Þjóðviljinn - 22.11.1983, Page 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. nóvember 1983
LR gefur út plötuna
„V ið bygg jum leikhús”
Leikfélag Reykjavíkur hefur
staðið fyrir útgáfu á hljómplötu en
á henni eru söngvar sem leikarar og
starfsfólk Leikfélagsins fluttu upp-
haflega á söngskemmtun í Laugar-
dalshöll 17. júní síðastliðinn og síð-
an í sjónvarpssal. Hljómplatan sem
hlotið hefur nafnið Við byggjum
Ieikhús er seld til ágóða fyrir bygg-
ingu Borgarleikhússins.
Á plötunni eru 11 lög eftir ýms
tónskáld, flest þó finnsk og á
finnska tónskáldið Kaj Chydenius
þar drýgstan þátt. Eitt laganna er
eftir Tómas Einarsson. Einnig eru
leikhússyrpur með lögum úr ýms-
um leikritum sem sýnd hafa verið
hjá leikfélaginu. Má þar nefna
syrpur úr Lið munið hann Jörund,
Deleríum búbónis, Saumastof-
unni, Ofvitanum, „Þjófar, lík og
falar konur“.
Flytjendur á plötunni eru 19
leikarar og starfsmenn Leikfélags-
ins, en undirleik annast Sigurður
Rúnar Jónsson, Jóhann G. Jó-
hannsson, Ólafur Garðarsson og
18 hljóðfæraleikarar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Textarnir við
nýju lögin á plötunni eru eftir
Kjartan Ragnarsson, Jón Hjartar-
son og Karl Ágúst Ulfsson.
Húsbyggingarsjóður Leikfélags-
ins hefur opnað póstgíróreikning
númer 1 66 20 - 0 og getur fólk lagt
þar inn framlög og stuðlað þannig
að því að Borgarleikhúsið nýja rísi
sem fyrst, en stefnt er að því að það
taki til starfa árið 1986.
Sovésk kvikmyndavika 1 Regnboganum:
Fimm úrvals kvíkmyndir
Þann 26. nóv. n.k. hefst sovésk
kvikmyndavika í Regnboganum.
Við setningu kvikmyndavikunnar,
kl. 14, verður sýnd kvikmyndin:
„Okkar maður meðai ókunnugra -
ókunnugur á meðal okkar“, en alls
verða 5 myndir sýndar á vikunni.
Hinar eru: „Sóttkví11, „Mimino",
„Hótel hins deyjandi fjallgöngu-
manns“ og „Veiðar Stakh kon-
ungs“. Fjalla myndir þessar um hin
ólíkustu efni. Varla þarf að taka
fram, að allar þær myndir, sem
vaidar hafa verið til sýningar á vik-
unni, eru mjög góðar, enda Rússar
í fremstu röð kvikmyndagerðar-
manna.
Efni fyrstu myndarinnar er í
stuttu máli þetta, en hinna verður
getið síðar: Meðan á borgarastyrj-
öldinni stendur bindast þeir Sarit-
svev, Shilov, Kungurov, Zabelin
og Lipjagin traustum vináttubönd-
um. Fallbyssurnar eru þagnaðar en
fjandmennirnir eru ekki af baki
dottnir með að koma, ef unnt er, í
veg fyrir uppbyggingu hins unga,
sovéska lýðveldis. Landið skortir
korn. Það fæst aðeins erlendis og
gegn gulli. Héraðsstjórn flokksins
sendir gullið til Moskvu með lest.
Shilov og hermenn hans gæta
gullsins en bófahópur Brilovs ræðst
á lestina. Verðir eru drepnir, gull-
inu stolið. Shilov sleppur en er
grunaður um græsku. Hann vil
sanna sakleysi sitt og trúmennsku
við málstað lýðveldisins og hefur,
einn síns liðs, leit að gullinu.
Gengur í bófahóp Brilovs og kemst
að því hvar gullið er niðurkomið en
einnig því, að svikari er í flokks-
nefndinni og lætur taka Lemke til
fanga. Hann er hvítliði og jafn-
framt sá eini, sem bent getur á
svikarann. Þrátt fyrir margháttaða
erfiðleika nær hann gullinu, af-
hendir fanga sinn og snýr til baka.
Hann veit að svikarinn er fundinn
og að vinir hans treysta honum, því
vinátta þeirra hlaut sína eldskírn á
vígvöllum borgarastyrjaldarinnar.
- mhg.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur
Alþýðubandalagið í Kópavogi boðartil bæjarmálaráðsfundar miðviku-
daginn 23. nóvember kl. 17.30 í Þinghól. Dagskrá: 1).Drög að fjár-
hagsáætlun, 2) Önnur mál. - Stjórnin.
ÁRÍÐANDI ORÐSENDING
til styrktarmanna Alþýðubandalagsins
Þeir styrktarmanna sem fengið hafa senda gíróseðla eru vinsam-
legast beðnir að gera skil sem allra fyrst.
Greiðum félagsgjöldin
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur þá félagsmenn sem enn skulda
gjaldfallin árgjöld að greiða þau sem allra fyrst.
Gíróseðlana má greiða í öllum bönkum og póstútibúum.
Eflum starf Alþýðubandalagsins og greiðum félagsgjöldin.
Stjórn ABR
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Skrifstofan opin
Alla þriðjudaga og fimmtudaga verður skrifstofa Æskulýðsfylkingar-
innar opin frá kl. 17-18.30, í flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105.
Áhugafólk er hvatt til að líta við eða hringja, síminn er 17500.
Stjórnin.
Forstöðumaður
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns
við Bræðratungu sem er vistheimili og þjón-
ustumiðstöð þroskaheftra á Vestfjörðum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og
reynslu á þessu sviði. Staðan veitist frá 1.
janúar 1984 og er umsóknarfrestur til 10.
desember nk.
Ráðgert er að starfsemi heimilisins hefjist
þann 1. apríl 1984 og verður þá jafnframt
ráðið annað starfsfólk frá þeim tíma.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
svæðisstjórnar í síma 94-3224.
Svæðisstjórn Vestfjarðasvæðis
um málefni þroskaheftra
íH| Iðnskólinn
vl|r ísafirði
Á vorönn 1984 verður kennsla í eftirfarandi
greinum, svo framarlega að þátttaka verði
nægileg:
I. 2. áfangi iðnskóla.
II. Grunndeild rafiðna.
III. 2. áfangi 1. stigs vélskóla.
IV. 2. og 4. áfangi frumgreinadeildar tækniskóla.
V. Meistaraskóli húsasmiða.
Innritun stendur til 1. des. 1983.
Nánari upplýsingar veittar í síma 4215 kl.
14-16 mánud., þriðjud. og miðvikud.
Skólastjóri
Þjónustusíða Þjóðviljans
ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA
Sveinbjörn G. Hauksson
Pípulagningameistari
Sími 46720
Ari Gústavsson
Pipulagningam
Simi71577
Nýlagnir
Jarðlagnir
Viðgerðir
Breytingar
Hreinsanir
VÉLA- OG TÆKJALEIGA
Alhliða véla- og tækjaleiga.
Heimsendingar á stærri tækjum.
Sláttuvélaleiga.
Múrara- og trésmiðaþjónusta,
minni háttar múrverk og smíðar.
BORTÆKNI SF.
Völaleiga, simi 46980 - 72460,
Nýbýlavegi 22, Kópavogi,
(Dalbrekkumegin)
Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa.
STETT
Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211.
II.
GEYSIR
Bílaleiga
Car rental
BORGARTÚNI 24 - 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015
TRAKTORSGRÖFUR
L0FTPRESSUR
SPRENGIVINNA
46297
STEVPUSÖGUN
vegg- og gólfsögun
VÖKVAPRESSA
i murbrot og ileygun
KJARNABORUN
fyrir öllum lögnum
Tökum aó okkur verkefni um allt land. — Fljót og góð
þjónusta. — Þrifaleg umgengni.
Verkpantanir
fri kl. 8—23.
BORTÆKNI S/F
Vélaleiga S: 46980 - 72460.