Þjóðviljinn - 01.12.1983, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 1. dés'embér' bJÓbVIllJlI'ÍN — SÍÐÁ 5
Biðtími mála fyrir hæstarétti:
Háll't annað ár
Að jafnaði bíða 150 mál fyrir
hæstarétti og nú er biðtíminn eitt
og hálft ár frá því að þau eru að
fullu tilbúin og þangað til þau eru
flutt. Þetta kom fram í máli
Gunnars Schram á Alþingi í gær
en þar mælti hann fyrir þingsá-
lyktunartillögu um stofnun sér-
stakt Iögréttudómstóls í Reykja-
vík.
Það kom ennfremur fram í
máli lagaprófessorsins að hæsti-
réttur væri nú deildarskipt stofn-
un og dæmdu annaðhvort þrír
eða fimm dómarar í málum. Það
væri því engin trygging fyrir því
að svipuð mál fengju svipaða
meðferð ef dómararnir væru ekki
þeir sömu. Meirihluti í dómum
væri oft tilviljunum háður og því
skorti upp á réttareiningu í störf-
um hæstaréttar.
Lögréttu er ætlað að vera
fyrsta dómstig stærri mála og áf-
rýjunardómur fyrir smærri mál.
Tilgangurinn væri að skapa meiri
hraða í meðferð dómsmála, rétt-
areiningu í störfum hæstaréttar
og aðskilja dómsvald og fram-
kvæmdavald betur en nú er. Úti á
landi er sami maðurinn oft í emb-
ætti dómara og jafnframt æðsti
handhafi ríkisvaldsins.
Jón -Helgason dómsmálaráð-
herra sagði að litlar líkur væru
fyrir því að frumvarp um lögréttu
yrði lagt fram á þessu þingi.
- GFr
Stóraukin skatta-
byrði einstaklinga
Þó að sveitarfélögin muni ekki
nýta sér heimild til 10% hækkun-
ar á útsvari mun skattabyrði
heimila miðað við tekjur samt
hækka verulega á næsta ári, sagði
Jóhanna Sigurðardóttir í fyrir-
spurn til félagsmálaráðherra á
Alþingi í gær. Félagsmálaráð-
herra upplýsti að heimild til þessa
10% álags ofan á 11% regluna
muni ekki verða numin úr gildi,
en þó ekki veitt nema að vandlega
yfirveguðu ráði.
Jóhanna upplýsti að útsvar og
fasteignaskattur muni hækka að
meðaltali um 50% milli áranna
1983 og 1984 að óbreyttri álagn-
ingu meðan rekstrargjöld
sveitarfélaganna hækkuðu um
20-21% á sama tíma. Skattbyrðin
myndi því þyngjast um 820 milj-
ónir króna umfram auknar tekjur
einstaklinga.
Svavar Gestsson sagði að
skattbyrðin, bæði af tekjuskatti
og útsvörum, mundi þyngjast
verulega fyrir utan hækkun á
ýmsum þjónustugjöldum, sér-
staklega í Reykjavík, sem hefði
farið fram úr öllu hófi. Benti
hann á, að stjórnarflokkarnir
hefðu fyrir kosningar lofað há-
stöfum að lækka skatta og Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði haft stór
orð um skattpíningu síðustu ríkis-
stjórnar. Þarna skyti því nokkuð
skökku við.
Alexander Stefánsson og
Þórður Skúlason bentu á erfiða
stöðu sveitarfélaganna um þessar
mundir.
- GFr
Húsnæðisstbfnun ríkisins
Ný stjórn skípuð
Samkvæmt lögum nr. 51 9. júní
1980 um Húsnæðisstofnun ríkis-
ins hafa eftirtaldir menn verið
kosnir og skipaðir í stjórn stofn-
unarinnar:
Aðalmenn: Gunnar Helgason,
framkvæmdastjóri, Guðrún
Hallgrímsdóttir, matvælaverk-
fræðingur, Þráinn Valdimarsson,
framkvæmdastjóri, Jóhann Pet-
ersen, skrifstofustjóri, Jón H.
Guðmundsson, skólastjóri,
Gunnar S. Björnsson, bygging-
ameistari, Kristín Blöndal,
fóstra, Björn Þórhallsson, vara-
forseti A.S.Í. og Grétar Þor-
steinsson, formaður Trésmiðafé-
lags Rvíkur.
Varamenn: Ólafur Jensson,
framkvæmdastjóri, Steingrímur
J. Sigfússon, alþingismaður,
Hákon Hákonarson, vélvirki, Sa-
lome Þorkelsdóttir, alþingismað-
ur, Birgir Dýrfjörð, rafvirkja-
meistari, Óli Þ. Guðbjartsson,
bæjarfulltrúi, Krístín Einarsdótt-
ir, lífeðlisfrasðingur, Guðríður
Elíasdóttir, form. verkakv.f.
Framtíðarinnar og Sigurður
Guðmundsson, form. Fél. starfs-
fólks í veit. húsum.
Tveir síðasttöldu aðal- og vara-
menn eru skipaðir af félagsmála-
ráðherra samkvæmt tilnefningu
Alþýðusambands íslands, en hin-
ir kjörnir af sameinuðu Alþingi.
Félagsmálaráðherra hefur
skipað Þráin Valdimarsson,
framkvæmdastjóra, formann og
Gunnar Helgason, framkvæmda-
stjóra, varaformann húsnæðis-
málastjórnar.
Skipun húsnæðismálastjórnar
gildir til fyrsta þings að afloknum
almennum alþingiskosningum.
skákeinvígin
Brosið er breitt hjá Vasily Smyslov, sem í gærkveldi náði forystunni í
emviginu við Ribli.
Helgi
Ólafsson
skrifar
frá
London
orðnar 25 þegar textaleikurinn leit dagsins
Ijós hjá Ribli).
22. Bxh6i?
(Þessi leikur kom flestum áhorlendum á
óvart. Smyslov notaöi mikinn tíma á hann, og
má því ætla að hann hafi verið vel ígrundað-
ur. I blaðamannaherberginu fundu menn
enga vörn við 22. Rh5).
22. - Rxe5
(Auðvitað ekki. 22. - gxh6 23. Dxf7 mát. Og
enn lagðist Smyslov í þunga þanka).
23. Rh5!
(Þar sem ég sat í sakleysi mínu inni í skák-
salnum, spolkorn frá skákmönnunum, fékk
Glæsileg tallmennska
hjá gamla meistaranum
Langbesta skákin í einvígun-
um i London til þessa, var sam-
dóma álit allra, þegar Vasily
Smyslov hreinlega rúllaði Zolt-
an Ribli upp í 5. einvígisskák-
inni, sem tefld var í gærkveldi.
Ribli tók áhættur í uppbyggingu
sinni, með þeim afleiðingum að
Smyslov fékk færi á skemmti-
legum fléttum, sem hann nýtti til
hins ýtrasta. Skákin varð 41
leikur og gekk þannig fyrir sig.
5. Einvígisskákin
Hvítt: Vasily Smyslov, Sovétrikjunum
Svart: Zoltan Ribll, Ungverjalandi
Semi-Tarrasch vörn
1. d4
(Keppendur i áskorendaeinvígunum virðast
hafa gleymt því að aðrir leikir eru mögulegir.
Hver einasta skák hér í London hefur hafist á
þessum leik).
1. -RI6
2. Rf3 e6
3. c4 d5
4. Rc3 c5
5. cxd5 Rxd5
6. e3 Rc6
7. Bd3 Be7
8. 0-0 0-0
9. a3 cxd4
10. exd4 B«6
11. Dc2
(Þessi leikur virtist koma Ribli á óvart. Það tók
hann 25 mínútur að ákveða svarleik sinn).
11. -h6
(Venjulega er leikið 11. - g6, en hvítur nær
góðu tafli með 12. Bh6 o.s.frv.)
12. Hd1 Db6
13. Bc4 Hd8
14. Re2
(Ekki 14. De4 Bxd4! 15. Rxd4 Rf6 og svartur
vinnur peð bótalaust).
14. - Bd7
15. De4 Rce7
16. Bd3 Ba4?
(Fífldjarfur leikur. 6. - Rg6 var öruggara).
17. Dh7+ Kf8
18. He1 Bb5
19. Bxb5 Dxb5
20. Rg3 Rg6
21. Re5!
(Þessi riddaraleikur, sem Smyslov lék eftir
drjúga umhugsun, setur Ribli í mikinn vanda.
E.t.v. hefur hann ætlað að leika 21. - Bxe5
22. dxe5 Rce7 23. Rh5 Dxe5 en hvítur á 24.
Bxh6! sem vinnur samstundis.).
21.- Rde7
(Mínúturnar siluðust áfram, og þær voru
ég það skyndilega á tilfinninguna, aö ein-
hverskonar hlutverkaskipti hafi átt sér stað
hér í London. Smyslov farinn að tefla eins og
Kasparov og Kasparov eins og Smyslov).
23. - Rf3+!
24. gxf3 Rf5
25. Rx«6 Rxh6
(Tíminn: Hvítur 2:08 Svartur 2:04).
25. d5!
(Með hugmyndinni 26. - Ke7 27. Dxg7 Hg8
28. Hxe6+ og vinnur).
26. - Dxb2
27. Dh8+ Ke7
28. Hxe6+! fxe6
29. Dxg7+ Rf7
30. d6+ Hxd6
31. Rd5+ Hxd5
32. Dxb2
(Hvítur hefur unnið mikiö lið, en samt má
segja að í þessari stöðu eigi svartur samt
einhverja jafnteflismöguleika).
32. - b6
33. Db4+ Kf6
34. He1 Hh8
35. h4! Hhd8
36. He4 Rd6
37. Dc3+ e5?
(Betra var 37. - Ke7).
38. Hxe5! Hxe5
39. «4 R«7
40. fxe5 Ke6
(Ekki 40. - Rxe5 vegna 41. f4).
41. Dc4+
- Hér gafst Ribli upp. Staðan í einvíginu er þá
3 vinningar gegn 2 fyrir Smyslov.
hól/eik
UNTQN KWESIJ0HNS0N
REGGIBAND DENNIS BOVEli
Tónleikar í Sigtuni 2. des. kl. 22:00. Miðaverð 400 kr.
Forsala í hljómplötuverslunum. Aldurstakmark 18 ár.
WlfkKREFJUMSTI
lí IV FRAMTÍÐARa