Þjóðviljinn - 07.06.1984, Qupperneq 8
8SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júni 1984
A söngvaferð með
Arju Saijonmaa
Mikið var gaman í Broadway á
þriðjudagskvöld: Arja Saijon-
maa var að syngja þar með
hljómsveit. Söngkonan
finnska, sem hér hefur áður
komið góðu heilli, fór með
áheyrendur í söngvaferð um
mörg lönd. Bertolt Brecht var
ádagskrá, meðal annars
söngurinn ógleymanlegi um
hermannsfrúna sem fékk
sendingar úr löndum þeim
sem þýski herinn óð yfir. Edith
Piaff kom við sögu, komið var
við á Ítalíu, í Chile og austur í
Rússlandi og að sjálfsögðu í
Finnlandi sjálfu og Svíþjóð.
En fyrirferðarmestur í dag-
skránni var gríska tónskáldið
Mikis Þeodorakis - sá sem
gæti komið öllum tii aðdansa
með sínum áleitna rytma,
einnig þeim sem aldrei ann-
ars legðu út í það ævintýri.
Þetta var mjög áheyrileg
dagskrá, Arja Saijonmaa fer
ekki með ómerkilega texta,
allir hafa þeir gott vægi, hvort
sem sungið er um ástina, farið
með gamanmál eða vikið að
þeim hlutum sem minna menn
á að hjartað er vinstra megin í
skrokknum. Oghúná góða
breiddítúlkunsinni, dapurleik-
anummiðlarhúnaf sömu
einlægni og gleðinni og hvatn-
ingunni. Geislandi lífsþróttur
hennar fékk áhorfandann
fljótt til að gleyma því að hann
var staddur á skræpóttu di-
skóteki þar sem magnararnir
hafa að jafnaði völdin.
Arja átti svo að syngja aftur
í Norræna húsinu í gærkvöldi í
„innilegra“ andrúmslofti, og
efast enginn um að það hafi
allt gengið prýðilega.
Á.B.
Athugsemd: Undarleg truflun
varð í umsögn sem birtist hér í
blaðinu í gær um látbragðs-
leikara tvo frá Bretlandi. Þar
var sagt á þá leið, að best hafi
umsagnarhöfundi líkað, þeg-
ar sýningin fór sem næst hefð-
bundnum látbragðsleik og
gamanmálum hans. Síðan átti
að standa „Eða þegar Darius
leikur ástarsögu fyrir tíu fing-
ur“. Þess í stað kom á prent:
„Eða (þegar hann) leikur á
stórsög með tíu fingrum“. Hér
mun um að kenna óhreinu
handriti, en leiðréttist hér
með.
- áb.
Broadway í kvöld:
Morse-látbragðsleikhópurinn hefur undanfarna daga sýnt á Lækjartorgi
við mikinn fögnuð og tók Loftur þessa mynd í hádeginu í fyrradag. í kvöld
kl. 20 verður síðari sýning hópsins í Gamla bíói.
Chieftains
í kvöld kl. 21.30 mun írski þjóð-
lagahópurinn The Chieftains
skemmta á vegum Listahátíðar í
Broadway og annað kvöld
verða þeir með tónleika í Gamla
bíói.
Á undanförnum tveimur ára-
tugum hafa The Chieftains safnað
írskri tónlist og gert hana sína eigin
á sin sérstaka og hugljúfa hátt. Þeir
hafa leikið inn á fjölda hljóm-
platna, m.a. með Mike Oldfield,
Art Garfunkel, Don Henley og
Dan Fogelberg. Þeir hafa leikið
með Eric Clapton, Van Morrison,
JamesGalway og Jackson Browne,
og munu leika með The Rolling
Stones á næstunni. Þegar Jóhann
Páll II. páfi sótti íra heim léku þeir
fyrir hann og 1.350.000 aðra í Pho-
enix Park í Dyflinni. Þeir unnu til
Óskarsverðlauna 1976 fyrir tónli-
stina í myndinni Barry Lyndon, og
1983 unnu þeir kanadísku Genie
verðlaunin fyrir tónlist sína í mynd-
inni The Gray Fox. Sama ár urðu
þeir fyrstir tónlistarmanna til að
halda hljómleika í Alþingishúsi
Bandaríkjanna, og var það í boði
Tip O’Neill, sem auk þess að vera
af írsku bergi brotinn er hæstráð-
andi í fulltrúadeildinni.
Leiðrétting
í umsögn um Norrokk í Þjóð-
viljanum í gær kemur fyrir orðið
karlrembusvínkur, sem er argasta
prentvilla. Setningin átti að
hljóða svo: Urðu fáeinar kven-
rembusvínkur fúlar fyrir vikið...
Fred Akerström er þekktastur fyrir túlkun sína á Ijóðum og lögum Bell-
manns.
Bellmannskvöld
Freds Akerström
í kvöld og annað kvöld verður
sænski trúbaborinn Fred Áker-
ström með vísnakvöld í Norræna
húsinu á vegum Listahátíðar og
syngur lög eftir Bellmann, en hann
er einna þekktastur fyrir túlkun
sína á þeim.
Fred Ákerström er einn af þekkt-
ustu vísnasöngvurum Svíþjóðar og
hefur lagt stund á vísnasöng í meira
en 20 ár.
Carl Michael Bellmann var uppi
1740-1795 og er þekktur og elsk-
aður víða um lönd fyrir Ijóðaflokka
sína Fredmans Sánger og Fred-
mans Epistlar. f hinum síðari iýsir
hann á mjög lifandi hátt lífi bó-
hema í Stokkhólmi á 18. öld þar
sem skiptist á taumlaus lífsgleði og
dýpsta þunglyndi og er aðalpersón-
an hin fagra Ulla Winblad.
Sembaltónleikar
í Kristskirkju
í kvöld kl. 20.30 verða sembal-
tónleikar Hclgu Ingólfsdóttur í
Kristskirkju á vegum Listahátíðar.
Á efnisskrá eru verk eftir J.S. Bach
og er hún valin með tilliti til þess að
á næsta ári eru liðin 300 ár frá fæð-
ingu Bachs.
Helga Ingólfsdóttir lauk ein-
leikaraprófi í semballeik frá Tón-
listarháskólanum í Múnchen árið
1968 og hefur haldið fjöida tón-
leika heima og erlendis. Árið 1975
kom hún á fót „Sumartónleikum í
Skálholtskirku" ásamt með Manu-
elu Wiesler. Mörg íslensk og er-
lend tónskáld hafa tileinkað henni
verk sín.
Viðamestu verk tónleikanna í
kvöld eru Konsertinn í ítölskum stíl
og Forleikurinn að frönskum hætti.
Þessi tvö verk gaf Bach út árið 1735
og á titilsíðu getur hann þess að þau
séu samin fyrir tveggja hljóm-
borða sembal og eru þau meðal ör-
fárra verka hans sem í er fyrirskrift
um val hljómborða. Á tónleikun-
um leikur Helga á tveggja hljóm-
borða sembal sem er eftirlíking
Helga Ingólfsdóttir leikur Bach í
Kristsklrkju í kvöld.
hljóðfæris sem hollenski semb-
alsmiðurinn J.D. Dulcken smíðaði
árið 1745.
- GFr