Þjóðviljinn - 22.11.1983, Side 15
iJM'f.* / t í
1 I 4
Þriðjudagur 22. nóvember 1983 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA419
RUV0
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Ávirkum
degi 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurf. þáttur Erlings Sigurðarsonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Sigurjón Heiðarsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Katrín“
eftir Katarina Taikon Einar Bragi les
þýðingu sína (6).
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 pingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.)
10.45 „Man ég það sem löngu Iei6“ Ragn-
heiður Viggósdóttir sér um þáttinn.
11.15 Við Pollinn Ingimar Eydal velur og
kynnir létta tónlist (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.30 Suður-amerisk tónlist
14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Björns-
son sér um lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Alexandre Lag-
oya og Orford-kvartettinn leika Gítar-
kvintett í D-dúr eftir Luigi Boccherini /
Rudolf Serkin og Budapest-kvartettinn
leika Píanókvintett í Es-dúr op. 44 eftir
Robert Schumann.
17.fO Siðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Tordý-
fillinn flýgur í rökkrinu" eftir Maríu
Gripe og Kay Pollack. 7. þáttur: „Pungur
hlutur". Leikstjóri: Stefán Baldursson.
Leikendur: Ragnheiður Elfa Arnardóttir,
Aðalsteinn Bergdal, Jóhann Sigurðsson,
Guðrún S. Gísladóttir og Sigriður Haga-
lín.
20.40 Kvöldvaka a. Almennt spjall um þjóð-
fræði. Jón Hnefill Aðalsteinsson tekur
saman og flytur. b. Kórsöngur: Karlakór-
inn Vísir á Siglufirði syngur. Stjórnandi:
Geirharður Valtýsson. c. Galdramennirn-
ir í Vestmannaeyjum. Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir les. Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.15 Skákþáttur Stjórnandi: Jón Þ. Þór.
21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti manns“
eftir André Malraux Thor Vilhjálmsson
les þýðingu sína (27).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Frá tónskáldakvöldi Leifs Þórarins-
sonar í Þjóðleikhúsinu 13. júní s.l.
Kynnir: Hanna G. Sigurðardöttir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Guðjón Einarsson stjórnar um-
ræ&uþætti um hrun þorsk-
stofnsins í Sjónvarpinu kl. 22.25.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Snúlli snigill og Alli álfur Teikni-
mynd ætluð börnum. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunn-
laugsdóttir.
20.45 Tölvurnar Lokaþáttur. Breskur
fræðslumyndaflokkur um örtölvur, notk-
un þeirra og áhrif. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
21.25 Derrick 3. Maðurinn frá Portofino
Þýskur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi
Veturliði Guðnason.
22.25 Hrun þorskstofnsins - Hvað er til
ráða? Umrseðuþáttur um þann vanda,
sem við blasir vegna samdráttar i þorsk-
veiðum, og hvernig bregðast skuli við
honum. Umsjónarmaður Guðjón Einars-
son.
23.20 Dagskrárlok
frá lesendum
„Vilji er allt, sem þarf“
Þið sigrið
ef þið viljið
Einar Ingvi Magnússon skrif-
r:
Vincent Van Gogh gerði eitt
sinn myndverk er hann kallaði
því „almenna“ nafni: Katröfluæt-
urnar. Mynd þessa rakst ég á er
ég blaðaði í skólabókinni minni
nú fyrir skömmu, sem ég á fyrir
löngu að vera búinn að lesa og
nema.
Van Gogh gerði þetta
táknræna verk það herrans ár
1885, og hefur áreiðanlega vakið
margan manninn til umhugsunar,
bæði þá og einnig á vorum tím-
um.
Mér finnst vert að benda ykkur
á þessa mynd, kæru félagar. Hún
minnir svo óneitanlega á ástandið
eins og þar er um þessar mundir
hér á landi og víðar, það herrans-
ár 1983. Þegar verkafólk krefst í
sveita andlits síns launa upp á 15
þús. meðan aðrir strjúka pyngjur
sínar upp á tugi þúsunda. Djöfuls
óréttlæti. Manni flökrar við þess-
um hvítflibbum, sem stjórna
þessu þrælahaldi. Sveiattan, segi
ég, sveiattan. Þurfa ekki allir að
lifa? Eiga sumir að draga fram
lífið á kartöflum í hvert mál með-
an aðrir sitja yfir krásum og sætu
víni í tíma og ótíma? - .
Hvernig dettur ykkur í hug að
biðja krjúpandi um 15 aura þegar
þið eigið í raun rétt á 15 kr.?
Verkamenn, eruð það ekki
þið, sem skapið verðmætin í
þessu landi, og brauðfæðið þá
sem stjórna? Eru það ekki ykkar
hendur, sem strjúka svo el-
skulega nýbakað þjóðarbrauðið?
Látið ekki vonda menn stela öllu
frá ykkur. Látið ykkur ekki
nægja brauðmolana á gólfinu.
Rísiðupp standið saman, og þið
munuð sigra með samstöðu og
Guðs hjálp.
Hörmulegt
góðmenni
Halldór Pjctursson skrifar:
Jarþrúður hélt að Ólafur Kára-
son væri Hallgrímur Pétursson
endurborinn. Áður en Albert
okkar óx úr grasi og komst á
toppinn var farið að hvísla því að
hann væri að langfeðgatali kom-
inn af frelsaranum.
Albert hafði í þjónustu sinni
sagnaranda, sem leitaði upp
snauða menn og illa stadda. Ekki
varð þess vart að hann gæfi þeim
peninga, en vegna kunnugleika
hans á kerfinu, gat hann gefið
þeim góð ráð og margt er það í
tryggingakerfinu, sem almenn-
ingur hefur ekki hugmynd um.
Þetta gat stundum bætt úr í svip.
Það var vel þakkað og dáð að
maður með svona stóran vindil
væri að hjálpa nauðleitar-
mönnum. Ekki var ýjað að
greiðsium fyrir þessi störf en bent
á, að við allar kosningar skyldu
menn kappkosta að veljá góða
menn, sem kynnu aðgæta fengins
fjár og afla annars.
Nú eru aðrir tímar. „Nú“, segir
hann, „er loku fyrir það skotið að
ég geti hjálpað ykkur „prívat“.
Nú hvílir á mér sú skylda, að
bjarga allri þjóðinni, enda hefur
svo mikið breyst, að hver ætti að
geta hjálpað sér sjálfur. En ég
mun engum gleyma“. (Varast
skyldi að rugla okkar Albert sam-
an við þann danska Albert, sem
elskaði peninga svo heitt, að
hann hélt að hver eyrir, sem í
hans ráðuneyti kom, væri hans
prívat eign.).
Albert okkar hugsar í flygsum
og það stórum. Hann vill láta
selja allrar ríkiseignir og kannski
r'íkið sjálft. Ríkið hefur ekki rétt
til að eiga neitt nema skuldir.
Margir munu verða um að kaupa
fyrirtækin því loforð fylgir sölu
um að hellt verði upp á könnuna
og ýmsir hnútar leystir ef illa
árar. í þessu landi á enginn að
eiga neitt nema forsjónin hafi
hann til þess skapað.
Gerð Alberts er því nær ein-
stæð. Fótboltavit hans nær frá
tám til þindar. Þá tekur við
brjóstvit allt til höku. Hvað svo
tekur við er óljóst, því allir vilja
endar fara þar saman í flækju.
Sumir, sem þannig eru gerðir,
hafa ekkert getað gert utan það
að vera ráðherrar en sú fjölgun er
ekki endalaus.
Mér finnst Albert vera það
hörmulegasta góðmenni sem við
eigum.
Útvarp kl. 20.00
Enn á flögri
Tordýfillinn lætur sig hvergi.
Hann er enn á flögri í kvöld. Nefn-
ist þátturinn ,Játningin“.
f síðasta þætti skeði það, að
dólgur sá, sem var að laumast á
loftinu á Selandersetrinu, slapp
frá þeim Önnu, Jónasi og Davíð.
Komst hann burtu í bláum Peug-
otbíl. En úti í garðinum rákust
þau skötuhjúin á útigangsmann-
inn Mugg. Varðist hann allra
frétta af sínum ferðum en þau
tóku eftir því að sparmanían varð
óróleg í návist hans. En fleira var
í efni. Miðjarðarhafssafnið í
Stokkhólmi, sem Anna hafði
áður leitað upplýsinga hjá, fær
fyrirspurn frá Britsh Museum í
London, um egypsku styttuna.
Þegar reynt er að afla upplýsinga
hjá Önnu óttast hún að um gabb
sé að ræða og kannast ekki við að
vita neitt. Og nú er svo komið að
Olson safnvörður sér þann kost
vænstan að blanda Smálandapó-
stinum í málið. - mhg
Olga Guðrún þýðir Tordýfilinn
skák
Karpov aö tafli - 237
Langt fram eftir Olympíumótinu í Va-
letta barðist sovéska skáksveitin við að
komast upp við hlið þeirrar ungversku.
Tveir meðlimir sveitarinnar þeir Lev Pol-
ugajevskí og Mikhael Tal voru gjörsam-
lega heillum horfnir enda tók liðstjórinn
Smyslov til þess bragðs að setja þá út út
úr liðinu allar lokaumferðirnar. Fannst
mönnum heldur dapurlegt að horfa uppá
snillinginn Tal reika aðgerðarlausan um
skáksalina, Refsing hans var nokkuð
ströng, því hann tapaði aðeins fyrir
Seirawan í viðureign Bandaríkjamanna
og Sovétmanna en með Polugajevskí
gegndi allt öðru máli. Þegar hann tapaði
fyrir Smejkal um mitt mót var félögum
hans nóg boðið, því Lev hafði ekki unnið
eina einustu skák, gert sex jafntefli og
tapaði einni. Þeir tefldu síöustu umferð-
irnar Karpov, Geller, Balashov og Kasp-
arov og stóðu sig allir mjög vel. Sigur
Karpovs yfir Hort virtist gefa
heimsmeistaranum aukinn kraft því þeg-
ar Islendingar mættu Sovétmönnum í
10. umferð var Karpov kominn í sitt
gamla form, tefldi leifturhratt gegn Frið-
riki Ólafssyni á 1. borði og náði að hefna
ófaranna frá skákmótinu í Buenos Aires:
ÍÉR íH a ih
imm
wé/. ífli!
abcdefgh
Friörik — Karpov
Friðrik var í gífurlegu tímahraki og
Karpov notaði gömlu aðferðina sína;
hann lék nær samstundis þó hann ætti
kappnógan tima og gaf þannig Friðrik
engan tíma til að ígrunda stöðuna. Efim
Geller skýrði þessa skák i Informant og
taldi Friðrik hafa misst af jafnteflisleið í
þessari stöðu.
34. Dxf7?
(Friðrik var alveg að falla og hitti því ekki
á besta leikinn sem að sögn Gellers er
34. Bf2! Telur Geller aö þá sé jafnteflið
tryggt. Eftir textaleikinn gerir Karpov út
um taflið á laglegan og lærdómsríkan
hátt.)
34. .. Hxg2+
35. Kf1 Hg6!
36. He2 Db1 +
37. He1 Da2!
- Karpov lék öllum þeSsum leikjum án
minnstu umhugsunar. Það sýnir Ijóslega
hversu manntaflið liggur létt fyrir honum.
Það gerbreytir aðstöðunni að svarta
drottningin er nú á a2 en ekki b2, því 38.
He2 strandar á 38. - Rd2+ og drottning-
in á f7 fellur. Lagleg endalok.
Sovétmenn unnu Islendinga stórt, 3V
2:’/2. Geller vann Helga Ólafsson, Kasþ-
araov vann Margeir Pétursson, en Jón L.
Árnason gerði jafntefli viö Balashov og
beitti þó hinu stórvarasama kóngs-
bragði.
bridge
Öryggisspilamennska í bridge er afar
nytsamlegt vopn í höndum þeirra sem
kunna á slíkt. Allir bridgespilarar ættu að
vera á varöbergi þegar þær stöður kom
upp að nauðsyn er á öryggisspila-
mennsku.
Hér er dæmi, eftir þá félaga E. Milnes
og P. Lukacs:
AKDG109
2
ÁK108
Á5
6432
ÁD9
6543
K9
Vestur er sagnhafi í 6 spöðum og út-
' spil Norðurs er laufadrottning. Hvernig
íhugar þú framhaldið í þessu spili?
Rétt spilamennska er að taka á ás
"heima, hreinsa út trompið hjá andstæð-
ingunum, leggja nður tígulás, fara inn i
borðið og spila lágum tigli að kóngnum.
Ef Suður lætur lítið, látum við níuna eða
tíuna duga og vinnum okkar spil. Ef
Suður hinsvegar sýnir eyðu í tigli, drep-
um við á kóng og spilum lágu hjarta. Ef
Norður lætur lítið, látum við niuna duga.
Ef Norður lætur tiuna í hjarta, eða gosa,
látum við drottninguna og Suður er
endaspilaður ef hann á kóng. (Hann á þá
einungis eftir hjarta upp í gaffalinn eða
lauf í tvöfalda eyðu.).
Tikkanen
Ef banna á tilraunir með dýr er
tímabært a& fjarlægja öll dýr frá
Evrópu.