Þjóðviljinn - 22.11.1983, Blaðsíða 11
Þriðjudágur 22. nóveniber 1983 ÞJÓÐVILJlNP'ir — SÍÐA 15
Samþykktir þings Farmanna- og fiskimannasambandsins
Hinir duglegu nemendur í tölvunarfræði ásamt forsvarsmönnum
Skýrslutæknifélagsins, sem eru lengst til hægri og vinstri.
Viðurkenning til tölvunarfræðinema
Hinn 4. október s.l. var fimm skólanemendum veitt viður-
kenning Skýrslutæknifélags íslands fyrir frábæran námsárangur á
sviði tölvunarfræði. Þetta er annað árið í röð, sem félagið veitir
slíka viðurkenningu.
Viðurkenningu hluti: Borghildur Jóhannsdóttir, Menntaskólan-
um í Reykjavík, Birgir Rafn Þráinsson, Verslunarskóla íslands,
Guðbjörg Sigurðardóttir, Háskóla íslands, Sigurður Guðmunds-
son, Menntaskólanum við Hamrahlíð, Snorri Ingvarsson, Mennta-
skólanum við Sund.
Viðurkenningin er í formi valinnar bókar og skjals. Fyrir vali að
þessu sinni varð bókin The McGraw-Hill computer Handbook,
Applications, Concepts, Hardware, Software.
Skýrslutæknifélagið vill óska verðlaunahöfum til hamingju með
frábæran árangur í námi og árnar þeim alls hins besta í framtíðinni.
Ný NEC tölva
Nýverið kom á markað hérlcndis á vegum Benco hf ný einkatölva
frá japanska rafeindarisanum NEC. Tölvan gengur undir heitinu
NEC APC (Advanced Personal Computer) er ein af mörgum sem
komnar eru á markað af hinni s.k. nýju kynslóð einkatölva, þ.e.a.s
16-bita tölvur sem vinna m.a. undir stýrikerfunum MS-DOS og
CP/M-86.
Það sem NEC APC hefur m.a. framyfir sambærilegar vélar á
markaðnum er öflugri örtölva (8086 sem eru um 40% hraðvirkari
en 8088 sem notuð er í flestum öðrum einkatölvum), meira
gagnrými á diskettum eða eina milljón stafi per diskettu. Diskettu-
stöðin sem er 8 tommur getur skynjað sjálfkrafa og Iesið/skrifað á
alla 8” iðnaðarstaðlana þannig að flutningur gagna á milli vélarinn-
ar eru einstaklega sveigjanlegir. Þá hefur NEC APC eina
fullkomnustu grafík getu bæði í lit og einlit (allt 1.048.576 mynd-
fletir í skjánum í einu), allt að 640KB notendaminni, fullkominn
hljóðgervil, órafmagnsháð CMOS minniseiningu (RAM) ofl.
NEC APC hefur forritalegt stafasett, þannig að notandinn getur
sjálfur útbúið sín eigin stafróf.
Fasta seguldiska er hægt að fá í stærðunum 10 og 20MB.
Benco hf., sem er einkaumboðsmaður NEC hérlendis, hefur
þegar gert samninga við fyrirtækið íslensk forritaþróun varðandi
hugbúnað fyrir öll venjuleg viðskiptaleg verkefni, en hugbúnað frá
fleiri aðilum verður einnig hægt að fá.
Þess má að lokum geta að Benco h/f býður NEC APC á sérstöku
kynningarverði fram til áramóta og einnig kost á mjög hagkvæmum
greiðslukjörum.
Fatlaöir og kynlíf
Dagana 21.-23. október sl. var haldið námskeið scm hét „Fatlað-
ir og kynlíf“ í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Undirtektir voru
mjög góðar og færri komust á námskeiðið en vildu, þar sem fjöldi
þátttakenda var takmarkaður.
Að námskeiðinu stóð undirbúningsnefnd í kynfræðslu fyrir fatl-
aða, en formaður hennar er Elísabet Jónsdóttir. Nefndin fékk
Ragnar Gunnarsson sálfræðing til að koma frá Danmörku og halda
fyrirlestra og hafa umsjón með hópvinnu. 6 aðrir fyrirlesarar voru
einnig fengnir á námskeiðið.
Markmið námskeiðsins voru að fræða fólk um mikilvægi kyn-
hvatarinnar, kynlíf, kynörvun, getnaðarvarnir, kynlífsvandamál og
leiðir til úrbóta, vekja fólk til umhugsunar um eigið kynlíf og leiðir
til að auðga það, að auka samstöðu meðal fatlaðra um hugtökin
fötlun og kynlíf og fjalla um þetta í þröngum hópi.
Óskir komu til þeirra sem að námskeiðinu stóðu að áframhald
þurfi að vera á námskeiðum um þetta efni.
Fræðslufundir um fóðurmál
Frá fræðslufundinum um fóðurmál.
Vegna óþurrka á Suðurlandi í sumar hafa gæði heyja á svæðinu
verið mjög misjöfn.
Þess vegna hafa Kaupfélögin beitt sér fyrir fræðslu- og kynning-
arfundum um fóðurmál í samráði við Fóðurvörudeild Sambands-
ins. Þegar hafa verið haldnir tveir fundir, að Hvoli á Hvolsvelli og
að Árnesi í Gnúpverjahreppi. Fengnir voru sérfróðir menn er
fluttu erindi um fóðrun og heygæði, ýmsar fóðurblöndur og gjöf
þeirra miðað við gæði heyja. Svöruðu þeir einnig fyrirspurnum
fundargesta.
Fiskveiðistefna mörkuð
Arinu skipt í
veiðitímabil og
athugað með
veiðar á nýjum
tegundum
Farmanna- og fiskimanna-
sambandið samþykkti á nýaf-
stöðnu þingi sínu fiskveiði-
stefnu þar sem lagt er til að
veidd verði 300 þús. tonn af
þorski á næsta ári og árinu skipt
upp í þrjú veiðitímabil. Togar-
ar fái að veiða alls 159 þús. tonn
af þorski og bátaflotinn 141 þús.
tonn.
Ekki sé hægt að mæla með meiri
afla á næsta ári vegna þeirrar
lægðar sem þorskstofninn sé núna
í, en „ef litið er til veiðiskýrslna
Fiskifélagsins allt aftur til 1920
kemur fram bein fylgni aflatoppa
og síðan lægða á eftir. Því verður
að álykta sem svo að ef ekki er farið
alveg up á toppinn þurfum við ekki
jafnlangt niður í lægðina á eftir"
segir m.a. í samþykkt þingsins.
Þá leggur þing Farmanna- og
fiskimannasambandsins m.a.
áherslu á það í fiskveiðistefnu
sinni, að heimilaðar verði veiðar á
skarkola innan 12 sjómílna, sem
víðast við landið, „enda skarkolinn
nánast eini stofninn sem ekki er
fullnýttur". Athugið verði með
veiðar á gulllaxi, langhala og öðr-
um tegundum sem nýtanlegar gætu
verið og einnig veiðar á karfa í út-
hafinu suðvestur af Reykjanesi
(Rússakarfa). Rannsóknir á fram-
Nýtt bóka-
safnshús á
Seltjarnar-
nesi
Sunnudaginn 20. nóvember
flutti Bókasafn Seltjarnarness í
nýtt húsnæði að Melabraut 9.
Safnið flutti í nýbyggt sérhannað
húsnæði, liðlega 400 m2 og eru það
mikil viðbrigði frá því að starfa í 80
m2 kjallarahúsnæði. Ymis nýmæli
verða tekin upp í rekstri safnsins,
t.d. bókmenntakynningar.
1 desember mun safnið kynna
sögu Framfarafélagas Seltjarnar-
ness, sem hefði orðið 100 ára í
haust, en það félag stofnaði m.a.
bókasafnið árið 1885.
leiðni Islandsmiða verði stór-
auknar og hafrannsóknarstofnun
tryggt togskip til að stunda rann-
sóknir á þorski og karfa á djúpmið-
um og einnig til að kanna djúp-
rækjustofninn og veiðiþol hans.
Þá ályktaði þingið einnig um
ýmis kjaramál sjómanna, samn-
ingamál og lífeyrismál. Ákvæði um
lámarkshvíld sem þykja sjálfsögð í
landi gilda ekki á hafi úti. „Vinna
þarf bráðan bug að því að sá vinnu-
tími sem tíðkast til sjós þurfi ekki
að vera með þeim hætt að ofbjóði
heilsufari rnanna", segir í einni
samþykkt þingsins þar sem bent er
á að 6 mánaða vera á sjó eigi að
jafngilda fullu starfsári á viðunandi
launum, því einungis með þeim
hætti sé mögulegt að ganga að
sjómannsstarfinu sem ævistarfi.
Ný stjórn Farmanna- og fiski-
mannasambandsins var kjörin á
þinginu. Guðjón A. Kristjánsson
skipstjóri á Páli Pálssyni frá ísafirði
er forseti og Helgi Laxdal varafor-
seti. Aðrir í stjórn sambandsins
eru: Ragnar G. D. Hermannsson
stýrimaður, Freysteinn Bjarnason
vélstjóri, Þorbjörn Sigurðsson
stýrimaður, Höskuldur Skarphéð-
insson skipherra, Ásgeir Guðna-
son vélstjóri, Guðbjartur Gunn-
arsson stýrimaður, Birgir Stefáns-
son stýrimaður, Guðlaugur Gísla-
son stýrimaður og Jón Valdimars-
son vélstjóri.
Ig-
ÆTLA UM
n
Samþykkt hefur verið að taka við
umsóknum um sérstök 50%
viðbótarlán frá þeim aðilum, sem
fengið hafa lán úr Byggingarsjóði
ríkisins í eftirtöldum lánaflokkum á
árunum 1982 og 1983:
a) Lán til viðbygginga og endurbóta.
b) Lán til orkusparandi breytinga.
c) Lán til endurbóta vegna sérþarfa.
Ef um eigendaskipti er að ræða, á
núverandi eigandi rétt á viðbótar-
láni, leggi hann fram þinglýstan
kaupsamning eða veðbókarvottorð.
Sækja verður um viðbótarlán á
eyðublaði, sem Húsnæðisstofnun
ríkisins leggur til.
Umsóknir um viðbótarlán skulu
berast Húsnæðisstofnun ríkisins
fyrir 1. desember 1983.
Það skal ítrekað að umsækjend-
ur, sem fá lán í nóvember og
desember 1983 skv. ofangreind-
um lánaflokkum og til nýbygg-
inga og eldri íbúða, ver, a að
sækja um þessa 50% hækkun
fyrir 1. desember nk.
Hækkun á þessi lán kemur ekki
sjálfkrafa.
# Húsnædisstofnun ríkisins