Þjóðviljinn - 22.11.1983, Síða 7
Þriðjudagur 22. nóveniber 1983 ÞJÓÐVÍLjlNN — SÍÐA 7
Mikill fjöldi mála var afgreiddur á lands-
fundinum og hér er veriö aö vísa tillögum
um lagabreytingar til nefndar, Baldur
Óskarsson framkvæmdastjóri Alþýöu-
bandalagsins telur meö tilþrifum. Ljósm.
s
il Islendlnga
Lúðvík Jósepsson flutti snjallt erindi í upphafl Landsfundar Alþýðu bandalagsins. Við fundarstjóraborðið eru Svavar Gestsson, Þor-
björn Broddason, Lena M. Rist og Þórunn Theódórsdóttir, sem ásamt Gunnlaugi Haraldssyni voru fundarritarar, og Margrét Frí-
mannsdóttir, og Helgi Seljan, sem ásamt Sigríði Stefánsdóttur voru fundarstjórar. Fundarstjórar,fundarritarar og starfsmcnn þingsins
fengu miklar þakkir í fundarlok fyrir frábær störf. Ljósm.: -eik.
4. Komið verði á samfelldu húsnæði-
skerfi, þarsem bankarog opinberirað-
ilar í samvinnu við lífeyrissjóði tryggi
lánsfjármagn til íbúðabygginga rheð
greiðari hætti en nú er. Jafnframt verði
lögð áhersla á byggingu leiguhúsnæð-
is, forgangsrétt byggingarsamvinnu-
félaga og húsnæðissamvinnufélaga
og endurbætur á verkamanna-
bústaðakerfinu.
5. Dregið verði úr innflutningi með
beinum og markvissum aðgerðum án
þess að kjaraskerðingu sé beitt; þessu
skyni.
6. Orkuverð til álversins verði hækkað
skilyrðislaust, svo náð verði fram-
léiðslukostnaðarverði. Beitt verði í
þessu skyni einhliða aðgerðum ef þörf
krefur. Arðurinn af hækkuninni verði
m.a. notaðurtil þess aðjafnaog lækka
orkukostnað heimilanna.
7. Frekari útþensla bandaríska hernáms-
ins verði stöðvuð.
Alþýðubandalagið er reiðubúið til við-
ræðna við önnur stjórnmálasamtök og að-
ila vinnumarkaðarins um útfseírslu þ'essara
efnisþátta í nýrri stjórnarstefnu. Reynslan
hefur sýnt, að eingöngu með sameiginlegu
átaki landsmanna er unnt að ráðast í stór-
verkefni á íslenskan mælikvarða. Kreddu-
kenningar markaðsaflanna um lausn á at-
vinnumálum hafa aldrei skilað varanlegum
árangri á íslandi.
Landsfundur Alþýðubandalagsins telur
að nú sé brýnna en nokkru sinni fyrr að leita
samstarfs um lausn á helstu vandamálum
þjóðfélagsins. Til viðbótar við þau áföll sem
þjóðarbúið hefur orðið fyrir magnar stefna
núverandi rfkisstjórnar vanda efnahagslífs-
ins. Alþýðubandalagið er nú í stjórnarand-
stöðu, en flokkurinn er engu að síður reiðu-
búinn til þess að taka á þeim vandamálum
sem brýnast er að leysa.
Við ríkjandi aðstæður hlýtur það að vera
meginverkefni Alþýðubandalagsins að
reyna að samfylkja vinstrimönnum og
verkalýðssinnum um úrræði í efnahags- og
atvinnumálum og til að hrinda þeirri fram-
sókn hægri aflanna sem núverandi ríkis-
stjórn hefur beitt sér fyrir, og koma ríkis-
stjórn fésýsluaflanna frá.
Alþýðubandalagið skorar á íslendinga
að taka nú höndum saman um nýja stefnu
sem tekur á vandanum á grundvelli félags-
hyggju og jafnréttis, lýðræðis og samvinnu
með varðveislu sjálfstæðis þjóðarinnar að
leiðarljósi.
Verkalýðshreyfingin er nú í
fjötrum þvingunarlaga sem
skerða samningsrétt til tveggja
ára.
Ríkisstjórnin leggur fjötra á sjálf-
stæði einstaklinga og fjárhag al-
þýðuheimilanna.
Utanríkisstefnan festir íslend-
inga fastar í hernámsf jötra.
Alþýðubandalagið berst fyrir því
að létta þessum fjötrum af þjóð-
inni - fyrir framtíð án fjötra.