Þjóðviljinn - 29.05.1984, Page 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. maí 1984
_________búsýsl
Minna kaup=
meiri skuldir
Lánskjaravísitalan heldur
áfram göngu sinni upp á viö,
sem eöliiegt er, og verður kom-
in í 885 stig í júní. Lánskjaravísi-
talan samanstendur aö einum
þriðja af vísitölu framfærslu-
kostnaðar og tveimur þriðju af
vísitölu byggingarkostnaðrog
er reiknuð út mánaðarlega.
Báðar vísitölurnar hækka jafnt
og þétt og þar af leiðandi láns-
kjaravísitalan einnig.
Það er nokkuð algengur mis-
skilningur hjá fólki að lánskjaravís-
italan komi kaupinu eitthvað við.
Það virðist halda, að ef kaup hækk-
ar lítið, þá hljóti lánskjaravísitalan
einnig að hækka lítið. Þetta er
rangt. Lánskjaravísitalan er ekki
miðuð við kaup heldur verðbólg-
ustig í landinu og verðbólga er
allnokkur í landinu. Kaup hefur
hins vegar lítið lækkað. Því hijóta
þeir sem skulda að lenda í erfið-
leikum með greiðslur - þangað til
kaup hækkar svo að það nái risi
lánskjaravísitölunnar.
Á meðfylgjandi línuriti má sjá
hlutfallið á milli tekjutryggingar og
lánskjaravísitölu frá því í mars á
fyrra ári til júnímánaðar á þessu
ári. Ef línan á þessu línuriti lægi
alveg niðri við töluna 100 væri fullt
samræmi á milli kaups og lánskjar-
avísitölu, sem þýddi, að kaup
fylgdi lánskjaravísitölunni. Ef lín-
an fer yfir töluna 100 þýðir það, að
kaup hefur dregist aftur úr láns-
kjaravísitölunni - og það er einmitt
það sem hefur gerst í tíð núverandi
ríkisstjórnar og það í miklum mæli.
Til að þeir sem skulda geti ráðið við
sínar skuldbindingar (án þess að
leggja á sig enn meiri aukavinnu)
þarf kaupið að hækka verulega,
eins og glöggt kemur fram á línurit-
inu.
Hlutfall lánskjaravísitölu og tekju-
trygglngar frá mars 1983 tll júní
1984. Launafólk hefur orftlð aft taka
á sig mlkla hækkun á skuldum mlft-
aft við kaup ofan i stórfellt kjararán.
n
Tlllll
ISLENSKA OPERAN
---1 1111 GAMLA BiÓ INGÓLFSSTRÆTI
SÖNGPRÓFUN
Árleg söngprófun íslensku óperunnar fer
fram í Gamla bíói fimmtudaginn 31. maí, kl.
19.30.
Vinsamlegast hafiö samband í síma 27033
(Kristín).
íslenska óperan
Frá Héraðsskólan-
um á Laugarvatni
Umsóknarfrestur um skólavist er til 30. júní. í
skólanum eru 8. og 9. bekkur grunnskóla,
fornám íþróttabraut og uppeldisbraut.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
99-6112
Geymsluhúsnæði
óskast
t.d. bílskúr. Upplýsingar gefur Jóhannes
Harðarson, vinnusími 81333 og heimasími
73687.
Skrifstofa
Iðju
Skrifstofa Iðju verður opin alla virka daga frá
kl. 9-16 á tímabilinu frá 1. júní - 30. ágúst.
Stjórn Iðju
BÆKUR
BLÖÐ
þjóolög Laugavegi 17 S: 12040
Heimatilbúinn ís
ísþykirallsstaðar
fullboðlegureftirréttur, hvort
sem er í heimahúsum eða á
fínum veitingastöðum.
Búsýslan kennir ykkur í dag
að búa til góða rjómaísa, sem
frysta má í hvaðafrystihólfi
sem er, jafnt í ísskápshólfi
semfrystikristu. Þettaeru
mjög auðveldaruppskriftir
sem allar eldabuskur eiga
aðráðavið.
Fjárhagslega borgar sig
tæpast að búa til ís heima, en
Búsýslan fullyrðir hins vegar
að betri ís er varla til.
Fyrsta uppskriftin hér á eftir er
grunnuppskrift, sem þið getið
síðan ieikið ykkur með eftir eigin
hugmyndaflugi og löngunum.
Hún ætti að duga handa 8 manns,
þ.e.a.s. ef átvögl mikil eru ekki á
staðnum.
Vanilluís
3 stór egg
76 g flórsykur
2 tsk vanilludropar
2 dl rjómi
Skiljið eggin í sundur og látið
hvítumar saman í skál og
rauðumar í aðra. Stííþeytið eggja-
hvíturaar (þó ekkisvo lengi að
þær þorni) og þeytið síðan 2 tsk af
flórsykri í einu saman við hvít-
umar. Bætið vanilludropunum í
rauðumar og hrærið þeim síðan
saman við eggjahvfturnar. Þeytið
rjómann og hrærið honum saman
við. Látið blönduna í gmnna
skál, setjið álpappír yfir og fryst-
ið.
ísinn er bestur þegar hann er
ekki alveg harðfrostinn. Þið
skuluð því taka hann út úr frystin-
um og setja í ísskáp hálftíma fyrir
notkun. Þá mýkist hann og verð-
ur betri.
Kaffiís
Gerið alveg eins og að ofan
segir, en í stað vanilludropanna
notið þið 1 msk af sterku kaffi-
dufti og 2 msk af kaffilíkjör í
rauðurnar.
Romm og rúsínuís
Látið 2 msk af rúsínum Iiggja í
2 til 3 klst. í rommi. Bætið þeim
við eggjarauðumar og hrærið síð-
an saman við hvíturnar eins og í
grunnuppskriftinni.
Súkkulaðiís
Bræðið 100 g af góðu suðu-
súkkulaði og hrærið því saman við
rauðumar ásamt 1 tsk af vanillu-
dropum. Gerið annars eins og í
grunnuppskriftinni.
I
Súkkulaðirandaís
Búið til vanilluísinn, eins og að
ofan segir. Þegar hann er orðinn
hálffrosinn, takið þið hann út og
gerið djúpar raufar í hann lang-
sum með skeið. Ofan í rauðurnar
hellið þið súkkulaðibráð, sem
búin er til svona: Bræðið 80 g af
suðusúkkulaði og hrærið 2 msk af
rjóma eða sýrðum rjóma saman
við. Kælið blönduna og hellið
henni síðan í raufarnar á ísnum.
Síðan setjið þið ísinn aftur í frysti.
íssósa
Enginn ís er fullkominn án
góðrar sósu, eða það er a.m.k.
álit margra. Hér kemur ein góð
uppskrift,
200 g suðusúkkulaði
Heitt kaffi búið til úr 1,5 dl af
vatni og 2 sléttfullum tsk. af kaffi-
dufti
25 g strásykur
smjörklípa
2 tsk romm eða koníak
Hellið heitu kaffinu í pott með
þykkum botni. Brjótið súkkulað-
ið í litla bita og látið í pottinn
ásamt sykrinum. Stillið plötuna á
lægsta hita og bræðið súkkulaðið
og hrærið í. Þegar allt er bráðnað
takið þið pottinn af plötunni og
bætið smjörinu og romminu
(koníakinu) saman'við og hrærið
vel. Þið getið hitað þetta aftur ef
þið viljið, en munið að ekki er
gott að þetta sjóði.
Þessa sósu getið þið geymt vik-
um sáman f ísskáp í loftþéttu íláti.
Ef þið ætlið að hita hana skuluð
þið gera það í íláti, sem sett er í
pott með heitu viatni.
Sósa þessi ætti að duga 6-8
manns.
Stafa-
þraut
Hér kemur þraut, sem allir
geta spreytt sig á ungir sem ald-
nir. Klippið alla reitina út og
raðið þeim síðan saman þannig
að þeir myndi bókstafinn H
(stór stafur).
Lausnin birtist næsta þriðju-
dag í Búsýslunni. Góða
skemmtun þangað til!