Þjóðviljinn - 29.08.1984, Síða 2
FRETTIR
Refurinn
Hvar eru
tilmælin?
Sævar Kristinn á Rauðabergi með dætrum sínum Þórdísi og Guðrúnu Freydísi: Skipting lífsins gæða í þessu landi
ískyggileg. (Mynd GÓ).
Pólitík
Samfylking til vinstri
Sœvar Kristinn Jónsson: Itök jafnaðarmanna í öllum
flokkum minni en eðlilegt vœri. Séfyrir mér stóran og
sterkan vinstriflokk. En þá verða margir smákóngar
að láta afvöldum.
að eru hreinlega iandslög sem
scgja fyrir um eyðingu refa og
minka og það er ekkert nýtt að
þeim lögum hafi verið framfylgt á
Hornströndum, sagði Lára H.
Oddsdóttir á ísafirði forseti Nátt-
úruverndarsamtaka Vestfjarða
og fulltrúi í Náttúruverndarráði.
„Reglugerð um friðland á
Hornströndum tekur ekki fram
fyrir þessi lög fremur en önnur“,
sagði Lára, „en hins vegar sam-
þykkti aðalfundur Náttúruvernd-
arsamtaka Vestfjarða 1980 til-
mæli um að refurinn á Horn-
ströndum yrði friðaður til nokk-
urra ára í rannsóknarskyni. Ég
veit ekki á hvaða skrifborði þau
tilmæli hvfla nú, en það mun vera
í landbúnaðarráðuneytinu eða í
Búnaðarfélaginu. Alla vega hafa
engin svör borist við þeim og
árangurinn því enginn orðið. I
Náttúruvemdarráði sem fékk til-
mælin send voru ekki uppi nein
mótmæli við hugmyndina og
heldur ekki í Náttúrufræðistofn-
un sem fer með rannsóknir sem
þessar. Þarna var gert ráð fyrir að
utan svæðisins yrðu hafðar uppi
hefðbundnar aðgerðir við
eyðingu refs og einnig að leitað
yrði aðstoðar grenjaskytta við
merkingu refsins."
„Það er mjög þýðingarmikið
að þessar rannsóknir eigi sér stað
og njóti velvildar þeirra sem með
málin fara“, sagði Lára. „Þar
nægir t.d. að benda á hættuna á
útbreiðslu hundaæðis með refn-
um en ef svo illa vildi til að hunda-
æði bærist hingað er ekkert vitað
Eg vinn fyrir sparifjáreigendur,
sagði Ármann Reynisson,
eigandi Ávöxtunar sf. við Þjóð-
viljann í gær, - og ávaxta fé þeirra
I stað þess að það sé rýrt hrika-
lega einsog hér hefur viðgengist.
Það er von að mín starfsemi sé illa
séð af þeim sem hafa stundað
slíka iðju.
- Ég er að reyna að vinna hér
upp eðlileg viðskipti í þessum
efnum og starfa fyrir opnum
tjöldum, sagði Ármann. - Vegna
þess að bankarnir standa sig ekki
fer hluti viðskiptalífsins fram í
neðanjarðarhagkerfi. Menn hafa
verið að koma til mín með víxla
og annað í þessu neðanjarðar-
hagkerfi, en ég tek ekki þátt í því.
Viðskiptaráðuneytið hefur fal-
ið bankaeftirlitinu að sjá til þess
að fyrirtækið Ávöxtun hætti að
auglýsa tilboð sín um ávöxtun
fjármagns og telur að auglýsing-
arnar séu ekki í samræmi við lög
um sparisjóði. Hinsvegar er ekk-
ert taiið ólöglegt við sjálfa starf-
semi Ávöxtunar.
- Þetta er í athugun hjá mér og
lögfræðingi mínum, sagði Ár-
mann, ég hætti auðvitað að aug-
lýsa ef það brýtur gegn lögum. Eg
skil ekkert í vinnubrögðum
bankaeftirlitsins. Hér kom Þórð-
ur Ólafsson frá eftirlitinu að
kynna sér starfsemi fyrirtækisins.
Ég lagði mín spil á borðið, en hef
um dreifingu refsins þannig að
menn gætu ekki gripið strax til
skipulegra aðgerða. Það hefur
heyrst að það hafi vafist fyrir
mönnum hvort hægt væri að veita
undanþágu frá lögunum um
eyðingu refa eða hvort þarna
þyrfti að koma til lagabreyting,
alla vega virðist þetta hafa staðið
í mönnum“.
Lára benti á að Hornstrandir
væru gífurlega stórt svæði og erf-
itt yfirferðar og það ásamt fjár-
skorti Náttúruverndarráðs væri
ástæðan fýrir því að þar væru ekki
eftirlitsmenn. Hins vegar gætu
eftirlitsmenn Náttúruverndar-
ráðs ekki tekið á lögbrotum eins
og veiðiþjófnaði eða ólöglegri
meðferð skotvopna þó þeir yrðu
varir við slíkt, það væri verkefni
lögreglunnar og sýslumanns á
ísafirði. „Ég get ekki ímyndað
mér annað en það þurfi lögreglu-
vernd á svæðið ef ekki er hægt að
höfða til hins betra í manninum“,
sagði hún.
Lára sagði að lokum að sam-
starf við landeigendafélög Sléttu-
hrepps og Grunnavíkurhrepps
hefði verið mjög gott og hefði
nýja reglugerðin verið unnin
sameiginlega af þeim og Náttúru-
verndarráði. Hún sagði að þó
Náttúruverndarráð og Náttúru-
vemdarsamtök Vestfjarða væru
auðvitað ekki hafin yfír gagnrýni
þá hefði Hallvarður í viðtalinu
vegið talsvert að samtökunum og
bjóst hún við að samtökin myndu
láta eitthvað frá sér fara vegna
þess innan tíðar. - ÁI
ekki fengið afrit af skýrslu hans,
og það fyrsta sem ég fæ að vita um
þetta er í blaðafréttum. En þetta
hefur snúist í höndum þeirra, - ég
er að drukkna í viðskiptum og
amstri vegna frétta af þessu, og
þarf kannski ekkert að auglýsa
það sem eftir er.
Fyrirtæki Ármanns starfar
þannig að fé viðskiptavina er
tekið í fjárvörslu og fyrir það
keypt skuldabréf sem stöndug
fyrirtæki eiga á þriðja aðila. Fyr-
irtækin bera sjálf ábyrgð á van-
skilum. Ávöxtun sf. býður mun
betri kjör en bankakerfíð, 32%
fasta vexti eða verðtryggingu
samkvæmt lánskjaravísitölu og
allt að 10% vöxtum að auki.
Ávöxtun sf. fær í sinn hlut 2% af
söluverði skuldabréfanna frá
fyrirtækjunum. Ávöxtun setur
engin skilyrði um lágmarksupp-
hæð en algengast er að viðskipta-
menn leggi fram fjárhæðir í
tugum og hundruðum þúsunda.
- Ég sérhæfði mig í verðbréfa-
viðskiptum og alþjóðaviðskipt-
um í The London School of Éc-
onomics, og síðan ég hóf störf hér
heima fyrir tveim árum hef ég
unnið betur fyrir mína viðskipta-
vini en margir aðrir. Það er
greinilega illa liðið að ég kynni
það í auglýsingum.
- m
Mér líst illa á hvernig jafnaðar-
menn í öllum flokkum eru að
lemja hver á öðrum, þeirra ítök
eru miklu minni en eðlilegt væri.
Nær væri að þessir aðilar ynnu
saman. íhaldið fær allt of mikið
út á þessa sundrungu. Hér á ég
við þá sem eru á milli þeirra sem
eru lengst til vinstri og hægri í
stjórnmálunum, Alþýðubanda-
lagið, Alþýðuflokkinn, Kvenna-
framboðið, Bandalag jafnaðar-
manna, verulegan hluta Fram-
sóknarflokksins og slangur úr
Sjálfstæðisflokki. Þetta fólk er
félagshyggju- og samvinnufólk.
Vegna þessarar sundrungar hef
ég ekki viljað skipa mér í neinn
ákveðinn stjórnmálaflokk.
Þetta hafði Sævar Kristinn
Jónsson kennari og bóndi á
Rauðabergi á Mýrum, A-Skaft.
að segja þegar Þjóðviljinn innti
hann eftir áliti á stöðu
stjórnmálanna nú.
- Samtök ungra framsóknar-
manna ætluðu að beita sér fyrir
slíkri samfylkingu hér fyrir rúm-
um áratug, en fengu ekki undir-
tektir hjá forystunni. Nú tala for-
ystumenn Alþýðubandalagsins í
þessa átt, mér finnst góðs viti að
heyra þetta frá forystu stærsta
flokksins á þessum væng. En ég
veit ekki hvaða undirtektir þetta
fær.
Framsókn hefur breyst. Nú
virðist þar enn meiri tvískinnung-
ur en var og hún virðist eiga meiri
og meiri samleið með Sjálfstæðis-
flokknum, þótt þaðséekki játaðí
stefnuskrá. Það er erfitt að henda
reiður á þessu. SÍS og Framsókn
er reyndar ekki það sama, en það
var eitthvað kengbogið við það,
þegar þeir stofnuðu fsfilm með
sínum höfuðandstæðingi.
- Hvernig sérðu fyrir þér sam-
vinnu vinstri manna?
- Ég sé hana fyrir mér sem stór-
an og sterkan flokk, en þá verða
margir smákóngar að láta af völd-
um og það gerist nú ekki snögg-
lega. Hér hlýtur að verða um að
ræða hægfara þróun og trúlega
einhverjar þrengingar. Kannski
sjá menn nú, eftir þessa ríkis-
stjórn, að þeir eiga ekki annan
kost. Stofnun flokks Samhygðar,
sem er enn einn flokkurinn á
þessum væng, undirstrikar þörf-
ina á að ná saman á þessum slóð-
um, frekar en að stofna nýja
flokka.
- Hvað segirðu um atvinnu-
málin í landinu nú?
- Nú er svipað ástand hér á
landi og var í lok viðreisnar. Þá
var hægt að grípa til þess ráðs að
færa út landhelgina og veiða
meiri físk og auka þar með at-
vinnuna. Nú er ekki hægt að fara
þá leið. Þá er iausnin, að mati
margra, erlend stóriðja og
aukinn gróði af hernum. Ég er
dauðóánægður með þær leiðir.
Verstir finnst mér þeir sem sigla
undirfölskuflaggi, eru t.d. á móti
gjaldtöku af hernum í orði
kveðnu, en eru alltaf að róa að
því að hafa sem mest út úr hern-
um. Ég met meira þá sem koma
til dyranna eins og þeir eru
klæddir.
Grænmetisverslun landbúnað-
arins á að sinna öðrum afurð-
um en kartöflum, en reynslan hef-
ur sýnt að vandamál á sviði versl-
unar með almennt grænmeti eru
enn meiri en með kartöflur. Það
væri því í hæsta máta óeðlilegt
nú, að fela kartöflubændum ein-
um forræði yfir gögnum og gæð-
um stofnunar sem reist hefur ver-
ið á kostnað neytenda. Þetta segir
í ályktun um verslun með kart-
öflur og grænmeti sem samþykkt
var á fundi stjórna Neytendas-
amtakanna og Neytendafélags
Reykjavíkur og nágrennis á
fimmtudaginn.
Neytendafélögin leggjast alfar-
ið gegn þeirri hugmynd sem fram
hefur komið af hálfu Landssam-
bands kartöflubænda, að því
verði falin stjórn Grænmetis-
verslunar landbúnaðarins. Versl-
unin sé óþörf í núverandi mvnd
Ég er ekki á móti stóriðju sem
slíkri, ef hún er í okkar höndum,
en hún fellur illa að fámenni og
veldur byggðaröskun og félags-
legu umróti.
Annars er skipting lífsins gæða
í þessu landi ískyggileg, sumir
hafa vart til hnífs og skeiðar en
aðrir virðast hafa yfrið nóg. Það
fæst enginn varanlegur bati af því
að þrautpína þennan smáhluta af
þjóðinni til að halda verðbólg-
unni niðri, sagði Sævar Kristinn
að lokum en hann hefur nú
ákveðið að hvfla sig á kennslu í
bili og snúa sér alfarið að refa- og
sauðfjárrækt á Rauðabergi.
- GGÓ
og félögin telja einhliða stjórnun
framleiðenda á sölumálum kart-
aflna óviðunandi.
Neytendasamtökin og Neyt-
endafélag Reykjavíkur og ná-
grennis krefjast þess að landbún-
aðarráðherra breyti reglum um
Grænmetisverslun landbúnaðar-
ins þannig að hún gæti starfað
sem gæðaflokkunarmiðstöð fyrir
alla þá sem óska og einnig flutt
inn og dreift grænmeti í sam-
keppni við aðra aðila.
Kaupmannasamtökin hafa
sent Framleiðsluráði landbúnað-
arins bréf þar sem þess er óskað
að heildsöluleyfi verði veitt þeim
sem uppfylla nauðsynleg skilyrði
til að selja kartöflur. Vikið er að
því að aðlaga þurfi framleiðslu
bænda að breyttum og betri versl-
unarháttum.
-jþ
Fjármagn
Starfa fyrir
opnum tjöldum
Ármann í Ávöxtun: Tek ekki þátt
í neðanjarðarhagkerfinu.
Grœnmetisverslunin_
Kröfur um
breytingar
Neytendasamtökin og Neytendafé-
lag Reykjavíkur & nágrennis krefj-
ast breytinga á starfsháttum Grœn-
metisverslunarinnar. Kaupmanna-
samtökin mótmœla einnig.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 29. ágúst 1984