Þjóðviljinn - 29.05.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. maí 1984
Gar&ar Cortes tekur laglð fyrir þá Sigmar B. Hauksson formann stjórnar Llstahátíðar og Krlstinn Ragnarsson
arkitekt sem sér um skreytingar á Laugardalshöllinnl. Garðar verður seremóníumeistari og ætlar m.a. að láta
þann gamla draum slnn rætast að syngja nokkur dægurlög. ( baksýn er barinn í smíðum. Ljósm.: Loftur.
Stórdansleikur við opnun Listahátíðar:
Sinfónían leikur dægurlög
Listahátíð verður opnuð með
pomp og pragt á föstudagskvöld
með stórfenglegum dansleik í
Laugardalshöll. Sermónfumeistari
verður Garðar Cortes óperusöngv-
ari og sagði hann á blaðamanna-
fundi I gær að hann ætlaði að láta
„Við undirritaðir fslenskir rfkis-
borgarar skorum á sovésk
stjórnvöld að leysa nóbelsverð-
launahafann Andrei Sakharov og
eiginkonu hans, Yelenu Bonner, úr
einangrun f borginni Gorkhy og
veita þeim frelsi án tafar tU að leita
sér Iffs og lækninga á Vestur-
iöndum.“
Þannig hljóðar texti undirskrift-
askjals sem nú er hafin dreifing á í
Reykjavík og nágrenni. Að henni
stendur fimm manna undirbún-
ingsnefnd og sögðu tveir þeirra,
Ámi Sigfússon, framkvæmdastjóri
og Ólafur ísleifsson, hagfræðingur
í samtali við Þjóðviljann að þeir
hefðu hvarvetna hlotið góðar við-
tökur. Listamir em nú á leið út í
gamla ósk rætast og syngja dægur-
lög á dansleiknum við undirleik trí-
ós Magnúsar Ingimarssonar. Með-
al annarra skemmtiatriða verða
tvær svítur af vinsælum dægur-
lögum frá árunum 1964-1984 sem
Sinfóníuhljómsveit íslands Ieikur
ýmis fyrirtæki og stofnanir en einn-
ig gefst fólki kostur á að skrifa
undir við stórmarkaði í borginni
þegar nær dregur helgi.
I fréttatilkynningu sem nefndin
hefur sent frá sér em síðustu fregn-
ir af Sakharov-hjónunum raktar,
en 7. maí s.l. var Andrei Sakharov
fluttur af heimili sínu eftir að hafa
verið í 5 daga hungurverkfalli.
Vildi hann þannig undirstrika ósk
þeirra hjóna um brottfararleyfi
fyrir Yelenu frá Sovétríkjunum, en
hún þjáist af hjartasjúkdómi.
Heilsu þeirra hjóna hefur hrakað
mjög að undanfömu og er nú svo
komið að margir óttast um líf
þeirra.
en nemendur Tónlistarskólans hafa j
útsett. Verður þar allt frá Gvendi á
Eyrinni til Stórra stráka Bubba
Morthens.
Samkoman hefst með veitingum
klukkan 20 en kl. 21 verður gert hlé
á þeim og hefst þá samfelld dag-
skrá. Sinfóníuhljómsveitin leikur
þá hátíðarmars eftir Pál ísólfsson
en Ragnhildur Helgadóttir setur
Listahátíð. Auk þess sem fyrr er
nefnt koma fram tveir útlendir
hópar. Það em annars vegar Morse
Mime Theatre, látbragðslistamenn
sem hafa orðið geysivinsælir víða
um lönd fyrir kúnstir sínar og Bobs
Keer’s Whoopee Band sem segjast
vera þriðju skemmtilegustu menn-
irnir á Bretlandi og eru svolítið í stfl
við Spike Jones. Þá leikur Big
Band FÍH dixielandtónlist og ís-
lenski dansflokkurinn kemur fram.
Hann mun m.a. bjóða ýmsum
ráðamönnum þjóðarinar upp í
dans.
Á miðnætti hefst svo almennur
danleikur og mun danshljómsveit
Gunnars Þórðarsonar leika fyrir
dansi. Mikill viðbúnaður er í Höll-
inni og hefur Kristinn Ragnarsson
arkitekt umsjón með skreytingum.
Boðið verður upp á japanska rétt-
inn Sashimi og svo vínveitingar
sem verða við 40 metra langt borð.
Miðar á þessa miklu hátíð kosta
400 krónur og fást í Gimli, Vöru-
markaðnum á Seltjarnarnesi og
Miklagarði.
-GFr
Undirskriftasöfnun hafin:
Frelsið Sak-
harov-hjónin
Leikfélag Selfyssinga á alþjóðlegri
leiklistarhátíð á írlandi:
Selfyssingar slá í
gegn með Jörund
„Það er sannarlega hægt að segja
að Selfyssingar og Jörundur hafi
slegið í gegn hér á írlandi. Þakið
ætlaði bókstaflega að rifna af hús-
inu í gærkvöldi í fagnaðarlátunum,
þegar sýningunni lauk“, sagði Rún-
ar Ármann Arthúrsson, fréttaritari
Þjóðviljans þegar við náðum sam-
bandi við hann í gær í Dundalk á
írlandi, en þar tekur leikfélag Sel-
foss þátt í alþjóðlegri leiklistarhátíð
áhugaleikara. Eins og fram hefur
komið í fréttum leika Selfyssingar
verk Jónasar Árnasonar „Þið mun-
ið hann Jörund“ á ensku og nefnist
verið í þýðingu , Jokers and
Kings“. Verkið var leikið á Selfossi
í vetur en nú hafa allir Ieikendur
lagt það á sig að læra rullurnar
sínar á ensku, - einnig þeir sem
aldrei hafa lært ensku.
„Þau stóöu sig frábærlega vel og
nú er búið að panta þau til að troða
upp á laugardagskvöldið með
söngva úr verkinu. Það er óhætt að
segja að þetta sé glæsilegur loka-
þáttur á margvíslegum
skemmtunum í tilefni af sextugsaf-
mæli Jónasar og af því að í dag (28.
maí) lýkur 60. aldursári hans send-
um við öll hér á írlandi honum
bestu kveðjur og hamingjuóskir,“
sagði Rúnar ennfremur.
Níu leikrit verða sýnd á leiklist-
arhátíðinni frá ýmsum löndum, en
Fyrirlestur í Norræna:
Sigurgelr Hllmar í hlutverki Jörund-
ar hundadagakonungs ó æflngu
skömmu áður en lagt var af stað til
Dundalk ó (rlandi, sem heltlr reyndar
Dhun Dealgan ó gelisku.
þess má geta að Skjaldhamrar Jón-
asar voru sýndir þarna fyrir 6 árum
og tóku nokkrir íslenskir leikarar
þátt í þeirri sýningu. Einar Bene-
diktsson sendiherra íslendinga á
írlandi kom til Dundalk í tilefini af
frumsýningunni og var hann boð-
inn sérstaklega velkominn í upp-
hafi sýningarinnar. í lok hátíðar-
innar verður tilnefnd besta sýning
hátíðarinnar, en íslendingamir
koma svo heim 4. júní. Leikstjóri
sýningarinnar er Viðar Eggerts-
son. þs
Pétur M. Jónasson
um Þingvallavatn
í kvöld, þriðjudagínn 29. maí
heldur Pétur M. Jónasson, prófess-
or við V atnalíffræðideild
Kaupmannahafnarháskóla fyrir-
lestur í Norræna húsinu um hið sér-
stæða lífríki Þingvallavatns og um-
hvcrfi þess. Fyrirlesturinn hefst kl.
20.30 og mun Pétur sýna litskyggn-
ur máli sínu til skýringar.
Þjóðarhátíðarárið 1974 hóf Al-
þingi og Vatnalíffræðideild Hafn-
arháskóla með aðstoð HI rannsókn
á Þingvaliavatni og stendur hún
enn yfir. Pétur mun gera grein fyrir
því hvflfk gersemi vatnið og um-
hverfi þess er á alþjóðlegan mæli-
kvarða, en hann setti m.a. fram í
haust ákveðnar skoðanir á byggð
umhverfls vatnið, sumarbústöðum
og mengun frá þeim.
Fyrirlesturinn er opinn öllum
meðan húsrúm leyflr.
Þjóðviljinn ræðir við Hjörleif Guttormsson um álmálið
Alusuisse herðir að snörunni
Báðir aðilar eru fallnir á tíma en hvorum skyldi það vera í hag?
Rfldsstjórnin er ársgömul og jafniengi hafa staðið yfir samn-
ingaviðræður á vegum nýrra valdhafa við Alusuisse. Þann 25.
maí sl. lauk enn einum viðræðufundi samninganefndar rflds-
stjórnarinnar og Alusuisse í Zurich án niðurstöðu.
Af þessu tilefni sneri Þjóðviljinn sér til Hjörleifs Guttorms-
sonar og spurði hann álits á stöðunni í þessum samningavið-
ræðum.
„Ótrúlega
afrekið“
Stöðunni verður kannski best
lýst með því að minna á, að í sept-
ember 1983 gerði ríkisstjómin
svokallað bráðabirgðasamkomu-
lag við Alusuisse, sem gerði ráð
fyrir að „samningviðræður yrðu
leiddar til lykta fyrir 1. aprfl
1984“. Nú er komið tvo mánuði
fram yfir umsaminn lokadag og
ekkert bólar á samningum við
auðhringinn. Formaður íslensku
viðræðunefndarinnar, dr. Jó-
hannes Nordal, er hættur að
nefiia dagsetningar, þótt hinir ís-
lensku samninganefndarmenn-
imir Gunnar G. Schram og Guð-
mundur G. Þórarinsson lýstu
mikilli bjartsýni fyrir fundinn í
Zurich á dögunum.
Þann 23. júní n.k., 9 mánuðum
eftir undirskrift bráðabirgða-
samningsins sl. haust, getur Alus-
uisse samkvæmt ákvæðum hans
byrjað að hóta uppsögn á 3 mill
„viðbótinni“ á raforkuverðið,
sem þá var samið um og iðnaðar-
ráðherra kallaði ótrúlegt afrek.
Alusuisse getur sagt þessu „tíma-
bundna viðbótarálagi” upp með
þriggja mánaða fydrvara úr
þessu og gildir þá gamla verðið
6.5 mill óbreytt samkvæmt aðal-
samningum frá 1966 og 1975.
Það er þessi staða sem ég líkti -
við snöru um háls íslensku samn-
inganefndarinnar við gerð bráða-
birgðasamkomulagsins í sept-
ember, og vegna þess hve Alusu-
isse hefur tekist að draga þessar
viðræður á langinn getur
auðhringurinn nú farið að herða
á snörunni.
Hvar standa þeir menn sem
eiga slíkt yfir höfði sér og telja sig
hafa unnið afrek sem gagnaðilinn
getur notað gegn þeim hvenær
sem hann teiur sér það henta í
stöðunni? Ég býst við að Alusu-
isse beiti þessu vopni fyrst og
fremst að tjaldabaki í bráð á með-
an þeir leika sér að „vinum“ sín-
um í íslensku samninganefndinni
eins og köttur að mús. Alusuísse
hefur því miður margt fleira uppi
í erminni og sumt af því var
skjalfest og undirritað 23. sept-
ember sl.
Alusuisse
með umboð
Ég nefni sem dæmi, að varð-
andi raforkuverð til ísal er hvergi
í bráðabirgðasamningum minnst
á framleiflslukostnað raforku á
íslandi sem viðmiðun.
Þar er lýst gagnkvæmum áhuga
á því að stækka álverið í
Straumsvík „svo fljótt sem við
verður komið“ og iðnaðarráð-
heiTa þreytist ekki á því að ár-
setja þá stækkun 1987-88 (fyrri
hlutann sem kafiar á 600 gíga-
vattstunda orku eða mestalla
Blönduvirkjun) og nýlega bætti
hann svo við síðari hlutanum fast
og ákveðið 1990-91!
Ríkisstjómin hefur þegar sam-
þykkt fyrir sitt leyti að heimila
Alusuisse að framselja allt að
50% af hlutafj áreign sinni í ísal til
þriðja aðila, eins eða fleiri, og
þannig er auðhrihgurinn orðinn
umboflsaðili úti um heim fyrir ís-
lenskar orkulindir og aðstöðu
hérlendis. Það segir sína sögu um
þetta atriði, þar sem áskilið er
samþykkti Alþingis, að Sverrir
Hermannsson áræddi ekki að
sýna frumvarp þar að lútandi á
Alþingi sl. vetur, þótt að hann
hafi skuidbundið sig til þess
gagnvart Alusuisse að leggja það
fram strax í októbermánuði 1983.
Blekið var ekki þomað á undir-
skriftinni frá 23. september þegar
Alusuisse tók að safna hönk upp í
bakið á íslenskum ráðamönnum
fyrir að standa ekki við
samkomulagið!
„Aðilarnir munu leitast við að
ná endanlegu samkomulagi ekki
síðar en hinn 1. aprfl 1984“,
HJðrleifur Guttormsson: Hvar
standa þeir menn sem elga slikt
yfir höfðl sér og telja sig hafa unn-
Ið afrek sem gagnaðllinn getur
notað gegn þeim hvenær sem
henn telur sór henta í stöðunnl?
stendur þar, þannig að báðir eru
fallnir á tíma. En hvorum skyldi
sá dráttur vera í hag? Varla þarf
Alusuisse að kvarta sem hefur hér
samning um lægsta verð til álifln-
aðar sem um getur í Vestur-
Evrópu.