Þjóðviljinn - 28.06.1984, Síða 12
ATVINNULIF
Ceres hf.:
Margar
hendur
vinna
vel
Flestir íslendingar kannast
viö náttfata- og nærfatagerö-
ina Ceres, en hún er búin að
starfa frá árinu 1942. Núver-
andi eigandi, Ásta Kristjáns-
dóttir, keypti fyrirtækiö áriö
1973 ásamt öðrum og hefur
rekið það í 6 ár í Kópavogi.
„Ég hanna þetta allt saman
sjálf og reyni að hafa fatnaðinn
dálítið ólíkan því, sem kaupa má
alls staðar í búðum“, segir Ásta.
„Hjá mér vinna líka mjög góðar
konur og hafa verið flestar þeirra
hérna allt frá byrjun. Þaö eru
margar hendur hér sem vinna vel
og ég þakka velgengnina því.“
Ásta segir okkur að fyrirtækið
gangi mjög vel og að þær hafi vart
undan pöntunum. Þarna vinna
allt upp undir 14 konur við að
sníða og sauma. „Það komast
ekki fyrir fleiri en 14 hjá mér“,
segir Asta.
Þarna er saumaður náttfatnað-
ur á karla og konur og börn og
sömuleiðis alls kyns léttur fatnað-
ur, sem kalla má sportfatnað.
Sloppar, náttkjólar, léttir bolir,
náttserkir, léttir sumarkjólar
fyrir baðstrendur er meðal þess
sem framleitt er hjá Ceres.
Arnarflug
Dóra Diego, verslunarstjóri hjá Álafossbúðinni, heldur hér á angórakanínu-uilarpeysu (t.v.) og peysu frá Júgóslavíu úr íslenskri
ull. (Ljósm. -eik-)
Álafoss h.f:
Þægindi, gæði, glæsileiki
Ný þjónusta
Arnarflug hefur bryddað upp á
þeirri nýbreytni í samstarfl við
Bjarna Pálmarsson bifreiðastjóra
að skipuleggja flug- og ökuferðir
um ísiand fyrir erlenda ferða-
menn.
í nýjum kynningarbæklingi um
þessa þjónustu er lýst fimm ferð-
um þar sem flogið er aðra leiðina
með Arnarflugi en ekið hina með
bifreiðum Bjarna. Ferðirnar eru
mislangar eða frá einum upp í
fimm daga og meðal kunnra ferð-
amannastaða sem heimsóttir eru
má nefna Þingvelli, Gullfoss,
Geysi, Vestmannaeyjar, Kirkju-
bæjarklaustur, Mývatn, Gríms-
ey, Stykkishólmur, Bifröst,
Gjögur, Húsafell o.fl.
Arnarflug hefur um árabil
stundað útsýnisflug með erlenda
ferðamenn og er öllum hnútum
kunnugt í þeim efnum. Bjarni
Pálmarsson hefur á að skipa
þægilegum leigubifreiðum með
bflstjóra til afnota fyrir þá sem
kjósa að ferðast á þægilegan hátt.
Helsta aðalsmerki ullariön-
aðar á íslandi hin síðari ár hef-
urveriögeysiörvöruþróun, en
upphaf hennar má rekja til
harðnandi samkeppni á er-
lendri grund. í fjöldamörg ár
buðu íslenskir útflytjendur
svotil eingöngu upp á hiö
hefðbundna „lcelandic
Look“, sem á sínum tíma
gerði garðinn frægan og dró
fram sérstöðu og fegurð ís-
lensku ullarinnar á áberandi
hátt. Árið 1982 reið Álafoss á
vaðið með nýja stefnu í fata-
línunni og var þessi hátísku-
lína í rauninni bylting, sem
gerbreytti ásjónu íslenskrar
ullarvöru.
Dóra Diego er verslunarstjóri
Álafossbúðarinnar og sagði hún
okkur, að íslensk ullarfram-
leiðsla taki nú mið af straumum
og stefnum í tískuheiminum,
bæði hvað varði snið og liti.
„Sauðalitirnir standa þó ávallt
fyrir sínu og skipa einskonar
heiðurssess innan um hina breyti-
legu litadýrð tískunnar“, sagði
Dóra.
Annar stórmerkur þáttur í
þessari vöruþróun er prjóna-
bandið, en nú eru á boðstólum
hjá Álafossi einar 6 tegundir eða
afbrigði af ullarbandi. Mikill
fjöldi uppskrifta er einnig til fyrir
hverja bandtegund fyrir sig og
notfæra hinar hagsýnu húsmæður
sér óspart þá búbót, sem bandið
veitir, svo ekki sé minnst á sköp-
unargleðina.
Þessi sköpunargleði nær langt
út fyrir landsteinana og í Álafoss-
búðinni eru til stórskemmtilegar
handprjónapeysur, sem júgó-
slavneskar sveitakonur hafa unn-
ið úr íslenskum lopa. Eina slíka
má sjá á myndinni, sem fylgir
þessari grein. Margar af þessum
flíkum eru ævintýri líkastar. Þær
koma íslendingum oft nokkuð
spánskt fyrir sjónir, segir Dóra,
en eru þó lifandi dæmi um það
hvað hægt er að gera úr þessu
frábæra hráefni okkar.
Enn eitt dæmið um vöruþróun-
ina eru peysur í Álafossbúðinni,
sem eru gerðar úr blöndu af ang-
Saumum íslenskan ullarfatnað
Saumastofan Salína
Suðurgötu 4 Siglufirði sími: (96) 71206
órakanínuhári og íslenskri ull.
Þessar flíkur eru ákaflega þægi-
legar og mjúkar viðkomu. Að
vissu leyti má líta á þær sem arf-
taka Breeze-línunnar, sem nú er
svotil eingöngu til í gardínuefn-
um, þar sem hún nýtur sín jafnvel
enn betur en í fataefnum.
„Það er í rauninni sama hvar
drepið er niður fæti í ullarfram-
leiðslunni - alls staðar er mikill
uppgangur og hugur í mönnum“,
segir Dóra Diego. „Það er í senn
erfitt og spennandi að vinna með
þetta náttúruefni. En þessi at-
vinnuvegur nýtur vaxandi virð-
ingar, jafnt innanlands sem utan,
og til þess eru erfiðleikarnir að
sigrast á þeim. Það er líka óvið-
jafnanleg tilfinning að sjá af-
raksturinn af erfiðinu, hvort
heldur það er fullunnin fatalína
að hausti, gardínur, gólfteppi, á-
klæði eða værðarvoðir. Hér hjá
Álafossi eru gæðin látin sitja í
fyrirrúmi og þá þarf ekki að
spyrja að árangrinum“.
Prjónastofan Iðunn
Dönsk hönnun,
ítalskt garn
= íslensk
gæðavara
„Það varð mikill samdráttur
fyrir tveimur árum í íslenskum
fataiðnaði, en við björguðum
okkur með því að komast á
markað erlendis. Um helmin-
gurinn af okkar framleiðslu fer
til Danmerkur, Svíþjóðar og
nú einnig til Englands, en þar í
landi hafa peysurnar okkar
líkað mjög vel.“
Njáll Þorsteinsson er eigandi
Prjónastofunnar Iðunn á Sel-
tjarnarnesi, en sú stofa átti 50 ára
afmæli á þessu ári. Viktoría
Bjarnadóttir stofnaði prjónastof-
una, en eftir stríðið keypti Þor-
steinn heitinn Njálsson, faðir
Njáls, stofuna og raka hana þar
til fyrir nokkrum árum að Njáll
tók við rekstrinum.
„Það sem hefur haldið uppi ís-
lenskri fataframleiðslu er lands-
byggðin", segir Njáll. „Kaupfé-
lögin eru okkar stærstu kaupend-
ur. Síðan Sambandið fór út í inn-
flutning á erlendum fatnaði hefur
dregið mjög úr sölu okkar hér
innanlands og erlendi markaður-
inn bjargar okkur.“ Dönsk stúlka
kemur til íslands tvisvar á ári og
hannar peysur fyrir Prjóna-
stofuna. Nú er verið að framleiða
í Prjónastofunni peysur fyrir árið
1985. Garnið er keypt á Ítalíu.
Njáll kveður fjárhagsstöðuna
mjög erfiða um þessar mundir.
Það gangi ekki að koma verð-
bólgunni niður á svo stuttum tíma
eins og nú hefur verið gert. Einn-
ig vanti tilfinnanlega lausafé og
mjög erfitt sé að standa skil á lán-
um. „Rekstrarfé er ekki til í raun
heldur er alltaf verið að bjarga
málum frá degi til dags.“
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 28. júní 1984