Þjóðviljinn - 22.11.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVÍLJINN Þriðjudagur 22. nóvember 1983
Grundvallarbreytingar á lögum Alþýðubandalagsins
Opið og fjölbreytt
skipulag tekið upp
Jafnræðisreglan
leidd í lög
bandalagsins
Landsfundur Alþýðubandalags-
ins gerði verulegar breytingar á
skipulagi flokksins. Samþykkt var
að heimila fjölbreyttari grunn-
einingar; að taka upp
jafnræðisreglu milli kynja í flokks-
starfi; að landsfundir verði fjöl-
mennari og haldnir annað hvert ár í
stað þriðja hvert ár áður; að fjölga
í miðstjórn og setja á laggirnar
fjármálaráð. Ymsar aðrar
breytingar voru gerðar á lögum.
Opnar marga
möguleika
Grunneiningar í flokksstarfi Al-
þýðubandalagsins eru nú svæðisfé-
lög sem starfa í einu eða fleiri sveit-
arfélögum og geta verið fleiri en
eitt, félög ungs fólks innan Alþýðu-
bandalagsins en heildarsamtök
þeirra bera heitið Æskulýðsfylking
Alþýðubandalagsins, og loks
samtök og hópar sem bundin eru
tilteknum viðfangsefnum og mál-
efnum. Gert er ráð fyrir að þar sem
fleiri en eitt félag Alþýðubanda-
lagsmanna starfa í sama sveitarfé-
lagi eða á sama svæði skuli mynda
fulltrúaráð þeirra sem hefur þá á
hendi heildarstjórn á starfi flokks-
ins og tekur ákvarðanir um fram-
boð í sveitarstjórnarkosingum.
Áhugamannasamtök og hópar
innan Alþýðubandalagsins svo og
félög ungs fólks hafa heimild til
þess að hafa innan sinna vébanda
óflokksbundið fólk, en réttindi
slíkra félaga innan flokksins miðast
eingöngu við flokksmenn í Té-
laginu. Þá er gert ráð fyrir að hægt
sé að ganga í Alþýðubandalagið án
þess að skipa sér um leið í ákveðið
flokksfélag.
Með þesum breytingum fjölgar
inngönguleiðum í Alþýðubanda-
lagið og möguleikum fyrir félög og
hópa að starfa sjálfstætt innan
þess.
Landsfundur Alþýðubandalags-
ins verður nú haldinn annað hvert
ár í stað þriðja hvert ár. Fækkað er
tölu flokksmanna að baki hvers
fulltrúa á landsfund úr 12 í 9 og
verða því landsfundir mun stærri
samkomur en áður. Fjölgað var í
miðstjórn um 20 manns og kveðið á
um lágmarksfjölda fulltrúa Æsku-
lýðsfylkingar og kjördæma, 7 fyrir
ÆFAB og 3-4 fyrir hvert kjör-
dæmi.
Jafnræði
og endurnýjun
Með nýju lögunum kemur til
fjármálaráð sem skipað er for-
Einar Karl Haraldsson scm hafði á höndum formennsku í laga- og skipu
lagsnefnd mælir fyrir frumvarpi hennar um ný flokkslög. Ljósm. eik.
manni eða varaformanni ásamt
gjaldkera flokksins, formönnum
kjördæmisráða, framkvæmda-
stjóra flokksins og 3 mönnum
kjörnum af miðstjórn. Fellt var út
ákvæði um að kjördæmisráð, full-
trúaráð og svæðisfélög þurfi að
leita samþykkis miðstjórnar fyrir
prófkjörsreglum sínum. Endurný-
junarregla gildir áfram um kjör í
allar trúnaðarstöður innan flokks-
ins, og er enginn kjörgengur lengur
en þrjú kjörtímabil í röð. Formann
og varaformann má þó kjósa á fjór-
um landsfundum í röð, þannig að
þeir geta lengst setið í 8 ár samfellt.
Þá er leidd í lög j afnræðisregla milli
kynja, þannig að hvort kyn á rétt til
a.m.k. 40% fulltrúa í öllum stofn-
unum flokksins, svo fremi að nægi-
lega margir Séu í framboði. Þá er í
lögunum almenn viljayfirlýsing um
að stuðla beri að endurnýjun á
fulltrúum á þingi og í sveitarstjórn-
um og sem jöfnustu hlutfalli kynja
á framboðslistum. -ór
Samþykkt íslenskra myndlistar-
manna um Skúlagötuskipulagið
Gömlu húsin
verði ekki riffn
Á fundi hjá félagi íslenskra
myndlistarmanna á dögunum var
samþykkt að skora á stjórn Reykja-
víkurborgar að nýtingarhlutfall
varðandi endurskipulag svonefnds
Völundarreits við Skúlagötu verði
ekki samþykkt það hátt að það hafi
í för með sér niðurrif Völundar-
Hugur
og hönd
komið út
Hugur og hönd, rit Heimilisiðn-
aðarfélags Islands, er nýlega komið
út. Þar er um að ræða veglegt af-
mælisrit í tilefni 70 ára afmælis fé-
lagsins sl. sumar.
í ritinu er fjölbreytt efni að
vanda. Þar má nefna heimsókn í
gleriðjuna Bergvík á Kjalarnesi,
verk Ragnhildar Pétursdóttur eru
kynnt, grein um Heimilisiðnað-
arfélagið, silfursmíðar Helga Þóið-
arsonar eru kynntar og fjallað er
um klæðaburð íslendinga fyrr á
öldum. Þá er rætt við söðlasmið,
hugleiðingar eru um brúður og rætt
er um íslensku ullina. Þá er fjöldi
sniða og prjónauppskrifta í blað-
húss, Kveldúlfsskemmu og húss
Sláturfélagsins.
Segjast félagsmenn ekki geta
fengið séð að ofangreind hús hafi
varpað nokkrum skugga á heildar-
mynd Skúlagötu til þessa og beina
því þeim tilmælum til stjórnvalda
borgarinnar að uppbygging Skúla-
götusvæðisins verði gerð með tilliti
til áðurnefndra húsa og að við
endurbygginguna verði höfð í huga
félagsleg aðstaða fyrir borgarbúa.
-Ig-
Æskulýðsfylkingin formlegur aðili að Alþýðubandalaginu_
Áhugameim um landbúnað
armál stofnuðu flokksfélag
Með samþykkt nýrra flokkslaga
á landsfundi voru félög ungs fólks
innan Alþýðubandalagsins og
heildarsamtök þeirra Æskulýðs-
fylkingin formlega gerð að grunn-'
einingum og aðila að flokknum.
Fyrstu samtökin fyrir utan ÆFAB
sem æsktu aðildar að bandalaginu
voru Landsamtök áhugafólks um
landbúnaðarmál og Gránufélagið.
Það voru einkum kröfur af þétt-
býlissvæðum um möguleika á fjöl-
breyttari grunneiningu sem urðu
þess valdandi að ástæða þótti til
lagabreytinga. Þessvegna vakti það
athygli að það voru landsbyggðar-
menn sem riðu á vaðið og stofnuðu
til sérfélags innan Alþýðubanda-
lagsins. 30-40 manns gengu í
Landssamtök áhugamanna um
landbúnaðarmál innan Alþýðu-
bandalagsins á landsfundinum, en
þeim er ætlað að halda sambandi
milli áhugamanna um þessi efni um
land allt, og starfa að málefnum
landbúnaðar í vissum skilningi.
Gránufélagið á hinsvegar heimili
og varnarþing í Laugarvatns-
hreppi, félagsmenn eru 14, og eru
það allt valinkunnir Alþýðubanda-
lagsmenn. Samkvæmt nýja skipu-
laginu geta Alþýðubandalagsmenn
verið í eins mörgum félögum innan
flokksins og hugur þeirra stendur
til, en geta aðeins kosið til stofnana
flokksins í einu félagi hverju sinni.
-ekh
Krossvík AK bjargað á veiðar
Vitum ekkert
um næsta túr
„Við komum Krossvíkinni út.
Hún er búin að liggja í hérumbil
viku og við höfum verið að slást í
því að koma henni út“, sagði Helgi
Kristjánsson útgerðarstjóri Kross-
víkur AK-300. Togarinn hefur
legið bundinn við bryggju á Akra-
nesi frá því á mánudag, vegna
rekstrarerfiðleika en hélt á veiðar
um helgina. Fyrir liggur bundinn
við bryggjuna togarinn Óskar
Magnússon sem ekki hefur farið a
veiðar vegna rekstrarvanda frá því
í byrjun síðasta mánaðar.
Það hefur tekið okkur viku að ná
í peninga fyrir olíu og launum. Á-
standið er þannig, að mennirnir
sem eru að fara út núna vita ekkert
hvort þeir komast út í næsta túr á
eftir. Við verðum bara að bíða
þangað til að hann kemur inn aftur
og sjá hvað skeður þá“, sagði Helgi
ennfremur.
Það eru fjögur fiskvinnslufyrir-
tæki á Akranesi sem gera Krossa-
vík út og var allt gert sem hægt var
til að koma togaranum aftur út á
veiðar þar sem þegar er umtalsvert
atvinnuleysi á Akranesi hjá fisk-
verkunarfólki eftir að Óskari
Magnússyni var lagt og ljóst að það
myndi aukast til muna ef Krossvík
kæmist ekki á veiðar.
-I?
ínu.
Stuttar fréttir
Nýr ráðuneytisstjóri
Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóri sjávarút-
vegsráðuneytisins, hefur fengið leyfi frá störf-
um frá 1. maí n.k. til 30. júní 1985.
Jafnframt hefur Þorsteinn Geirsson, skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu, verið settur
ráðneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins
sama tímabil.
Starfshópur um tölvur
Félag.smálaraðherra hefur skipað starfshóp
sem er ætlað það verkefni að framkvæma
könnun á áhrifum nýrrar tækni (tölvunnar) á
íslenska atvinnuvegi í næstu framtíð. Starfs-
hópinn skipa þeir Ingvar Ásmundsson formað-
ur, Haukur Helgason, Hilmar Jónasson,
Magnús Gústafsson, Þorsteinn Geirsson og
Gylfi Kristinsson er ritari hópsíns.
Bráðabirgðalögin
samþykkt
Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar frá í vor
voru afgreidd frá neðri deild alþingis í gær.
Nafnakall var viðhaft og sagði 21 stjórnarliði
já og 12 stjórnarandstæðingar nei. Fjarverandi
voru Geir Hallgrímsson, Guðrún Agnarsdótt-
ir, Jón Baldvin Hannibalsson.'Kristín S. Kvar-
an, Matthías Bjarnason, Sverrir Hermannsson
og Þórarinn Sigurjónsson.
Nýtt líf í stað Lífs
Tískublaðið Líf hefur nú hlotið nýtt nafn,
eftir að útgáfufyrirtækið hafði efnt til sam-
keppni. Nafnið er NÝTT LÍF og seir í frétta-
tilkynningu frá Frjálsu firamtaki hf sem gefur
timaritið út, aó skapendur samnetndrar kvik-
myndar muni ekki gera athugasemdir við þessa
nafngift.
Tóku sæti á þingi
í gær tóku fjórir varaþingmenn sæti á al-
þingi. Björn Dagbjartsson, matvælaverkfræð-
ingur, Reykjavík tók sæti Halldórs Blöndal
(S), sem situr þing SÞ, Kristófer Már Kristins-
son, kennari, Reykholti tók sæti Kolbrúnar
Jónsdóttur (BJ), sem einnig situr þing SÞ,
Ólafur Ragnarórímsson, fyrrverandi alþingis-
maður Seltjarnarnesi, tók sæti Guömundar J.
Guðmundssonar (AB), sem er í veikindaleyfi
og Þórður Skúlason, sveitarstjóri, Hvamms-
tanga, tók sæti Ragnars Arnalds (AB), sem
situr þing SÞ.