Þjóðviljinn - 22.11.1983, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Vilborg Harðardóttir varaformaður Alþýðubandalagsins
„V onast tll að geta
sínnt innra starfi”
Konur hafa nú enn styrkt mjög stöðu sína eftir þennan landsfund, segir Vilborg Harðardóttir í viðtalinu.
Myndin er tekin er landsfundurinn fagnar varaformannskjörinu og Svavar Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins samfagnar Vilborgu. Ljósm.: -eik.
„Það sem einkenndi þennan
landsfund voru fjörug skoðana-
skipti, en jafnframt mikil eining
um það meginverkefni fram-
undan að berjast með verka-
lýðshreyfingunni gegn þeirri
harðsvíruðu íhaldsstjórn, sem
nú fer með völd í þessu landi“,
sagði Vilborg Harðardóttir út-
gáfustjóri, nýkjörinn varafor-
maður Alþýðubandalagsins.
„Baráttan gegn afturhaldsöflun-
um, gegn skerðingu lífskjara og
gegn undirlægjuhætti við erlend öfl
var rauði þráðurinn í allri umræðu
á þessum landsfundi og fléttaðist
inn í flest mál, enda aðalverkefnið
nú, og voru menn einhuga um, að
ekki þýddi annað en snúa vörn í
sókn.“
Hvernig líst þér á að takast á
hendur þetta starf og má búast við
einhverjum breytingum á starfs-
sviði þessa embættis?
„Auðvitað vel, annars mundi ég
ekki gera það, og ég hlakka til að fá
að vinna með jafn góðum hópi og
þeim Svavari, Helga og Margréti.
Ég geri mér grein fyrir, að þetta er
mikið starf og mér sýnt mikið
traust með því að fela mér það.
Ekki veit ég, hvort starfssviðið
breytist, en hitt er klárt, að ég mun
vinna á minn eiginn hátt og ekki
taka upp starfsaðferðir karla. Ég
vona, að ég fái tækifæri til að sinna
innra starfi flokksins og þá ekki síst
samræmingu á þeim verkefnum,
sem verið er að fást við. Um leið tel
ég það sjálfsagða skyldu mína að
fylgjast mjög náið með því, sem er
að gerast, bæði hjá þingflokknum
og forystu okkar í verkalýðsmál-
„„ u
um.
Eru einhver mál í flokksstarfinu,
sem eru þér hjartfólgnari en
önnur?
„Vissulega hef ég meiri áhuga á
sumum málum en öðrum. En eins
og ég sagði áðan, þá tel ég þessa
stöðu leggja mér þá skyldu á herð-
ar að fylgjast náið með öllum mál-
um, sem verið er að vinna að í
flokknum. Ég ætla að fylgja eftir
þeim hugmyndum, sem liggja að
baki skipulagsbreytingunum, sem
verið var að gera, þ.e. að gera
flokkinn aðlaðandi vettvang og að-
gengilegra fyrir fólk að starfa í hon-
um. Ég mun líka vissulega fylgja
eftir þeim áföngum sem hafa náðst
í jafnréttismálum innan flokksins.“
Hvert er þitt álit á stöðu kvenna
eftir þennan landsfund?
„Það hafa sjálfsagt flestir tekið
eftir því, að á undanförnum árum
hafa konur orðið æ virkari í starfi
Alþýðubandalagsins, þrátt fyrir þá
félagslegu erfiðleika sem konur
búa við, vegna heimilisbindingar
og vegna úreltra viðhorfa fólks.
Þessi mikla virkni hefur ekki orðið
til af sjálfu sér, heldur hafa konur
bundist samtökutn um að styðja
hver aðra og hvetja hver aðra til
þess að geta starfað betur. Þar með
er ég alls ekki að segja að allar
konur hafi sömu skoðun á öllum
hlutum, en við kunnum að starfa
saman sem hópur“.
Þú vilt meina að þetta starf ykkar
sé farið að bera árangur?
„Alveg tvímælalaust. Konur
hafa nú enn styrkt stöðu sína eftir
þennan landsfund. Þær komu mjög
sterkt út, voru áberandi þátttak-
endur í umræðunni um öll mál og
tókst mjög vel þar að auki að
tengja jafnréttismál öðrum stjórn-
málum."
Hvaða áhrif telur þú að laga-
breytingin um kvótann muni hafa?
„Ég held að hún muni hafa mjög
hvetjandi áhrif á konur bæði innan
flokks og utan og ég held að konur
muni ekki líta á þetta sem nein
forréttindi sér til handa heldur sent
hvatningu og raunar skyldu til að
standa sig jafnvel enn betur en
áður“, sagði Vilborg Harðardóttir.
-•g-
Umræður um
rækjubannið
á alþingi:
Djúpið
ekki
opnað
að sinni
ísafjarðardjúp verður ekki
opnað til rækjuveiða að sinni
en seiðarannsóknir hefjast
þar að nýju í næstu viku. Til-
mælum sjómanna vestra um
að Djúpinu verði skipt í hólf
og veiðar leyfðar þar sem
seiðamagn er innan tilskilinna
marka hefur verið hafnað. Ef
rannsóknirnar í næstu viku
sýna að seiðagengdin hefur
minnkað verulega vcrður
tekið til athugunar að leyfa
veiðarnar á nýjan leik. Hall-
dór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra sagðist í gær
telja rétt að rækjuveiðar hæf-
ust framvegis ekki fyrr en eftir
áramót í Djúpinu, þar sem
seiðin eru þá farin þaðan.
Það var Karvel Pálmason
sem vakti máls á rækjuveiði-
banninu utan dagskrár í neðri
deild í gær. Hann benti á að
nær 200 manns hefðu misst at-
vinnu sína á sjó og í landi þeg-
ar Djúpinu var skyndilega
lokað 14. nóvember eftir rúm-
lega hálfs mánaðar langa
rækjuvertíð.
Halldór Ásgrímsson sagði
ekki fært að verða við tilmæl-
um sjómannanna. Þegar mæl-
ingar fóru fram 30. október til
8. nóvember hefðu mælst
2500 þorsk- og ýsuseiði í
hverju tonni af rækju auk
2900 síldarseiða. Hefði þetta
jafngilt því að rækjubátarnir
hefðu grandað 2 miljónum
seiða fram til 10. desember
n.k. ef ekkert hefði verið að
gert. Hann sagði að ekki
dygði að heimila veiðar á
svæðunum yst í Djúpinu þar
sem seiðamagn reyndist
minna, enda myndu göngurn-
ar fara um þau þegar þær yfir-
gæfu Djúpið.
- ÁI.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins kjörin á Landsfundi 1983:
— - —
Olafur Ragnar og Asmundur efstir
Hlutfall kvenna í miðstjórn er 44,6%
Á landsfundi Alþýðubandalags-
ins sem lauk á sunnudagskvöld var
Svavar Gestsson kjörinn formaður
fiokksins, Vilborg Harðardóttir
Reykjavík varaformaður og Helgi
Guðmundsson Akureyri ritari.
Ekkert mótframboð kom gegn
þcim á fundinum og þau því kjörin
einróma. Atkvæði voru hins vegar
greidd um embætti gjaldkera og
varð hlutskörpust Margrét Frí-
mannsdóttir oddviti á Stokkseyri.
Hlaut hún 186 atkvæði en Hilmar
Ingólfsson kennari í Garðabæ hlaut
32 atkvæði.
Á fundinum var einnig kjörið til
miðstjórnar. Hlutu þar sæti 41 karl
og 33 konur, eða 44.6% mið-
stjórnarmanna. Stjórn flokksins er
sjálfkjörin í miðstjórn en auk þess
eiga þar sæti allir þingmenn hans
með seturétti og málfrelsi. Sex fé-
lagar voru ekki í kjöri nú vegna
endurnýjunarreglunnar, sem
kveður á um að hafi maður verið í
kjöri þrisvar sinnum er hann ekki
kjörgengur í næstu kosningu á
eftir. Þessir sex félagar eru Bjarn-
fríður Leósdóttir Akranesi, Lúð-
vík Jósepsson Neskaupstað, Ólaf-
ur Guðmundsson Grundarfirði,
Ólöf Ríkharðsdóttir Reykjavík,
Margrét Björnsdóttir Reykjavík
og Soffía Guðmundsdóttir Akur-
eyri.
Eftirtaldir félagar voru kosnir í
miðstjórn Alþýðubandalagsins, og
eru atkvæðatölur innan sviga:
Adda Bára Sigfúsdóttir Reykjavík
(216),- Aðalsteinn Baldursson
(ÆFA), Álfheiður Ingadóttir
Reykjavík (209), Anna Hildi-
brandsdóttir (ÆFA), Arnór Pét-
ursson Reykjavík (190), Arthúr
Morthens Reykjavík (182), Ás-
mundur Ásmundsson Kópavogi
(204), Ásmundur Stefánsson
Reykjavík (263), Benedikt Dav-
íðsson Kópavogi (218), Bergljót
Kristjánsdóttir Reykjanesi (202),
Bergþóra Aradóttir (ÆFA), Berg-
þóra Gísladóttir (182), Björn V.
Gíslason (ÆFA), Dagbjörg Sig-
urðardóttir Suðurlandi (219), Eð-
varð Hallgrímsson Norðurlandi
vestra (sjálfkj.), Einar Karl Har-
aldsson Reykjavík (191), Elísabet
Karlsdóttir Austurland (228), Elsa
Kristjánsdóttir Reykjanesi (225),
Engilbert Guðmundsson Vestur-
landi (219), Erlingur Sigurðarson
N.l. eystra (203), Finnbogi Jónsson
N.l. eystra (176), Friðgeir Baldurs-
son Reykjanesi (177), Grétar Sig-
urðsson Vesturlandi (184), Grétar
Þorsteinsson Reykjavík (222),
Guðbjörg Sigurðardóttir Reykja-
vík (206), Guðjón Jónsson Reykja-
vík (182), Guðmundur Þ. Jónsson
Reykjavík (181), Guðrún Ágústs-
dóttir Reykjavík (214), Guðrún
Hallgrímsdóttir Reykjavík (191),
Gunnar Sverrisson Suðurlandi
(194), Hansína Stefánsdóttir Suð-
urlandi (221), Helgi Kristjánsson
(ÆFA), Hilmar Ingólfsson
Reykjanesi (192), Ingibjörg Haf-
stað Norðurlandi vestra (sjálfkj.),
Johanna Leópoldsdóttir Vestur-
landi (216), Jón Kjartansson Suð-
urlandi (202), Kristín Hjálmars-
dóttir Norðurl. vestra (210),
Kristín Á. Ólafsdóttir Reykjavík
(216), Kristinn Gunnarsson Vest-
fjörðum (211), Kristinn V. Jó-
hannsson Austurlandi (221), Lára
Jóna Þorsteinsdóttir Reykjavík
(187), Margrét Pála Ólafsdóttir
Reykjavík (182), Ólafur Ástgeirs-
son (ÆFA), Ólafur Ragnar Gríms-
son Reykjanesi (270), Óskar Guð-
mundsson Reykjavík (189), Óttarr
Proppé Norðurl. vestra (sjálfkj.),
Óttarr Magni Jóhannsson (ÆFA),
Pétur Þorsteinsson Norðurl. eystra
(196), Ragnar Óskarsson Suður-
landi (219), RannveigTraustadótt-
ir Reykjanesi (194), Rut Bjarna-
dóttir Vestfjörðum (198), Sigrún
Clausen Vesturlandi (196), Sigur-
jón Bjarnason Austurlandi (217),
Sigurjón Pétursson Reykjavík
(187), Silja Aðalsteinsdóttir (182),
Skúli Thoroddsen Reykjavík
(212), Sólveig Þórðardóttir
Reykjanesi (176), Steinunn Jó-
hannesdóttir Reykjavík (188),
Svandís Skúladóttir Reykjanesi
(183), Svanfríður Jónasdóttir
Norðurl. eystra (239), Svanur
Kristjánsson Reykjavík (178),
Sveinbjörn Jónsson Vestfjörðum
(186), Tryggvi Þór Aðalsteinsson
Reykjavík (195), Úlfur Björnsson
Suðurlandi (185), Þorbjörn Arn-
órsdóttir Austurlandi (242), Þor-
björg Samúelsdóttir Reykjanesi
(185), Þorbjörn Broddason
Reykjavík (179), Þorgrímur Starri
Björgvinsson Norðurl. eystra
(185), Þuríður Freysdóttir
Norðurl. eystra (211), Þuríður Pét-
ursdóttir Vestfjörðum (215).
Að auki voru 20 varamenn
kjörnirí miðstjórn. Þessir: Bjargey
Elíasdóttir Reykjavík (175),
Auður Styrkársdóttir Reykjavík
(171), Ragnheiður Þorgrímsdóttir
Vesturlandi (171), Guðmundur
Hilmarsson Reykjanesi (169),
Arna Jónsdóttir Reykjavík (168),
Emil Bóasson Reykjavík (168),
Jón Gunnar Ottósson Reykjanesi
(167), Alma Vestmann Reykjanesi
(167), Lena M. Rist Reykjavík
(165), Stefanía Harðardóttir
Reykjanesi (163), Þröstur Ólafs-
son Reykjavík (161), Gunnar
Guttormsson Reykjavík (160),
Vigfús Geirdal Reykjavík (158),
Borghildur Jósúadóttir Reykjavík
(157), Ásmundur Hilmarsson
Reykjavík (154), Hjalti Kristgeirs-
son Reykjavík (154), Kristján
Valdimarsson Reykjavík (153),
Helga Birna Gunnarsdóttir
Reykjanesi (153), Kjartan Ólafs-
son Reykjavík (153) og Ragnar
Árnason Reykjavík (153).
- v.