Þjóðviljinn - 22.11.1983, Síða 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. nóvember 1983
Ö: ST. JÓSEFSSPÍTALI
W LANDAKOTI
STARFSMAÐUR
óskast viö dagheimilið Litlakot, aldur barna 1-21/2 árs.
Um er aö ræða hlutastarf, frá kl. 13:00-17:30 alla
virka daga.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
óskast við eftirtaldar deildir:
- Skurðdeild - sérnám ekki skilyrði.
- Gjörgæsludeild
- Handlækningadeildir - l-B og ll-B.
- Lyflækningadeild ll-A.
- Augnskoðun - dagvinna.
- Göngudeild - dagvinna.
SJÚKRALIÐAR:
Lausar stöður við lyflækningadeild.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsing-
ar í síma 19600 kl. 11:00-12:00 og 13:00-14:00 alla
virka daga.
Reykjavík 18.11.’83
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í
eftirfarandi:
RARIK-83015. Götugreiniskápar og tengibún-
aður fyrir jarðstrengi.
Opnunardagur: fimmtudagur 15. desember
1983, kl. 14:00
RARIK-83016. Aflstrengir og ber koparvír.
Opnunardagur: þriðjudagur 13. desember
1983, kl. 14:00
RARIK-83017. Lágspennubúnaður í dreifi-
stöðvar.
Opnunardagur. mánudagur 12. desember
1983, kl. 14:00
RARIK-83018. Háspennubúnaður í dreifi-
stöðvar.
Opnunardagur: miðvikudagur 14. desember
1983, kl. 14:00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík,
fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama
stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og með mánudegi 21. nóvem-
ber 1983 og kosta kr. 100.- hvert eintak.
Reykjavík 18. nóvember 1983
Rafmagnsveitur ríkisins.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðni Sigurður Erlendsson,
Mávahlíð 2,
lést í Borgarspítalanum þann 11. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Johanna Þorgilsdóttir
Guðbjörg Þ. Guðnadóttir,
Sigrún A. Guðnadóttir,
Áslaug Guðnadóttir, Þórir B. Jóhannsson,
Kristinn E. Guðnason, Jóna S. Jóhannsdóttir,
og barnabörn.
Útför eiginmanns míns og föður
Þórhalls Karlssonar
flugstjóra, Rauðahjalla 11 Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju í dag 22. nóvember kl. 15.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Slysa-
varnarfélag Islands.
Aðalheiður Ingvadóttir
Þórhildur Þórhallsdóttir
Elías Þórhallsson
Hrafnhildur Þórhallsdóttir
Herramannsmatur fyrir lítið:
Kryddþáttur
Leiðrétting - og betrumbót
I síðasta kryddþætti slæddust
slæmar prentvillur inn í upp-
skriftina að tómatsósunni. Rétt
uppskrift er svona:
2 msk olívuolía
Ph dl tómatmauk
6 dl afhýddir og skornir tómatar
1 söxuð gulrót eða 1 tsk. sykur
'h tsk mýmalaður pipar
1 msk basil
5 msk smjör
salt eftir smekk
Til að bæta ögn fyrir mistökin
læt ég fylgja hér með uppskrift að
því sem við erum vön að kalla
tómatsósu, þ.e. það sem á er-
lendum málum er kallað tomat
catsup eða ketchup. Þið munuð
komast að raun um að þessi
uppskrift er talsvert ólík búðar-
sósunni - og til muna betri. Úr
uppskriftinni á að fást um 'h lítri.
4‘h kíló af þroskuðum tómötum,
afhýddum og skornum
3 smásaxaðir laukar
2 paprikur, rauðar eða gr.œnar,
smátt skornar (munið að taka
kjarnann úr!)
1 marinn hvítlauksgeiri
kanilstöng
1 tsk piparkorn
1 tsk negulnaglar
1 tsk allspice
1 tsk sellerífrœ
l ’h dl púðursykur
‘h dl eplaedik
1 msk salt
2 tsk paprikuduft
‘h tsk cayennepipar
Sjóðið sáman tómatana,
laukinn paprikurnar og hvít-
laukinn í 30 mínútur eða þar til
allt er orðið lint. Sigtið síðan vel,
látið aftur í pottinn og sjóðið þar
til innihaldið hefur skroppið sam-
an um helming. Þetta tekur um
30-40 mínútur og gæta þarf vel að
innihaldinu og hræra í, því annars
brennur allt við. Látið kanil-
stöngina, piparkornin, negulinn,
allspice og selleríið í sótthreins-
aðan klút (sárabindi t.d.), bindið
vel um og látið í pottinn ásamt
öllu hinu. Sjóðið við vægan hita
þar til innihaldið er mjög þykkt
og hrærið tómatsósuna síðan í
sótthreinsaðar krukkur en passið
að fylla þær ekki alveg. Lokið
þeim síðan vel og innsiglið helst.
Sæt-súr svínabein
Ólívur
(Olea europaea)
Langt er síðan mannskepnan
hóf að nýta ólívur til matargerð-
ar, en talið er að uppruna ólívu-
trjánna megi rekja til Grikk-
lands. Á fyrstu öld f. Kr. voru
ítalir mestu framleiðendur olívu-
olíu, en ítalir fluttu tréð inn frá
Grikklandi. Þá þekktu eldabusk-
ur hins vegar ekki aðferðina við
að gera berin æt, en bragð þeirra
er mjög beiskt. Síðar komust þær
upp á lagið með að leggja berin í
vatn, eða lög í langan tíma, en við
það hverfur hið vonda bragð.
Ekki er vitað hvenær eða hvar
þessi aðferð var fyrst fundin upp,
en það má svo sem einu gilda.
Grænar niðursoðnar ólívur eru
berin óþroskuð en svártar ólívur
eru þroskuð ber. Hvort tveggja
er mjög gott í ýmiss konar rétti,
svo sem salöt, grænmetisrétti og
pizzur. Þá er olían sem gerð er úr
pressuðum berjum einnig mikið
blanda olíuna með vínediki og
sítrónusafa, en ekki skyldi láta
kryddjurtir út í ólívuolíu, því þær
spilla aðeins hinu fína bragði
olíunnar.
Margar verslanir í Reykjavík
bjóða upp á svínabein en úr þeim
má búa til fyrirtaks sæt-súran
kínverskan rétt. Svínabeinin eru
mjög ódýr og slá ýsunni alveg við,
þannig að ekki ætti verðið að
hamla nokkurri eldabusku að
spreyta sig við þennan rétt. Sæt-
súrt svínakjöt er reyndar einn
þekktasti réttur Kínverja á Vest-
urlöndum. Uppskriftin hér á eftir
miðast við fjóra.
‘h kg svínabein
1 msk sojasósa
l‘h msk sjerrí (eða vatn)
2 msk vatn
1 eggjahvíta, þeytt
2 msk. maísmjöl
olía til að steikja með
notuð til hins sama, en ólívuolía
þykir með betri olíum til matar-
gerðar. Ekki þarf nema nokkra
dropa á salöt eða tómata til að
lífga upp á réttinn. Þá er gott að
velíámeðan. Látiðsíðankjötiðá
pönnuna og öll önnur efni nema
maísmjölið og vatnið og hrærið
vel í ca. 2 mínútur. Blandið ma-
ísmjölinu við 2 msk. af vatni og
hrærið síðan útí og hitið þar til
sósan þykknar.
Eins og þið sjáið tekur undir-
búningur og matargerðin ekki
langan tíma (hámark 15 mínút-
ur). Þannig má fá góðan rétt fyrir
lítið fé og lítinn tíma. Með réttin-
um er gott að borða hrísgrjón eða
pönnusteikt grænmeti að kín-
verskum hætti. Það má t.d.
blanda saman engiferrót, hvítk-
áli, gulrót, papriku, púrrulauk og
agúrku og steikja í olíu stutta
stund eða þar til grænmetið mýk-
ist ögn.
Sósan:
‘h dl peanut-olía
5 cm af nýrri engiferrót, smásax-
aðri (fœst fryst í Manila á Suður-
landsbraut, eins og áður hefur
verið getið hér)
1 grœnn pipar, smásaxaður (fœst
víða niðurskorinn)
125 g af niðursoðnum ananasbit-
um
1 söxuð gulrót
2 msk sykur
3 msk vínedik
2 msk sojasósa
2 msk tómatmauk
2 msk sítrónu- eða appelsínusafi
2 msk vatn
1 msk maísmjöl
Skerið kjötið frá beinunum.
Blandið saman sojasósu, sjerríi,
vatni, eggjahvítu og maísmjöli í
stórri skál og veltið kjötinu uppúr
deiginu. Helst á að láta kjötið
bíða í 1 klst. en gerir lítið til þótt
biðinni sé sleppt.
Hitið olíu á pönnu. Olían á að
vera mjög heit en þá eru kjötbit-
arnir látnir varlega útí olíuna og
steiktir í 3-4 mínútur eða þar til
þeir eru brúnir og harðir. Takið
þá uppúr olíunni og látið á eld-
húspappír til að olían þurrkist af
þeim.
Hitið peanut-olíu á‘ pönnu (ef
þið komist yfir hana í einhverri
versluninni, en hún er því miður
ekki alls staðar á boðstólum.
Annars má auðvitað nota aðra ol-
íutegund). Þegar olían er orðin
heit steikið þið engiferrótina og
piparinn stutta stund og hrærið