Þjóðviljinn - 29.08.1984, Side 1
MENNING
MANNLÍF
Samningarnir
Stefnir VSÍ á verkfall?
Afstaða Vinnuveitendasambandsins harðnar. Haukar Sjálfstœðisflokksins vilja harða línu.
Ýmsiratvinnurekendurviljasemja en VSÍheldurítauminn.
Afstaða Vinnuveitendasam-
bandsins í kjarasamningun-
um sem nú standa yfir hefur
harðnað skyndilega upp á síð-
kastið og svo virðist sem öfl innan
VSÍ stefni beinlínis á verkfall.
Þetta sést til dæmis á því að hug-
myndir sem voru viðraðar af
ýmsum forvígismönnum atvinnu-
rekenda í óformlegum könnunar-
viðræðum við upphaf samning-
anna hafa nú verið dregnar til
baka.
Talið er að þessi stefnu-
breyting standi í tengslum við það
að innan Sjálfstæðisflokksins
hafa átt sér stað umræður um
hvaða línu beri að taka í samning-
unum og þar munu haukarnir,
Eimreiðarhópurinn svokallaði,
sem vilja sýna hörku í viðskiptun-
um við verkalýðshreyfinguna,
hafa haft betur.
Hins vegar er einnig ljóst, að
um þetta er mikil óeining í röðum
Vinnuveitendasambandsins, því
þar er að finna drjúgan hóp
manna sem vilja semja. Þessarar
óeiningar hefur orðið vart bæði á
formlegum samningafundum og
líka í óformlegum „þreifingum“
sem fóru fram fyrir helgi.
Meðal ýmissa fiskverkenda en
þó sérstaklega á meðal aðila í iðn-
aði eru til dæmis uppi hugmyndir
um að gera dagvinnutekjutrygg-
inguna að lægsta taxta, og af-
nema þannig tvöfalda launakerf-
ið sem hefur viðgengist, en það er
eitt helsta baráttumál VMSÍ og
Landssambands iðnverkafólks.
Þjóðviljinn hefur heimildir
fyrir því að fylgi við þessar hug-
myndir nær inn í innstu raðir VSI.
Fyrir helgina voru svo í „þreif-
ingum“ milli iðnverkafólks og
iðnrekenda viðraðar hugmyndir
áþekkar þeim ofannefndu ásamt
því að ótiltekin flöt prósentu-
hækkun kæmi ofan á launin. En í
einkaviðtölum við Þjóðviljann
hafa ýmsir iðnrekendur í Reykja-
vík lýst sig fúsa til að gera slíka
samninga.
Þegar kom hins vegar til form-
legs samningafundar milli aðil-
anna á laugardag hafði VSÍ haft
veður af málinu, og sendi Magn-
ús Gunnarsson framkvæmda-
stjóra VSÍ ásamt Vilhjálmi Eg-
ilssyni hagfræðingi þess á staðinn
og hugmyndirnar sem iðnrekend-
ur höfðu áður viðrað gufuðu upp.
Þess má geta að staða iðnaðar-
ins er mjög góð um þessar mundir
og margir iðnrekendur því fúsir
til að semja svo komast megi hjá
vinnudeilum er kynnu að lama
framleiðslu.
-ÖS
Mengun
Malbik-
unarstöð
án leyfis
í þéttbýli
Beðið eftir
greinargerð frá
eigendum. Ibúar
uppgefnir á að geta
ekki opnað glugga.
Malbikunarstöðin sem Miðfell hefur rekið í sumar án starfsleyfis er í næsta nágrenni byggðarinnar í Garðabæ og veldur íbúum óþægindum. Mynd: eik.
Austfirðir
Vaðandi síld
Stórsíld veidd í lagnet til beitu á Reyðarfirði og Eskifirði.
Talsvert af blóðsíld að jafna sig eftir hrygningu.
Vaðandi sfldar hefur orðið vart
bæði í Reyðarfirði og Eski-
firði að undanförnu og sfldin
jafnvel vaðið upp í fjörur. Fitu-
magnið í sfldinni innan fjarða
hefur verið um 10 til 14 prósent,
en sfld er yfirleitt ekki söltuð
nema hún hafi náð 14 prósent
fitu. Á Skjálfanda og útaf Siglun-
esi hefur líka orðið vart við tölu-
vert af sfld, og hún hefur verið allt
að 16 prósent feit. Sfldveiðar
mega hefjast 1. október.
„Þetta var falleg síld, ekki
mjög feit og talsvert af ný-
hrygndri blóðsfld í bland", sagði
Hallgrímur Jónasson, hjá Fis-
kverkun Gunnars og Snæfugls á
Reyðarfirði. Hann bætti við að
það væri að verða árviss viðburð-
ur að sjá sfld vaða á fjörðum þar
eystra.
„Hér á Eskifirði höfum við séð
vaðandi sfld og eitthvað hefur
verið veitt til beitu og jafnvel salt-
að líka“, sagði Kristján Aðal-
steinsson hjá söltunarstöðinni
Auðbjörgu á Eskifirði. „Þetta er
stór sfld og við lifum í voninni um
að það verði mikið að gera hér í
sfldinni í vetur. Það veltur á því
hvort það semst við Rússann um
kaup á saltsfld. Fulltrúi þeirra
kemur til landsins í næsta mánuði
og ég vona þetta verði allt klárt
þegar hefja má veiðarnar".
Konráð Þórisson líffræðingur
hjá Hafrannsókn taldi að þetta
væri nýhrygnd blóðsfld sem væri
að jafna sig inná fjörðum. „Ef
hún kemst í gott æti fitnar hún
mjög fljótt, allt að því eitt prósent
á dag. Hún þarf þó að komast í 14
prósent fitu til að verða söltunar-
hæf“.
Nýhrygnd blóðsfld er hins veg-
ar yfirleitt ekki nema 10 til 11
prósent feit, og því ekki söltunar-
hæf, enda oft svört og illa farin en
má hins vegar nota í beitu.
-ÖS
Malbikunarstöð í gryfjunni við
Búðahverfi og Holtahverfi í
Garðabæ hefur verið starfrækt í
sumar án leyfis heilbrigðisyfir-
valda. Reykur, sterk olíulykt, há-
vaði og titringur hefur angrað
íbúa þessara hverfa verulega og
er ekki hægt að opna glugga þeg-
ar vindátt blæs reyknum upp að
húsunum. Undirskriftum hefur
verið safnað þar sem íbúar mót-
mæla staðsetningu stöðvarinnar
harðlega.
Heilbrigðisyfirvöld kröfðust f
sumar starfsleyfisumsóknar frá
eigendum stöðvarinnar, Miðfelli
hf. Umsóknin barst fyrir viku en
greinargerð um umfang starfsem-
innar og mengunarvarnir sem átti
að fylgja með, vantaði. Yfirvöld
bíða nú eftir henni áður en
ákvörðun um framhald verður
tekin og íbúar mega þola meng-
unina á meðan.
Þjóðviljinn heimsótti malbik-
unarstöðina og íbúa í næsta ná-
grenni í gær og er sagt frá því á
bls. 3.
-JP-
Álviðrœðurnar
í leiðara og
radarstöð varnar
í klippi á bls. 4
Sjá einnig um
radarstöðvarnar
á baksíðu