Þjóðviljinn - 29.05.1984, Page 16
DWDVIUINN
Þriðjudagur 29. maí 1984
A&alsíml ÞJóftvilians ar 81333 ld. 9 -20 mánudag til tftstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum stmum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími HelgLaKsúnl
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er ■Ijasgt að rtá í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 816C3
Styrkir til sjúkraflugs
Þingmannavmum úthlutað
Stuðlar fjárveitinganefnd að lögbrotum?
Við úthlutun Qárveitinganefndar á
styrkjum til sjúkraflugs var Vali Andersen i
Vestmannaeyjum úthlutað 200 þúsund
krónum sem er flmmtungur allrar styrk-
upphæðarinnar sem veitt var, en Valur
mun ekki hafa annast sjúkraflug áður og
ekki einu sinni hafa flugrekstrarleyfl sem
lögum samkvæmt er þó skUyrði tU að standa
fyrir farþegaflutningum. A móti kemur að
Valur er mjög góður vinur Árna Johnsen
þingmanns sem sæti á í fjárveitinganefnd.
Sömuleiðis var Reyni Ragnarssyni í Vík í
Mýrdal úthlutað 40 þúsund krónum, en auk
þess að hafa ekki flugrekstrarleyfi hefur
Reynir ekki einu sinni atvinnuflug-
mannspróf. Á móti kemur að hann er í
Framsóknarflokknum syðra og góður
kunningi Þórarins Sigurjónssonar þing-
manns Sunnlendinga sem sæti á í fjárveit-
inganefnd.
Alls var úthlutað einni miljón króna, og
auk þeirra tveggja þingmannavina sem
ofan eru nefndir fékk Flugfélagið Emir á
ísafirði 600 þúsund krónur, Bjarni Jónas-
son hjá Eyjaflugi 40 þúsund en óráðstafað
er 120 þúsund krónum.
Með því að veita styrk til ofangreindra
gæðinga Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks, verður ekki betur séð en fjárveit-
inganefnd hafi stuðlað að lögbroti, þarsem
hvorugur þessara aðila hefur flugrekstra-
leyfi, sem samkvæmt lögunum þarf til að
geta staðið fyrir farþegaflugi, en skipulegt
sjúkraflug flokkast undir það.
Þess má geta að Eyjaflug á stóra flugvél
sem staðsett er á Reykjavíkurflugvelli, þar
sem þrír menn eru stöðugt á bakvakt kring-
um vélina. Þó hún sé mun betur búin tækj-
um en sú vél sem Valur vinur Áma Johnsen
hefur til umráða, þá fékk Eyjaflug fimm
sinnum lægri upphæð en téður þingmanns-
vinur.
-ÖS
Hreppsnefnd
Bessastaðahrepps
Hættir við
bensínstöð
Hreppsnefnd Bessastaðahrepps
hefur ákveðið að hætta við áform
um að heimila byggingu bensín-
stöðvar á Grandastykki, gengt
forsetabústaðnum. Segir í frétt frá
hreppsnefndinni að ástæðan fyrir
ákvörðuninni sé hin mikla and-
staða íbúa í hreppnum gegn stað-
setningu stöðvarinnar á fyrr-
greindum stað.
Það var á fundi hreppsnefndar
31. mars sl. sem því var lýst yfir að
æskileg staðsetning bensínstöðvar í
hreppnum væri á Grandastykki, á
samþykktum vegamótum norður-
og suðumesvegar á Bessastaða-
granda. Var því jafnframt lýst yfir
að hreppsnefttdin myndi beita sér
fyrir því við gerð deiliskipulags að
gert yrði ráð fyrir stöðinni á þeim
stað.
í kjölfar þessarar ákvörðunar
urðu mikil blaðaskrif og söfnun
undirskrifta þar sem meirihluti at-
kvæðisbærra íbúa í Bessastaða-
hrepi vom staðsetningu stöðvar-
innar andvígur.
_______.____ - v.
4 Andófsaðgerðir
sendibflstjóra
í gær___________________
Töfðu
útkeyrslu
á DV
Bflstjórar sendibifreiða f Reykja-
vík töfðu útkeyrslu á Dagblaðinu
Vísi í gærmorgun og vildu með því
vekja athygli á því að hluta upplags
DV væri ekið út á einkabflum og
leigubifreiðum. Kom lögreglan á
staðinn og voru teknar skýrslur af
andófsmönnum.
Einn úr hópi sendibflstjóranna
sagði í samtali við Þjóðviljann í gær
að hér væri um hagsmuni aílra
þeirra að tefla sem hefðu atvinnu
sína af vöruflutningum. „Við borg-
um okkar talstöðvargjöld, stöðvar-
gjöld o.fl. en samt virðist hópur
manna úti í bæ geta tekið frá okkur
vinnuna. Slíkt verður ekki þolað.
Þessi aðgerð okkar í gær er ekki
hugsuð sem nein árás á DV heldur
ein margra sem við sjáum okkur
knúna til að framkvæma meðan
brotinn er á okkur réttur“.
Sendibifreiðastjórar telja reglu-
gerð ráðuneytisins kveða ótvítætt á
um að þeir aðilar sem taka að sér
vömflutninga reglulega, verði að
hafa til þess tilskilin leyfi. Þeii
einkaaðilar sem aki út meginhlut-
anum af DV hafi ekki slík leyfi.
- v.
„Kalla&u mlg bara Slgurft, ég stond ekkl lengur undlr melru“, sag&l hann þar sem ÞJó&vilJamenn hlttu hann vlft
uppskipun ( gœr. Slgurður vlnnur hjá Togaraafgrelðslunnl sem er að hætta starfseml slnnl og hefur öllum
starfsmönnum verlð sagt upp störfum frá 1. Júlí n.k. Mynd- ATLI.
Rekstri Togaraafgreiðslunnar hætt 1. júlí_
Uppskipun hætt
20 manns flestir á aldrinum 50 — 65 ára í atvinnuleit
,4>að er ekki gott að vera sagt
upp í vinnu þegar maður er kominn
á gamals aldur. Það kom senditík
frá íhaldinu, Gvendur Jaki, og til-
kynnti okkur að trúlega kæmumst
við fyrir f svipaðri vinnu annars
staðar. Við erum Dagsbrúnarkall-
ar. Ég er orðinn 68 ára gamall og er
með eitthvað kransæða vesen svo ég
verð trúlega að draga mig f hlé, get
ekki unnið lengur ofan í lest. Kall-
aðu mig bara Sigurð ég stend ekki
lengur undir meiru.“
Nafnið hans stóð reyndar á
hjálminum sem hann var með þeg-
ar Þjóðviljinn hitti hann í gær. Sig-
urður Gunnarsson heitir hann og
vinnur hjá Togaraafgreiðslunni
sem verður lögð niður á næstunni.
Öllum starfsmönnum, 20 að tölu,
hefur verið sagt upp störfum.
„Það er búið að segja öllum upp
og mér líka“, sagði Sigurjón Stef-
ánsson framkvæmdastjóri Togara-
afgreiðslunnar. Hann sagðist ekk-
ert vita um hvers vegna ætti að
leggja fyrirtækið niður. Hann sagði
að þeir 20 menn sem starfa hjá af-
greiðslunni hafi sumir hverjir unn-
ið í 37 ár hjá þeim, og flestir væru á
aldrinum 50-65 ára.
Brynjólfur Bjamason forstjóri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur og
stjómarmaður Togaraaf-
greiðslunnar sem er einkafyrirtæki
sagði Þjóðviljanum í gær að Togar-
aafgreiðslan yrði lögð niður 1. júlí.
„Reksturinn hefur gengið illa og
undanfarið hefur verið tap á fyrir-
tækinu. Skuldir hafa orðið meiri en
eignir.“ Sagði Brynjólfur að upp-
skipun yrði framvegis í höndum út-
gerðarfyrirtækjanna sjálfra.
-jp
Tveir leikarar féllu
af vinnupöllum
á Óðinsgötu
Brotinn
á báðum
Annar fótbrotinn
á báðum, hinn
ökklabrotinn
Arnar Jónsson leikari fótbrotn-
aði á báðum fótum og Kjartan
Bjargmundsson leikari og smiður
ökklabrotnaði þegar vinnupallur
sem þeir voru á féll til jarðar. At-
burðurinn átti sér stað upp úr há-
degi f gær við Óðinsgötu en þeir
voru að vinna utan á húsi Arnars.
Vinnupallur sem þeir voru á
brotnaði niður og féllu báðir menn-
irnir á gangstéttina. Læknir á Slys-
avarðstofunni sagði um 6 leytið í
gær að líðan þeirra væri „eftir
atvikum".
Amar lauk um síðustu helgi
stóm hlutverki í sjónvarpsleikriti.
Hann leikur Kölska í Gullna hlið-
inu. Hann er sá leikari sem stokkið
hefur mesta stökk í íslenskri kvik-
mynd. Stökk hann fram af kletta-
brún í Útlaganum þannig að mörg-
um þótti nóg um, kom hann þar
heill niður.
Kjartan hefur undanfarið verið á
stööugum æfingum hjá Stúdenta-
leikhúsinu þar sem hann fer með
aðalhlutverk í leikritinu „Láttu
ekki deigan síga Guðmundur“ sem
fyrirhugað er að sýna á Listahátíð.
Einnig er hann að æfa hlutverk hjá
L.R. í Dario Fo sem sýnt verður á
miðnætursýningum í Austurbæjar-
bíói næsta vetur.
-jP
Lyf og læknisþjónusta hækkar 1. júní
Allt að 200% hækkun
Tillegg hinna sjúku upp í fjárlagagatið
Nú er röðin komin að hinum sjúku og öldruðu I þjóðfélaginu að fylla
upp í Qárlagagat rfldsstjórnarinnar. Á föstudaginn kemur hækkar lyf
og læknisþjónusta um allt að 200% og er víst að margan munar um
minna. Það var heilbrigðis- og tryggingaráðherra sem í gær lét gefa út
reglugerð sem byggð er á lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum frá
því fyrr í mánuðinum.
Fyrir hvert viðtal á Iækninga-
stofu skal nú greiða 75 krónur en
er í dag 25 krónur. Að fá lækni í
heimsókn kostar í dag 50 krónur
en á föstudag hækkar það upp í
110 krónur.
Ef sjúklingur í sjúkrasamlagi
þarf á sérfræðingsaðstoð að halda
þarf hann í dag að greiða 100
krónur fyrir hverja komu til sér-
fræðings. Það gjaldhækkar í 270
krónur. Sömu upphæð greiðir
hann fyrir hverja rannsókn á
rannsóknarstofu og fyrir hverja
röntgengreiningu. Stjórnvöld
sýna elli- og örorkulífeyrisþegum
þá miskunn að greiða aðeins hálft
gjald, kr. 135 frá næsta föstudegi,
en þó því aðeins að þeir þurfi ekki
á þjónustunni að halda nema 12
sinnum á ári!
í dag greiðir sjúklingur í
sjúkrasamlagi fyrstu 50 krónum-
ar af gjaldi vegna lyfja í lyfjaverð-
skrá I en borgar á föstudaginn
120 krónur. Ef hann þarfnast
lyfja úr lyfjaverðskrá II hækkar
kostnaður hans úr 100 krónum í
240 krónur. Elli- og örorkulíf-
eyrisþegar sleppa enn með hálft
fejald.
I fjórða lagi er sú breyting gerð
á reglugerð um ferðakostnað
sjúklinga innan lands að sjúkra-
samlagið endurgreiðir fargjaldið
að frádregnum 800 krónum fyrir
fyrstu ferð en aðeins 400 krónum
ef sjúklingur þarf að ferðast oftar
en einu sinni á ári.
- v.