Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR 631 miljón króna skuld Erlendar skuldir gjaldeyrisviðskiptabankanna umfram innistceður erlendis skipta hundruðum miljóna — komnar á refsivexti Lausafjárstaða innlánsstofnana hefur versnað um 461 miljón króna frá áramótum til mafloka, samkvæmt heimildum Seðla- banka íslands. I leiðara Hagtalna mánaðarins segir m.a. að rýrn- unin komi öll fram í verri stöðu við erlenda banka og námuer- lendar skuldir umfram innistæð- ur erlendis í maflok 631 miljón króna. „Vegna slæmrar lausafjár- stöðu kemur oft fyrir að yfirdrátt- arskuld á refsivöxtum myndist á viðskiptareikningum innláns- stofnana í Seðlabankanum." Refsivextir eru nú 34,5% á fyrsta þrepi en fara síðan vaxandi uppí 47.6% á fimmta þrepi. Sé skuldin orðin meiri en fimm þrep, þykir það benda til að viðkomandi inn- lánsstofnun sé í hættu stödd, t.d. vegna meiri útlána en hún ræður við, segir í áliti Seðlabankans. Nokkrar innlánsstofnanir hafa boðist til að greiða háa vexti af lánum frá öðrum innlánsstofnun- um, til að draga úr þörfinni fyrir yfirdráttarlán. Seðlabankinn segir áð í flestum tilfellum séu vextir af slíkum lánum um 27% á ári. Segir í Hagtölum mánaðarins að þetta sé annar vísir að milli- bankamarkaði. „Hinn fyrri skaut rótum er Seðlabankinn heimilaði innlánsstofnunum að framselja öðrum stofnunum víxilkvóta í Seðlabankanum gegn þóknun sem þær semja sjálfar um“. -óg Sendiherra V-Þýskalands sæmdi fyrir skömmu Hannes Hafstein framkvæmdastjóra SVFÍ heiðursmerki v-þýska ríkisins fyrir f rækilega stjórnun björgunaraðgerða er þýska skipið Kampen sökk út af Islandi í fyrrahaust. Einnig voru fimm íslenskir skipstjórar og einn loftskeytamaður heiðraðir auk sjö manna þyrluáhafnar frá bandaríska hernum. Póstur og sími Fletta þykkum bókum Þrír yfirmenn stofnunarinnar á 6 vikna ráðstefnu í Hambórg Þrír yfirmenn Pósts og síma sitja nú alþjóðaþing póst- manna í Hamborg. Þingið hófst í byrjun þessarar viku og stendur í heilar 6 vikur. íslensku fulltrú- arnir eru þeir Jón Skúlason póst- og símamálastjóri, Rafn Júl- íusson póstmálafulltrúi og Bragi Kristjánsson framkvæmdastjóri. „Þetta eru miklir samningar og þykkar bækur sem menn þurfa að ræða og fara yfir“, sagði Þorgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóri Pósts og síma þegar Þjóðviljinn innti hann í gær eftir því hvað lægi fyrir þessu 6 vikna langa póst- þingi. Þetta er 19. alþjóðlega póst- þingið og sækja það nokkuð hundruð fulltrúa víðast hvar af úr heiminum. Þing þessi eru haldin á 5 ára fresti, og standa þau yfir- Ieitt í 5-6 vikur hverju sinni. Á þingum þessum er rætt um póstflutninga milli landa og farið yfir alþjóðasamninga og reglu- gerðir þar að lútandi sem er tíma- frek vinna að sögn Þorgeirs Þor- geirssonar. -»g- Laugar Stjörnukonsert 1. júlí Hinn 1. júlí næstkomandi mun Héraðssamband Suður- Þingeyinga efna til veglegrar söngskemmtunar í íþróttahöll- inni að Laugum í Reykjadal. Þar koma fram óperusöngvararnir Garðar Cortes, Olöf Kolbrún Harðardóttir, Kristinn Sig- mundsson og Anna Júlíana Sveinsdóttir. Undirleikari verður aðalstjórnandi Islensku óperunn- ar Marc Tardue og kynnir Jón Stefánsson. Efnisskráin er fjöl- breytt og mun listafólkið fiytja Is- lenska og erlenda tónlist, ein- söngslög, óperuaríur, dúetta og kvartetta. Skemmtunin hefst kl. 16.00 og stendur í þrjár klukku- stundir. Af annarri starfsemi H.S.Þ. er það helst að frétta að Héraðsmót í frjálsum íþróttum var haldið á Húsavíkurvelli 15. og 16. júní. Þátttaka var góð, 120 skráningar. Sjónvarp Danska myndin í júlí Utvarpsráð hefur nú ákveðið að taka til sýninga dönsku myndina sem sagt var frá í Þjóð- viljanum í síðustu viku og fjallar um Iýðveldisstofnun á Islandi, aðdraganda hennar og viðbrögð Dana. Er nú beðið eftir sýningar- eintaki frá danska sjónvarpinu en Guðmundur Ingi Kristjánsson dagskrárfulltrúi á fræðsludeild bjóst við að myndin yrði send út í júlímánuði. -m Þá hefur þegar farið fram Víða- vangshlaup H.S.Þ. Þarna er um að ræða þriggja hlaupa keppni í sjö aldursflokkum karla og kvenna sem er jafnframt stiga- keppni milli einstakra félaga sambandsins. Hlaupvegalengdir eru miðaðar við aidur og kyn þátttakenda og eru frá 800 til 3000 metrar. Fyrsta hlaupið fór fram í Mývatnssveit, annað að Laugum og hið þriðja að Stóru- Tjörnum. Mikill áhugi er á hlaupinu og þátttaka sívaxandi, sem sjá má af því að í fyrsta hlaupinu í fyrra voru þátttakend- ur 50 en 157 í síðasta hlaupinu í ár. Að þessu sinni varð íþróttafé- lagið Völsungur stigahæst félag- anna. Undirbúningur fyrir Landsmót Ungmennafélaganna sem haldið verður í Keflavík og Njarðvík 13.-15. júlí er í fullum gangi og stefnt er að þátttöku í sem flest- um greinum á mótinu. Sjálfsbjargarþing Fatlaðir snúi bökum saman Lífeyris- og tryggingarmál efst á baugi Lífeyris- og tryggingamál voru einna fyrirferðarmest á þessu þingi, en nú er gengin í gildi reglu- gerð um verndaða vinnustaði sem gerir fötluðum kleift að vera fullgildir meðlimir verkalýðsfé- laga og öðlast þannig lífeyrisrétt- indi. Af öðrum málum sem ein- kenndu þingið vil ég sérstaklega nefna þá áherslu sem menn lögðu á að fatlaðir sneru bökum saman og ynnu saman að hagsmunamálum sínum. Það má segja að þetta sé nýr tónn, því til þessa hefur lítið samstarf verið t.d. við vangefna. Ég var mjög ánægður með þennan nýja tón og tel að allt samstarf sé til bóta, þótt fötlunin sé mismunandi“. Þetta eru orð Valdimars Pét- urssonar, framkvæmdastjóra Sjálfsbjargar á Akureyri, en hann var einn fulltrúa á þingi Sjálfsbjargar sem haldið var nú í júní og þá jafnframt haldið upp á 25 ára afmæli sambandsins. Nú eru 14 félög sem eiga aðild að Sjálfsbjörg og er félagið á Nes- kaupstað yngst. Fjöldamörg mál voru tekin fyrir á þinginu svo sem atvinnumál, endurhæfingarmál, ferlimál og lífeyrismál eins og fyrr er getið, en einnig voru gerðar ályktanir um námskeið fyrir að- standendur fatlaðra barna, nám- skeið í táknmáli og kynfræðslu- námskeið svo eitthvað sé nefnt. Valdimar sagði ennfremur í við- tali við blaðið að mikill kraftur væri í Sjálfsbjargarfólki á Akur- eyri, en þar eru félagar 220 tals- ins. Endurhæfingarstöðin gengur mjög vel, en til að nýta húsnæðið sem best er einnig opið fyrir al- menning í líkamsrækt á kvöldin og starfa nú um 30 manns við stöðina. þs Eigendur Veggfóðrarans - Málnlngar & Járnvara, Einar Þorvarðarson og Ingibjörg Sigvaldadóttir, í nýja verslunarhúsnæðinu í Síðumúla 4. Verslun Málning og Járn- vörur sameinast Margir hafa eflaust tekið eftir því að tvær rótgrónar bygg- ingavöruverslanir í miðborginni, Veggfóðrarinn h.f. og Máning & Járnvörur h.f. hafa verið samein- aðar. Eftir sameininguna fluttu þær í nýtt og glæsilegt húsnæði í Síðumúla 4. Eigendur hinna sam- einuðu verslana eru Einar Þor- varðarson veggfóðrara- og dúk- lagningameistari og fjölskylda hans, en þau hafa um árabil átt og rekið versluna Veggfóðrarann á Hverfisgötu 34. Flestir starfsmennirnir frá Hverfisgötunni og Laugavegin- um starfa áfram í versluninni í Síðumúla. Sérstaklega skal getið tveggja heiðursmanna úr versl- unarstéttinni, þeirra Guðlaugs Stefánssonar, sem starfað hefur í 25 ár hjá Veggfóðraranum, og Vigfúsar Helgasonar, sem starf- að hefur óslitið í 50 ár í Málningu & Járnvörum. Mun óhætt að full- yrða að óvíða búi starfsmenn byggingavöruverslunar yfir eins mikilli þekkingu og reynslu og einmitt starfsmenn Veggfóðrar- ans - Málningar & Járnvara. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. júní 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.