Þjóðviljinn - 29.05.1984, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. maí 1984
Minning
Ólafur
Framhald af bls. 5
Ólafur gerði í landhelgisdeilunni
1973.
Vissulega urðum við Alþýðu-
bandalagsmenn fyrir vonbrigðum
með afstöðu Ólafs á síðari árum.
Sjáifsagt voru það gagnkvæm von-
brigði. En okkur sem hugleiðum
stjórnmál er mikil nauðsyn að meta
litbrigði lífsins í réttu ljósi og forð-
ast ofnotkun á svörtu og hvítu.
Utanríkisráðherrar íslands á
NATÓ-tímum hafa verið okkur
vinstri mönnum lítt að skapi, en
þrátt fyrir allt voru Einar Ágústs-
son og Ólafur Jóhannesson betri
samnefnarar þjóðarinnar en aðrir
sem þeirri stöðu hafa gegnt.
Þegar stjórnarmyndunartil-
raunir strönduðu sumarið 1974,
fyrst og fremst á ágreiningi fram-
sóknarmanna og Alþýðuflokks,
venti Ólafur kvæði sínu í kross og
myndaði stjórn Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks, en afhenti Geir
Fiallgrímssyni stjórnartauma á
lokastigi stjórnarmyndurnar.
Sennilega voru þetta mestu mistök
Ólafs sem stjórnmálamanns, enda
fékk hann sannarlega að kenna á
því í kosningunum 1978.
Að þeim loknum héldu margir,
að nú væri stjórnmálaferli hans
lokið, en það var nú eitthvað ann-
að. Að vísu var það ekki fyrst og
fremst hans verk, að ný vinstri-
stjórn var mynduð 1. september
1978 undir forystu hans. Svo að
öllu sé réttilega til skila haldið, var
það Benedikt Gröndal sem ruddi
brautina en síðan tók Lúðvík Jós-
epsson við. Flokkarnir þrír voru
búnir að gefa sér sex vikur í þref sín
í milli og þá ekki síður innanflokks,
þegar fyrir lá að Lúðvík Jósepsson
gat myndað meiri hluta stjórn
þriggja flokka. En hann fékk það
ekki vegna þess, hver hann var og
úr hvaða flokki hann kom. Þetta er
eitt af stjórnmálahneykslum síðari
tíma og varpar skugga á íslenska
þingræðishefð.
Kristján Eldjárn, þriðji forseti
lýðveldisins, tók upþ þá sjálfsögðu
reglu að gefa öllum formönnum
flokka kost á að reyna stjórnar-
myndun, enda höfðu allir flokk-
arnir fjórir meira en fimmtug at-
kvæðamagns 1978. Þar af var Al-
þýðubandalagið næststærst og Al-
þýðuflokkurinn þriðji stærstur en
Framsóknarflokkurinn minnstur.
Þegar rætt var um Lúðvík Jós-
epsson sem forsætisráðherra fékk
margur NATÓ-maðurinn verk
fyrir brjóstið. Ólafur Jóhannesson
mat hins vegar málið á annan veg
út frá sjórnarmiðum lýðræðis og
drengskapar og mælti með því, að
Alþýðubandalagsmaður gegndi
stjórnarforystu, þrátt fyrir mikla
taugaveiklun í höfuðstöðvum
NATÓ og útibúum þess hér á
landi.
Þegar aðrir höfðu sett fótinn
fyrir Lúðvík Jósepsson sem forsæt-
isráðherra féll það í hlut Ólafs að
mynda stjómina og gekk það upp á
fáum dögum.
í þessari stjóm urðu býsna harð-
ar sviptingar milli allra stjórnar-
aðila, og rangt væri frá sagt, ef því
væri haldið fram, að ekki hefðu
fallið ýmis skot, ekki síst milli okk-
ar Ólafs. Þegar á reyndi varð þessi
stjórn skammlíf.
En staðreyndin var þó sú, að for-
ysta Ólafs í þessari stjórn lyfti hon-
um hærra á vinsældahimininn með-
al almennings en nokkm sinni fyrr,
vegna þess að hann var álitinn sátt-
asemjarinn mikli í íslenskum
stjórnmálum. Að mínu áliti var
það á nokkmm misskilningi byggt,
en hitt var óumdeilt, að hann var
eins og enskurinn segir „the grand
old man“.
Fara verður aftur til seinustu
æviára Ólafs Thors til að finna
mann sem öðlaðist svo almenna og
gífurlega tiltrú og Ólafur Jóhann-
esson náði á ámnum upp úr 1979.
Maður hins mesta ósigurs 1978
stóð allt í einu sem sigurvegarinn
mikli 1979, ekki síst í krafti hins
sterka persónuleika síns.
í kosningunum 1978 hafði
Ólafur ákveðið að fara ekki aftur í
framboð til þings, enda þá orðinn
65 ára. En fyrir kosningamar 1979
gerðist það sem ekki á sér fordæmi
í íslenskum stjórnmálum, að hann
var beðinn af flokksforystunni í
Reykjavík að vera þar í farar-
broddi í kosningunum 1979. Ólafur
lét til leiðast. Far með varð það
hlutskipti hans að berjast af fullum
krafti fyrir flokk sinn fram til
seinustu stundar á því landssvæði,
þar sem flokkurinn hefur mest átt
undir högg að sækja.
Ólafur var djarfur baráttumað-
ur. Það var einmitt einkenni hans
að taka óvæntar ákvarðanir, þegar
honum fannst þörf á. Hann var
þéttur á velli og þéttur í lund.
Að leiðarlokum votta ég konu
hans Dóru Guðbjartsdóttur og
dætmm hans djúpa samúð okkar
hjóna.
Ragnar Arnalds
Svipmyndir
úr lífi Ólafs
Jóhannessonar
Fyrrl ríklsstjórn undlr forsœtl Ólafs Jóhannessonar, vinstrl stjórnln 1971-1974 tekur vió.
í ræ&ustól á alþingl.
Sí&ari rlklsstjórn Ólafs Jóhannessonar, vlnstrl stjórnln 1978-1979.
Ólafur Jóhannesson kemur tll fundar a& Bessastö&um.