Þjóðviljinn - 29.05.1984, Page 9
Þrigjudagur 29. mai 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Flskvlnnsluskóllnn starfar I lelguhúsnœ&l á 3 stöðum í Hafnarflr&i og elnnlg er kennt I Reykjavfk.
Húsnæðisleysi
að verða stórt
vandamál
Fiskvinnsluskólinn býr
við óviðunandi aðstæður
Undanfarin 10 ár hefur Fisk-
vinnsluskólinn í Hafnarfirði út-
skrifað nemendur sem í aukn-
um mæli hafa tekið að sér
stjórnunar- og eftirlitsstörf í
fiskiðnaðinum. Auk þess hafa
hundruð manna sótt ýmis nám-
skeið skólans í fiskmati og öðr-
um fiskvinnslugreinum og nú
hefur hann einnig tekið að sér
fræðslu fyrir nemendur Stýri-
mannaskólans í Reykjavík um
meðferð sjávarafla.
Fyrstu nemendumir frá skólan-
um sem fóru til starfa við fiskiðnað-
inn fengu sumir nokkuð misjafnar
móttökur. Fólk hélt að nú væm
komnir einhverjir menntaðir spek-
ingar sem ætluðu að ryðja til hliðar
þeim reyndu og duglegu verk-
stjóram sem fyrir voru við fiski-
ðnaðinn. Þessi tortryggni hvarf þó
fljótlega þegar í ljós kom að þetta
unga fólk var fúst til að starfa við
minna? Það getur verið vandasamt
að taka ákvörðun ef engar frekari
skýringar liggja fyrir, sérstaklega
þar sem matsmaðurinn verður að
huga að mörgum atriðum í einu hjá
sama fiskinum. Matsmaðurinn get-
ur því oft verið óákveðinn og
niðurstöðurnar tilvilj unarkenndar.
Það er því ljóst að ferskfiskmat eins
og það hefur verið hér framkvæmt í
aldarfjórðung er langt í frá að vera
einfalt í framkvæmd. Ef vel á að
takast þarf matsmaðurinn að vera í
stöðugri þjálfun og hann þarf að
geta samræmt sín vinnubrögð við
aðra matsmenn. Annars er hætta á
að niðurstöður hans breytist smátt
og smátt í aðra hvora áttina, án
þess að hann geri sér það ljóst.
Óhjákvæmilegt
að breyta
um vinnubrögð
Byrjað var á að safna nauðsyn-
legum upplýsingum. Síðan var
unnið ítarlega úr þeim og mótuðust
þá hugmyndir um breyttar aðferðir
við ferskfiskmat, sem ættu að gefa
nákvæmari niðurstöður. í ljós kom
að það vora aðallega fjögur atriði
sem skiptu meginmáli, lykt af fisk-
vöðvunum, los, blóð í þunnildum
og litur vöðvans. Þessi fjögur atriði
eru nánast óháð hverju öðra og
þarf að athuga þau öll, sér í lagi, til
að fá sem gleggsta mynd af
heildargæðunum. Gerð var einföld
lýsing fyrir hvert atriði, þannig að
unnt var að gefa einkunn eða
punkta eftir skemmdareinkenni.
Ljóst var að ekki væri hægt að
hlið hinna eldri og læra meira af
þeirra reynslu, jafnframt því sem
þeir miðluðu til þeirra sitthverju af
sínum fræðum úr skólanum. Brátt
myndaðist því gagnkvæmt traust
og ágætis samvinna.
Nú munu vera starfandi í fiskiðn-
aðinum eða í tengslum við hann um
160 útskrifaðir fiskiðnaðarmenn,
eða um 90% af því fólki sem
skólinn hefur útskrifað og má það
teljast með eindæmum hátt hlut-
fall. Flest þeirra starfa sem verk-
stjórar, en nokkur starfa við ýmis
stjórnunar- og rannsóknarstörf og
einnig við eftirlits- og matstörf.
Á síðasta áratug hafa miklar
breytingar orðið á vinnuháttum við
fískiðnaðinn, sérstaklega þó í fryst-
ihúsunum. Aukin áhersla hefur
verið lögð á hagræðingu og nýtingu
aflans og nú er mun betur fylgst
með öllum þáttum vinnslunnar en
áður fyrr. Auknar kröfur era nú
gerðar um gæði íslenskra sjávaraf-
urða. Þessum kröfum verður að
taka upp þetta punktakerfi nema
því aðeins að allir starfandi fersk-
fiskmatsmenn sæktu námskeið,
þar sem aðferðir þar að lútandi
væru kenndar. Fiskvinnsluskólinn í
Hafnarfirði stóð því fyrir slíkum
námskeiðum í vetur í samráði við
Framleiðslueftirlitið. Góður ár-
angur náðist og þátttakendur tóku
þessari nýju aðferð mjög vel. Til-
raunamat hefur síðan stöðugt farið
fram og mun verða haldið áfram.
Reynslan af
tilraununum
lofar góður
Reynslan af tilraunum frystihúss
KEA á Dalvík og hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur er enn ekki fullkom-
lega ljós, en það sem komið er lofar
góðu. Starfsfólk virðist mjög ánægt
og hefur sýnt málinu mikinn
áhuga. Einnig hefur verið allgóð
samvinna milli þessarra tveggja að-
ila sem að tilraununum standa og
hafa verkalýðsfélög og samtök
vinnuveitenda lagt þessu máli lið.
Þess má að lokum geta að nú í
maí hefur staðið yfir endur-
menntunarnámskeið fyrir fiskiðn-
aðarmenn og verkstjóra í frystihús-
um. Fjallaði fyrri helmingur nám-
skeiðsins um rafeindabúnað og
tölvuvinnslu fyrir frystihús og
síðari helmingur m.a. um gæða-
bónus og fiskmat eftir hinu nýja
punktakerfi, einnig era þar
kynntar nýjustu fiskvinnsluvélarn-
ar og hefur þáttaka á námskeiðinu
verið mjög góð.
ss
sinna með öllum tiltækum ráðum.
Fræðsla og þjálfun vega þar mikið.
Skólinn hefur ávallt lagt mikla
áherslu á gæðaþáttinn. í því sam-
bandi starfrækir hann margs konar
námskeið t.d. í fiskmati og eftirliti
fyrir ýmsa starfshópa í fiskiðnaðin-
um. Á síðasta skólaári sóttu um
300 manns námskeið skólans, en
sum þeirra vora haldin úti á lands-
byggðinni. Fer því varla á milli
mála að þýðing skólans er mikil
fyrir fiskiðnaðinn.
Erfitt er þó orðið að sinna þess-
um fræðslustörfum svo vel sé,
vegna ónógrar aðstöðu og
þrengsla, og ekki komast allir í
skólann sem sækja um, því aðeins
er hægt að taka á móti um 20 ne-
mendum svo vel sé, en þeir þyrftu
að vera tvöfalt fleiri, ef fullnægja
ætti eftirspurn. Skólinn starfar nú í
leiguhúsnæði á þrem stöðum í
Hafnarfirði og einnig fer kennsla
fram í Reykjavík. Þrengsli eru
mjög mikil og kennsluaðstaða
óhentug. Um aukningu og meiri
fjölbreytni í skólastarfinu er ekki
um að ræða fyrr en húsakostur fyrir
verklega kennslu hefur verið bætt-
ur.
í tvö ár í röð hafði Alþingi veitt
fé til byggingaframkvæmda á nýju
kennsluhúsnæði fyrir skólann.
Teikningar af verknámshúsi í
Hafnarfirði lágu fyrir síðast Iiðið
vor og enn fremur útboðsgögn.
Aðeins átti eftir að auglýsa eftir
tilboðum í verkið en grænt ljós hef-
ur ekki verið gefið í þeim efnum. í
fjárlagaframvarpinu s.l. haust var
ekki að finna staf um stofnkostnað
handa Fiskvinnsluskólanum.
Helstu samtök og stofnanir fiski-
ðnaðarins hvöttu þá fjárveitingar-
nefnd Alþingis til að leggja nægj-
anlegt fé til byggingar verknáms-
hússins, svo hægt yrði að gera það
fokhelt. Voru þá samþykktar 10
milljónir króna til þessara fram-
kvæmda í fjárlögum.
Var þá óskað eftir að fram-
kvæmdir gætu hafist, en ennþá hef-
ur ekkert formlegt svar borist og
má gera ráð fyrir að ráðamenn ætli
ekki að heimila byggingu Fisk-
vinnsluskólans á þessu ári.
í vetur hefur komið í ljós að
þörfin fyrir bætt húsnæði er mikil.
Unnið hefur verið að því að bæta
aðferðir við ferskfiskmat og í því
sambandi hafa verið haldin nám-
skeið. Ekki var hægt að halda þessi
námskéið í húsakynnum skólans
nema að raska mjög svo kennslu
fyrir reglulega nemendur hans.
Sem dæmi má nefna að síðan
1973 hefur skólinn kennt
saltfiskverkun og mat á 13 mismun-
andi stöðum og skreiðarmat á níu
mismunandi stöðum. Oftast hefur
þetta húsnæði verið afar lélet og
ekki alltaf fullnægt lágmarkskröf-
um um hreinlætisaðstöðu og búnað
sem gera á um slíkt húsnæði. Þar
sem nokkuð ljóst er að engar bætur
verða á húsnæðismálum skólans á
næstunni er líklegt að draga verði
veralega úr fyrirhuguðu nám-
skeiðahaldi og svo getur verið að
takmarka verði eitthvað þann
fjölda reglulegra nemenda sem
hefja ætla nám næsta haust. Óhætt
er að segja að þetta sé undarleg
þróun þegar litið er á mikilvægi
fiskvinnslunnar fyrir þjóðarbúið og
hvað Fiskvinnsluskólinn gæti lagt
þar af mörkum, væri vel að honum
búið. 85
Bæjarritari
Siglufjarðarkaupstaður vill ráða bæjarritara
og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem
fyrst.
Upplýsingar veitir undirritaður ásamt fráfar-
andi bæjarritara.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf þarf að senda
undirrituðum fyrir 15. júní n.k.
Bæjarstjórinn Siglufirði.
STRÆTISVAGNAR m
REYKJAVÍKUR
Óska eftir að ráða 2 sumarafleysingamenn til
starfa hjá þvottastöð S.V.R. við kvöld- og
næturþjónustu. Meirapróf áskilið.
Upplýsingar veitir yfirverkstjóri í síma 82533.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð,
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást, fyrir
kl. 16 mánudaginn 4. júní 1984.
Félag járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 30. maí 1984,
kl. 20 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Frá 11. þingi M.S.Í.
3. Kjaramál.
4. önnur mál.
Mætið vel og stundvísiega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Kennari í bútækni við
búvísindadeild
á Hvanneyri
Ráða þarf tímabundið í starf kennara í bú-
tækni við búvísindadeild Bændaskólans á
Hvanneyri. Umsóknir sendist skólastjóra
Bændaskólans á Hvanneyri fyrir 20. júní n.k..
Landbúnaðarráðuneytið, 25. maí 1984.
LAUSAR STÖÐUR
Lausar eru til umsóknar kennarastöður við
bændadeild Bændaskólans á Hvanneyri.
Meðal kennslugreina eru jarðrækt, búfjár-
rækt og raungreinar.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 20. júní
n.k.
Landbúnaðarráðuneytið, 25. maí 1984.
Notum ljós
í auknum mæli
Ji — í ryki, regni,þoku
og sól.
UMFHROAR
RÁÐ