Þjóðviljinn - 29.05.1984, Page 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN, ÞHgjudagur 29. mai 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagskonur og aðrar konur
Boðaö er til stofnfundar kvennafylkingar (félags, hreyfingar,
bandalags), í tengslum við Alþýðubandalagið að Hverfisgötu 105
þriðjudaginn 5. júní. Lögð verða fram drög að lögum og kosið í
stjórn. MÆTUM ALLAR!
- Undirbúningsnefndin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Vorhappdrætti - Drætti frestað
Alþýðubandalagið í Reykjavík gengst fyrir glæsilegu vorhappdrætti.
Vinningar eru 6 ferðavinningar í leiguflugi með Samvinnuferðum-
Landsýn, að heildarverðmæti 105.000 krónur.
Drætti frestaö
Þar sem enn vantar nokkuð á að skil hafi borist frá öllum, og vegna
tilmæla frá félagsmönnum, hefur drætti í happdrættinu verið frestað
um óákveðinn tíma.
Gerið skil
Þess er vænst að félagar og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins,
sem enn hafa ekki gert skil, bregði skjótt við og greiði heimsenda miða
hið fyrsta í næsta banka/pósthúsi, eða á skrifstofu Alþýðubandalags-
ins að Hverfisgötu 105.
Sláum saman!
Stöndum saman í slagnum!
Styrkjum baráttu Alþýðubandalagsins! Stjórn ABR
AB Selfoss og nágrennis
Fundur um stefnuskrá AB
verður haldinn aö Kirkjuvegi 7 nk. miðvikudag 30. maí kl. 20.30. Á
fundinum verða: Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður sem hef-
ur framsögu um stefnuskrárumræðuna og Garðar Sigurðsson sem
ræðir stjórnmál líðandi stundar. Félagar fjölmennið á fundinn! -
Stjórnin.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
O, þér unglingafjöld!
Nú förum við í Flatey á Breiðafirði um hvítasunnuhelgina! Alger para-
dís á jörðu. Eins og Þórbergur Þórðarson sagði:
í Flatey var ég fjóra daga,
fann þar yndi margt.
Eyjan er eins og aldlngarður,
aila daga hlýtt og bjart.
í Flatey vil ég ævi una,
á eintali við náttúruna.
Kostnaði verður mjög stillt í hóf en nánari upplýsingar um ferðina
verða auglýstar síðar. Hringið eða látið skrá ykkur í síma 17500 fyrir
miðvikudaginn 6. júní.
Skemmtinefndin.
^SÖLUBOÐ
co %,f jarðaber 822 gr
[•J ej Tekex 200 gr
Holtabót 6tegundirkex
EPLI Rauð &
RYVITA Hrökkbrauð 200 gr
Æ nr L DDS Sykur 2 kg
Bonner rúsínur 425 gr
...vöruverö í lágmarkí
Stórmótið í London
T apskák Karpo vs
Eins og sagt var frá í síðasta þætti
tapaði Karpov aðeins einni skák á
mótinu í London nú á dögunum.
Þar eð heimsmeistarinn tekur ekki
oft upp á slíku hefur allur almenn-
ingur mikinn áhuga á því að berja
þessa skák augum. Það má til sanns
vegar færa að gæði þessarar skáka
eru yfírleitt mjögn mikil, Karopov
veitir harða mótspymu og and-
stæðingurinn verður að tefla hár-
nákvæmt til þess að leggja hann að
velli.
f London var það enginn annar
en neðsti maður mótsins, Torre,
sem gerði sér lítið fyrir og pakkaði
heimsmeistaranum. Þungu höggin
koma oft þaðan sem þeirra er síst
vænst. En ef litið er nánar á ýmsa
þætti kemur í ljós að hægt er að
færa nokkur frambærileg rök fyrir
þessum óvænta atburði. í slíku
móti sem því í London þar sem ein-
ungjs skákmenn á heimsmæli-
kvarða eru saman komnir geta allir
unnið alla ef svo má að orði kom-
ast. Einnig eru menn sem verma
botnsætin eins og Torre allaf stór-
hættulegir. Þeir gera allt til þess að
bæta stöðu sína, - allt að vinna en
engu að tapa. Þá skiptir ekki máli
hvort andstæðingurinn heitir Karp-
ov eða Castro. Það er nú einnig svo
til víst að Karpov hefur ekki búist
við miklu af Torre og þar með van-
metið hann.
En sem sagt, hér kemur önnur
vinningsskák Torre gegn Karpov
(Manilla 1976) og hans eina á öllu
mótinu!!
Hvítt: Eugenio Torre
Svart: Anatoly Karpov
Nimzoindverk vörn.
Ld4Rf62.c4e63.Rc3Bb44.e3c5
5. Rge2 cxd4 6. exd4 0-0 (Þetta af-
brigði er í tísku um þessar mundir,
6. -d5 er einnig ágætutleikur). 7. a3
Be7 8. d5 exd5 9. cxd5 Bc5!? Fram-
að þessum leik ættu lesendur að
vera öllu kunnugir. Munið eftir
skák Kortsnojs og Miles þar sem sá
síðarnefndi lék 9. -He8 en eftir 10.
d6!? lenti hann í erfiðleikum.
Textaleikur Karpovs bendir til þess
að hann hafi ekki fundið
fullnægjandi framhald fyrir svartan
í þessu afbrigði. Kannski er hann
bara að þræða minna þekktar leiðir
í þeirri von að í hugskotum Torre
sé holrúm. Svona hlutlaust séð er
níundi leikur svarts eilítið ein-
kennilegur því nú fer biskupinn á
flakk í þriðja sinn..) 10. b4 Bb6 11.
Ra4 d612. Rxb6 axb6 (...til þess að
vera hrakinn burt og drepinn svo
peðaveila myndast. Jahéma). 13.
Rg3 (Með þessum leik er Torre að
endurbæta taflmennsku Adorjans
í skák gegn Miles frá upphafí þessa
árs, þar tefldist 13. g3 He8 14. Bg2
Bg4 15. Be3 Rbd7 16. h3 Bf5 17.
0-0 Hc8 18. Ha2 h6 19. Bd4 og
hvítur stendur örlítið betur). 13.-
He8+14. Be2 He5 (Það kemur í ljós
hér að Karpov ber ekki of mikla
virðingu fyrir andstæðingi sínum.
Þessi áætlun, að sækja veika peðið
á d5 strax, er mjög tvíeggjuð og
varla í anda heimsmeistarans.
Hrókurinn á d5 stendur afkáralega
á d5 svo ekki sé meira sagt. Það má
ekki gleymast að hvítur hefur bisk-
upsparið sem er þarfaþing í stöðu
sem þessari). 15. Bb2 Hxd5 16. Dcl
Rc6 17. 0-0 Re5 18. De3 Be6 19. h3
b5? (Hreinn afleikur, fyrst 19.-
Hc8!) 20. Hacl Bd7 21. Hfel (Hvít-
ur kemur liði sínu fyrir á skynsam-
legan hátt en það var einnig hægt
að láta til skarar skríða með 21. f4)
21.-Hc8? (Þetta er sennilega loka-
afleikurinn,eftirþetta verður skák-
inni ekki bjargað. Rétt var að
halda í horfinu með 21.-h6) 22.
Lárus Jóhannesson
skrifar um
Hxc8 Dxc8 23. f4 Rg6 (23.-Rc4
gengur ekki td. 24. Bxc4 Dxc4 25.
De7! eða 24,- bxc4 25. Bxf6 gxf6
26. Re4 og Dc3). 24. Bxf6 gxf6 (Ég
hef aldrei séð aðra eins peðastöðu
hjá félaga Karpov). 25. Bf3 (Hvað
er nú þetta? Skiptamunur af, renn-
ir stoðum undir þá fullyrðingu að
hróksflanið hafi verið full glæfra-
íegt og ekki fyííilega í anda stöð-
unnar. Annars er það ekki skipta-
munurinn sem er alvarlegasti hlut-
urinn heldur svarta kóngstaðan.).
25.-Dc4 26. Bxd5 Dxd5 27. Re4
Kg7.
28. Rxf6! (Samt sem áður, það er
ekki á hverjum degi sem menn fá
að brillera gegn Karpov). 28. Kxf6
29. Dc3+ Re5 (Þvingað. Ef 29. -
Kf5 30. g4+ Kxf4 31. Dc3 mát!) 30.
fxe5+ dxe5 31. Hfl+ Ke6 32. Dc2
e4.33. Dc3 f5 34. Dg7 Dd2 35. Dxh7
De3+ 36. Kh2 Dg5 37. h4- Dg4 38.
Dh6+ Ke5 39. Dg5 (Endataflið sem
nú kemur upp er auðvitað gjörunn-
ið á Torré, en Karpov teflir áfram.
Fyrir áhorfendur ??) 39. -Dxg5 40.
hxg5 e3 41. g6 Kf6 (41. - f4 42.
Kgl!) 42. Kg3 Be6 43. Kf4 e2 55.
Hel Bc4 45. g7 og hér fór skákin í
bið en Karpov kaus að gefast upp
án frekari taflmennsku. Framhald-
ið gæti orðið 45. - Kxg7 46. Kxf5
Kf7 47. Ke4 Kf6 48. Ke3 Ke5 49.
Hxe2 Bxe2 50. Kxe2 og g-peðið
gerir út um leikinn.
Egilsstaðaskóli
auglýsir lausar
kennarastöður
Eftirtaldar stöður við Egilsstaðaskóla eru
lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða sérkennara við sérdeild fjölfatlaðra
barna.
2. Staða smíðakennara.
3. Stöður almennra bekkjarkennara (til
greina kemur að hluta íþróttakennsla,
tónmenntakennsla og enskukennsla).
Húsnæði í boði.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-1146 eða 1217.
Skólanefnd
Egilsstaðaskólahverfis
Dagheimilið
Solvellir Neskaupstað
Fóstru vantar nú þegar.
Aðstoð við útvegun húsnæðis.
Nánari upplýsingar í símum 97-7485 og 97-
7127.
Félagsmálaráð
Alþýðubandalagið:
Almennir fundir á Vestur-
landi fimmtudaginn 31. maí
Alþýðubandalagið boðar til almennra stjórnmálafunda í Ólaf-
svík og íStykkishólmi á uppstigningardag, 31. maí n.k. Fundirn-
ir verða haldnir sem hér segir:
í Óiafsvík kl. 14 í Mettubúð
í Stykkishólmi kl. 20.30 í Lionshúsinu
Á fundina mæta alþingismennirnir Svavar Gestsson og Skúli
Alexandersson og varaþingmennirnir Svanfri'ður Jónasdóttir
og Jóhann Ársælsson.
Frjálsar umræður og fyrirspunir. Allir velkomnir!
Jóhann Skúli
Svanfríður Svavar