Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 5
Vefurinn sleginn. Helmuth Groíss, verkstjóri í Vefnaðardeild, stendur hjá nýja vefstólnum. Ljósmyndir: Atli. Alafoss Vélakostur endurnýjaður Prjár vélar komnar, sú fjórða á leiðinni - Jú, viö erum að endurnýja hér dálítið af vélum hjá okkur. Það veitir nú svo sem ekkert orðið af því. Sumar vélarnar eru orðnar 20 ára gamlar. Þær eru búnar að „gera það gott“ en eðlilega farnar að ganga nokkuð úr sér. Og svona rekstur gengur ekki nema að maður hafi alltaf sem bestar vélar og fullkomnastar. Ju, jú, ykkur er velkomið að líta á þetta. Þið hafið bara samband við skrif- stofuna þegar þið komið hing- að uppeftir. Þar fáið þið þær leiðbeiningar, sem þið þurfið á að halda. Eitthvað á þessa leið munu orð hafa fallið hjá Pétri Eiríkssyni, forstjóra á Álafossi, þegar við hringdum í hann hérna um morg- uninn og spurðum hvort við mættum koma og líta á nýju vél- arnar, sem Álafoss var að fá nú fyrir skömmu. Gengið um garða á Alafossi Á Álafossi eru víðáttumiklar byggingar og ég bar sannast að segja nokkurn kvíðboga fyrir því að það mundi vefjast fyrir okkur Atla ljósmyndara að finna skrif- stofuna .í þessari húsaþyrpingu. Það tókst þó vonum fyrr. Var okkur tekið þar vinsamlega og fenginn leíðsögumaðúr, ung, rösk og falleg stúlka, Pórunn Daðadóttir að nafni. Leiddi hún okkur fyrst fyrir nýja vefstólinn, síðan prjónavélina og loks tvinn- ingarvélina. Prjónavélin og vef- stóllinn eru þegar tekin til starfa og eru það verkleg vinnubrögð. Verið er að ganga frá uppsetn- ingu tvinningarvélarinnar. Eru vélarnar settar upp (eða niður) af tveimur Belgíumönnum, ásamt íslendingum, sem jafnframt er kennd meðferð þeirra. Afkastameiri og fullkomnari Allsstaðar var fólk önnum kaf- ið við vinnu en ekki voru tiltök að tala við nokkurn mann í þeim ær- andi hávaða, sem þarna var, enda allir með öflugar eyrnahlífar nema við Pjóðviljamenn. Það er víst sama þótt við verðum heyrnarlausir. Er Atli hafði ljósmyndað nægju sína skilaði Þórunn okkur aftur í skrifstofuna til þeirra nafna Guðjóns Kristinssonar og Guðjóns Hjartarsonar. Við óskuðum þeim til hamingju með nýju vélarnar og spurðum hvort þær væru allar frá sama landinu. Nei, svo reyndist ekki vera. Vefstóllinn er svissneskur, prjón- avélin þýsk og tvinningarvélin belgísk. - Við hittum þarna tvo Belgíu- menn. Hafa þeir unnið að því að koma vélunum fyrir? - Já, þeir hafa gert það jafn- framt því sem þeir kenna okkar mönnum meðferð vélanna. - Pað þarf auðvitað ekki að því að spyrja að þessar nýju vélar munu taka þeim eldri mikið fram? - Já, það gera þær óneitan- lega. Það er nokkuð ör þróun í þessum vélbúnaði eins og öðru, samkeppnin í framleiðslunni er hörð og það veltur á miklu að hafa jafnan sem bestar vélar. Þessar nýju vélar eru bæði fullkomnari og afkastameiri en þær, sem fyrir voru, auk þess sem þær auka möguleika á fjöl- breyttari framleiðslu. - En er þetta ekki mikil fjár- festing? - Jú, hún er það náttúrlega. Heildarverð þessara véla er um 7 milj. kr. En í það þýðir ekki að horfa ef maður á að standa sig. - Hyggið þið á frekari véla- kaup á næstunni? - Já, við höfum fest kaup á þýskri „effekta“-tvinningarvél og er hún nú á leiðinni. Við gerum okkur vonir um að hún verði sett hér upp um næstu mánaðamót. Hún vinnur band með hnökrum og lykkjum og á þannig að auka á fjölbreytni framieiðslunnar. Slík vél mun ekki áður hafa verið til hér á landi. Nýtt lagerhús - Við sáum hér fyrir utan heil- mikið jarðrask, vinnuvélar og mælingamenn að störfum, eruð þið í byggingahugleiðingum? - Reyndar. Hugmyndin er að koma hér upp lagerhúsnæði á 1800 ferm. fleti. Það er orðið mjög aðkallandi. Og þó að það sé nú ekki lengra á veg komið en þið hafið séð, þá gerum við okkur vonir um að það verði orðið fok- helt í septemberlok í haust. - Og hvernig gengur svo rekst- urinn? - Hann hefur gengið vel það sem af er þessu ári, einkum þó hvað snertir fatnaðinn. Það má einnig segja að afkoma hafi verið alveg sæmileg í fyrra. Annars gætum við heldur ekki staðið í þessum fjárfestingum núna. Og þarna fæðir þýska prjónavélin hverja flíkina af sér á fætur annarri. Leiðsögumaður okkar Atla, hún Þórunn Daðadóttir, prýðir myndina. Hún vinnur annars að skipulagningu framleiðslunnar. Fimmtudagur 28. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Umsjón: Magnús H. Gislason

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.