Þjóðviljinn - 28.06.1984, Side 13
ATVINNULIF
Vandað blað
frá íslensku
ullinni
Þekkt og auð-
seljanleg vara
Vörumerkið Artemis er búið
að vera á markaðnum á ís-
landi allt frá árinu 1938, en
undir því merki erframleiddur
undirfatnaðurog náttkjólará
kvenfólk. Fyrirtækið Lexa hf.
tók við vörumerkinu fyrir
þremurárum. Lexa hf. var
stofnað árið 1970 og fram-
leiddi þá eingöngu hálsbindi
og slaufur.
Björn Bjarnason heitir fram-
kvæmdastjóri Lexu hf. og segir
hann 14 saumakonur vinna hjá
fyrirtækinu. „Við höfum mjög
gott starfsfólk sem hefur unnið
hér í fjöldamörg ár“, segir Björn.
Hönnun á flíkum fer fram í fyrir-
tækinu og segir Björn hugmyndir
fæðast hjá öllu starfsfólkinu.
„Fyrirtækið gengur mjög vel“,
segir Bjöm, „og því höfum við
ekki yfir neinu að kvarta. Staðan
hefur lagast mikið við það að
genginu hefur verið haldið stöð-
ugu og það rétt skráð. Við höfum
þaft næg verkefni þetta árið.“
Björn segist ekki kannast við
að íslendingar vilji ekki kaupa ís-.
lenska vöru, a.m.k. eigi það ekki
við um þá vöru, sem framleidd er
í Lexu hf. „Samkeppnin er að
vísu mikil, en þetta er þekkt vara
og mjög seljanleg. Verðið er
einnig áþekkt því sem gerist með
fatnað erlendis frá og í sumum
tilfellum er það lægra hjá okkur.“
Acr A U&lANUH
Flmmtudagur 28. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Lopi og band:
Jóhanna Hjaltadóttir á heiðurinn af þessum uppskriftum, sem prýða
blaðið Lopa og band, 2. tbl. ársins 1984.
Uppskriftir úr erlendu garni
njóta einnig mikilla vinsælda á
síðum blaðsins. Utan prjón-
auppskrifta hefur blaðið kynnt
tauþrykk, leðurvinnu, fatasaum,
o.fl. og í bígerð er að auka þessa
þætti blaðsins nokkuð og brydda
upp á nýjungum. Efni blaðsins er
mjög vandmeðfarið, enda fer það
um margar hendur. Uppskrifta-
gerð er vandasamt nákvæmnis-
verk, en blaðið hefur einmitt
hlotið hrós fyrir vandvirkni og
skýran texta í uppskriftum.
Haustblað Lopa og bands
kemur út um mánaðamótin
ágúst/september. Blaðið kostar
180 krónur í lausasölu en 140
krónur til áskrifenda.
Björn Bjarnason, framkvæmdastjóri Lexu hf. en þar er framleltt undir
hinu gamla og þekkta vöruheiti Artemis.
Lexa hf.:
Erla sagði okkur að í fyrstu hafi
ekki verið ljóst hver væri grund-
völlur fyrir útgáfu blaðsins, því
þetta var fyrsta íslenska tísku-
prjónablaðið með aðkeyptri fata-
hönnun. Fljótlega kom þó í ljós,
að móttökumar voru jákvæðar.
Lesendum hefur fjölgað jafnt og
þétt og útkomu blaðsins er nú
jafnan beðið með nokkurri eftir-
væntingu.
Flestir hönnuðir blaðsins hafa
menntun í meðferð ýmiskonar
efnis. Margir þeirra eru útskrif-
aðir úr handavinnudeild Kennar-
aháskólans eða hafa verið í textíl-
námi í Myndlista- og handíða-
skólanum, en hönnuðir af guðs
náð eiga einnig efni á síðum
blaðsins.
Auk Erlu Eggertsdóttur vinna
við blaðið Björg Gunnsteinsdótt-
ir, aðstoðarritstjóri, sem hefur
verið með frá upphafi, Kristín
Jónsdóttir Schmidhauser, sem er
ráðgefandi um efnisval og upp-
skriftagerð, og Guðmunda Hall-
geirsdóttir, sem sér um daglegan
rekstur skrifstofunnar. Þær síðar-
nefndu komu nýlega til starfa við
blaðið.
Efni blaðsins er ekki ein-
skorðað við innlenda ull, þótt
hún skipi þar sinn fasta sess.
Prjónablaðið Lopi og band
kom fyrst út árið 1981. Útgef-
andi blaðsins er íslenska ullin,
en að baki því er Erla Eggerts-
dóttir, ritstjóri blaðsins. Blaðið
kom fyrst út tvisvar á ári, en nú
hafa umsvifin aukist og kemur
blaðið nú út þrisvar á ári. Ný-
verið opnaði blaðið skrifstofu
og þar vinna þrír í fullu starfi.
SIÐAN
32
QGENN
AFULLU
I/INNUFÖT
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS.
REYKJAVÍK. SÍMI:16666