Þjóðviljinn - 19.11.1983, Page 26

Þjóðviljinn - 19.11.1983, Page 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 19. - 20. nóvember 1983 Dagbjört Sigurðardóttir: því miður er ekki vanþörf á að rétta hlut kvenna á vinnumarkaðnum því hlutur þeirra hefur alltof lengi verið fyrir borð borinn átölulaust. Ljósm. -eik. Konur á vinnumarkaði stofna samtök Ætlum ekld að kljúfa verkalýðshreyfinguna segir ein þeirra sem hefur undirbúið stofnun samtakanna þær konur sem starfa innan verka- lýðshreyfingarinnar, ekki síst í samningum”, sagði Dagbjört Sig- urðardóttir einn félaga í undirbún- ingsnefnd hinna nýju samtaka sem verða stofnuð 3. desember nk. umarkaönum, sem haldin var í Geröubergi í síðasta mánuði. „Við teljum að hlutur kvenna í verkalýðshreyfingunni hafi verið þannig fyrir borð borinn að full þörf sé á að stofna samtök sem vinni ötullega gegn því launamis- - rétti sem konur hafa verið beittar. Einnig munum við eflaust berjast fyrir bættu atvinnuöryggi kvenna því hingað til hefur verið litið á þær sem varavinnuafl, t.d. í frystihús- unum, sem hægt sé að sparka með litlum fyrirvara. Annars mun stofnfundurinn í næsta mánuði á- kveða nánar eftir hvaða leiðum verður sótt að markmiðum okkar”, sagði Dagbjört Sigurðardóttir að síðustu. „Tilgangur fyrirhugaðra sam- taka kvenna á vinnumarkaðnum er alls ekki að kljúfa verkalýðs- hreyfinguna heldur ætlum við okk- ur fyrst og fremst að rétta hlut hinnar almennu konu þar með öllum þeim ráðum sem við teljum duga. Okkur fínnst ekki vanþörf á að stofna hreyfingu sem hafi það meginhiutverk að standa á bak við „Markmið þessara samninga verður einkum tvíþætt. Annars vegar það sem ég áður nefndi og hins vegar að vera vettvangur stefnumörkunar í baráttumálum kvenna varðandi kjör á vinnu- markaðnum”, sagði Dagbjört enn- fremur. Að undirbúningi stofnfundarins, sem verður eins og áður sagði 3. desember nk., hafa unnið konur sem kosnar voru til þess verkefnis á ráðstefnu um kjör kvenna á vinn- Eigendur fimm húsa í Kópavogi Fá miljónir í skaðabætur vegna breyttrar legu Nýbýlavegar Vegna breyttrar legu Nýbýlaveg- ar í Kópavogi verður ríkissjóður og bæjarsjóður Kópavogs að greiða miljónir króna I skaðabætur til eigenda fimm húsa við götuna, þar sem sneiða þurfti 1-2 metra af lóð- um þeirra. Samtals nema skaða- bótagreiðslur, lögfræðikostnaður, kostnaður vegna skipulagsbreyt- inga og breytinga á inngöngum húsanna fimm, 6.4 miljónum króna á nóvemberverðlagi. Þetta kemur fram í Kópavogi, blaði Alþýðu- bandalagsins í Kópavogi. í blaðinu segir að upphaf málsins sé það að Ricbard Björgvinsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, en hann er einn eigenda húsanna norðan við Nýbýlaveginn, hafi í fyrrahaust náð samningum um skaðabætur vegna skerðingar á lóð sinni og breyttrar aðkomu að húsinu. f kjölfarið hafi síðan tekist sams konar samningar við þrjá aðra eigendur, en samningar hafi enn ekki tekist við fimmta hús- eigandann. Skaðabætur til eigenda' húsanna vegna skipulagsbreytingar og skerðingar á lóðum nema samtals 2.2 miljónum króna. Framkvæmd- ir bæjarins á lóðunum hafa kostað 2.1 miljón og breytingar á inn- göngum húsanna og lögnum hafa kostað um 900 þúsund krónur. Þá er lögfræðikostnaður vegna máls- ins kominn upp í 1.2 miljónir. Áður voru inngangar í húsin fimm frá Nýbýlavegi en eftir breytinguna er komið að húsunum frá Grænuhlíð, nýrri götu norðan þeirra. Þar er aðkoma mun betri en áður var, en ekki var neitt tillit tekið til þess þegar skaðabætur voru ákveðnar. -v. Breikkun Nýbýlavegar í Kópavogi á þessum stað hefur kostað ríki og bæ miljónir króna. Á myndinni sjást húsin fimm en aðkoma að þeim var áður frá Nýbýlavegi. Uppsteypa stoðmúrsins sem sést á myndinni var á kostnað bæjarsjóðs Kópavogs og er sá kostnaður ekki meðtalinn í þeim 6.4 miljónum sem ævintýrið kostar! Ljósm. -eik. Það stefnir í uppgjör Brot úr ræðu Svanfríðar Jónasdóttur í gær RÍKISSPITALARNIR Lausar stöður LANDSPÍTALINN HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast við lyflækninga- deildir og taugalækningadeild. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000. Ritari félagsráðgjafa óskast sem fyrst við Kvennadeild í hálft starf. Stúdentspróf eða sambærileg menntun áskilin. Upplýsingar veitir yfirfélagsráðgjafi Kvennadeildar í síma 29000. GEÐDEILDIR RÍKISSPÍTALA HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast frá 1. janúar nk. við barnageðdeild. FÓSTRA óskast frá 1. janúar nk. á barnageðdeild við Dalbraut. Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor- stjóri í síma 84611. Reykjavík, 20. nóvember 1983. Óhætt mun að fullyrða að engin ræða á landsfundi Al- þýðubandalagsins í gærdag vakti víðlíka athygli og ræða Svanfríðar Jónasdóttur frá Dal- vík og var henni klappað lof í lófa í samræmi við það. Ekki er rúm í blaðinu í dag til að birta alla ræðuna, en hún verður birt í heild eftir helgi. Svanfríður sagði ma. í ræðu sinni: Það er ljóst að mikið uppgjör er í vændum í sjávarútvegi. Þær stjórnvaldsaðgerðir sem hingað til hefur verið beitt í þá átt að hamla gegn stækkun fiskiskipaflotans, þ.e.a.s. skip tekin af frílista og bönn við innflutningi, hafa ekki borið þann árangur sem ráðamenn hafa vænst svo nú á að láta pening- ana tala og bjóða upp þau skip sem ekki var hægt að standa í skilum með við fiskveiðasjóð, - án tillits til atvinnu eða lífsafkomu jafnvel Svanfríður Jónasdóttir heilu byggðarlaganna. Það er líka ljóst að þarna er í flestum tilfellum um að ræða okkar fullkomnustu fiskiskip og þau þar sem öryggi sjó- manna ætti að vera tryggast - þar sem hér er um að ræða nýjustu skipin. Það er einnig ljóst að eignaraðilar jafnvel þó um sé að ræða sveitarfélög, hafa þeir ekki bolmagn til að ganga til samninga við fiskveiðasjóð sé litið á þá samn- inga sem Reykjavíkurborg hefur gert við sjóðinn vegna Ottós N. Þorlákssonar.... Við sögðum í kosningunum í vor, að fólk hlustaði grannt eftir því hvaða lausnir stjórnmálaflokk- arnir hefðu í atvinnumálum. Ég er þess fullviss að hafi verið hlustað á þá, sem ég dreg nú reyndar í efa, þá er meira en hlustað núna. Fólkið sem býr í sjávarplássum þessa lands og er burðarásinn í fram- leiðslu sjávarafurða hlustar nú áfj áð eftir hverri þeirri lausn eða þeirri vísbendingu að lausn þess vanda sem nú steðjar að heimilum þess, atvinnu og framtíð byggðar- lagsins. Það er skylda okkar að svara spurningu þess fólks og ekki bara þess fólks, heldur allra þeirra sem bera hag þessarar þjóðar fyrir brjósti, sjálfstæði hennar bæði fjár- hagslegt og menningarlegt. Vissu að kjötið var skemmt Á landsfundi Alþýðubandalags- ins í gær, sagði Jóhannes Gunnars- son, formaður Neytendafélags Reykjavíkur í ræðu, þar sem hann fjallaði m.a. um eggjamálið svo- nefnda og fleira sem viðkemur sölu landbúnaðarvara: „Afurðasala SÍS vissi fullvel að kjötið (gulgræna kjötið innskot Þjóðv.) var skemmt þegar það var sent á markað. Það var viljandi sett á markað". Eins og lesendur Þjóðviljans ef- laust muna var Þjóðviljinn fyrstur til að segja frá þessu máli í haust. Þá sóru forsvarsmenn af sér alla vitneskju um að kjötið hafi verið skemmt. Þeir sögðust ekkert hafa vitað af því fyrr en kvartanir fóru að berast, en þá voru eftir aðeins nokkrir tugir tonna af 300 sem í geymslunni voru þegar byrjað var að keyra kjötið út. - S.dór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.