Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 24
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. 28. júní 1984 141. tölublað 49. örgangur DJÚÐVIUINN Sóknarkonur Hagræðing íí á Borgarspítalanum Vinnuálag aukið en kaupið minnkað. Vinnuálag við þessa breytingu hefur aukist gífurlega mikið og launin lækkað stórlega, í sumum tilvikum um mörg þús- und krónur á mánuði. Það er al- veg Ijóst að borgaryfirvöld eru að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Þetta sagði ræstingar- kona á Borgarspítalanum þegar Þjóðviljinn innti hana í gær eftir áliti hennar á breytingum sem verið er að gera „í hagræðingar- skyni“ á spítalanum. Konan baðst eindregið undan nafnbirtingu af þeirri ástæðu að ræstingarkonurnar væru hræddar við að tjá sig um málið því „brott- rekstur er vofan sem hangir yfir manni“. Breytingarnar hafa valdið því að 17.5 stöðugildi hafa lagst niður sem endurspeglar að sjálfsögðu hversu aukið álag kemur á þær konur sem eftir eru. Þjóðviljinn veit dæmi þess að rosknar konur hættu störfum sínum sökum þess að þær hreinlega orkuðu ekki hinu aukna álagi. Samkvæmt upplýsingum Þjóð- viljans stafar hinn mikli tekju- missir sumra kvennanna af því að breytingarnar valda því að allar konurnar missa sem svarar hálfr- ar stundar vinnu á degi hverjum, missa vaktaálag sem er stór hluti af launum þeirra og jafnframt verða sumar að minnka störf sín úr heilu starfi niður í 75 prósent starf. Þess má geta að borgaryfirvöld halda því fram að Sókn hafi verið með í ráðum um breytingarnar, en Hjördís Antonsdóttir hjá Sókn sagði afar lítið samráð haf a verið haft við félagið. Undirbúningur að „hagræð- ingunni" hófst með leynd fyrir áramót og var trúnaður um málið uns Guðrún Jónsdóttir borgar- fulltrúi rauf hann á fundi borgar- stjórnar fyrir skömmu. -ÖS Luxemburg íslendingar spiluðu á aðaltorginu Það var líf og fjör á aðaltorginu Place d’Armes á þjóðhátíðardag Luxemburgar s.l. laugardag, en þá sáu íslendingar um aðal- skemmtunina og léku klukku- tíma sýningu á íslensku, en dreifðu úrdrætti á þýsku og frönsku. Það var leikrit Péturs Gunnarssonar, Krókmakarabær, sem leikklúbburinn Spuni setti upp s.l. vetur, sem leikinn var nú úti í fyrsta sinn og voru áhorfend- ur bæði íslendingar búsettir í Luxemburg og „luxarar". Strax eftir sýninguna hélt hópurinn af stað til Parísar þar sem leikið var framan við Pompideu-safnið á sunnudag. Nánar verður sagt frá þessu íslenska útileikhúsi og ferðalagi þess í blaðinu eftir helgi. Myndin sýnir nokkra af leikurunum í hlutverkum sínum í Krókmakarabæ og hluta af áhorf- endaskaranum. Ljósm. Þ.S. Spegilsmálið Ulfar dæmdur sekur Ulfar Þormóðsson útgefandi Spegilsins var í fyrradag dæmdur í 16000 króna sekt eða 20 daga varðhald fyrir að smána grundvallar trúarkenningar þjóðkirkjunnar. Auk sektagreiðslna er staðfest- ur dómur undirréttar um upp- töku á vissum hlutum Spegilsins og Samvisku þjóðarinnar. Helstu sakir útgefandans að mati Hæst- aréttardómaranna var fyrrgreint brot á almennu hegningarlögun- um sem lúta að trúarkenningum kirkjunnar en auk þess var hann dæmdur fyrir brot á lögum um klám. Var hann af undirrétti tal- inn hafa brotið þá lagagrein með þrenns konar hætti en Hæstirétt- ur sýknaði hann af einni ákær- unni. Þórður Björnsson sótti málið en Sigurmar K. Albertsson varði. Verkfallið í Eyjum Mætum skilningi bæjarbúa Meirihluti bœjarstjórnar þráast við að ganga að kröfum verklýðsfélagsins. Ekkið boðað til nýrra viðrœðna. Við mætum hvarvetna skilningi bæjarbúa, svo það eru fleiri en við sem eru hissa á við- brögðum meirihluta bæjarstjórn- ar við kröfum okkar, sagði Oskar Kjartansson einn samninga- nefndarmanna verkafólksins í vinnudeilunni í Eyjum. Óskar upplýsti, að 15. júní hefði launafólkið farið í tveggja tíma setuverkfall til að þrýsta á um kröfurnar. Arnar Sigmunds- son formaðurbæjarráðsogsamn- inganefndar bæjarins kvaðst halda að um „misskilning" væri að ræða. Óskar lagði ríka áherslu á að sumarvinnufólkið sem héldi uppi stóru framkvæmdunum á sumrin, færi illa utúr dæminu samkvæmt tilboði bæjarins um starfsaldurshækkanir. Þetta eru sanngjarnar kröfur sem bæjar- stjórnin getur varla annað en samþykkt, sagði Óskar Kjartans- son. Sveinn Tómasson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Vest- mannaeyjum kvaðst taka fylli- lega undir kröfur verklýðsfélags- ins og benti á að ef tilboði yfir- valdanna yrði tekið, þýddi það 17% eftirvinnuálag ofan á lág- markslaunin. Það væri ekki rétt- lætanlegt. Lágmarkslaunin sjálf væru nógu lág fyrir og það væri ekki nema eðlilegt, að launafólk vildi fá greidda 40% eftirvinnu og 80% næturvinnuálag ofan á þau. Ég tek heilshugar undir sann- girniskröfur verklýðsfélagsins, sagði Sveinn Tómasson. Síðast þegar fréttist í gær hafði ekki verið boðað til nýrra við- ræðna og situr því allt við það sama: verkfall. ró/óg OL fatlaðra Haukur fékk 2 brons Tryggði sér verðlaun í 200 og 400 metra hlaupum Haukur Gunnarsson hlaut í fyrradag tvenn bronsverð- laun á Olympíuleikum fatlaðra sem nú standa yfir í New York. Hann náði einnig þriðja besta tíma í milliriðli í 100 m hlaupi og keppir þar til úrslita á morgun. Haukur, sem er aðeins 17 ára gamall og keppir í CP-flokki, hafði í nógu að snúast í fyrradag, keppti fimm sinnum. Fyrst í úr- slitum 200 m hlaupsins þar sem hann varð þriðji á 27,66 sek. Daninn Thomsen sigraði á 27,14 en alls voru 32 keppendur í hlaupinu. Þá fór hann í undanrásir 400 m hlaupsins og tryggði sér úrslita- sæti með fimmta sæti. Síðan keppti hann í milliriðli í 100 m hlaupi og fékk tímann 13,82 sem var sá þriðji besti. Haukur brá sér svo í kúluvarp og varð áttundi af 18 keppendum, kastaði 9,44 metra. Loks kont rúsínana í pyls- uendanum, Haukur varð þriðji í úrslitum 400 m hlaupsins og fékk tímann 1:02,32 mín. sem er undir gamla heimsmetinu sem féll í þessu hlaupi. Júgóslavinn Ckoc- nut sigraði á 1:01,31 mín. ísland hefur nú alls hlotið níu verðlaun á mótinu, sjö brons og tvö silfur, og er mjög framarlega í flokki, en alls sendu 54 þjóðir keppendur á leikana. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.