Þjóðviljinn - 22.12.1983, Síða 13

Þjóðviljinn - 22.12.1983, Síða 13
Fimmtudagur 22. desembcr 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Tónlist áhveriu heimili umjólin Manneskjan — leikkonan — baráttukonan Freyr greinir frá Fóðurtilraun- í áratug hefur Trésmiðjan Ösp smiðað einingahús á borð við þetta. Stykkishólmur: um á Hesti í síðasta tbl. Freys gera sérfræð- ingar hjá RALA, þeir Sigurgeir Þorgeirsson, Stefán Scheving Thor- steinsson og Halldór Páisson grein fyrir niðurstöðum tilrauna með fóðrun sauðfjár á töðu, grasköggl- um og fóðurblöndu, en þær hafa farið fram á Hesti í þrjú ár. Segir þar m.a.: „Greinilegt er að töðuflokkur- inn kemur hagstæðast út úr þessum samanburði enda þótt afurðir hafi verið nokkuð rýrari í þeim flokki en kjarnfóðurflokkunum. Þarna ræður að sjálfsögðu úrslitum verð- munur kjarnfóðurs og töðu, en í þessu dæmi kostar hver fóður- eining 6,46 kr. í töðu, 10,90 í fóður- blöndunni og 11,90 í graskögglun- um. Ljóst er að mikil notkun kjarnfóðurs á slíku verði dregur úr arðsemi búreksturs". En þar sem tilraunin stóð aðeins í 3 ár er því „...ósvarað enn hver áhrif töðu- fóðrunin mundi hafa á endingu ánna og æviframleiðslu þeirra“. Blaðið fjallar annars að verulegu leyti um búrekstur í Eyjafirði og störf héraðsráðunautanna þar. Auk forystugreinar Júlíusar J. Daníelssonar ritstjóra er rætt við ráðunauta og byggingafulltrúa. Ævar Hjartarson, ráðunautur og framkvæmdastjóri Búnaðarsam- bandsins telur að endurskoða þurfi leiðbeiningastarfsemina með hlið- sjón af breyttum aðstæðum. Ólafur Vagnsson ráðunautur segir eyfir- ska bændur nota mikið leiðbeiningaþjónustuna. Guð- mundur H. Gunnarsson ráðunaut- ur kveður leiðbeiningar um áburð- arnotkun og virkni súgþurrkunar veranýjustu verkefnin. Guðmund- ur Steindórsson ráðunautur upp- lýsir að 3 af hverjum 4 bændum í Eyjafirði færi kúaskýrslur. Árni G. Pétursson hlunnindaráðunautur segir frá uppeldi æðarunga að Vatnsenda og Oddsstöðum á Mel- rakkasléttu. „Bændur eru ekkert annars flokks fólk“, segir Sigtrygg- ur Stefánsson, byggingafulltrúi á Eyjafjarðarsvæðinu í viðtali við Jú- líus ritstjóra. Loks er f blaðinu grein eftir Óttar Geirsson ráðu- naut: Áburðarkalk og skeljakalk. -mhg Út er komin hjá ísafoldarprent- smiðju h.f. bókin „Þegar heimur- inn opnaðist“ eftir grænlenska rit- höfundinn Inoraq Olsen. Þetta er fyrsta bók höfundar og jafnframt fyrsta grænlenska bókin sem þýdd er beint úr grænlensku á íslensku. Norðurlandaráð veitti styrk til út- gáfu bókarinnar. Bókin segir frá ungum Græn- lendingum sem fara til Danmerkur til framhaldsnáms, viðhorfum þeirra til hins nýja umhverfis og sálrænum örðugleikum þeirra í hinu nýja umhverfi. Bókin dýpkar skilning á ná- grönnum okkar og aðstæðum þeirra. Auk þess munu margir ís- lendingar, sem dvalist hafa lang- dvölum erlendis, þekkja þau við- horf og reynslu sem Inoraq Olsen lýsir í bók sinni. Bókin er 120 bls. og er að öllu leyti unnin hjá ísafoldarprent- smiðju h.f. Grænlensk skáldsaga á íslensku Trésmiðjan Ösp 20 ára Trésmiðjan Ösp í Stykkishólmi er 20 ára um þessar mundir. Hún var stofnuð 4. nóv. 1963 og hefur starfað óslitið síðan við smíði hús- gagna og innréttinga og við hús- byggingar. Verksmiðjan framleiðir eininga- hús. Hafa þau einkum verið reist á Vesturlandi en einnig víðar um land. Mun fyrsta Asparhúsið á Reykjavíkursvæðinu rísa á næst- unni. Þá er Trésmiðjan einnig verktaki við aðrar húsbyggingar. Hjá Ösp hafa að jafnaði starfað 30-50 manns, árstíðabundið og því hefur starfsemin verið mikilvæg at- vinnulífinu á staðnum. Auk þess hafa 20 smiðir lært og útskrifast frá fyrirtækinu á þessu tímabili. Stofnendur Trésmiðjunnar Asp- ar voru 8 hluthafar og unnu allir við fyrirtækið. í upphafi voru verkefn- in aðallega húsbyggingar og þjón- usta við Stykkishólmsbúa en strax fyrstu árin fékk fyrirtækið einnig stór verkefni víða á Vesturlandii s.s. allar innréttingar í Laugagerð-j isskóla, Laugaskóla í Dalasýslu, Heiðarskóla í Leirársveit, Reykjanesskóla við ísafjarðar- djúp, veitingahúsið á Vegamótum o.fl. Nýtt 630 ferm. húsnæði var byggt og tekið í notkun 1967 og húsgagnaframleiðsla hófst í stórum i stíl 1971 þegar m.a. voru fram- leiddir stólar og borð fyrir kaffiter- íu Loftleiðahótelsins, Bautann á Akureyri o.fl. Næstu árin var síðan unnið að stórum húsgagna- og innréttingaverkefnum fyrir Menntaskólann á ísafirði og Reykholtsskóla og jafnhliða mikl- um húsbyggingum á Snæfellsnesi. Þáttaskil urðu í rekstri Aspar 1973. Þá bættust við 9 nýir hluthaf- ar, allir starfsmenn fyrirtækisins. Hófst þá fraipleiðsla einingahúsa, sem hönnuð voru á staðnum. Árið 1979 var svo gerður samningur við Hróbjart Hróbjartsson arkitekt, um hönnun einingahúsa. Hafa nú verið seld 30 hús af þeirri gerð. Eru mörg þeirra fullbúin öllum innrétt- ingum og mun Ösp eina innlenda fyrirtækið, sem býður hús með innréttingum, hönnuð og smíðuð af sömu aðilum og húsin. Þetta sama ár var hafinn rekstur fullkom- innar steypustöðvar, sem keypt var frá Þýskalandi, ásamt steypubíl- um. Fyrirtækið hefur fært út kvíarnar jafnt og þétt og hefur lagt áherslu á nútíma vinnubrögð, vöruþróun og gæði. Það hefur notið aðstoðar Rannsóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins varðandi hönnun og gæði einingahúsanna og Tækni- deild Iðntæknistofnunar var fengin til ráðgjafar um tæknileg atriði og til að skipuleggja framleiðslu með nýjum vélum í nýju húsnæði. Var það tekið í notkun fyrir tveimur árum og er húsnæðið nú samanlagt um 1300 ferm. að stærð. Þá hefur fyrirtækið tekið tölvu- tæknina í þjónustu sína, m.a. við framleiðslustýringu, lager og verð- útreikninga. Framundan er átak í vöruþróun og hagræðingu og er markmiðið að efla samkeppnisað- stöðuna við innflutt einingahús um leið og styttur byggingatími og aukin framleiðni ætti að geta lækk- að byggingakostnað. Framkvæmdastjóri Trésmiðj- unnar Aspar er Gunnar Haralds- son og yfirverkstjóri Þorbergur Bæringsson en stjórn hlutafélags- ins skipa: Bernt Sigurðsson, Ásgeir Gunnar Jónsson og Björgvin Þor- varðarson. -mhg Tónlist á hverfu heimili umjólin JANE FONDA — hrífandi saga litríkrar manneskju í mótlœti sem sigrum. Hún átti öröuga hemsku en hrást viö áföllum œsku- áranna af óhugandi lífsþrótti. Sem leik- kona stóö hún framan af í skugga fööur síns, Henry Fonda, en meö vaxandi reynslu hefur frcegö hennar og frami aukist meö hverri kvikmynd. Ung aö árum tók hún aö beita sér í stjórnmálum, tók hatramma af- stööu gegn Víetnamstríöinu og haföi nœrri fórnaö frama sínum sem leikkona fyrir lífs- skoöanir sínar. Jane Fonda — heillandi saga, heill- andi manneskju.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.