Þjóðviljinn - 29.05.1984, Síða 3
_________Þriðjudagur 29. maí 1984 ÍMÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Ármannsfell hf fœr góða lóð:
Páll Gíslason lœknir tók fyrstu skóflustunguna að þjónusturýml og tvelmur blokkum ofan á sem Ármannsfell
bygglr og selur öldruðum. Mynd -Loftur.
Söluíbúðir
fyrir aldna
Framkvœmdir við byggingu
tveggja blokka með sameiginlegu
þjónusturými fyrir aldraða á fyrstu
hæð eru hafnar við Bólstaðarhlíð í
Reykjavfk. Fyrsta skóflustungan
var tekin á föstudaginn. Ármanns-
fell hf byggir þarna 66 íbúðir og
selur þær en Samtök aldraðra
munu sjá um sölu og endursölu
íbúðanna. Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar sér um rekstur
þj ónustukjarnans.
Ármannsfell hf fékk þessa lóð
úthlutaða til að byggja íbúðimar á.
Stefán Hermannsson aðstoðar-
borgarverkfræðingur sagði Þjóð-
viljanum í gær að ekki hefði verið
auglýst formlega að lóðirnar væru
lausar til byggingaframkvæmda og
verktakar gætu fengið þarna verk-
efni. „í sjálfu sér gátu aðrir sótt um
þótt ekki hafi verið auglýst opin-
berlega. En það verður auglýstur
fundur þar sem þetta var kynnt og
Vorþing Kvennalistans um helgina
Hafnar aukinni stóriðiu
xr__■!„<!__L!_„laa _í __'£_£1_ K_/ n'l . ' /I 1 . Tr
Kvennalistinn hélt vorþing sitt
um helgina. Segir m.a. í ályktun
þingsins að réttarstaða heimavinn-
andi kvenna sé óviðunandi t.d.
hvað varði lífey risréttindi og trygg-
ingabætur. Framkvæmd þeirra
mála sýni I raun að húsmæður séu
lægra metnar en aðrir þegnar
landsins og sé það i hrópandi ósam-
ræmi við allan fagurgala um að
heimilið sé hornsteinn þjóðfélags-
ins.
í ályktuninni er ennfremur
minnt á að yfir 80% kvenna séu nú
starfandi utan heimilis. Því verði
að tryggja konum lengra fæðin-
garorlof og börnum nægilegt dag-
vistarrými og samfelldan skóladag.
Félagsleg vandamál spretti m.a. af
slæmum aðbúnaði fyrir fjölskyld-
una og fyrir utan mannlegar þján-
ingar þá kosti margfalt meira í
krónum talið að leyfa félagsleg
vandamál en að fyrirbyggja þau.
Síðan segir:
„í framhaldi af þessu mótmælir
Kvennalistinn harðlega því verð-
mætamati og þeirri skammsýni sem
endurspeglast í ákvörðunum ráða-
manna um skiptingu sameiginlegra
fjármuna. Má þar t.d. minna á ný-
legan niðurskurð á þjónustu fyrir
aldraða, þátttöku ríkisins í
tannlæknakostnaði, framlagi til
skólamála og heilbrigðisþjónustu
og ónóg framlög til fyrirbyggjandi
aðgerða í fíkniefnamálum. Þess í
stað er fjármunum ausið í óarðbær-
ar fjárfestingar, eins og flugstöð og
bankahallir og tekjustofnar ríkisins
skertir t.d. með því að lækka gjöld
á bönkum og öðrum viðskiptast-
ofnunum. Á þetta hefur Kvenna-
listinn margoft bent“.
Vorþing Kvennalistans 25.-28. maí fagnar friðarfrumkvæði í fjórum
heimsálfum sem nú hefur komið fram og sex þjóðarleiðtogar eru
talsmenn fyrir. Kvennalistinn lýsir stuðningi við þau atriði sem þeir
leggja til grundvallar í tillögum sínum til stórveldanna til að stöðva
vígbúnað og hefja afvopnun.
Við hvetjum friðarhópa til að styðja þessar tillögur og skorum á
íslensk stjórnvöld að taka eindregna afstöðu með afvopnun og gegn
hernaðarumsvifum bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi.
Síðar í ályktun vorþings Kvenna-
listans segir m.a. að Kvennaiistinn
leggi áherslu á stóraukna uppbygg-
ingu íslensks atvinnulífs og aukna
fjölbreytni í íslensku efnahagslífi.
Kvennalistinn, einn íslenskra
stjórnmálaafla hafni aukinni stór-
iðjuuppbyggingu því stóriðja sé
gamaldags og úreltur atvinnu- og
framleiðslukostur. Hún sé einnig
fjárhagslega óarðbær og kalli á
aukin ítök erlendra aðila í íslensku
efnahagslífi. Hún sé mengandi og
hafi hlutfailslega upp á ákaflega fá
og dýr störf að bjóða. Á undan-
förnum árum hafi verið farið of
hratt í virkjanaframkvæmdir vegna
stóriðju og sé þar að finna eina
meginorsök erlendrar skuldas-
öfnunar.
í stað stóriðjufram-
kvæmda vilji Kvennalistinn að ís-
lensk atvinnuuppbygging nýti okk-
ar eigin hugvit og þekkingu og helst
okkar eigið hráefni líka. Á þann
hátt telji Kvennalistinn atvinnulífi
landsmanna best borgið.
Fyrsta Alþýðubandalagsfélagið á erlendri grund:
Alþýðubandalagið í Lundi
Viljum leggja stefnuskrárumrœðunni lið, segir
Ingi Rúnar Eðvarðsson.
„Sósíalistar hafa veríð dreifðir
og ekki getað nýtt krafta sína þarna
og með breytingunum á flokkslög-
unum í haust sáum við vettvang til
þess. Það var hvatinn að þessu fé-
lagi, segir Ingi Rúnar Eðvarðsson,
félagsfræðinemi í Lundi í Svíþjóð.
í byrjun maí var stofnað þar Al-
þýðubandalag og eru félagar nú 10
að sögn Inga Rúnars, en fleiri á
leiðinni. Þetta er fyrsta AB-félagið
á erlendri grund, svo vitað sé.
„Þetta eru að megninu til náms-
menn og við munum hefja félags-
starf af alvöru í haust“, sagði Ingi
Rúnar. „Tilgangurinn með fé-
laginu er að endurskoða markmið
og leiðir við að koma á sósíalísku
þjóðskipulagi á íslandi. Ætlunin er
að tengja þau fræði sem menn eru
Starf fyrir aldraða í Hallgrímssókn:
Dagsferð í Bláa lónið
Á fimmtudaginn kemur, upp-
stigningardag, sem er dagur aldr-
aðra, gengst Hallgrímssókn fyrir
heimsókn í Bláa lónið og eru allir
eillilffeyrisþegar f sókninni vel-
komnir.
Farið verður kl. 14 frá Hall-
grímskirkju og drukkið kaffi í Bláa
lóninu. Safnaðarsystir tekur við
pöntunum í síma 10745 í dag,
þriðjudag.
að læra inn í umræðuna og einnig
hefur verið talað um að fjalla um
menntamálin í víðara samhengi“.
- Hvað með tengslin við Stóra-
Flokksa, eins og AB er oft kallað?
„Við höfum sótt um aðild að Al-
þýðubandalaginu og ég veit ekki
betur en við fáum viðurkenningu
þar sem sérstök flokksdeild. Það
þýðir að við fáum aðstöðu til að
fylgjast betur með í íslenskri pólitík
og sáum okkur leik á borði að
leggja stefnuskrárumræðunni lið.
Við erum ekki í stakk búin til að
fjalla um dægurmálin hér heima,
en ætlum að taka fullan þátt í stefn-
uskrárumræðunni og vonandi hafa
,þar nokkur áhrif“.
- Hvernig hefur þetta mælst fyrir
meðal íslendinga í Lundi?
„Mönnum finnst hugmyndin
góð, en ýmsir eru hræddir um að
þama sé verið að stofna nýja kosn-
ingamaskínu fyrir Alþýðubanda-
lagið, en það er langt í frá. Fæstir
félagsmanna hafa verið í Alþýðu-
Ingl Rúnar Eðvarðsson.
bandalaginu, heldur talist vinstra
megin við það. Menn þurfa ekki að
ganga í AB til þess að vera með í
hópnum og taka þátt í umræðunni.
Hún er öllum opin“.
-ÁI
Verktakasambandið var látið vita
af honum“.
Framkvæmdanefnd stofnana í
þágu aldraða hefur séð um undir-
búninginn. Stefán Hermannsson
sagði þennan samning þríhliða:
„Samtök aldraðra sér um sölu og
endursölu, Ármannsfell byggir og
Reykjavíkurborg sér um þjónust-
ukjamann“. Áætlað er að lokið
verði við bygginguna í árslok 1985.
-jP
Þorsteinn Þorstelnsson.
Ótelj-
andi
verkefni
segir Þorsteinn
Þorsteinsson
nýkjörinn forseti
Skáksambandsins
„Það eru ótefjandi verkefni sem
við okkur blasa en alveg númer eitt
er að koma skikk á fjármálin“,
sagði Þorsteinn Þorsteinsson, sem
um helgina var kjörinn forseti
Skáksambands íslands, þegar
Þjóðviljinn ræddi við hann f gær.
Þorsteinn sagði að Skáksam-
bandið ætlaði að halda útiskákmót
á Lækjartorgi í næsta mánuði og ef
það gengi vel væri fyrirhugað að
halda fleiri slík mót og afla þannig
fjár fyrir sambandi.
Varðandi skákina sjálfa sagði
Þorsteinn að við blasti landskeppni
við Bandaríkin í bama- og ung-
lingaflokkum 14 til 22. júlí nk. sem
fram fer í New York. Þar er um að
ræða böm og unglinga á aldrinum 8
til 16 ára. Um þetta munu Skák-
sambandið og TR sjá í sameiningu.
Þá kemur Heimsmeistarakeppni
unglinga sem fram fer í Finnlandi í
sumar og þangað er ákveðið að
senda einn keppenda, sennilega
Karl Þorsteins.
Þann 1. sept. nk. hefst svo ís-
landsmótið í landsliðsflokki, en
það var fært fram á haustið, sem
upphitunarmót fyrir íslenska
landsliðið, sem mun keppa á Ól-
ympíumótinu í Grikklandi dagana
18. nóv. til 5. des. nk.
Þetta em stærstu verkefni þessa
árs og eins og á þessari upptalningu
sést verður nóg að gera fyrir stjóm
SÍ en auk Þorsteins em í stjóminni
Þórarinn Guðmundsson, Ámi
Björn Jónasson, Jón Rögnvalds-
son, Ólafur Ásgeirsson, Guðbjart-
ur Guðmundsson og Leifur Jó-
steinsson.
-S.dór.