Þjóðviljinn - 29.08.1984, Page 7
MENNING
LEIKLIST
Af heimsslitamálum
Jan Bergquist sýnir Jhe Last Talk Show" í Félagsstofnun stúdenta
Sænski leikarinn Jan Bergquist æfir
sig með eina leikmuninn sem hann
notar í sýningunni, heyrnartækið.
Ljósm. Atli.
Sænski leikarinn Jan Bergqu-
ist kom hingað til lands á vegum
Friðarráðstefnu norðurhafa og
flutti einmenningsverk eftir sjálf-
an sig sem hann kallar „En
knapp timme" á sænsku en „The
Last Talk Show“ á ensku, einu
sinni á hvoru máli. Ég var við-
staddur fyrri sýninguna, á ensku,
og var þar slangur af ráðstefnu-
gestum en varla gat heitið að sæ-
ist þar sála utan úr bæ og þótti
mér undarlegt að fólk skyldi ekki
sýna þessum ágæta leikara meiri
áhuga, eða nenna menn ekki
lengur að sinna friðarmálum og
leiklist á íslandi?
Þessi einmenningur Bergquists
var ágætisskemmtan og fróðlegur
eftir því. Hann er byggður upp
sem æfing fyrir sjónvarpsþátt um
kjarnorkuvígbúnað, þar sem
stjórnandi þáttarins útskýrir gang
hans og leikur alla viðmælendur
sína sjálfur. Þarna koma fram
ýmsir sérfræðingar og flytja mál
sitt og eru flestir að verja núver-
andi stefnu í kjarnorkuvopna-
málum, en Bergquist notar háð
með mjög markvissum hætti til
að gera málflutning þeirra fárán-
legan. Til dæmis að taka hlustum
við á kjarneðlisfræðing mótmæla
harðlega þeim fullyrðingum að til
séu kjarnorkuvopn í heiminum til
að drepa allt mannfólkið um það
bil hundrað sinnum. Nei, nei,
nei, segir hann, þetta eru fárán-
legar ýkjur vondra manna - það
eru ekki til vopn nema til að
drepa það tuttugu sinnum.
Bergquist kemur víða við,
hann fjallar um eðli og verkanir
kjarnorkuvopna, um kostnað af
hemaðarbrölti, um vígbúnaðar-
kapphlaupið, um villandi upplýs-
ingar um manninn sem voru
sendar útí geiminn fyrir
skemmstu - á mynd af karli og
konu á heimsfrægri málmplötu
var konan sýnd án kynfæra, sem
hlýtur að rugla geimverur þær
sem plötuna finna meira en lítið í
ríminu. Taldi Bergquist sennileg-
ast að þær mundu álykta sem svo
að þarna væri verið að sýna þróun
mannsins; fyrst hefði hann haft
rófu, en hún hefði síðan dottið af.
Bergquist bregður sér einnig í
Iíki geimveru sem heimsækir
jörðina og gefur síðan skýrslu um
þá einkennilegu dýrategund sem
hér er ríkjandi og óskiljanlegt
hátterni hennar. Þetta er aðferð
sem þekkt er úr vísindaskáldskap
og getur gefið góða raun, en var
einna daufasti þátturinn í þessari
sýningu. Mun smellnara var
samtal við Napóleon sem hafði
verið vakinn upp úr djúpfryst-
ingu og fékk nú útlistun á her-
stjórnarlist nútímans með þeim
afleiðingum að hann flýtti sér of-
aní frostið aftur.
Sýning einsog þessi getur
áreiðanlega vakið fólk til
umhugsunar um þá alvarlegustu
hættu sem að mannkyninu steðj-
ar um þessar mundir, og hún er
auk þess prýðileg skemmtun. Það
var þess vegna grátlegt að síð-
astliðið föstudagskvöld skyldu
engir vera viðstaddir utan lítill
hópur manna sem hugsað hafa
þegar meira um þessi mál en aðrir
og þurftu því þeim mun minna á
þessari vakningu að halda.
Jan Bergquist er snjall leikari
og kann vel að beita látbragði,
sem hann stillir þó í gott hóf.
Hann fór létt með að halda at-
hygli áhorfenda glaðvakandi
þennan klukkutíma. Hafi hann
kæra þökk fyrir komuna og góða
skemmtan.
Sverrir Hólmarsson.
Söngnámskeið á Hvolsvelli
- nýjung í tónlistarlífinu
„Mikill áhugi, ekki síður hjá karlmönnunum", segir Elín Ósk, sem er á förum til
Mílanó, en kennir á söngnámskeiði á Hvolsvelli þessa dagana.
„Þetta er í fyrsta sinn sem hald-
ið er námskeið af þessu tagi á
vegum TónHstarskóla Rangæ-
inga og mér sýnist aðsóknin ætla
að verða ágæt“, sagði Elín Ósk
Óskarsdóttir, söngvari, sem hóf í
gær kennslu í söng á 10 daga
námskeiði austur á Hvolsvelli.
Elín, sem er ættuð að austan,
sagðist vera á förum til söngnáms
til Mflanó í haust ásamt unnusta
sínum, Kjartani Ólafssyni, en
hann kennir einnig á nám-
skeiðinu á Hvolsvelli.
„Tímarnir verða bæði á daginn
og á kvöldin, einkatímar og hóp-
tímar. Það er mikill áhugi fyrir
þessu og þá ekki síður hjá karl-
mönnunum. Við munum einnig
kenna tónfræði og leiðbeina
varðandi kórstarf", sagði hún.
Um 240 nemendur verða í
Tónlistarskóla Rangæinga í vetur
(til áramóta) en skólinn hefur
starfað í 26 ár.
Þeir sem hafa áhuga á söng-
námskeiðinu geta hringt í síma
99-8161, en kennslan fer fram í
húsnæði skólans á Hvolsvelli.
þs
Karen í Borg
Karen Agnete Þórarinsson opnar á morgun fyrstu einkasýningu sína
hérlendis og verður hún í Gallerí Borg. Hún hefur sýnt margsinnis hér
á landi með eiginmanni sínum, Sveini Þórarinssyni og einnig hefur hún
sýnt á samsýningum. Er nú langt síðan hún hefur sýnt og er þessi sýning
hennar hér því merkur listviðburður.
Miövikudagur 29. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7