Þjóðviljinn - 22.11.1983, Blaðsíða 1
DlOOVIUINN
Ætla Banda-
ríkjamcnn að 11ÍÉR4®
koma sér upp JL wMSM
herstöð á Gren- ; i
ada?
Sjá 13
nóvember 1983
þriðjudagur
267. tölublað
48. árgangur
Landsfundur Alþýöubandalagsins
Þegar fundarstjóri tilkynnti kjör Vilborgar Harðardóttur sem varaformanns Alþýðubandalagsins risu landsfulltrúar úr sætum og fögnuðu ákaft. Fremst á myndinni eru Álfheiður
Ingadóttir, sem ásamt mörgum öðrum konum beittu sér fyrir kjöri Vilborgar, og Baldur Óskarsson framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins þegar risin á fætur og Lúðvík Jósepsson
fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins er að standa upp. Hinn nýi varaformaður Vilborg Harðardóttir er brosandi á miðri myndinni. Ljósmynd: eik.
/
MARKAR TIMAMOT
„Þessi landsfundur bar vott
um samstarfsvilja og baráttu-
anda innan Alþýðubandalags-
ins“, sagði Svavar Gestsson for-
maður flokksins í lok fundarins
á sunnudagskvöld. „Enginn á-
greiningur var um megináhersl-
ur flokksins á næstu misserum,
og ákveðinn vilji kom fram um
að efla samstarf flokks og
verkalýðshreyfingarinnar gegn
ríkisstjorn fésýsluaflanna þann-
ig að það skili ekki minni
árangri en 1978, þegar kaup-
ráni hægri stjórnarinnar var
hnekkt.“
„Breytingin á lögum og skipulagi
Alþýöubandalagsins hefur mikla
þýöingu. Hana ber fyrst og fremst
að skoða sem pólitíska ákvöröun.
Hún sýnir vilja Alþýðubandalags-
ins til þess að láta ekki sitja við
orðin tóm, til þess að fylgja eftir
ákalli um samstöðu og samstarf
með því að koma til móts við sjón-
armið annarra vinstri manna sem
kosið hafa að starfa utan Alþýðu-
bandalagsins. Þarna er því um að
ræða ákvörðun sem hefur verulega
pólitíska skírskotun til margra Is-
lendinga vegna stöðu Alþýðu-
Kvikmynd um kjarnorkustríð skapaði örvilnun:
Verður „The Day After“
sýnd hér í sjónvarpinu?
Um helgina sýndi ABC sjón-
varpsstöðin í Bandaríkjunum 2
klukkustunda langa sjónvarps-
kvikmynd sem sýnir á raunsann-
an hátt afleiðingar kjarnorku-
stríðs á bandarískt þjóðfélag.
Myndin er sú fyrsta sinnar teg-
undar og hafði þegar vakið mikl-
ar umræður áður en hún var
sýnd. Viðbrögð almennings voru
slík að nánast einsdæmi er í
bandarískri sjónvarpssögu.
„Loksins fékk þjóðin að sjá
hvað kjarnorkuvígbúnaðurinn-
hefur í raun og veru í för með
sér“, sagði forystumaður banda-
rísku friðarhreyfinganna. Fjöl-
margir bandarískir þingmenn
sem séð höfðu myndina á forsýn-
ingu sögðust aldrei hafa orðið
fyrir eins miklum áhrifum af
nokkurri sjónvarpskvikmynd.
Þegar sýningunni var lokið var
eins og alda örvilnunar og
hræðslu væri um gjörvöll Banda-
ríkin. „Þessi mynd mun hafa
meiri áhrif á baráttuna í forseta-
kosningunum en nokkuð ann-
að“, sagði þingmaður frá New
York ríki fyrir nokkrum dögum
en hann sá myndina í síðasta
mánuði. Kostnaður við gerð
myndarinnar var 7 milljónir doll-
ara og margir frægir leikarar í
Bandaríkjunum fara með lykil-
hlutverk í myndinni.
Þjóðviljinn sneri sér í gær til
íslenska sjónvarpsins og spurði
hvort þessi mynd sem ber heitið
„The Day After“ yrði sýnd hér.
„Sjónvarpið vinnur að því að fá
myndina „The Day After“ til sýn-
ingar. í því skyni höfum við gert
fyrirspurn til bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar ABC um það
hvort hún sé til sölu á annað
borð. Að öðru leyti snýst spurn-
ingin um það hvort myndin sé
sýningarhæf í sinni upphaflegu
gerð, en bandarískar sjónvarps-
stöðvar nota annað sýningarkerfi
en við,“ sagði Guðmundur Ingi
Kristjánsson dagskrárfulltrúi hjá
sjónvarpinu. hól/ór.
Sjá 13
bandalagsins í vinstri hreyfing-
unni.“
í lok ræðu sinnar dró formaður
Alþýðubandalagsins saman þau
meginverkefni sem landsfundurinn
fól flokknum að sinna næstu miss-
eri:
1. Landsfundurinn samþykkti þá
stefnu að Alþýðubandalaginu
bæri að skoða samstarf og ein-
ingu vinstri manna sem sitt meg-
inviðfangsefni.
2. Landsfundurinn fól Alþýðu-
bandalaginu að taka þátt í og
styðja baráttu verkalýðshreyf-
ingarinnar á næstu mánuðum.
3. Landsfundurinn lagði áherslu á
að Alþýðubandalagið gerði sitt
til þess að tryggja rekstur ís-
lenskra atvinnuvega gegn því
mikla peningalega uppgjöri
markaðsaflanna sem yfir stæði.
Svavar gat þess að nú væri reynt
að keyra verkafólk niður með hót-
unum um atvinnuleysi og barátta
verkalýðsstéttarinnar gæti orðið
bæði hörð og erfið. Þá sagði hann
að áhyggjur ýmissa landsbyggðar-
fulltrúa vegna stöðu hinna íslensku
atvinnuvega og athyglisverðar úr-
bótatillögur þeirra hefðu reynst
landsfundinum mikið umhugsuna-
refni og væru vegarnesti í starfi
flokksins að atvinnumálum á næst-
unni.
„Við höfum verið alltoí upptekin
af hinum daglegu verkefnum á
liðnum árum og of lin við að halda
uppi í ljósið hugmyndum okkar og
hugsjónum um framtíðarþróun
þjóðfélagsins", sagði Svavar
Gestsson að endingu. „í beinu
framhaldi af umræðunni um laga
og skipulagsmál ber okkur að efna
til rækilegrar stefnuskrárumræðu.
Það er nauðsynlegt fyrir vinstri
hreyfinguna á íslandi að Alþýðu-
bandalagið haldi' grundvallarhug-
sjónum sínum á lofti því að það eru
þær sem gefa okkur þrek, þor og
von í daglegu starfi.“
-ekh
Ávarp til íslendinga bls. 6—7
Nýtt skipulag bls. 2
Úrslit í miðstjórnarkjöri bls. 3
Viðtal við Vilborgu
varaformann bls. 3
Viðtöl við Helga ritara
og Margréti gjaldkera bls. 5