Þjóðviljinn - 29.08.1984, Síða 6
•agfc, Tilkynning
S til innflytjenda
Fjármálaráðuneytið hefur með reglum nr. 367/1984
heimilað að taka megi upp einfaldari tollmeðferð á
innfluttum vörum. Samkv. 2. gr. reglnanna skal inn-
flytjandi sem óskar eftir einfaldari tollmeðferð uppfylla
eftirtalin skilyrði:
a) Innflytjandi stundi atvinnurekstur og hafi til þess
tilskilin leyfi, svo sem verslunarleyfi, sbr. lög nr.
41/1968, eða iðnaðarleyfi, sbr. lög nr. 42/1978.
b) Innflytjandi hafi tilkynnt Hagstofu íslands um at-
vinnustarfsemi sína og hafi verið færður á fyrir-
tækjaskrá, sbr. lög nr. 62/1969.
c) Innflytjandi hafi tilkynnt skattstjóra um starfsemi
sína, enda sé hann ekki sérstaklega undanþeginn
söluskattsskyldu, sbr. lög nr. 10/1960.
d) Innflytjandi hafi flutt inn vörur á næstliðnu 12 mán-
aða tímabili fyrir 16 mkr. að tollverði eða tollaf-
greiðslur verið minnst 200 að tölu á sama tíma.
Viðmiðunartölur þessar skulu lækka um helming
frá og með 1. janúar 1985.
e) Innflytjandi hafi að mati tollstjóra sýnt fram á við
gerð og frágang aðflutningsskjala að hann hafi til
að bera fullnægjandi þekkingu á þeim lögum og
reglum sem gilda um tollmeðferð innfluttra vara.
Innflytjandi sem uppfyllir framangreind skilyrði skal
sækja skriflega á þar til gerðu eyðublaði um einfaldari
tollmeðferð til tollstjóra þar sem lögheimili hans er
samkvæmt fyrirtækjaskrá. í umsókn skal tilgreina
eftirtalin atriði:
a) Nafn, aðsetur og starfsnúmer. Starfsnúmer inn-
flytjanda skal vera nafnnúmer hans eða auðkenn-
isnúmer í fyrirtækjaskrá, sbr. b-lið 2. gr.
b) Númer söluskattsskírteinis og vörusvið þess.
c) Innflutningsverðmæti á síðastliðnum 12 mánuðum
og fjölda tollafgreiðslna á sama tíma.
d) Hverjir hafi umboð til þess að undirrita aðflutnings-
skýrslurfyrir hönd innflytjanda, riti hann ekki sjálfur
undir þær, svo og rithandarsýnishorn.
e) Aðrar þær upplýsingar sem eyðublaðið gefur tilefni
til.
Eyðublaðið ásamt sérprentun af reglunum fæst í fjár-
málaráðuneytinu og hjá embættinu. Um frekari fram-
kvæmd hinnar einfaldari tollmeðferðar, sem komið
getur til framkvæmda 1. október n.k., vísast til reglna
nr. 367/1984.
Er innflytjendum bent á að kynna sér reglur þessar og
senda umsóknir til embættisins.
22. ágúst 1984
Tollstjórinn í Reykjavík
Vegna úthlutunar
úr framkvæmdasjóði
fatlaðra árið 1985
Með skírskotun til 27. gr. laga no. 41/1984 um málefni
fatlaðra.
Vegna úthlutunar úr framkvæmdasjóði fatlaðra árið
1985, óskar svæðisstjórn Reykjavíkur eftir umsóknum
frá félagasamtökum í Reykjavík sem áforma fram-
kvæmdir í þágu fatlaðra á næsta ári.
Umsóknir berist fyrir 7. sept. n.k. ásamt ýtarlegum
upplýsingum um framkvæmda- og kostnaðaráætlan-
ir.
Svæðisstjórn Reykjavíkur
um málefni fatlaðra
Hátúni 10, 105 Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
Námskeið um sársauka og verki verður haldið dag-
ana 17.-18. september n.k. og endurtekið 20.-21.
sama mánaðar í samkomusal BSRB, Grettisgötu 89,
4. hæð. Námskeiðið er frá kl. 09.00 til 16.00 báða
dagana.
Námskeiðsgjald er kr. 600.00
Fyrirlesari er dr. Beatrice Sofaer frá Edinborg. Hún
hefur stundað rannsóknir á þessu sviði og varið dokt-
orsgráðu um „Áhrif markvissrar fræðslu um verki eftir
aðgerð."
Upplýsingar og skráning á skrifstofu Hjúkrunarfélags
íslands símar 15316 og 21177 og í Hjúkrunarskóla
íslands, símar 16077 og 18112.
Hjúkrunarfélag íslands
Félag háskólamenntaðra hjúkrunartræðinga
MENNING
Sjóminjasafn
reist í Hrísey
„Þegar „nýja síldarstöðin" var
rifin fyrir nokkrum árum vaknaði
áhuginn á að koma í veg fyrir
frekari niðurrif á þessum gömlu
húsum og hún þróaðist í hug-
mynd að sjóminjasafni með að-
setur í gömlu húsaröðinni sem
eftir stendur.
Þessi húsaröð, sem fyrirhugað
var að rífa, er eins og sköpuð fyrir
sjóminjasafn og gæti upplýsinga-
miðstöð, minjagripasala og aðal-
hús byggðarsafnsins verið í
gömlu Möllers-versluninni.
Þarna er hákarlahjallur, línu- og
beitingaskúrar, og verbúðir, allt
frá árabátatímanum til mótor-
bátaútgerðar og fram til okkar
daga. Slík hús eru nú sem óðast
að hverfa og ég tel að þarna sé
einstök aðstaða til að endur-
byggja gamla útgerðarstöð, sem
auk þess hefðir mikið aðdráttar-
afl fyrir ferðamenn".
Einar Vilhjálmsson, áhuga-
maður urri sjóminjasafn í Hrísey
segir svo frá hugmyndum sínum,
en hann lánaði okkur þessar
myndir sem hér eru birtar. Hann
sagði ennfremur að því miður
hefðu gamlar verslunarbækur
verið eyðilagðar fyrir nokkrum
árum og sífellt hefði verið gengið
á þessi gömlu verðmæti, en nú
væru menn að vakna til meðvit-
undar um nauðsyn þess að varð-
veita þau og nýta í safn, er gæti
sýnt þróunarsögu sjávarútvegsins
í þessum landshluta. þs
Þetta er „nýja síldarstöðin", skemman sem því miður var rifin fyrir nokkrum
árum.
Hér sjáum við síðustu leifar af eldri byggð í Hrísey, sem hreppsnefndin hafði fyrirhugað að rífa. Möllersbúðin er fremst á
myndinni, þá verbúðir, beituskúrar og hákarlahjallur fjærst. Mynd Einar Vilhjálmsson.
Myndlist
Samsýning í Listamiðstöðinni
Hreggviður Hermannsson og inni við Lækjartorg. Þeir sýna 25. ágúst til 2. september frá 1-10
Páll S. Pálsson opnuðu á Iaugar- myndir unnar með bleki, vatns- um helgar og 1-7 virka daga.
dag samsýningu í Listamiðstöð- litum og olíu. Sýningin er opin
Hreggviður við nokkur verka sinna. Ljósm. Atli.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. ágúst 1994