Þjóðviljinn - 29.05.1984, Page 5
Þriðjudagur 29. mal 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Minning
Ólafur Jóhannesson
Á kveðjustund verða aðrir til
þess að rekja æviatriði Ólafs Jó-
hannessonar, langan lærdómsferil
og afskipti hans af stjórnmálum í
heild. Þess vegna verður hér aðeins
staðnæmst við fáein atriði.
íslenskir sósíalistar hafa átt full-
trúa í fimm ríkisstjórnum frá stofn-
un lýðveldis og frá stofnun Sósía-
listaflokksins og Alþýðubanda-
lagsins: Fyrst í nýsköpunarstjóm-
inni undir forystu Ólafs Thors, þá í
vinstristjóminni 1956-1958 undir
forystu Hermanns Jónassonar; í
'vinstristjórninni 1971-1974 undir
forystu Ólafs Jóhannessonar, þá í
ríkisstjóminni 1978-1979, aftur
undir forystu Ólafs og loks í ríkis-
stjórn Gunnars Thoroddsen 1980-
1983.
Það væri fróðlegt að taka saman
ritgerð um það sem var þessum
stjórnum sameiginlegt og hvað það
var sem skildi þær að. Sameigin-
legu þættimir em þó fróðlegastir,
ekki síst vegna þess að stamstarfs-
aðilarnir voru mismunandi skoð-
unar um gmndvallaratriði þjóð-
mála og kannski liggur fátt í augum
uppi sem sameinar þessar stjómir.
Með því að rekja þessa sameigin-
legu þætti má hins vegar glöggt sjá
hvernig sósíalistar beittu áhrifum
sínum í þessum fjómm ríkisstjórn-
um þó þær væm hver með sínum
hætti og þó að verkefnin væru æði
ólík og vinnuaðstaða mjög mis-
munandi.
Ríkisstjómin 1971 fylgdi þeirri
grundvailarstefnu að auka verð-
mætasköpun þjóðarbúsins með út-
færslu landhelginnar og átaki alls
staðar í atvinnumálum. Jafnframt
var það stefna stjómarinnar að
tryggja launafólki fullan hlut
þeirrar verðmætaaukningar sem þá
varð til. Þá batnaði kaupmáttur
launa um 20% og margvíslegar fé-
lagslegar ráðstafanir vörðuðu
leiðina í átt til aukins jafnréttis í
samfélaginu.
Ríkisstjórninni 1974-1978 tókst
ekki að eyðileggja þessar niður-
stöður vegna þess að verkalýðs-
hreyfingin veitti henni öflugt að-
hald. Þegar kosningarnar 1978
vom um garð gengnar hlaut það að
koma í hlut Alþýðubandalagsins
og Alþýðuflokksins að skipa full-
trúa í ríkisstjórn. Ólafur Jóhannes-
son nefndi þá þann möguleika op-
inberlega að þessir tveir flokkar
mynduðu minnihlutastjóm. Það
leist okkur flestum illa á, en ég
hygg að sú niðurstaða hafi verið
mistök. Þá átti að láta reyna á
myndun slíkrar samstjórnar og
taka boði Ólafs Jóhannessonar.
Það var ekki gert, en í staðinn
mynduð ríkisstjórn þessara tveggja
flokka undir forystu Ólafs. Sú
stjórn stóð aðeins skamma stund
og um hana léku sviptivindar. Hún
hafði það meginverkefni að vernda
kjörin eins og um þau hafði verið
samið 1977 og 1978. Það gerði hún
að öðm leyti en því að sett vom lög
í mars 1979 sem skertu verðbætur á
laun á þriggja mánaða fresti, Ólafs-
lög vom þau og eru nefnd.
Ríkisstjómin 1980-1983 hafði
einnig það verkefni að halda utan
um kjörin og það tókst í megin-
atriðum þrátt fyrir vemlegt fall
þjóðartekna, minnkandi þjóðar-
framleiðslu og mikla verðbólgu.
Það má því segja að á fyrri hluta
þessa tímabils - eftir 1970 - hafi
verið lagður gmndvöllur að vel-
ferðarþjóðfélagi betri lífskjara
með aukinni framleiðslu og bætt-
um hlut launamanna í þjóðarfram-
leiðslunni. Á síðari hluta þessa
tímabils beitti Alþýðubandalagið
sér fyrir því að verja þennan hlut.
Það tókst þar til ríkisstjóm Stein-
gríms Hermannssonar var mynd-
uð.
Þær tvær stjórnir sem vom undir
forystu Ólafs Jóhannessonar vom
umdeildar og afturhaldið gerði út
allan áróðursflota sinn til þess að
Fœddurl. mars 1913 — Dáinn 20. maíl984
granda þessum stjórnum. Enda fór
svo undir lokin að þær liðuðust í
sundur vegna átaka innan þeirra.
Fyrst, vorið 1974, vom það Samtök
frjálslyndra og vinstri manna sem
bmgðust stjóminni - nema Magn-
ús Torfi - og þar með hafði stjórnin
misst meirihluta sinn. Aiþýðu-
bandalagið stóð að ákvörðun um
þingrof í framhaldi af því.
Síðan var það Alþýðuflokkurinn
sem rauf stjórnina 1979. Enn hélt
Alþýðubandalagið þátttöku sinni í
stjórninni til síðustu stundar.
Þannig urðum við samferða við
stjórnarslitin Alþýðubandalagið
og Framsóknarflokkurinn þó
mikið beri nú á milli þessara
flokka. Mætti mörgum verða það
nokkurt umhugsunarefni hvað hafi
breyst síðan sem skilur þessa
flokka að með afgerandi hætti.
Ég ætla að minnast hér á fáein
atvik úr samskiptum okkar Ólafs
sem ég tel vert að halda til haga nú
á kveðjustund.
Fyrst deiluna um Ólafslög. Ekki
dettur mér í hug að draga fjöður
yfir það að þá var ég mjög ósáttur
við vinnubrögð Ólafs Jóhannes-
sonar. Þrátt fyrir harðar deilur op-
inberlega tókst að ná saman um
þessi lög að síðustu. Við Hjörleifur
lögðum þá fyrir forsætisráðherrann
tillögur um breytingar á frumvarp-
inu í einstökum atriðum. Þeim til-
lögum tók Ólafur mjög vel og þær
urðu síðan sá samkomulagsgrund-
völlur sem bjargaði stjórninni í bili.
Hins vegar verður að segja
hverja sögu eins og hún gekk: Eftir
lotuna um lögin var stjómin lítt
starfhæf og henni tókst ekki að ná
tökum á verkefnum sínum þegar
olíukreppan mikla skall yfir sem
tvöfaldaði innflutningsverð á olíu.
I síðustu ríkisstjórn deildum við
Ólafur oft hart um utanríkismál.
Hann virti hins vegar það sam-
komulag sem gert var milli stjórn-
arflokkanna að því er varðaði
meiriháttar framkvæmdir í her-
stöðinni. Þess vegna var ekki byrj-
að á flugstöðvarbyggingunni í tíð
þeirrar ríkisstjórnar. Þá leyfði
Ólafur ekki undirbúning fram-
kvæmda í Helguvík fyrr en eftir að
stjórnin hafði sagt af sér. Vegna
mótmæla okkar við byggingu nýrra
flugskýla voru þær framkvæmdir
ekki settar af stað eins og áformað
hafði verið.
Ég þekkti Ólaf ekkert áður en
við lentum í sömu ríkisstjórninni
haustið 1978. Þess vegna lagði ég
mig fram um að samningar okkar í
milli væru skýrir og ótvíræðir þann-
ig að ekkert færi á milli mála. Þeir
samningar héldu. Við fráfall
stjórnmálamanns hygg ég að slíkt
séu kannski betri eftirmæli en flest
annað.
Ólafur Jóhannesson var svo
virkur þátttakandi í íslenskum
stjórnmálum ailt til dauðadags að
daginn áður en hann dó voru orð
hans og gjörðir til umræðu á Al-
þingi Islendinga vegna umræðna
um skýrslu utanríkisráðherra. Þess
vegna brá okkur svo í brún þegar
tilkynnt var á sunnudagsmorgni að
hann væri fallinn.
Við hjónin kynntumst Dóru
Guðbjartsdóttur konu Ólafs á
þessum árum sem við Ólafur áttum
saman súrt og sætt. Það var gott að
kynnast Dóru. Hún var og er
traust, heilsteypt. Hún hefur sínar
skoðanir á mönnum og málefnum
og lætur fátt hagga sér. Dóra er
stjórnmálamaður sem hefur vafa-
laust haft mikil áhrif á liðnum
árum, meiri en flestir geta gert sér í
hugarlund.
Ég votta Dóru og dætrum þeirra,
tengdasyni og barnabörnum, okk-
ar samúð nú þegar Ólafur Jóhann-
esson er borinn til grafar.
Svavar Gestsson
Ólafur Jóhannesson alþingis-
maður og fyrrverandi forsætisráð-
herra andaðist aðfaranótt sunnu-
dagsins 20. maí sl.. Útför hans er
gerð í dag. Með Ólafi Jóhannessyni
er fallinn frá einn aðsópsmesti og
litríkasti stjómmálaforingi síðari
áratuga.
Ólafur Jóhannesson var Fljóta-
maður, fæddur 1. mars 1913 að
Stóra Holti í Fljótum. Foreldrar
hans vora Jóhannes Friðbjarnar-
son bóndi þar og kennari og Krist-
rún Jónsdóttir kona hans. Ólafur
gekk menntaveginn, lauk stúdents-
prófi frá MA og lögfræðiprófi frá
Háskóla íslands 1939. Eftir að hafa
stundað málflutning og framhalds-
nám um skeið í Stokkhólmi og
Kaupmannahöfn var hann skipað-
ur prófessor í lögum við Háskóla
íslands 1947 og gegndi því embætti
í 24 ár eða þar til hann varð forsæt-
isráðherra 1971.
Ólafur Jóhannesson var virtur
og vel metinn sem háskólakennari,
jafnt af nemendum sem samstarfs-
mönnum. Sérgrein hans var
stjórnarfars- og stjórnskipunar-
réttur og um þau efni skrifaði hann
vönduð fræðirit, sem út komu 1955
og 1960.
Ólafur gekk undur til liðs yið
Framsóknarflokkinn og var
snemma valinn til margháttaðra
trúnaðarstarfa. í kosningunum
1956 var hann valinn í annað sæti á
lista framsóknarmanna í Skaga-
firði, næstur á eftir Steingrími
Steinþórssyni, fyrrv. forsætisráð-
herra og varð þá varamaður hans á
þingi. I kosningunum 1959 tók
hann sæti Steingríms, sem þá lét af
þingmennsku, og var síðan þing-
maður Skagfirðinga og Norður-
lands vestra í tvo áratugi.
Ég kynntist Ólafi Jóhannessyni
fyrst í kosningunum 1963 og áttum
við síðan mikil samskipti sem mót-
frambjóðendur og þingmennn úr
sama kjördæmi og lengi sem for-
menn flokka okkar og samráðherr-
ar. En hann var líka kennari minn í
háskóla fyrstu fjögur árin, sem ég
sat á þingi.
Ólafur var fremur dulur maður.
Hann var sóknharður andstæðing-
ur, þegar hann vildi það við hafa,
sem ekki var oft. Hann var ávallt
rökfastur í málflutningi. Persónu-
leg áreitni var honum víðs fjarri.
En þegar á reyndi duldist engum,
að hann var skapmaður mikill.
Glettni var honum eðlislæg og
vafalaust er það einmitt hinn hýri
svipur, þetta óræða bros sem þjóð-
in þekkti svo vel og festist betur en
flest annað í minni manna um
þennan trausta og sterka
stjórnmálamann.
Á sjötta áratugnum stóð afar tví-
sýn barátta milli Framsóknar-
flokksins og okkar alþýðubanda-
lagsmanna um fimmta þingsætið á
Norðurlandi vestra. Framan af
höfðu framsóknarmenn sigur með
fárra atkvæða mun en 1971 létu
þeir undan síga og hafa síðan feng-
ið tvo þingmenn í stað þriggja
áður. Þetta er rifjað upp til vitnis
um, að marga hildi háðum við, en
þó minnist ég þess ekki, að per-
sónulegt styggðaryrði félli okkar í
milli á þessum ótalmörgu fram-
boðsfundum í tuttugu ár.
Þegar meiri hluti Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokks féll í kosningunum
1971 var Ólafi Jóhannessyni falin
stjómarmyndun, Enginn skyldi
ætla, að myndun þessarar stjómar,
sem markaði mikil tímamót, hafi
komið eins og af sjálfu sér. Við
vorum heldur svartsýnir fyrstu vik-
umar, enda vom Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna tvístígandi
lengi vel. Þarna reyndi í fyrsta sinn
á Olaf sem stjórnmálaleiðtoga, en
honum tókst með þrautseigju og
nokkram klókindum að sameina
sundurleit öfl - með góðra manna
hjálp.
Það er söguleg staðreynd, að
Ólafur átti mikinn þátt í því, að
ákveðið var í stjórnarsáttmála að
vísa bandaríska hemum af landi
brott í áföngum. Hins vegar var
flokkur hans þverklofinn í þessu
máli og stjórnarandstaðan mjög
grimm á móti. Sömu dagana og
undirskriftasöfnun Varins lands
lauk, tókst samkomulag í ríkis-
stjórninni um framkvæmd þessa
stefnumiðs. En deilur um efna-
hagsmál sprengdu stjórnina fáum
vikum síðar.
Ég met það mjög við Ólaf, að
hann átti mikla samleið með okkur
vinstrimönnum og átti það oft til að
taka róttæka afstöðu til mála. Eng-
inn íslenskur forsætisráðherra hef-
ur messað af slíkum krafti yfir
sendinefnd frá NATÓ eins og
Framhald á bls. 6