftir Astrid
Lindgren og í leikstjórn Sig-
mundar Arnar Arngrímssonar
er komin í hóp allra vinsælustu
verkefna Þjóðleikhússins frá
upphafi, sýning fyrir alla fjöl-
skylduna með söng, dansi,
hoppi og híi. Sigrún Edda
Björnsdóttir virðist óþreytandi í
hlutverki sínu.
Návígi eftir Jón Laxdal verður
sýnt á sunnudagskvöldið og er
sem kunnugt er í leikstjórn
Brynju Benediktsdótturog höf-
undar. Þetta er fyndið og þægi-
legt verk um drauma og veru-
leika, loftkastala og jarðteng-
ingu, stórar áætlanir sem eru
skráðar í skýin og áfallið þegar
veruleikanum fer að rigna úr
þeim sömu skýjum.
Lokaæfing eftir Svövu Jak-
obsdóttur og í leikstjórn Bríetar
Héðinsdóttur verður á dagskrá
á Litla sviði Þjóðleikhússins á
sunnudagskvöld kl. 20.30.
Uppselt hefur verið á sýning-
arnar á þessu verki að undan-
förnu og því ráðlegt að tryggja
sér miða tímanlega. Lokaæf-
ing snertir streng í brjósti sér-
hvers manns sem lætursig lífið
varða og lífsvonina. Afburða
leiktúlkun, magnað leikrit og
jafnframt fyndið.
tónlist_____________________
Ásmundarsaiur:
Bergþóra Árnadóttir vísna-
söngkona mun leika nokkur
lög í tengslum við myndverk á
myndlistarsýningu Björgvins
Björgvinssonar í salnum. Dag-
skráin hefst kl. 14.30 í dag,
laugardag.
Þórscafé:
Á skemmtikvöldi í Þórscafé um
helgina mun dönsk söngkona,
Anniq, syngja fyrir gesti. Auk
hennar verða hefðbundin
skemmtiatriði á dagskrá.
Kynnir er Pétur Hjálmarsson.
Fíladelfía:
„Þú reistir mig upp” nefnast
hljómleikar þeirra Anne, Garð-
ars og Magnúsar Kjartans-
sonar sem haldnir verða í Fíla-
delfíu í Hátúni 2 í dag. Hljóm-
leikarnir hefjast kl. 17.
myndlist
Listmunahúsið:
Sýning Þorbjargar Hösku-
Idsdóttur listmálara var opnuð í
dag kl. 14 í Listmunahúsinu.
Þar sýnir hún málverk og teikn-
ingar. Sýningin er sölusýning
og er hún opin virka daga frá kl.
10-18 og um helgar kl. 14-18.
Skeifan:
Málverkasýning Sigurðar H.
Lúðvígssonar stendur yfir í
húsgagnaverslun Skeifunnar
að Smiðjuvegi 6 í Kópavogi. Á
sýningunni eru 40 myndir. Hún
er opin frá kl. 14 til 17 um helg-
ar, virka dga frá kl. 9 til 18 en á
föstudögum frá kl. 9 til 19.
Gallerí Grjót:
„Á palli”, sýning Ófeigs Björns-
sonar, hefur veriö framlengd
og stendur yfir þessa helgi. Á
sýningunni eru skartmunir og
skúlptúr úr leðri.
Bláskógar:
Sýning á steindu gleri eftir
Björgu Hauks var opnuð í hús-
gagnaversluninni Bláskógum í
dag. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Bjargar en list sína hefur
hún stundað í átta ár. Sýningin
verður opin frá 19. nóvember
til 10. desember á venjulegum
verslunartíma og á sunnu-
dögum frá kl. 14-17.
kvikmyndir
Norræna húsið:
Kvikmyndaklúbburinn Norður-
Ijós sýnir í dag, laugardag,
dönsku kvikmyndina Per sem
gerð var árið 1977. Leikstjóri er
Hans Kristensen en aðalhlut-
verk leika Ole Ernst, Agneta
Ekmanner og Frits Helmuth.
Sýning myndarinnar, sem fjall-
ar um ofbeldi og ástir, kærleika
og kaldhæðni, hefst kl. 17.15.
ýmislegt
Hótel Esja:
Félag íslenskra rithöfunda
heldurfund sinn að Hótel Esju,
Skálafelli, 9. hæð, sunnudag-
inn 20. nóvember kl. 14.
Basar í Garðabæ:
Kvenfélag Garðabæjar heldur
basar í Safnaðarheimilinu Kir-
kjuhvoli laugardaginn 19. nóv.
kl. 14. Á basarnum er glæsilegt
jólaföndur; laufabrauð, smák-
ökur og ýmis handavinna. Ekki
missir sá er fyrstur fær.
Basar í Kópavogi:
Skátafélagið Kópar heldur
basar til styrktar félagsstarf-
semi sinni sunnudaginn 20.
nóv. kl. 14.00 að Hamraborg 1,
Kópavogi. Á basarnum verður
fjöldi glæsilegra handunnina
muna. Einnig verður kökusala
á staðnum og happdrætti.
Ranki
Grensás-cg
fössvcgs-
hvpjfi
Réttarholtsútibú Iðnaðarbankans
á mótum Sogavegar og Réttar-
holtsvegar.
Aukin þjónusta við íbúa nærliggj-
andi hverfa og þá sem leið eiga hjá.
í Réttarholtsútibúinu fara
fram öll almenn bankaviðskipti.
Við leggjum sérstaka áherslu
á persónulega þjónustu og ráðgjöf;
- t.d. um þau mismunandi inn-
og útlánsform sem henta
hverju sinni.
Verið velkomin á nýja staðinn
og reynið þjónustuna.
ÖM U T
Iðnaðarbankinn
Réttarholtsútibú, Réttarholtsvegi 3, sími 85799