Þjóðviljinn - 22.11.1983, Side 16
WÐVHHNN
Þriðjudagur 22. nóvember 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Bankastjórinn gegn bóndanum
Ingólfur Guðnason grefur
undan Páli á Höllustöðum
Smalað á félagsfundi — kjördæmisþingi frestað
Mjög hefur nú hitnað í kolunum
meðal Framsóknarmanna (B-lista)
og Ingólfsmanna (BB-lista) í Norð-
urlandi vestra. Ingólfur Guðnason
og stuðningsmenn hans hrcinsuðu
alla Framsóknarmenn sem ekki
studdu hann í kosningunum sl. vor
út úr stjórn Framsóknarfélags V.-
Húnvetninga og felldu þá í fulltrúa-
kjöri á Kjördæmisþing. Kjör-
dæmisþingið átti að fara fram um
helgina en var frestað.
Þau tíðindi urðu á fundi Fram-
sóknarfélags V-Húnavatnssýslu að
stuðningsmenn Ingólfs Guðna-
sonar fóru offari gegn stuðnings-
mönnum Páls Péturssonar alþing-
ismanns kjördæmisins og öðrum
þeim sem ekki vilja Ingólf Guðna-
son útibússtjóra á þing. Einsog
kunnugt er bauð Ingólfur Guðna-
son fram sérstakan framboðslista
Framsóknarmanna, BB-lista, við
síðustu kosningar.
Heimildir blaðsins herma að
stuðningsmenn Ingólfs hafi smalað
grimmilega á fund þennan og ekki
legið á markmiðum sínum.
Pá er sagt nyrðra að Ingólfsmenn
muni vel geta hugsað sér að gera
bandalag við þá Framsóknarskag-
firðinga, sem vilja að Stefán Guð-
mundsson (sem tók við af Eggert
Haukdal í Framkvæmdastofnun)
verði í efsta sæti framboðslista í
næstu kosningum gegn því að Ing-
ólfur skipi annað sætið og Páll á
Höllustöðum verði í kuldanum
utan alþingis.
Stuðningsmönnum Páls í V,-
Húnavatnssýslu mun hafa komið
þessi framkoma á fundinum á
Hvammstanga sl. miðvikudag
mjög á óvart - og fremur reiknað
með að Ingólfsmenn myndu leita
sátta eftir sársaukafulla kosninga-
baráttu, þarsem einungis er bitist á
um persónur meðan pólitík kemur
þar hvergi nærri. Svo virðist einnig
að Framsóknarmenn í Húnavatns-
sýslum reikni með kosningum fyrr
en síðar, svosem flokksbræður
þeirra í Reykjavík.
óg/ór.
Páll Pétursson þingflokksformaður
Framsóknarflokksins i þungum
þönkum á Alþingi í gær. Er bak-
landið að gliðna?
Yassir Arafat verst úr vígi sínu í Tripoli í Líbanon.
Jóhannes sannfærði Albert:
Seðlabankinn borgar
aukinn hlut Islands
Jóhannes Nordal Seðlabanka-
stjóri ritaði Albert Guðmundssyni
fjármálaráðherra tvö bréf s.l.
föstudag, þar sem hann lýsir því
yfir að ríkissjóður muni ekki bera
neinn kostnað nú eða í framtíðinni
vegna aukningar hlutafjár íslands í
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Seðla-
bankinn muni greiða hlutaféð.
Þessi bréf urðu til þess að fjármála-
ráðherra lét af yfirlýstri andstöðu
sinni við frumvarp Matthíasar
Mathiesen samráðherra síns en
ríkisstjórnin sem slík hefur ekki
gert samþykkt um málið.
Snarpar umræður urðu um þetta
mál í neðri deild Alþingis í gær þeg-
ar frumvarpið var til annarrar um-
ræðu. Svavar Gestsson vakti at-
hygli á því að eftir að fjárhags- og
viðskiptadeild hefði einróma sam-
þykkt frumvarpið hefði komið í
ljós að ágreiningur var milli ráð-
herranna um það. Sagði Svavar
furðulegt að fjármálaráðherra
tryði því að engar greiðslur eða
ábyrgðir féllu á ríkissjóð vegna
aukins hluts íslands í Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, og spurði
hvaða pólitískir bjargráðasjóðir
það væru sem Jóhannes Nordal nú
hefði uppgötvað til að bjarga á-
standinu á stjórnarheimilinu.
Matthías Mathiesen viðskipta-
ráðherra gat ekki upplýst á fundin-
um hvaða reikningar erlendis það
væru sem Seðlabankinn ætlaði að
taka féð af né hvaða fé það væri.
Varð það til þess að þriðja umræða
fór ekki fram um málið í gær eins
og hann óskaði eindregið eftir
vegna mótmæla Svavars Gests-
sonar þar um.
-ÁI.
Mannfall í Tripoli
Barist var af mikilli hörku í Trip-
oli í Líbanon yfir helgina, þar scm
andstæðingar Yassirs Arafat sækja
að stöðvum hans studdir sýr-
lenskum vopnum. Síðustu fregnir
herma að uppreisnaröflin innan
PLO hafi látið af bardöguin
seinnipartinn í gær er þeir áttu að-
eins 600 metra að bústað Arafats
inni í borginni. Sögðust upp-
reisnarmennirnir ekki grípa til
vopna á ný nema á þá yrði ráðist.
Samkvæmt fregnum frá Rauða
krossinum hafa a.m.k. 500 manns
fallið í þessum átökum og 2047
voru skráðir særðir á tímabilinu 3.-
19. nóvember. Rafmagnslaust varð
í Tripoli 17. nóvember og eldar
loga víða í borginni. Þá er einnig
víða vatnslaust og mjög erfitt um
alla heilsugæslu.
ólg.
Þyrluslysið í Jökulfjörðum:
Raiuisókn á
orsökum í
fullum
Enn hefur ekkert komið fram
sem getur gefið óyggjandi skýringu
á því hvað olli þyrluslysinu í Jökul-
fjörðum þegar TF-RÁN, þyrla
Landhelgisgæslunnar, fórst með
fjögurra manna áhöfn. Þyrlan hef-
ur verið rannsökuð hátt og lágt frá
því í síðustu viku og var m.a. unnið
alla helgina að rannsókn slyssins.
Að sögn Karls Eiríkssonar for-
manns flugslysanefndar þá hefur
11 manna hópur unnið við
rannsóknina, fimm íslendingar á
vegum flugmálastjórnar undir
stjórn Skúla Jóns Sigurðssonar hjá
Loftferðaeftirlitinu og svo fimm
starfsmenn bandarísku flugörygg-
gangi
ismálastofnunarinnar sem komu
hingað til lands vegna slyssins.
Að sögn Karls er rannsóknin
tímafrek vegna þeirra ströngu
reglna sem verður að fara eftir í
tilvikum sem þessum. Karl sagði að
rannsóknin beindist m.a. að því
hvaða hlutur það væri sem hefði
komist inn í hægri hreyfil þyrlu-
blaðsins. Að öðru leyti er rann-
sóknin unnin með svokallaðri úti-
lokunaraðferð, þ.e. hver einstakur
hlutur þyrlunnar er sundur-
greindur á eins nákvæman hátt og
unnt er. Karl sagði að gerð yrði
grein fyrir niðurstöðum rannsókn-
arinnar þegar þær lægu fyrir. _ hól
Skáksamband íslands stóð fyrir sérstöku skákkvöldi í húsakynnum sínum að Laugavegi
71 en þar var skák Kortsnojs og Kasparovs skýrð jafnharðan og leikir bárust. Þessari
nýbreytni var afar vel tekið og var fullt út úr dyrum þegar mest var af fólki. Til þess að fá
leikina þurftu starfsmenn Pósts og síma að hafa í frammi ýmsar tilfæringar á Laugavegin-
um. Hér vinna þeir að uppsetningu telextækis. Lengst til hægri á myndinni er varaforseti
Skáksambandsins Þorsteinn Þorsteinsson. -